AI assistant
Reitir fasteignafélag — Interim / Quarterly Report 2020
Aug 24, 2020
2202_10-q_2020-08-24_7b768e42-6388-4662-843a-eb83737cb33a.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Reitir fasteignafélag
Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar 1. janúar til 30. júní 2020
| Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra | 3 |
|---|---|
| Könnunaráritun óháðs endurskoðanda | 5 |
| Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu | 6 |
| Efnahagsreikningur | 7 |
| Eiginfjáryfirlit | 8 |
| Sjóðstreymisyfirlit | 9 |
| Skýringar | 10 |
| Ársfjórðungsyfirlit um heildarafkomu | 15 |
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Starfsemi Reita fasteignafélags hf. felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis sem að stærstum hluta er verslunarog skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34. Samstæða félagsins samanstendur af móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi hf., ásamt níu dótturfélögum sem öll eru 100% í eigu móðurfélagsins. Árshlutareikningurinn er kannaður af endurskoðendum félagsins.
Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu nam heildartap af rekstri samstæðunnar 1.223 millj. kr. á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2020. Eigið fé samstæðunnar í lok mars var 44.565 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Í lok ársfjórðungsins voru hluthafar í Reitum fasteignafélagi hf. 880 en þeir voru 1.012 í ársbyrjun.
Staða og horfur vegna Covid-19
Áhrifa Covid-19 veirusýkingarinnar gætir víða í íslensku samfélagi og atvinnulífi og ekki er fyrirséð ennþá hvenær þau áhrif fjara út. Reitir hafa gripið til ýmissa aðgerða til þess að styrkja félagið og auðvelda því að glíma við afleiðingar faraldursins. Gætt hefur verið vel að lausafjárstöðu, m.a. með sölu eigna og sölu skuldabréfa, með frestun afborgana af bankalánum og með tryggðu aðgengi að lánalínum. Þá var ákveðið í mars sl. að fresta arðgreiðslu vegna 2019 og endurkaupum á eigin hlutum hætt. Staða Reita til þess að fást við þessar óvenjulegu aðstæður er því sterk og lánaskilyrði félagsins vel innan þeirra marka sem félaginu eru sett.
Áhrif Covid-19 skýra að mestu leyti samdrátt í afkomu félagsins á fyrri hluta ársins samanborið við fyrra ár. Skýra má rúmlega 300 millj. kr. áætlað tekjutap árshlutans beint til afleiðinga veirunnar. Umfang áætlaðs tekjutaps, sem kemur fram í uppgjöri annars ársfjórðungs, er í samræmi við mat stjórnenda á fjárhagslegu umfangi afleiðinga veirunnar sem kynnt hefur verið.
Að mati stjórnar og stjórnenda Reita eru horfur í efnahagslífinu nú með þeim hætti að ástæða sé til að styrkja eiginfjárstöðu félagsins. Reitir vilja vera virkur þátttakandi á markaði með atvinnuhúsnæði og telja mikilvægt að auka fjárfestingargetu sína enda telur félagið markaðsaðstæður nú og á næstu misserum verða hagfelldar til fasteignakaupa og fjárfestinga í húsnæði í samvinnu við núverandi og nýja viðskiptavini. Stjórn hefur því ákveðið að boða til hluthafafundar þann 22. september nk. þar sem sú tillaga verður lögð fram að auka hlutafé Reita um allt að 200 milljón hluti eða jafnvirði um 9 milljarða á markaði í dag.
Stjórn hefur jafnframt ákveðið að greiða út áður frestaða arðgreiðslu þann 9. september enda meta lögfræðiráðgjafar félagsins ekki annað tækt. Félagið áformar hins vegar að endurheimta þessa fjárhæð með framangreindri tillögu til hluthafa um kaup á nýju hlutafé.
Eins og áður hefur komið fram, þá hefur félagið mætt þeim leigutökum sem orðið hafa fyrir verulegum áhrifum af stöðunni með skilningi á aðstæðum. Leigugreiðslum hefur verið frestað að hluta og mun félagið leita niðurstöðu þeirra mála í góðu samstarfi við viðkomandi aðila þegar aðstæður leyfa.
Yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu.
Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að samstæðuárshlutareikningur félagsins gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 30. júní 2020 og rekstrarafkomu hennar og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2020.
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra, frh.:
Yfirlýsing stjórnar og forstjóra, frh.:
Jafnframt er það álit okkar að samstæðuárshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar og, í samhengi við ársreikning samstæðunnar, lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.
Stjórn og forstjóri Reita fasteignafélags hf. hafa í dag fjallað um samstæðuárshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2020 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Reykjavík, 24. ágúst 2020
Í stjórn félagsins:
Þórarinn V. Þórarinsson
Martha Eiríksdóttir Thomas Möller
Sigríður Sigurðardóttir Kristinn Albertsson
Forstjóri:
Guðjón Auðunsson
Könnunaráritun óháðs endurskoðanda
Til stjórnar og hluthafa Reita fasteignafélags hf.
Inngangur
Við höfum kannað meðfylgjandi samandreginn samstæðuárshlutareikning Reita fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2020. Samandregni samstæðuárshlutareikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit og skýringar.
Stjórn og forstjóri bera ábyrgð á gerð og framsetningu samandregna samstæðuárshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga nr. 3/2006. Ábyrgð okkar felst í ályktun okkar um samandregna samstæðuárshlutareikninginn sem byggir á könnuninni.
Umfang könnunar
Könnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410, sem fjallar um könnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Slík könnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem bera ábyrgð á fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum könnunaraðgerðum. Könnun felur ekki í sér jafn víðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við ekki í ljós álit um endurskoðun.
Ályktun
Við könnun okkar kom ekkert fram sem bendir til þess að meðfylgjandi samandreginn samstæðuárshlutareikningur sé ekki í öllum meginatriðum í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga nr. 3/2006.
Reykjavík, 24. ágúst 2020
Jóhann Unnsteinsson löggiltur endurskoðandi
105 Reykjavík Ernst & Young ehf. Borgartún 30
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 1. janúar til 30. júní 2020
| Skýr. | 2020 1.4. -30.6.* |
2019 1.4. -30.6.* |
2020 1.1. -30.6. |
2019 1.1. -30.6. |
|||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur og rekstrargjöld | |||||||||
| Leigutekjur | 7 | 2.560 | 2.928 | 5.441 | 5.805 | ||||
| Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna | 8 | ( | 662) | ( | 820) | ( | 1.476) | ( | 1.609) |
| Hreinar leigutekjur | 1.898 | 2.108 | 3.965 | 4.196 | |||||
| Stjórnunarkostnaður | ( | 156) | ( | 156) | ( | 318) | ( | 328) | |
| Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu | 1.742 | 1.952 | 3.647 | 3.868 | |||||
| Matsbreyting fjárfestingareigna | 11 | 20 | 1.093 | ( | 2.115) | 1.799 | |||
| Rekstrarhagnaður | 1.762 | 3.045 | 1.532 | 5.667 | |||||
| Fjármunatekjur | 51 | 42 | 108 | 78 | |||||
| Fjármagnsgjöld | ( | 1.907) | ( | 1.815) | ( | 3.004) | ( | 3.134) | |
| Hrein fjármagnsgjöld | 9 | ( | 1.856) | ( | 1.773) | ( | 2.896) | ( | 3.056) |
| (Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt | ( | 94) | 1.272 | ( | 1.364) | 2.611 | |||
| Tekjuskattur | 14 | ( | 97) | ( | 343) | 141 | ( | 685) | |
| ( | (Tap) hagnaður og önnur heildarafkoma 191) |
929 | ( | 1.223) | 1.926 |
| Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut | ( 0,29) |
1,35 | ( 1,85) |
2,79 |
|---|---|---|---|---|
Skýringar á blaðsíðum 10 - 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.
* Hvorki kannað né endurskoðað af ytri endurskoðanda félagsins
Efnahagsreikningur
30. júní 2020
| Skýr. | 30.6.2020 | 31.12.2019 | |
|---|---|---|---|
| Eignir | |||
| Fjárfestingareignir | 11 | 145.206 | 149.106 |
| Fastafjármunir | 145.206 | 149.106 | |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 10 | 1.925 | 1.310 |
| Krafa vegna sölu á fjárfestingareign | 551 | 0 | |
| Bundið fé | 42 | 34 | |
| Handbært fé | 3.287 | 1.190 | |
| Veltufjármunir | 5.805 | 2.534 | |
| Eignir samtals | 151.011 | 151.640 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 659 | 670 | |
| Yfirverðsreikningur innborgaðs hlutafjár | 21.041 | 21.796 | |
| Annað bundið eigið fé | 1.120 | 4.371 | |
| Óráðstafað eigið fé | 21.745 | 20.807 | |
| Eigið fé | 12 | 44.565 | 47.644 |
| Skuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 13 | 84.876 | 82.290 |
| Tekjuskattsskuldbinding | 11.476 | 11.616 | |
| Leiguskuldbinding | 5.133 | 5.474 | |
| Langtímaskuldir | 101.485 | 99.380 | |
| Vaxtaberandi skuldir | 13 | 2.909 | 3.007 |
| Ógreiddur arður | 12 | 1.090 | 0 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 962 | 1.609 | |
| Skammtímaskuldir | 4.961 | 4.616 | |
| Skuldir samtals | 106.446 | 103.996 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 151.011 | 151.640 |
Skýringar á blaðsíðum 10 - 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.
1. janúar til 30. júní 2020 Eiginfjáryfirlit
| Annað bundið eigið fé | |||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Yfirverðs- | Bundinn | ||||||||||
| reikningur | hlutdeildar | ||||||||||
| innborgaðs | Lögbundinn | reikningur | Óráðstafað | Eigið fé | |||||||
| Skýr. | Hlutafé | hlutafjár | varasjóður | dótturfélaga | eigið fé | samtals | |||||
| 1. janúar - 30. júní 2019 | |||||||||||
| Eigið fé 1. janúar 2019 | 690 | 23.643 | 425 | 2.503 | 19.653 | 46.914 | |||||
| Heildarafkoma tímabilsins | 1.926 | 1.926 | |||||||||
| Innleyst af bundnu eigið fé | ( | 2.894) | 2.894 | 0 | |||||||
| Fært á bundið eigið fé | 1.354 | ( | 1.354) | 0 | |||||||
| Greiddur arður | ( | 1.118) ( | 1.118) | ||||||||
| Eigið fé 30. júní 2019 | 12 | 690 | 23.643 | 425 | 963 | 22.001 | 47.722 | ||||
| Annað bundið eigið fé samtals | 1.388 | ||||||||||
| 1. janúar - 30. júní 2020 | |||||||||||
| Eigið fé 1. janúar 2020 | 670 | 21.796 | 425 | 3.946 | 20.807 | 47.644 | |||||
| Heildarafkoma tímabilsins | ( | 1.223) | ( | 1.223) | |||||||
| Innleyst af bundnu eigið fé | ( | 3.946) | 3.946 | 0 | |||||||
| Fært á bundið eigið fé | 26 | 669 | ( | 695) | 0 | ||||||
| Samþykkt arðgreiðsla | ( | 1.090) | ( | 1.090) | |||||||
| Endurkaup á eigin bréfum | ( | 11) | ( 755) |
( | 766) | ||||||
| Eigið fé 30. júní 2020 | 12 | 659 | 21.041 | 451 | 669 | 21.745 | 44.565 | ||||
| Annað bundið eigið fé samtals | 1.120 |
Skýringar á blaðsíðum 10 - 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.
Sjóðstreymisyfirlit
1. janúar til 30. júní 2020
| Skýr. | 2020 1.1.-30.6. |
2019 1.1.-30.6. |
|||
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrarhreyfingar | |||||
| (Tap) hagnaður tímabilsins | ( | 1.223) | 1.926 | ||
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | |||||
| Matsbreyting fjárfestingareigna | 11 | 2.115 | ( | 1.799) | |
| Hrein fjármagnsgjöld | 9 | 2.896 | 3.056 | ||
| Tekjuskattur | ( | 141) | 685 | ||
| 3.647 | 3.868 | ||||
| Skammtímakröfur, breyting | ( | 670) | ( | 321) | |
| Skammtímaskuldir, breyting | ( | 650) | ( | 645) | |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | ( | 1.320) | ( | 966) | |
| Innheimtar vaxtatekjur | 105 | 76 | |||
| Greidd vaxtagjöld | ( | 1.587) | ( | 1.569) | |
| Greidd lóðaleiga | ( | 122) | ( | 125) | |
| Handbært fé frá rekstri | 723 | 1.284 | |||
| Fjárfestingarhreyfingar | |||||
| Kaupverð nýrra fjárfestingareigna | 11 | ( | 140) | ( | 110) |
| Fjárfesting í endurbótum á fjárfestingareignum | 11 | ( | 1.068) | ( | 1.708) |
| Söluverð fjárfestingareigna | 11 | 2.652 | 0 | ||
| Aðrar kröfur, breyting | ( | 497) | ( | 30) | |
| Bundið fé, breyting | ( | 8) | 15 | ||
| Fjárfestingarhreyfingar | 939 | ( | 1.833) | ||
| Fjármögnunarhreyfingar | |||||
| Tekin ný langtímalán | 13 | 2.944 | 11.300 | ||
| Afborganir langtímalána | 13 | ( | 1.747) | ( | 7.770) |
| Greiddur arður | 12 | 0 | ( | 1.118) | |
| Endurkaup á eigin bréfum | 12 | ( | 766) | 0 | |
| Fjármögnunarhreyfingar | 431 | 2.412 | |||
| Hækkun á handbæru fé | 2.093 | 1.863 | |||
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | 4 | 5 | |||
| Handbært fé í ársbyrjun | 1.190 | 3.266 | |||
| Handbært fé í lok tímabilsins | 3.287 | 5.134 | |||
| Fjárfestingar- og fjármögnunarhreyfingar án greiðsluáhrifa | |||||
| Ógreiddur arður 2020 | 12 | 1.090 | 0 |
Skýringar á blaðsíðum 10 - 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.
Skýringar
1. Félagið
Reitir fasteignafélag hf. ("félagið") °kt. 711208-0700 er íslenskt hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru í Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2020 hefur að geyma árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess, sem eru Reitir - hótel ehf., Reitir - iðnaður ehf., Reitir - skrifstofur ehf., Reitir - verslun ehf., Reitir - þróun ehf., Norðurslóð 4 ehf., Vínlandsleið ehf., Reitir þjónusta ehf. og H176 Reykjavík ehf. sem vísað er til í heild sem samstæðunnar og til einstakra félaga sem samstæðufélaga eða dótturfélaga.
2. Grundvöllur reikningsskilanna
a. Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðum sé fylgt
Árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2019.
Stjórn félagsins staðfesti samstæðuárshlutareikninginn 24. ágúst 2020.
3. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir
Við gerð árshlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings samstæðunnar fyrir árið 2019. Hægt er að nálgast ársreikninginn hjá félaginu eða á vef þess www.reitir.is.
Árshlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum, sem er starfsrækslugjaldmiðill félagsins, og eru allar fjárhæðir birtar í milljónum króna. Hann er gerður á grundvelli kostnaðarverðs, að því undanskildu að fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði.
4. Mat og ákvarðanir
Gerð árshlutareikninga í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.
5. Áhrif Covid-19 á árshlutareikninginn
Efnahagsleg áhrif Covid-19 veirusýkingarinnar setja svip sinn á árshlutareikning félagsins. Skýra má samdrátt í rekstrarhagnaði fyrir matsbreytingu á árshlutanum að stórum hluta beint til þessara áhrifa. Helstu liðir árshlutareikningsins þar sem áhrifa Covid-19 gætir eru leigutekjur, matsbreyting fjárfestingareigna og viðskiptakröfur.
Áætlað er að leigutekjur samstæðunnar hafi dregist saman um 315 m.kr. á árshlutanum vegna efnahagslegra áhrifa Covid-19 veirusýkingarinnar og er það mat stjórnenda félagsins að áhrifa Covid-19 á tekjur félagsins muni gæta að minnsta kosti út árið 2021.
Matslækkun fjárfestingareigna á árshlutanum að fjárhæð 2.115 millj. kr. má að stærstum hluta rekja til þeirra væntinga sem stjórnendur hafa um samdrátt í tekjum á næstu misserum.
Félagið hefur mætt aðstæðum leigutaka sem orðið hafa fyrir verulegum áhrifum af stöðunni með skilningi. Leigugreiðslum fyrir apríl, maí og júní var frestað fram í síðari hluta ágústmánaðar fyrir þá leigutaka sem það þurftu. Staða viðskiptakrafna er því hærri á reikningsskiladegi en hefðbundið er.
6. Starfsþáttayfirlit
Starfsþáttayfirlit veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins. Starfsemi skiptist í fimm starfsþætti sem er rekstur mismunandi tegunda fasteigna.
2020
1.1 - 30.6
| Iðnaður og | ||||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Skrifstofur | Verslun | Hótel | annað | Þróun | Annað | Jöfnun | Samtals | |||||||||
| Leigutekjur | 1.964 | 1.924 | 680 | 775 | 95 | 335 | ( | 332) | 5.441 | |||||||
| Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna |
( | 486) | ( | 534) | ( | 190) | ( | 236) | ( | 44) | 14 | 0 | ( | 1.476) | ||
| Hreinar leigutekjur | 1.478 | 1.390 | 490 | 539 | 51 | 349 | ( | 332) | 3.965 | |||||||
| Stjórnunarkostnaður ( | 126) | ( | 117) | ( | 50) | ( | 47) | ( | 8) | ( | 302) | 332 | ( | 318) | ||
| Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu … |
1.352 | 1.273 | 440 | 492 | 43 | 47 | 0 | 3.647 | ||||||||
| Matsbreyting fjárfestingareigna … ( |
816) | ( | 255) | ( | 1.149) | 512 | ( | 407) | 0 | 0 | ( | 2.115) | ||||
| Rekstrarhagnaður … | 536 | 1.018 | ( | 709) | 1.004 | ( | 364) | 47 | 0 | 1.532 | ||||||
| Hrein fjármagnsgjöld Tekjuskattur |
( 2.896) 141 |
|||||||||||||||
| Heildatap … | ( | 1.223) | ||||||||||||||
| Staða 30. júní 2020 | ||||||||||||||||
| Fjárfestingareignir án nýtingaréttar lóðaleigusamninga … |
46.589 | 43.178 | 25.543 | 16.759 | 8.004 | 140.073 |
6. Starfsþáttayfirlit, frh.:
| 2019 1.1 - 30.6 |
Iðnaður og | |||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Skrifstofur | Verslun | Hótel | annað | Þróun | Annað | Jöfnun | Samtals | |||||
| Leigutekjur | 1.913 | 2.007 | 977 | 801 | 104 | 338 | ( | 335) | 5.805 | |||
| Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna |
( 468) |
( 663) |
( | 198) | ( | 238) | ( | 42) | 0 | ( 1.609) | ||
| Hreinar leigutekjur | 1.445 | 1.344 | 779 | 563 | 62 | 338 | ( | 335) | 4.196 | |||
| Stjórnunarkostnaður | ( 125) |
( 117) |
( | 52) | ( | 49) | ( | 7) | ( 313) |
335 | ( 328) |
|
| Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu… |
1.320 | 1.227 | 727 | 514 | 55 | 25 | 0 | 3.868 | ||||
| Matsbreyting fjárfestingareigna …405 |
1.584 | ( | 52) | ( | 132) | ( | 6) | 0 | 0 | 1.799 | ||
| Rekstrarhagnaður … | 1.725 | 2.811 | 675 | 382 | 49 | 25 | 0 | 5.667 | ||||
| Hrein fjármagnsgjöld Tekjuskattur |
( 3.056) ( 685) |
|||||||||||
| Heildarhagnaður … | 1.926 | |||||||||||
| Staða 30. júní 2019 | ||||||||||||
| Fjárfestingareignir án nýtingaréttar lóðaleigusamninga … |
45.594 | 43.636 | 27.991 | 16.930 | 7.814 | 141.965 |
| 2020 | 2019 | |||
|---|---|---|---|---|
| 1.1.-30.6. | 1.1.-30.6. | |||
| Áætlaðar heildarleigutekjur | 6.091 | 6.124 | ||
| Reiknaðar tekjur af óútleigðum rýmum | ( | 335) | ( | 317) |
| Áætlaðar tapaðar tekjur vegna Covid-19 | ( | 315) | 0 | |
| 5.441 | 5.807 | |||
| Nýtingarhlutfall fasteigna | 94,5% | 94,8% | ||
| Fasteignagjöld | 879 | 1.082 |
|---|---|---|
| Viðhald og endurbætur | 276 | 283 |
| Vátryggingar | 89 | 84 |
| Virðisrýrnun krafna | 81 | 44 |
| Annar rekstrarkostnaður fjárfestingareigna | 151 | 116 |
| Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna alls | 1.476 | 1.609 |
| Vaxtatekjur af bankainnstæðum | 105 | 78 | ||
|---|---|---|---|---|
| Hreinn gengishagnaður gjaldmiðla | 3 | 0 | ||
| Fjármunatekjur alls | 108 | 78 | ||
| Fjármagnsgjöld greinast þannig: | ||||
| Vaxtagjöld af vaxtaberandi skuldum | ( | 1.575) | ( | 1.672) |
| Verðbætur af vaxtaberandi skuldum | ( | 1.292) | ( | 1.328) |
| Lóðarleiga | ( | 122) | ( | 125) |
| Önnur fjármagnsgjöld | ( | 15) | ( | 9) |
| Fjármagnsgjöld alls | ( | 3.004) | ( | 3.134) |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( | 2.896) | ( | 3.056) |
10. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, frh.:
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur sundurliðast þannig:
| 30.6.2020 | 31.12.2019 | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Nafnverð | Niðurfærsla | Nafnverð | Niðurfærsla | ||||
| Kröfu | kröfu | Kröfu | kröfu | ||||
| Ógjaldfallið | 1.731 | ( | 149) | 1.216 | ( | 135) | |
| Gjaldfallið innan 30 daga | 182 | ( | 21) | 61 | ( | 3) | |
| Gjaldfallið fyrir 31-120 dögum | 126 | ( | 22) | 145 | ( | 16) | |
| Gjaldfallið fyrir meira en 120 dögum | 147 | ( | 69) | 100 | ( | 58) | |
| 2.186 | ( | 261) | 1.522 | ( | 212) |
11. Fjárfestingareignir
Fjárfestingareignir sundurliðast þannig:
| 30.6.2020 | 31.12.2019 | |||
|---|---|---|---|---|
| 1.1.-30.6. | 1.1.-31.12. | |||
| Bókfært verð 1.1 | 143.632 | 138.524 | ||
| Kaup tímabilsins | 140 | 332 | ||
| Viðbætur tímabilsins | 1.068 | 3.292 | ||
| Selt á tímabilinu | ( | 2.652) | ( | 865) |
| Matsbreyting tímabilsins | ( | 2.115) | 2.349 | |
| Bókfært verð í lok tímabils | 140.073 | 143.632 | ||
| Fasteignir | 132.069 | 136.023 | ||
| Þróunareignir | 8.004 | 7.609 | ||
| 140.073 | 143.632 | |||
| Nýtingaréttur lóðaleigusamninga | 5.133 | 5.474 | ||
| Fjárfestingareignir samtals | 145.206 | 149.106 | ||
Við ákvörðun á gangvirði fjárfestingareigna er byggt á forsendum sem háðar eru mati stjórnenda á þróun ýmissa þátta í framtíðinni. Raunverulegt söluverð kann að verða frábrugðið þessu mati.
Fjárfestingareignir samstæðunnar eru metnar á gangvirði á reikningsskiladegi í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 40 Fjárfestingareignir og alþjóðlegan reikningsskilastaðal IFRS 13 Mat á gangvirði. Allar fjárfestingareignir samstæðunnar falla undir þriðja þrep í flokkunarkerfi gangvirðismats og eru metnar sem slíkar.
Við mat á fjárfestingareignum er notuð sama aðferðarfræði og í samstæðuársreikningi félagsins. Breytingar frá áramótum endurspegla vænt skammtímaáhrif af Covid-19 faraldrinum. Mikilvægustu forsendur matslíkansins eru áætlun um leigutekjur og veginn fjármagnskostnaður (WACC). Gert er ráð fyrir 5,9% vegnum fjármagnkostnaði í matinu (31.12.2019 5,9%).
Breytingar á gangvirði fjárfestingareigna eru færðar undir liðnum matsbreyting fjárfestingareigna í rekstrarreikningi. Lækkun á mati fjárfestingareigna nam 2.115 millj. kr. á tímabilinu (2019: 1.799 millj. kr. hækkun).
Næmigreining:
Næmi fjárfestingareigna fyrir breytingum í mikilvægustu forsendum er sem hér segir:
| Áhrif á gangvirði 30.6.2020 | ||||
|---|---|---|---|---|
| Breyting | Hækkun | Lækkun | ||
| Leigutekjur | +/- 1% | 1.653 | ( | 1.653) |
| Veginn fjármagnskostnaður (WACC) | -/+ ½% | 11.805 | ( | 9.975) |
| Markaðsverð leigu | +/- 5% | 6.588 | ( | 6.588) |
12. Eigið fé
Hlutafé
Skráð heildarhlutafé félagsins í lok ársfjórðungsins nam 670 millj. kr. Við lok ársfjórðungsins átti félagið eigin hlutabréf að nafnvirði 11 millj. kr. Þann 8. maí 2020 var hlutafé félagsins lækkað með niðurfærslu á eigin bréfum að nafnverði 20 millj. kr. í samræmi við ákvörðun aðalfundar 10. mars 2020.
Arðgreiðsla að fjárhæð 1.090 millj .kr., sem samþykkt var á aðalfundi 10. mars 2020, átti að koma til útgreiðslu í lok mars en var frestað í ljósi aðstæðna. Stjórn Reita hefur tekið ákvörðun um að arðurinn verði greiddur út þann 9. september 2020 en hyggst safna nýju hlutafé í hlutafjárútboði til þess meðal annars að mæta þessari útgreiðslu til hluthafa.
13. Vaxtaberandi skuldir Langtímaskuldir 30.6.2020 31.12.2019
| 14. | Tekjuskattur | ||||
|---|---|---|---|---|---|
| Vaxtaberandi skuldir alls | 87.785 | 85.297 | |||
| Skammtímaskuldir Næsta árs afborganir langtímaskulda |
2.909 | 3.007 | |||
| Vaxtaberandi langtímaskuldir alls | 84.876 | 82.290 | |||
| Eignfærður lántökukostnaður | ( | 321) | ( | 316) | |
| Næsta árs afborganir langtímalána | ( | 2.909) | ( | 3.007) | |
| Vaxtaberandi skuldir alls án lántökukostnaðar | 88.106 | 85.613 | |||
| Skuldabréfaútgáfa, utan tryggingarfyrirkomulags | 1.292 | 1.741 | |||
| Skuldabréfaútgáfa, innan tryggingarfyrirkomulags | 58.425 | 55.680 | |||
| Vaxtaberandi skuldir við lánastofnanir, innan tryggingarfyrirkomulags | 28.389 | 28.192 | |||
Virkur tekjuskattur samstæðunnar fyrir tímabilið var 10,3% ( 2019: 26,2%).
| 2020 | 2019 | ||||
|---|---|---|---|---|---|
| Tekjuskattur í rekstrarreikningi greinist þannig: | 1.1.-30.6. | 1.1.-30.6. | |||
| (Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt | ( 1.364) |
2.611 | |||
| Tekjuskattur samkvæmt gildandi skatthlutfalli | 20,0% | 273 | 20,0% | ( | 522) |
| Óeignfærð skatteign ( |
9,7%) | ( 132) |
6,2% | ( | 163) |
| Virkur tekjuskattur | 10,3% | 141 | 26,2% | ( | 685) |
15. Dótturfélög
Dótturfélög voru níu í lok ársfjórðungsins og eru eftirtalin:
| Ísland | 100% | 100% |
|---|---|---|
| Ísland | 100% | 100% |
| Ísland | 100% | 100% |
| Ísland | 100% | 100% |
| Ísland | 100% | 100% |
| Ísland | 100% | 100% |
| Ísland | 100% | 100% |
| Ísland | 100% | 100% |
| Ísland | 100% | - |
Aðsetur 30.6.2020 31.12.2019
Eignarhlutur
Ársfjórðungsyfirlit um heildarafkomu*
| 2F 2020 |
1F 2020 |
4F 2019 |
3F 2019 |
2F 2019 |
||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur og rekstrargjöld | ||||||||||
| Leigutekjur | 2.560 | 2.881 | 2.956 | 2.962 | 2.928 | |||||
| Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna | ( | 662) | ( | 814) | ( | 905) | ( | 902) | ( | 820) |
| Hreinar leigutekjur | 1.898 | 2.067 | 2.051 | 2.060 | 2.108 | |||||
| Stjórnunarkostnaður | ( | 156) | ( | 162) | ( | 150) | ( | 157) | ( | 156) |
| Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu | 1.742 | 1.905 | 1.901 | 1.903 | 1.952 | |||||
| Matsbreyting fjárfestingareigna | 20 | ( | 2.135) | 358 | 192 | 1.093 | ||||
| Rekstrarhagnaður | 1.762 | ( | 230) | 2.259 | 2.095 | 3.045 | ||||
| Fjármunatekjur | 51 | 57 | 80 | 30 | 42 | |||||
| Fjármagnsgjöld | ( | 1.907) | ( | 1.097) | ( | 1.374) | ( | 1.262) | ( | 1.815) |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( | 1.856) | ( | 1.040) | ( | 1.294) | ( | 1.232) | ( | 1.773) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | ( | 94) | ( | 1.270) | 965 | 863 | 1.272 | |||
| Tekjuskattur | ( | 97) | 238 | ( | 196) | ( | 234) | ( | 343) | |
| (Heildartap) -hagnaður | ( | 191) | ( | 1.032) | 769 | 629 | 929 |
* Hvorki kannað né endurskoðað af ytri endurskoðanda félagsins