AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

Capital/Financing Update Jun 10, 2024

2202_rns_2024-06-10_58ea747e-62dd-4f0a-b2e2-31e535674936.html

Capital/Financing Update

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 447803

Reitir fasteignafélag hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

REITIR: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 10. júní 2024

Skuldabréfaútboði Reita í skuldabréfaflokknum REITIR150534 er lokið.

Um er að ræða verðtryggðan skuldabréfaflokk sem er veðtryggður með almenna tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2034 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum fram til lokagjalddaga, þegar allar eftirstöðvar greiðast í einni greiðslu. Greiðslur vaxta og afborgana höfuðstóls fara fram á tveggja mánaða fresti.

Alls bárust tilboð að nafnverði 680 m.kr. á föstu ávöxtunarkröfunni 3,85% og voru þau öll samþykkt. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnvirði 2.300 m.kr. í flokknum.

Gert er ráð fyrir að uppgjör viðskipta fari fram þriðjudaginn 18. júní næstkomandi og að bréfin verði tekin til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið.

Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfaflokksins eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Íslandsbanki hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: [email protected], sími 669 4416 og Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, [email protected]

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.