Capital/Financing Update • Mar 17, 2023
Capital/Financing Update
Open in ViewerOpens in native device viewer
REITIR: Útboð á skuldabréfum 23. mars 2023
Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á nýjum skuldabréfaflokki REITIR150531 og fer útboðið fram fimmtudaginn 23. mars næstkomandi.
Flokkurinn er verðtryggður og veðtryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2031 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum fram til lokagjalddaga, þegar allar eftirstöðvar greiðast í einni greiðslu. Greiðslur vaxta fara fram á tveggja mánaða fresti, en nafnvextir ráðast af niðurstöðu útboðs.
Útboðið fer fram með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða að hluta, eða hafna þeim öllum. Áætlaður uppgjörsdagur er fimmtudagurinn 30. mars 2023.
Útboðið er undanþegið gerð lýsingar, sbr. d-liður 4. mgr. 1. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1129, sbr. lög nr. 14/2020. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.
Íslandsbanki hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.
Nánari upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: [email protected], sími: 669 4416 og Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, [email protected].

Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.