AGM Information • Feb 29, 2024
AGM Information
Open in ViewerOpens in native device viewer
REITIR: Endanleg dagskrá, tillögur og framboð til stjórnar á aðalfundi 6. mars 2024
Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn miðvikudaginn 6. mars 2024 kl. 15.00 í þingsal 2 á Hotel Reykjavik Natura, Nauthólsvegi 52.
Ein breyting hefur verið gerð frá áður birtri dagskrá, en bætt hefur verið við lið 4. f. í dagskrána sem og í tillögum þeim sem lagðar verða fyrir fundinn, og lúta að tilnefningu utanaðkomandi aðila í endurskoðunarnefnd.
Eftirtaldir aðilar hafa boðið sig fram til setu í stjórn félagsins:
Anna Kristín Pálsdóttir
Elín Árnadóttir
Guðmundur Kristján Jónsson
Kristinn Albertsson
Þórarinn V. Þórarinsson
Framboðsfrestur er nú runninn út samkvæmt samþykktum félagsins og hafa frekari framboð ekki borist. Þar sem stjórn félagsins skal skipuð fimm einstaklingum er ljóst að framangreindir aðilar eru sjálfkjörnir til setu í stjórn félagsins á aðalfundinum án sérstakrar atkvæðagreiðslu. Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í skýrslu tilnefningarnefndar sem sjá má hér.
Hluthafar og umboðsmenn þeirra geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá kl. 14.30 á aðalfundardag.
Þeir hluthafar sem þess óska geta forskráð sig á aðalfundinn og munu atkvæðaseðlar þeirra þá vera tilbúnir er mætt er á fundinn og afhentir gegn framvísun umboðs (ef við á) og skilríkja.
Forskráning fer fram með því að senda eftirtaldar upplýsingar á netfangið [email protected], fyrir kl. 13.00 á aðalfundardegi:
Kennitala hluthafa
Nafn þess sem mætir
Kennitala þess sem mætir
Skannað eintak af umboði (ef við á), en að auki þarf að mæta með frumrit þess á fundinn.

Viðhengi:
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.