Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Heimar hf. Transaction in Own Shares 2026

Mar 9, 2026

2201_rns_2026-03-09_cb187170-fcce-45eb-867b-240a56fadfd6.html

Transaction in Own Shares

Open in viewer

Opens in your device viewer

Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 10 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.980.000 eigin hluti að kaupverði 71.400.000 kr., í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
2.3.2026 09:34 740.000 36,50 27.010.000
3.3.2026 09:59 500.000 35,50 17.750.000
4.3.2026 10:24 740.000 36,00 26.640.000
Samtals 1.980.000 71.400.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 17. febrúar 2026. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en til 11. september 2026.

Heimar áttu 61.183.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 63.163.000 hluti, eða um 3,12% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 2.318.860.191 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – [email protected]