Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Heimar hf. Remuneration Information 2025

Feb 18, 2025

2201_rns_2025-02-18_1738ebd2-5709-47a8-804a-35779e7119fd.pdf

Remuneration Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Heimar

Skýrsla stjórnar til hluthafa Heima hf. um framkvæmd starfskjarastefnu fyrir árið 2024

Lögð fram á aðalfundi Heima hf. þann 11. mars 2025

Starfskjarastefna

Starfskjarastefna Heima hf. („Heimar“ eða „félagið“) var samþykkt á hluthafafundi félagsins þann 30. ágúst 2024. Í stefnunni kemur fram að stjórn Heima hafi það að markmiði að marka stefnu félagsins um starfskjör sem geri félaginu fært að laða til sín hæfustu stjórnendur og starfsmenn á hverjum tíma og viðhalda þar með samkeppnisstöðu félagsins.

Hvatakerfi

Kaupaukar

Kveðið er á um kaupauka í starfskjarastefnu Heima. Samkvæmt stefnunni skulu kaupaukar miðast við frammistöðu viðkomandi starfsmanna, afkomu félagsins, mikilvæga áfanga í rekstri og starfsemi félagsins, þ. á m. hvort settum markmiðum hafi verið náð. Stjórn tekur endanlega ákvörðun um veitingu kaupauka til starfsmanna að fengnu áliti starfskjaraðefndar. Kaupaukar skulu einungis vera starfsmönnum til boða sem starfa hjá félaginu þegar kaupaukinn er greiddur. Samtala veitts kaupauka starfsmanns getur á ársgrundvelli að hámarki numið ígildi þriggja mánaða launa viðkomandi starfsmanns.

Heildarfjárhæði veittra kaupauka á árinu 2024 var 25.300.000 kr. og nam 1,8% af heildarlaunakostnaði á samstæðugrundvelli.

Kaupréttir

Stjórn félagsins er á grundvelli starfskjarastefnu heimilt, en ekki skylt, að veita forstjóra, framkvæmdastjórum og öðrum stjórnendum félagsins kauprétti á hlutabréfum í félaginu í samræmi við sérstaka kaupréttaráætlun sem hlotið hefur samþykki hluthafafundar félagsins.

Gildandi kaupréttaráætlun Heima var samþykkt á hluthafafundi félagsins þann 30. ágúst 2024. Samkvæmt kaupréttaráætluninni getur forstjóri að hámarki átt rétt á kaupréttum að sex milljónum hluta, aðrir framkvæmdastjórar að hámarki 2,5 milljónum hluta og aðrir stjórnendur samtals að hámarki 4,5 milljónum hluta. Tilkynnt var um úthlutun kauprétta til forstjóra, framkvæmdastjóra og lykilstjórnenda í Kauphöll, annars vegar 3. september 2024 og hins vegar 10. september 2024.

Í kjólfar úthlutunar kauprétta nemur heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Heimar hafa veitt stjórnendum sínum 19.250.000 hlutum eða um 1,06% hlutafjár í félaginu.

Heimar | Skýrsla stjórnar til hluthafa Heima hf.


Heimar

Launajafnrétti

Heimar eru með í gildi jafnlaunastefnu, sem samþykkt var af stjórn félagsins þann 20. júní 2024. Jafnlaunastefnan er hluti af starfskjarastefnu félagsins. Markmið með stefnunni er að tryggja jafnræði við ákvörðun launa og sjá til þess að allt starfsfólk njóti jafnra kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir allt starfsfólk óháð kynferði, kynþætti, þjóðerni, trú, aldri eða öðrum ómálefnalegum þáttum. Þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðun skulu ekki fela í sér mismunun.

Félagið hefur tileinkað sér öguð og fagleg vinnubrögð við launasetningu. Við ákvörðun launa og fríðinda hjá félaginu er litið til ákvæða laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, með síðari breytingum, auk annarra laga og reglugerða sem eru settar á sama grundvelli. Félagið hefur í gildi jafnlaunavottun sem það hlaut upphaflega á árinu 2021, sem félagið hefur síðar hlotið endurvottun á, auk staðfestingar á jafnréttisáætlun frá Jafnréttisstofu.

Í síðustu launagreiningu sem gerð var í kjölfar vottunar mældust laun karla 1,4% hærri en laun kvenna þegar búð var að taka tillit til leiðrétts launamunar.

Kjör stjórnar, forstjóra og framkvæmdastjórnar

Eftirfarandi er sundurliðun á launum og hlunnindum stjórnar, mótframlag í lífeyrissjóð og árangurstengdar greiðslur vegna forstjóra og framkvæmdastjóra fyrir árið 2024 samkvæmt skýringu samkvæmt ársreikningi félagsins. Inni í þeim tölum eru einnig fjárhæðir vegna framkvæmdastjóra sem hafa látið af störfum hjá félaginu árið 2024:

2024 2023
Laun og hlunnindi Mótframlag í lífeyrissjóð Laun og hlunnindi Mótframlag í lífeyrissjóð
Tómas Kristjánsson, stjórnarformaður 10,9 1,3 10,3 1,2
Bryndís Hrafnkelsdóttir, varaformaður 5,9 0,8 5,4 0,6
Benedikt Olgeirsson, stjórnarmaður 9,1 1,0 8,1 0,9
Guðrún Tinna Ólafsdóttir, stjórnarmaður 5,9 0,8 5,4 0,7
Heiðrún Emília Jónsdóttir, stjórnarmaður 6,4 0,9 6,2 0,8
Anna Þórðardóttir, form. endurskoðunamefndar 2,1 0,3 2,1 0,3
Guðfinna S. Bjarnadóttir, form. tilnefningamefndar 1,2 0,1 1,1 0,1
Ína Björk Hannesdóttir, tilnefningamefnd 0,7 0,1 0,7 0,1
Árni Gunnarsson, tilnefningamefnd 0,7 0,1 0,7 0,1
Helgi S. Gunnarsson, fv. forstjóri 0,0 0,0 62,4 9,6
Halldór B. Þórbergsson forstjóri 77,9 17,2 51,6 11,8
Æðstu stjórnendur 210,1 34,3 188,2 33,3
Alls 330,9 57,0 342,3 59,5

Heimar | Skýrsla stjórnar til hluthafa Heima hf.