AI assistant
Heimar hf. — Remuneration Information 2024
Aug 9, 2024
2201_rns_2024-08-09_02e439b3-cd56-4ba5-aa89-898c3e551031.pdf
Remuneration Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Stjörn Heima hf., kt. 630109-1080, Hagasmára 1, 201 Kópavogi („félagið”), hefur á grundvelli heimildar sem henni var veitt á hluthafafundi félagsins þann 30. ágúst 2024 samþykkt svofellda:
KAUPRÉTTARÁÆTLUN
FYRIR FORSTJÓRA, FRAMKVÆMDASTJÓRA OG ADRA STJÓRNENDUR HEIMA HF.
(„kaupréttaráætlunin“)
1 TILGANGUR OG MARKMIÐ
1.1 Markmið kaupréttaráætlunar þessarar er að tengja hagsmuni kaupréttarhafa við afkomu og langtímamarkmið félagsins og hluthafa þess.
1.2 Kaupréttaráætlun þessi er gerð í samræmi við starfskjarastefnu félagsins.
1.3 Með samningum gerðum á grundvelli kaupréttaráætlunar þessarar gefst kaupréttarhöfum kostur á að kaupa hlutabréf í félaginu á fyrirfram skilgreindu verði.
2 KAUPRÉTTARHAFAR
2.1 Kaupréttarhafar geta verið forstjóri, framkvæmdastjórar og aðrir stjórnendur félagsins og félaga í sömu samstæðu, samanber lög um ársreikninga, samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni (hér eftir nefndir „kaupréttarhafar“).
2.2 Starfskjaranefnd félagsins skal gera tillögu til stjórnar um hvaða starfsmönnum félagsins skal veita kauprétt hverju sinni. Að fenginni tillögu starfskjaranefndar skal stjórn taka ákvörðun um veitingu kauprétta og er stjórn heimilt að víkja frá tillögu starfskjaranefndar.
2.3 Heildarfjöldi hluta sem heimilt er að veita kauprétt vegna á grundvelli þessarar kaupréttaráætlunar er 24.000.000. Stjórn, að fenginni umsögn starfskjaranefndar, ákveður hverju sinni þann fjölda hluta sem hver kaupréttarhafi hefur rétt á að kaupa. Gert er ráð fyrir að kaupréttum samkvæmt kaupréttarkerfinu verði úthlutað í framhaldi af hluthafafundi félagsins þann 30. ágúst 2024. Heimilt er að úthluta kaupréttum bæði reglulega og í einstökum tilvikum á síðari stigum ef svo ber undir, meðal annars ef kaupréttir falla úr gildi fyrir ávinnsludag.
2.4 Forstjóri getur að hámarki átt rétt á kaupréttarsamningum sem nemur 7.000.000 hluta, hver framkvæmdastjóri að hámarki 2.500.000 hluta og aðrir stjórnendur samtals að hámarki 4.500.000 hluta.
2.5 Samningar um kauprétt verða gerðir við hvern kaupréttarhafa á því formi sem stjórn ákveður hverju sinni, þó innan ramma kaupréttaráætlunar þessarar.
3 RÉTTINDI OG SKYLDUR
3.1 Hlutabréfum keyptum með kaupréttarsamningi á grundvelli þessarar kaupréttaráætlunar fylgja öll sömu réttindi og öðrum hlutabréfum í félaginu.
3.2 Í kaupréttarsamningum, gerðum á grundvelli kaupréttaráætlunar þessarar, verður kveðið á um að kaupréttur ávinnist á þremur árum frá gerð kaupréttarsamnings en nýting kaupréttar verður eingöngu
heimil á fyrstu prjátíu bankadögum í kjölfar birtingar árs- eða árshlutauppgjóra félagsins, samanber gr. 4.
3.3 Í kaupréttarsamningum gerðum á grundvelli þessarar kaupréttaráætlunar skal kveðið á um skyldu kaupréttarhafa til að eiga fram að starfslokum hluti í félaginu sem nema fjárhæð hreins hagnaðar af nyttum kaupréttum, þegar skattur hefur verið dreginn frá, þar til eftirfarandi fjárhæðarviðmiðunum er náð, mælt í virði hlutafjáreignar í félaginu sem margfeldi af grunnárslaunum: sex (6) sinnum mánaðarlaun.
3.4 Komi til þess að breyting verði á yfirráðum í félaginu, samanber 100. gr. laga nr. 108/2007 um yfirtökur, ávinnast allir útistandandi kaupréttir þegar í stað.
3.5 Félaginu er óheimilt að veita lán eða ábyrgðir af nokkru tagi í tengslum við kauprétti og nýtingu kaupréttar samkvæmt kaupréttaráætlun þessari.
3.6 Í kaupréttarsamningum gerðum á grundvelli þessarar kaupréttaráætlunar skal kveðið á um að kaupréttur sé ekki framseljanlegur og að ekki sé heimilt að veðsetja hann.
4 ÁVINNSLA OG NÝTING KAUPrÉTTAR
4.1 Kaupréttur hvers kaupréttarhafa ávinnst þremur árum frá gerð kaupréttarsamnings. Kaupréttarsamningar munu skilgreina nýtingartímabil en miðað verður við að það verði svo sem nánar greinir í gr. 4.2.
4.2 Einungis skal heimilt að nýta kauprétti á fyrstu prjátíu bankadögum í kjölfar birtingar árs- eða árshlutauppgjóra félagsins, á tólf mánaða tímabili, eftir að fullum þremur árum er náð, frá gerð kaupréttarsamnings. Með birtingu er átt við birtingu uppgjörs á Nasdaq Iceland hf. Að loknu nýtingartímabili falla allir ónýttir kaupréttir niður.
4.3 Í framhaldi af nýtingu kauprétta skal stjórn afhenda kaupréttarhafa umsamda hluti í félaginu, gegn greiðslu kaupréttarverðsins.
4.4 Til fullnustu á skyldum sínum samkvæmt samningum gerðum á grundvelli áætlunar þessarar er gert ráð fyrir að hluthafafundur veiti stjórn heimild til að gefa út nýja hluti í félaginu til kaupréttarhafa vegna nýtingar á kauprétti eða að félagið nýti eigin hluti.
5 GILDISTÍMI KAUPrÉTTAR
5.1 Ávinnsla kauprétta samkvæmt kaupréttarsamningi er bundin því skilyrði að kaupréttarhafi starfi fyrir félagið. Kaupréttur tekur gildi við undirritun kaupréttarsamnings í samræmi við kaupréttaráætlun þessa og gildir þar til hann fellur niður við lok nýtingartímabils eða samkvæmt neðangreindu.
5.2 Almennt falla kaupréttir niður ef ráðningarsambandi kaupréttarhafa við félagið er slitið fyrir lok ávinnslutíma. Prátt fyrir starfslok skal kaupréttur haldast ef kaupréttarhafi andast eða hættir störfum vegna heilsubrests. Eftir ávinnslutíma fellur áunninn kaupréttur ekki niður fyrr en nýtingartímabili lýkur.
6 KAUPVERÐ
6.1 Kaupverð hvers hlutar samkvæmt kaupréttaráætlun þessari skal vera ekki vera lægra en vegið meðalverð í viðskiptum með hlutabréf félagsins tuttugu (20) heila viðskiptadaga fyrir gerð hvers kaupréttarsamnings, að viðbættum 5,5% vöxtum á tímabilinu frá dagsetningu frá gerð
kaupréttarsamnings og fram að nýtingardegi. Grunnverð hluta, án fjárhæðar vaxta skal tilgreint í hverjum kaupréttarsamningi.
6.2 Greiði félagið arð eða úthluti eignum félagsins til hluthafa félagsins með samsvarandi hætti, svo sem með niðurfærslu hlutafjár, áður en kaupréttur er nýttur, skal kaupgengi vegna kaupréttar sem ekki hefur verið nýttur aðlagaður til samræmis, þannig að kaupgengi jafngildi því sem hefði verið fyrir arðgreiðslu (eða ára úthlutun), með því að frá kaupgengi er dregin arðgreiðsla (eða önnur úthlutun) fyrir hvern útgefinn hlut í félaginu, króna fyrir krónu.
6.3 Nýti kaupréttarhafi kauprétt sinn skal hlutafé staðgreitt.
7 HEIMILD TIL NIÐURFELLINGAR KAUPrÉTTARÁÆTLUNAR
7.1 Stjórn félagsins skal, vera heimilt að fella niður kaupréttaráætlun þessa í heild í eftirfarandi tilvikum:
a) Vegna slita félagsins;
b) komi til fjárhagslegrar endurskipulagningar;
c) óski félagið eftir heimild til greiðslustöðvunar eða leiti nauðasamninga; eða
d) í öðrum tilfellum, mæli ríkar ástæður með því.
7.2 Taki stjórn ákvörðun um niðurfellingu kaupréttaráætlunar þessarar falla niður öll réttindi og skyldur sem af kaupréttaráætluninni og kaupréttarsamningum má leiða án þess að sú ákvörðun leiði til bótaábyrgðar fyrir félagið.
8 FYRIRVARI UM ÚTGÁFU EÐA KAUP Á HLUTABRÉFUM
8.1 Kaupréttaráætlunin, kaupréttarsamningar gerðir á grundvelli hennar og skuldbindingar félagsins gagnvart kaupréttarhöfum eru ávallt bundnar skilyrði um að félagið geti afhent hlutafé til að efna samninga, annað tveggja með útgáfu nýrra hluta eða afhendingu eigir hluta.
9 SAMÞYKKT KAUPrÉTTARÁÆTLUNAR
9.1 Gerð kaupréttaráætlunar þessarar var samþykkt á hluthafafundi félagsins sem haldinn var þann 30. ágúst 2024.
9.2 Stjórn félagsins samþykkti kaupréttaráætlun þessa á stjórnarfundi þann ______ 2024 og því til staðfestu ritar stjórnarformaður undir kaupréttaráætlunina með rafrænni undirritun fyrir hönd stjórnar.
Rafræn undirritun
Tómas Kristjánsson,
stjórnarformaður