AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Heimar hf.

Regulatory Filings Oct 4, 2024

2201_rns_2024-10-04_dc14a545-799d-4565-b896-97c4eb0152c9.html

Regulatory Filings

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Heimar hf.: Sala á fimm fasteignum

Heimar hf.: Sala á fimm fasteignum

Heimar hf. („Heimar“ eða „félagið“) hafa samþykkt kauptilboð Módelhúsa ehf. í fimm fasteignir. Fasteignirnar eru staðsettar utan skilgreindra kjarnasvæða Heima og samræmist sala þeirra stefnuáherslum félagsins. 

Fasteignirnar sem um ræðir eru að Eyrartröð 2a, Norðurhellu 10 og Reykjavíkurvegi 74, Hafnarfirði, auk fasteigna að Vatnagörðum 6 og Vatnagörðum 8, Reykjavík. Heildarfermetrafjöldi fasteignanna er 8.962 m2.

Söluverð eignanna er samtals 3.275 milljónir kr. og er áætlaður söluhagnaður 351 milljón kr. Núverandi leigutekjur eignanna nema um 250 milljónum kr. á ársgrundvelli. Söluandvirðið verður nýtt til fjárfestinga í samræmi við fjárfestingastefnu félagsins.

Kauptilboðið er háð hefðbundnum fyrirvörum, m.a. um ástandsskoðun og fjármögnun. Áætlað er að kaupsamningar um fasteignirnar verði undirritaðir eigi síðar en í nóvember 2024.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson í s. 821-0001

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.