AI assistant
Heimar hf. — Proxy Solicitation & Information Statement 2025
Mar 5, 2025
2201_rns_2025-03-05_5afcbb1d-3121-4637-b6c3-d4c3bf39198e.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Heimar
Heimar hf.
Framboð til stjórnar Heima hf. á aðalfundi félagsins þriðjudaginn 11. mars 2025:
Til aðalstjórnar bjóða sig fram:
Benedikt Olgeirsson
Fæðingarár: 1961.
Menntun: M.Sc. í framkvæmdaverkfræði og verkefnastjórnun frá University of Washington í Seattle 1987 og B.Sc. í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands 1982.
Aðalstarf: Sjálfstætt starfandi við stjórnarsetur, ráðgjöf og fjárfestingar.
Starfsreynsla: Framkvæmastjóri innviðapróunar Landspítala (2019-2021), Framkvæmdastjóri þróunar á Landspítala (2015-2019), Aðstoðarforstjóri Landspítala (2010-2015), Framkvæmdastjóri umbreytingaverkefna hjá Atorku (2005-2009), Framkvæmdastjóri Parlogis (2004-2005) auk annarra stjórnunarstarfa hjá Eimskip (1993-2004).
Núverandi stjórnarseta: Í stjórn Heima frá mars 2022, Vörður tryggingar hf. og Vörður líftryggingar hf. (stjórnarformaður) frá 2017, Klasi ehf. (meðstjórnandi) frá 2023, SEUSA ehf. (stjórnarformaður) frá 2017, Manex ehf. (meðstjórnandi) frá 2022, Bens Capital ehf. (stjórnarformaður) frá 2021, Iceland Soccer Travel ehf. (stjórnarformaður) frá 2017, Rexby ehf. (stjórnarformaður) frá 2021, Immobilien ehf. (stjórnarformaður) frá 2021 og Íslenskir fjörfestar ehf. (stjórnarformaður) frá 2022.
Hlutafjáreign í Heimum hf.: 207.000 hlutir eða 0,01%.
Hagsmunatengsl: Engin hagsmunatengsl eru við stærstu viðskiptavini félagsins, keppinauta þess eða hluthafa sem eiga meira en 10% í félaginu en telst háður stjórnarmaður þar sem hann þiggur greiðslur frá Heimum vegna stjórnarsetu í Klasa ehf.
Bryndís Hrafnkelsdóttir
Fæðingarár: 1964.
Menntun: Viðskiptafræðingur Cand. Oecon 1989 og. og M.S. gráða í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 2015.
Aðalstarf: Forstjóri Happdrættis Háskóla Íslands frá 2010.
Starfsreynsla: Landfestar fjármálastjóri frá 2008-2010, Kaupping banki hf. sérfræðingur á fjármálasviði samstæðu frá 2007-2008, Debenhams á Íslandi, framkvæmdastjóri 2000-2006, Hagkaup fjármálastjóri frá 1996-2000, Hof eignarhaldsfélag aðalbókari frá 1994-1996 og KPMG endurskoðun og bókhald frá 1990-1993.
Núverandi stjórnarseta: Í stjórn Heima frá apríl 2014 og varaformaður frá mars 2022. Formaður
Heimar | Frambjóðendur til stjórnar
Heimar
skólanefndar Verslunarskóla Íslands frá 2006, Ofanleiti 1 ehf. (stjórnarformaður) frá 2011, TM frá 2011 (varastjórn).
Hlutafjáreign í Heimum hf.: Bryndís á 18.509 hluti eða 0,0010%.
Hagsmunatengsl: Engin hagsmunatengsl eru við stærstu viðskiptavini félagsins, keppinauta þess eða hluthafa sem eiga meira en 10% í félaginu. Bryndís er óháð félaginu, daglegum stjórnendum þess og stórum hluthöfum í félaginu samkvæmt skilgreiningu í leiðbeiningum um góða stjórnarhætti.
Guðrún Tinna Ólafsdóttir
Fæðingarár: 1975.
Menntun: M.S. gráða í fjármálum frá Háskóla Íslands 2011. Prisma, diplómanám frá Listaháskóla Íslands og Háskólanum á Bifröst 2009. B.S. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1998.
Aðalstarf: Framkvæmdastjóri verslanasviðs Húsasmiðjunnar ehf. frá 2020.
Starfsreynsla: Rekstrarstjóri verslunarsviðs Fríhafnarinnar ehf. (2018-2020), Framkvæmdastjóri Igló ehf. (2011-2016). Verkefnastjóri Baugur Group 2002-2009 á sviði smásölu, fasteigna og trygginga. Senior Account Manager Kaupthing Bank Luxembourg SA 2000-2002. Sjóðstjóri og eignastýring Verðbréfasjóður Íslandsbanka VÍB 1997-2000.
Núverandi stjórnarseta: Í stjórn Heima frá mars 2018. Svanni-lánatryggingarsjóður kvenna (stjórnarformaður) frá 2017 og Brunnur vaxtarsjóður slhf. (meðstjórnandi) frá 2021.
Önnur stjórnarseta sl 5 ár: Norðlenska matborðið (2020-2022).
Hlutafjáreign í Heimum hf.: 84.000 hlutir eða 0,005%.
Hagsmunatengsl: Engin hagsmunatengsl eru við stærstu viðskiptavini félagsins, keppinauta þess eða hluthafa sem eiga meira en 10% í félaginu. Guðrún er óháð félaginu, daglegum stjórnendum þess og stórum hluthöfum í félaginu samkvæmt skilgreiningu í leiðbeiningum um góða stjórnarhætti.
Heiðrún Emilia Jónsdóttir
Fæðingarár: 1969
Menntun: Cand.jur. frá Háskóla Íslands 1995 og réttindi til málflutnings í héraðsdómi 1996. Starfsmannastjórnun frá Háskólanum á Akureyri 1999, löggildingu í verðbréfamiðlun 2006 og AMP frá IESE Business School 2017.
Aðalstarf: Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálabjónustu.
Starfsreynsla: Sjálfstætt starfandi lögmaður og stjórnarmaður í fyrirtækjum (2013-2022). Var áður framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Eimskips frá 2006-2012, framkvæmdastjóri hjá LEX lögmannsstofu frá 2003-2005, upplýsingafulltrúi Landsímans frá 2001-2003, framkvæmdastjóri starfsþróunarsviðs og lögfræðingur hjá KEA frá 1998-2001 og lögmaður hjá Lögmannsstofu Akureyrar frá 1995-1998.
Núverandi stjórnarseta: Í stjórn Heima frá mars 2019. Múli lögmannsstofa ehf. (stjórnarmaður),
Heimar | Frambjóðendur til stjórnar
Heimar
Veiðifélag Skorradalsvatns (meðstjórnandi), Ungmennafélagið Stjarnan (varaformaður), Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki og vátryggingarmál (stjórnarformaður), Insurance Europe (framkvæmdastjórn) og EBF- European Bank Federation (framkvæmdastjórn).
Önnur stjórnarseta sl 5 ár: Íslandsbanki hf. varaformaður og í stjórnarháttá- og mannaúðsnefnd (2016-2022), Royal Arctic Line (2020-2022), Icelandair Group hf. (2018-2020).
Hlutafjáreign í Heimum hf.: 327.500 hlutir eða 0,02%.
Hagsmunatengsl: Engin hagsmunatengsl eru við stærstu viðskiptavini félagsins, keppinauta þess eða hluthafa sem eiga meira en 10% í félaginu. Heiðrún er óháð félaginu, daglegum stjórnendum þess og stórum hluthöfum í félaginu samkvæmt skilgreiningu í leiðbeiningum um góða stjórnarhætti.
Tómas Kristjánsson
Fæðingarár: 1965.
Menntun: MBA frá háskólanum í Edinborg 1997, Cand. Oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1989, lögiltur verðbréfamiðlari 2001.
Aðalstarf: Framkvæmdastjóri Siglu ehf.
Starfsreynsla: Starfandi eigandi hjá Siglu ehf. frá árinu 2007, Framkvæmdastjóri áhættustýringar, fjárstýringar og reikningshalds hjá Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, síðar Glitni banka (1998-2007), yfirmaður lánaeftirlits Iðnlánasjóðs (1990-1998).
Núverandi stjórnarseta: Í stjórn Heima frá apríl 2014 og stjórnarformaður frá mars 2017. Sigla ehf. (meðstjórnandi), Klasi ehf. (meðstjórnandi), Smárabyggð ehf. (stjórnarformaður), Húsafell Resort ehf. (meðstjórnandi), KLS eignarhaldsfélag ehf. (stjórnarformaður) og Adelfa ehf. (meðstjórnandi).
Önnur stjórnarseta sl. 5 ár: Húsafell hraunlóðir ehf. (meðstjórnandi), Hótel Húsafell ehf. (meðstjórnandi), Húsafell Giljaböð ehf. (meðstjórnandi) og Grunnur I ehf. (meðstjórnandi).
Hlutafjáreign í Heimum hf.: Sigla ehf., sem Tómas á að fullu á 65.000.000 hluti í félaginu eða 3,59%.
Hagsmunatengsl: Engin hagsmunatengsl eru við stærstu viðskiptavini félagsins, keppinauta þess eða hluthafa sem eiga meira en 10% í félaginu en telst háður stjórnarmaður þar sem hann er annar aðaleigandi KLS eignarhaldsfélags ehf. og situr í stjórn Klasa ehf. sem er samstarfsaðili Heima og Haga hf. vegna reksturs fasteignaþróunarfélags Klasa ehf.
Heimar | Frambjóðendur til stjórnar