Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Heimar hf. Proxy Solicitation & Information Statement 2024

Aug 9, 2024

2201_rns_2024-08-09_9cca7e3e-c17c-41a4-ad82-b0e73121d940.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Heimar

Hluthafafundur Heima hf. verður haldinn 30. ágúst 2024

Stjórn Heima hf., („Heimar“ eða „félagið“) boðar til hluthafafundar í félaginu og verður hann haldinn á skrifstofu félagsins að Hagasmára 1, 201 Kópavogi, föstudaginn 30. ágúst 2024 klukkan 12:15.

Dagskrá fundarins er svohljóðandi:

  1. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu lögð fram til sambykktar.
    Stjórn Heima leggur til við hluthafafund að uppfærð starfskjarastefna verði sambykkt.

  2. Tillaga stjórnar um kaupréttaráætlun fyrir stjórnendur.
    Stjórn Heima leggur til við hluthafafund að stjórn verði heimilað að sambykkja kaupréttaráætlun fyrir forstjóra, framkvæmdastjóra og aðra stjórnendur félagsins í samræmi við fyrirliggjandi tillögu.

  3. Tillaga stjórnar um breytingu á 4. gr. sambykkta félagsins.
    Stjórn Heima leggur til að við sambykktir verði bætt nýrri heimild í 2. mgr. 4. gr. til hækkunar hlutafjár vegna innleiðingar kaupréttaráætlunar.

  4. Önnur mál, löglega fram borin.
    Aðilar sem eru skráðir hluthafar í hlutaskrá samkvæmt hluthafakerfi félagsins þegar hluthafafundur fer fram geta beitt réttindum sínum á hluthafafundi. Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett en form að umboði er aðgengilegt á vefsíðu félagsins. Tekið skal fram að umboð getur aldrei gilt lengur en í eitt ár frá dagsetningu þess.

Óskað er eftir að umboð berist tímanlega fyrir dagsetningu hluthafafundar á netfangið [email protected] og skal það vera undirritað

af hluthafa eða prókúruhafa. Einnig er fundarmanni heimilt að framvísa umboði við mætingu á hluthafafund en þá skal þess gætt að mæta tímanlega til að hægt sé að yfirfara umboðið með tilliti til gildis þess. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er.

Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á hluthafafundinum, ef hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar áður en ein vika er til fundarins. Mikilvægt er að tillögur berist með það miklum fyrirvara að unnt sé að taka málö á dagskrá fundarins, en eigi síðar en tíu dögum fyrir hluthafafund, eða kl. 12:15 þann 20. ágúst 2024. Hægt er að senda tillögur fyrir fundinn á netfangið [email protected]

Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á heimasiðu félagsins.

Gögn vegna fundarins verða aðgengileg á skrifstofu félagsins og á vefsvæði tengdu hluthafafundi á heimasiðu félagsins, www.heimar.is/fjarfestavefur en endanleg dagskrá og tillögur verða aðgengilegar að minnsta kosti einni viku fyrir hluthafafund, sbr. 18. gr. sambykkta félagsins. Hluthafafundur félagsins verður án pappírsgagna.

Kópavogur, 9. ágúst 2024
Stjórn Heima hf.

Heimar hf. | 512 8900 | [email protected] | heimar.is