Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Heimar hf. Proxy Solicitation & Information Statement 2024

Aug 27, 2024

2201_rns_2024-08-27_a038925f-b460-485f-a49a-a65baf0eba90.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

GILDI

Heimar hf. (b.t. stjórnar)
Hagasmári 1
201 Kópavogur

Reykjavík, 27. ágúst 2024

Efni: Breytingartillaga vegna hluthafafundar 30. ágúst 2024

Með vísan til boðunar á hluthafafund Heima hf. óskar Gildi-lífeyrissjóður eftir því að eftirfarandi breytingartillaga varðandi dagskrárlið 2 um tillögu stjórnar um kaupréttaráætlun fyrir stjórnendur verði tekin til meðferðar á fundinum.

Dagskrárliður 2: Tillaga stjórnar um kaupréttaráætlun fyrir stjórnendur

Breytingartillaga: Lagt er til að hækkun nýtingarverðs kaupréttta nemi 7,5 árlegum vöxtum sem reiknast yfir tímabilið frá gerð kaupréttarsamnings og fram að nýtingardegi. Þá er lagt til að forstjóri geti að hámarki fengið úthlutað kaupréttum að 5 milljónum hluta í félaginu.

Greinargerð breytingartillögu:

Stjórn Heima hf. leggur til að komið verði á fót nýju kaupréttarkerfi innan félagsins. Fram kemur í kaupréttaráætlun að markmið hennar sé að tengja hagsmuni kaupréttarhafa við afkomu og langtímamarkmið félagsins og hluthafa þess. Þá er gert ráð fyrir að kaupréttarhöfum verði gert skylt að halda eftir tilteknum fjölda hluta þar til ákveðnu margfeldi af grunnlaunum er náð, þegar skattar hafa verið dregnir frá, allt til starfsloka hjá félaginu.

Gildi-lífeyrissjóður tekur undir og leggur áherslu á mikilvægi framangreindra atriða í afstöðu sinni varðandi kaupréttarkerfið. Sé slíkum kerfum komið á telur sjóðurinn mikilvægt að hagsmunir stjórnenda og hluthafa fari sem mest saman. Gild rök þurfa að vera fyrir því á hvaða hátt kaupréttarkerfi getur orðið félaginu og gengi þess á markaði til framdráttar og mikilvægt að slík kerfi séu útfærð í samhengi við önnur árangurstengd starfskjör. Eru ofangreindar breytingartillögur Gildis lagðar fram með þessi sjónarmið og áherslur í huga.

Sjóðurinn telur að fyrirliggjandi tillaga stjórnar um 5,5% árlega hækkun nýtingarverðs sé undir því sem eðlilegt getur talist, meðal annars með hliðsjón af þeirri ávöxtunarkröfu sem hluthafer og aðrir fjárfestar eru líklegir til að gera til hlutabréfa félagsins. Í breytingartillögu er því lagt til að nýtingarverð hækki þess í stað árlega um 7,5% sem sjóðurinn telur hóflegt í því samhengi og samtvinni þannig betur hagsmuni aðila.

Miðað við tillögu stjórnar væri mögulegt að úthluta kaupréttum til forstjóra þar sem undirliggjandi markaðsverð hlutabréfa félagsins að baki viðkomandi kaupréttum gæti

Lifeyrissjóður
Gildi
517-4700
www.gildi.is


GILDI

orðið nálægt 200 milljónum króna, miðað við núverandi gengi hlutabréfa félagsins. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga um kjör telur sjóðurinn að tillaga stjórnar um hámarksúthlutun í hinu nýja kaupréttarkerfi sé of viðamikil. Er því lagt til að umrædd hámarksúthlutun kauprétta til forstjóra verði lækkuð úr 7 í 5 milljónir hluta. Í þessu felst þó ekki hvatning eða skylda stjórnar félagsins til þess að nýta umrætt hámark.

Gildi-lífeyrissjóður telur það jákvætt skref að litið sé til heildarsamhengis launa stjórnenda félagsins við mótun á umfangi kerfisins með tengingu launakjara við þróun langtímakjarasamninga. Sjóðurinn telur almennt mikilvægt að gætt sé að því við úthlutun kauprétta að þeir leiði ekki til hreinna hækkana á kjörum heldur sé rétt að endurskoða aðra þætti starfskjara á móti til lækkunar (eða minni hækkana) samhliða því að úthlutun kauprétta fari fram.

Sjóðurinn fagnar því með hvaða hætti stjórn Heima hefur brugðist við ábendingum hluthafa með tilliti til aukins skýrleika tillögunnar og aukinnar upplýsingagjafar gagnvart hluthöfum.

Reykjavík, 27. ágúst 2024

Gildi-lífeyrissjóður

Lífeyrissjóður

Gildi 517-4700 www.gildi.is