Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Heimar hf. M&A Activity 2025

May 26, 2025

2201_rns_2025-05-26_4b001624-b36c-428c-bd79-5237a2271ced.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Heimar hf.: Samkeppniseftirlitið heimilar kaup Heima á Grósku

Heimar hf.: Samkeppniseftirlitið heimilar kaup Heima á Grósku

Vísað er til tilkynningar Heima hf. („Heimar“ eða „félagið“), dags. 23. apríl 2025, um kaup félagsins á öllu hlutafé Grósku ehf. og Gróðurhússins ehf. Í tilkynningunni kom fram að kaupin væru háð hefðbundnum fyrirvörum, m.a. samþykki Samkeppniseftirlitsins.  

Samkeppniseftirlitið hefur nú tilkynnt um að það telji hvorki forsendur til íhlutunar né frekari rannsóknar vegna kaupanna. Fyrirvaranum um samþykki Samkeppniseftirlitsins hefur því verið aflétt. Unnið er að frágangi viðskiptanna og má gera ráð fyrir því að afhending 258 milljón nýrra hluta í Heimum fari fram á næstu vikum. 

Frekari grein verður gerð fyrir viðskiptunum á síðari stigum eftir því sem tilefni er til og samræmi við lögbundna upplýsingagjöf félagsins.  

Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, s. 821 0001