Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Heimar hf. M&A Activity 2025

May 13, 2025

2201_rns_2025-05-13_eeccc8c9-3e72-4592-b3b1-38c21ddc1490.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Heimar hf.: Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemd við kaup Heima á Tryggvagötu ehf.

Heimar hf.: Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemd við kaup Heima á Tryggvagötu ehf.

Vísað er til tilkynningar Heima hf. („Heimar“ eða „félagið“), dags. 20. febrúar 2025, um kaup félagsins á öllu hlutafé Tryggvagötu ehf. Í tilkynningunni kom fram að kaupin væru háð ýmsum fyrirvörum, m.a. um niðurstöðu áreiðanleikakannana og samþykki Samkeppniseftirlitsins.  

Samkeppniseftirlitið hefur nú tilkynnt um að það telji ekki forsendur til íhlutunar eða frekari rannsóknar vegna kaupanna. Fyrirvaranum um samþykki Samkeppniseftirlitsins hefur því verið aflétt. Unnið er að afléttingu annarra fyrirvara.  

Frekari grein verður gerð fyrir viðskiptunum á síðari stigum eftir því sem tilefni er til og samræmi við lögbundna upplýsingagjöf félagsins.  

Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, s. 821 0001