AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Heimar hf.

M&A Activity Dec 20, 2024

2201_rns_2024-12-20_f15c6643-1385-40bf-8076-a79ed47a6e07.html

M&A Activity

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Heimar hf.: Einkaviðræður hafnar um möguleg kaup Heima hf. á öllu hlutafé í Grósku ehf.

Heimar hf.: Einkaviðræður hafnar um möguleg kaup Heima hf. á öllu hlutafé í Grósku ehf.

Heimar hf. („Heimar“ eða „félagið“) og hluthafar Grósku ehf., kt. 680515-1580, hafa í dag komist að samkomulagi um að hefja einkaviðræður um möguleg kaup Heima á öllu hlutafé í Grósku ehf.

Gróska ehf. á fasteignina Grósku að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík, sem er um 18.573 m2 að stærð ásamt 6.252 m2 bílakjallara með 205 stæðum, samtals 24.825 m2. Markmið Grósku er að skapa samfélag og grunnstoð nýsköpunar og menntunar á Íslandi.

Verði af viðskiptunum er fyrirhugað að kaupverð verði að öllu leyti greitt með hlutafé í Heimum. Þá munu Heimar yfirtaka skuldabréfaflokkinn GROSKA 29 GB.

Möguleg viðskipti verða háð ýmsum fyrirvörum og skilyrðum, svo sem um að samkomulag náist um skilmála viðskiptanna, niðurstöðu áreiðanleikakannana, samþykki hluthafafundar Heima fyrir hækkun hlutafjár og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Frekari grein verður gerð fyrir viðskiptunum á síðari stigum eftir því sem tilefni er til og í samræmi við lögbundna upplýsingagjöf félagsins.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, s. 821 0001

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.