Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Heimar hf. Earnings Release 2025

Oct 22, 2025

2201_rns_2025-10-22_e1d38505-4276-4f84-9b01-fe10160c6231.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Heimar hf.: Afkomutilkynning þriðja ársfjórðungs

Heimar hf.: Afkomutilkynning þriðja ársfjórðungs

Tekjur og EBITDA hækka um rúm 8% milli ára

  • Rekstrartekjur voru 11,8 ma.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins og leigutekjur hækka um 8,2% frá fyrra ári sem er 4% umfram hækkun verðlags á sama tíma.

  • Raunvöxtur leigutekna á sambærilegu eignasafni milli ára er 0,2%.

  • EBITDA nam 8,1 ma.kr. og hækkar einnig um 8,2% m.v. sama tímabil árið 2024.

  • Hagnaður var 2,9 ma.kr. en nam 5,6 ma.kr. á sama tímabili í fyrra sem skýrist af lægri matsbreytingu fjárfestingareigna í ár. Fjárfestingaeignir voru bókfærðar á 222 ma.kr.

  • Matsbreyting fjárfestingaeigna nam um 3,1 ma.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins.

  • Handbært fé 1,8 ma.kr. í lok tímabils.

  • Vaxtaberandi skuldir voru 131,2 ma.kr. í lok tímabils.

  • Skuldahlutfall var 60,6% og eiginfjárhlutfall 32,4% í lok tímabils.

Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima

„Rekstur gengur vel og tekjur frá Grósku og Exeter eru farnar að skila sér í öflugum vexti og aukinni arðsemi. Tekjuvöxtur leigutekna er 8,2% miðað við sama tímabil í fyrra sem jafngildir 4% raunvexti. Breyting á eignasafni hefur jákvæð áhrif á tekjuvöxt milli ára, en raunvöxtur á sambærilegu eignasafni milli ára er 0,2%. Áfram er sterk eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði og voru undirritaðir samningar fyrir tæplega 20 þúsund fermetra á fjórðungnum.

Útleiguhlutfall er 97% sem er sambærilegt og verið hefur. Um 42% af tekjum félagsins koma frá opinberum aðilum annars vegar og skráðum fyrirtækjum hins vegar. Vanskil leigutaka eru lág og mörg útleiguverkefni í burðarliðnum sem koma til með að verða tekjuberandi á næstu mánuðum.”

Rekstur og afkoma

Rekstrartekjur námu 11.801 m.kr. fyrstu níu mánuði ársins og þar af námu leigutekjur 11.186 m.kr. Leigutekjur hafa hækkað um 8,2% samanborið við sama tímabil 2024, sem jafngildir tæplega 4% raunaukningu. Nokkrar breytingar hafa orðið á eignasafninu á milli ára sem hafa áhrif á leigutekjur. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir (EBITDA) var 8.051 m.kr. sem samsvarar 8,2% hækkun samanborið við sama tímabil 2024.    

Afkomuspá fyrir árið 2025 var uppfærð og birt 21. ágúst sl. í kjölfar viðskipta á árinu. Leigutekjur eru áætlaðar 15.200-15.500 m.kr. og EBITDA 10.800-11.100 m.kr.

Til glöggvunar er það spá stjórnenda að leigutekjur núverandi eignasafns fyrir næstu tólf mánuði muni vera á bilinu 16.400-16.700 m.kr.

Eignasafn og efnahagur

Virði fjárfestingaeigna félagsins að frádregnum leigueignum er metið á 216.395 m.kr. Safnið samanstendur nú af 97 fasteignum sem alls eru um 389 þúsund fermetrar. Útleiguhlutfall helst hátt og er um 97% miðað við þær tekjur sem 100% útleiga gæfi, og undirstrikar sterka eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði. Heildarmatsbreyting fyrstu níu mánuði ársins nam 3.101 m.kr.

Umsvif og horfur

Alls voru gerðir 21 samningar fyrir um 18.684 m2 á þriðja ársfjórðungi, og er hann annar stærsti fjórðungur í útleigu hjá félaginu frá upphafi.

Stærstu samningar á tímabilinu voru við Teledyne Gavia í Vesturvör 29 fyrir um 5.150 m2, Smárabíó í Smáralind fyrir um 3.400 m2 og við Wise lausnir ehf. í Dvergshöfða 4 fyrir um 3.300 m2 sem er fyrsti leigusamningurinn í þeirri byggingu en um er að ræða nýtt hágæða skrifstofuhúsnæði sem rís á Borgarhöfða.

Mikil eftirspurn á kjarnasvæðum, t.d. við Smáralind í Kópavogi. Annars vegar var undirritaður samningu við Metta Sport um 650 m2 og hins vegar voru undirritaðir samningar vegna tveggja nýrra verslana í Smáralind. Öll veitingarými í nýrri mathöll, sem opnar í Smáralind á næstu mánuðum, hafa verið útleigð, alls þrettán talsins. Mikil eftirspurn var eftir því að fá að vera með starfsemi á svæðinu.

Sjálfbærni

Umhverfisvottuðum eignum félagsins fjölgaði á tímabilinu og eru vottaðar eignir félagsins orðnar sjö talsins og nema um 42% af eignasafni félagsins. Fasteignirnar Gróska og Dvergshöfði 2 bættust nýlega í safn vottaðra eigna.

Finna má upplýsingar um fjárhagslega mælikvarða vottaðra eigna félagsins ásamt upplýsingum um kolefnisspor þeirra, rafmagns- og vatnsnotkun í áhrifaskýrslu grænnar fjármögnunar sem finna má á vefsíðu Heima.

Fjármögnun

Fjárhagsstaða félagsins er sterk og fjárhagsleg skilyrði innan marka lánaskilmála, eiginfjárhlutfall 32,4% (skilyrði 25%). Í lok tímabilsins var handbært fé 1.763 m.kr. og auk þess hafði félagið aðgang að ónýttum lánalínum að fjárhæð 2.700 m.kr. í lok tímabilsins.

Þann 16. október sl. lauk útboði á nýjum grænum skuldabréfaflokk, HEIMAR230628 GB. Flokkurinn er óverðtryggður og ber 3 mánaða REIBOR vexti að viðbættu 0,90% álagi. Alls seldust skuldabréf að nafnvirði 1.120 m.kr.

Kynningarfundur á afkomutilkynningu

Samhliða birtingu afkomutilkynningar bjóða Heimar til opins kynningarfundar samdægurs kl. 16:15. Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins í Smáralind, Hagasmára 1, 201 Kópavogi. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Heima mun kynna uppgjörið og svarar spurningum að lokinni kynningu. Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið [email protected]. Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð: https://www.heimar.is/kynningarfundir/afkomutilkynning-3f-2025/

Hægt er að nálgast árshlutareikning vegna fyrstu níu mánaða ársins og kynningargögn á  https://www.heimar.is/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/

Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima hf., sími: 821 0001