AI assistant
Heimar hf. — Capital/Financing Update 2026
Mar 27, 2026
2201_rns_2026-03-27_1c98b53a-efda-4605-9cfd-96a80227f014.html
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Heimar hf.: Tilfærsla á skuldabréfaflokknum GRÓSKA 29 GB
Heimar hf.: Tilfærsla á skuldabréfaflokknum GRÓSKA 29 GB
Vísað er til tilkynningar Grósku ehf. („Gróska“) um niðurstöður veðhafafundar skuldabréfaflokksins GRÓSKA 29 GB.
Á fundinum voru samþykktar nánar tilgreindar skilmálabreytingar á skuldabréfaflokknum GRÓSKA 29 GB sem fela einkum í sér skuldaraskipti með því að í stað Grósku ehf. verði Heimar hf. („Heimar“) skuldari samkvæmt skuldabréfunum og að í stað núverandi veðtryggingafyrirkomulags verði kröfur samkvæmt skuldabréfunum tryggðar samkvæmt almenna tryggingafyrirkomulagi Heima.
Stjórn Heima hefur samþykkt skilmálabreytingarnar fyrir sitt leyti. Gert er ráð fyrir að breytingarnar taki gildi að lokinni skjalagerð og þinglýsingu viðeigandi skjala.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson, framkvæmdastjóri fjármála, [email protected]