AI assistant
Heimar hf. — Capital/Financing Update 2026
Mar 3, 2026
2201_rns_2026-03-03_67cc46eb-2761-41e6-a6bf-baeff41b9679.html
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Heimar hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum HEIMAR301036 GB
Heimar hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum HEIMAR301036 GB
Heimar hf. („Heimar“ eða „félagið“) hefur í dag lokið við stækkun skuldabréfaflokksins HEIMAR301036 GB.
HEIMAR301036 GB er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins.
Seld voru skuldabréf að nafnverði 5.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,60% og verður heildarstærð flokksins því, í kjölfar stækkunarinnar, að nafnverði 8.000 m.kr.
Áætlaður uppgjörsdagur viðskiptanna er 13. mars 2026 og verður í kjölfarið óskað eftir því að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq.
Tilgangur útgáfunnar er að fjármagna fjárfestingaverkefni félagsins á næstu mánuðum.
ACRO verðbréf hf. hafði umsjón með viðskiptunum og stækkun skuldabréfaflokksins.
Umgjörð um græna fjármögnun, ásamt vottun frá CICERO, má nálgast á vefsíðu Heima á slóðinni https://www.heimar.is/fjarfestar/fjarmoegnun/graen-fjarmoegnun/.
Nánari upplýsingar veitir:
Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – [email protected]