Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Heimar hf. Capital/Financing Update 2025

Oct 16, 2025

2201_rns_2025-10-16_8910b871-82e2-439e-890c-f23b997486c2.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Heimar hf.: Útgáfa á nýjum grænum skuldabréfaflokk

Heimar hf.: Útgáfa á nýjum grænum skuldabréfaflokk

Heimar hf. (Nasdaq: HEIMAR) hefur lokið útboði á nýjum skuldabréfaflokki HEIMAR230628 GB

HEIMAR230628 GB er grænn, óverðtryggður flokkur og ber fljótandi vexti tengda þriggja mánaða REIBOR að viðbættu vaxtaálagi með lokagjalddaga 23. júní 2028 og greiðist höfuðstóllinn á lokagjalddaga. Flokkurinn verður veðtryggður í almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins.

Alls bárust tilboð að fjárhæð 1.920 m.kr. á álaginu 0,88% til 1,05% á 3M REIBOR. Ákveðið var að taka tilboðum að fjárhæð 1.120 m.kr. að nafnverði á álaginu 0,90%.

Uppgjör viðskiptanna er fyrirhugað þann 23. október næstkomandi. Óskað verður eftir því að hin nýju skuldabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. í kjölfarið.

Útboðið er undanþegið gerð lýsingar, sbr. d-liður 4. mgr. 1. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1129, sbr. lög nr. 14/2020. Nálgast má grunnlýsingu, endanlega skilmála, grænu umgjörðina og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks á vefsíðu félagsins á slóðinni https://www.heimar.is/fjarfestar/fjarmoegnun/

Tilkynningar sem félagið birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna ásamt töku þeirra til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar:

Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – [email protected]