Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Heimar hf. Capital/Financing Update 2025

Jun 11, 2025

2201_rns_2025-06-11_a07e51df-6385-4367-8eff-821200557401.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Heimar hf.: Útboð skuldabréfa

Heimar hf.: Útboð skuldabréfa

Heimar hf. (Nasdaq: HEIMAR) heldur útboð á skuldabréfum, á föstudaginn 13. júní 2025. Boðin verða til sölu skuldabréf í skuldabréfaflokknum HEIMAR50 GB.

HEIMAR50 GB er grænn, verðtryggður flokkur sem er veðtryggður með almenna tryggingarfyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 20. ágúst 2050 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára jafngreiðsluferli (e. annuity) fram til lokagjalddaga. Greiðslur vaxta og höfuðstóls fara fram á þriggja mánaða fresti, þ.e. í febrúar, maí, ágúst og nóvember ár hvert. Nafnvextir bréfsins eru 2,477% og núverandi stærð er 14.420 m.kr að nafnverði.

Útboðið verður með hollenskri aðferð þar sem öll samþykkt tilboð verða tekin á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða að hluta, eða hafna þeim öllum.

Uppgjör viðskiptanna er fyrirhugað þann 24. júní næstkomandi. Óskað verður eftir því að hin nýju skuldabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. í kjölfarið.

Útboðið er undanþegið gerð lýsingar, sbr. d-liður 4. mgr. 1. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1129, sbr. lög nr. 14/2020. Nálgast má grunnlýsingu, endanlega skilmála og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks á vefsíðu félagsins á slóðinni https://www.heimar.is/fjarfestar/fjarmoegnun/

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna ásamt töku þeirra til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson, framkvæmdastjóri fjármála, [email protected]