AI assistant
Heimar hf. — Board/Management Information 2026
Mar 11, 2026
2201_rns_2026-03-11_da94c988-a552-4afa-80c1-7769d61591e0.html
Board/Management Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Heimar hf.: Upplýsingar um stjórn
Heimar hf.: Upplýsingar um stjórn
Í kjölfar aðalfundar Heima hf. hefur stjórn félagsins komið saman og skipt með sér verkum.
Tómas Kristjánsson var kjörinn formaður stjórnar og Birgir Már Ragnarsson varaformaður stjórnar. Aðrir aðalmenn í stjórn eru Guðrún Tinna Ólafsdóttir, Heiðrún Emilía Jónsdóttir og Steingrímur Halldór Pétursson. Í varastjórn sitja Andri Sveinsson og Bryndís Hrafnkelsdóttir.
Í endurskoðunarnefnd tóku sæti Anna Þórðardóttir, löggiltur endurskoðandi, sem formaður, Heiðrún Emilía Jónsdóttir stjórnarmaður, Steingrímur Halldór Pétursson stjórnarmaður og Andri Sveinsson varamaður í stjórn.
Í starfskjaranefnd tóku sæti Guðrún Tinna Ólafsdóttir stjórnarmaður, sem formaður, Tómas Kristjánsson stjórnarmaður, Birgir Már Ragnarsson stjórnarmaður og Bryndís Hrafnkelsdóttir varamaður í stjórn.
Áðurnefnd skipan felur í sér að kynjahlutfall stjórnar er 57% karlar og 43% konur. Hlutfall kvenna í undirnefndum stjórnar er 50% og karla 50%.