Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Heimar hf. AGM Information 2025

Mar 5, 2025

2201_rns_2025-03-05_0672ce94-9a03-4402-878c-2ea16e08c2a7.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Heimar hf.: Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar á aðalfundi 11. mars 2025

Heimar hf.: Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar á aðalfundi 11. mars 2025

Aðalfundur Heima hf. („Heimar“ eða „félagið“) verður haldinn þriðjudaginn 11. mars 2025 í Grósku, í salnum Eiriksdottir, Bjargargötu 1, 102 Reykjavík, kl. 16:00.

Framboðsfrestur til stjórnar og tilnefningarnefnd Heima rann út þann 4. mars sl.

Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn og tilnefningarnefnd félagsins.

Í framboði til aðalstjórnar eru:

Bendikt Olgeirsson

Bryndís Hrafnkelsdóttir

Guðrún Tinna Ólafsdóttir

Heiðrún Emilía Jónsdóttir

Tómas Kristjánsson

Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm einstaklingum kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Önnur framboð til stjórnar voru dregin til baka og verður því stjórn félagsins sjálfkjörin á aðalfundinum.

Í framboði til tilnefningarnefndar er:

Heiðrún Lind Marteinsdóttir

Á dagskrá aðalfundar er kjör eins nefndarmanns í tilnefningarnefnd félagsins til tveggja ára. Þar sem engin önnur framboð í tilnefningarnefnd bárust innan framboðsfrests verður nefndarmaður tilnefningarnefndar sjálfkjörinn á aðalfundinum.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar og tilnefningarnefndar má finna í meðfylgjandi viðhengjum auk skýrslu tilnefningarnefndar.

Önnur fundargögn tengd aðalfundi, umboðsform o.fl. má nálgast á vef félagsins https://www.heimar.is/fjarfestar/adrar-upplysingar/hluthafafundir/

Kópavogur, 5. mars 2025.

Stjórn Heima hf. 

Viðhengi: