AGM Information • Aug 30, 2024
AGM Information
Open in ViewerOpens in native device viewer
Heimar hf.: Niðurstöður hluthafafundar Heima hf. 30. ágúst 2024
Hluthafafundur Heima hf. var haldinn á skrifstofu félagsins að Hagasmára 1, 201 Kópavogi, föstudaginn 30. ágúst 2024. Fundurinn hófst klukkan 12:15.
1. *Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu lögð fram til samþykktar*
Hluthafafundur samþykkti framlagða starfskjarastefnu með öllum greiddum atkvæðum.
2. *Tillaga stjórnar um kaupréttaráætlun fyrir stjórnendur*
2.1 Breytingartillaga Gildis-lífeyrissjóðs við tillögu stjórnar
Breytingartillaga Gildis-lífeyrissjóðs hlaut minnihluta greiddra atkvæða og náði því ekki fram að ganga.
2.2 Uppfærð tillaga stjórnar um kaupréttaráætlun fyrir stjórnendur
Á fundinum var borin fram breytingartillaga stjórnar við fyrri tillögu stjórnar.
Í breytingartillögunni felst að forstjóri getur að hámarki átt rétt á 6 milljónum hluta. Aðrir þættir eru óbreyttir frá fyrri tillögu stjórnar.
Hluthafafundur samþykkti uppfærða tillögu stjórnar um kaupréttaráætlun fyrir stjórnendur með framangreindum breytingum með meirihluta greiddra atkvæða.
3. *Tillaga stjórnar um breytingu á 4. gr. samþykkta félagsins*
Lögð var fram tillaga stjórnar um að bæta við heimild til handa stjórn í 2. mgr. 4. gr. samþykkta félagsins vegna hækkunar hlutafjár vegna innleiðingar kaupréttarkerfis.
Tillagan var samþykkt með auknum meirihluta.
4. *Önnur mál*
Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum.

Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.