Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Orkla ASA Annual Report 2016

Feb 8, 2017

3703_rns_2017-02-08_62bc0d89-f171-4371-a835-09adf63b9601.pdf

Annual Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Ársreikningur

Fagfjárfestasjóðurinn ORK

2016

VIRDING

REKSTRARFÉLAG


Efnisyfirlit

Ársreikningur - Fagfjárfestasjóðurinn ORK

Skýrsla stjórnar 2
Áritun óháðs endurskoðanda 3 - 4
Rekstrarreikningur árið 2016 5
Efnahagsreikningur 31. desember 2016 6
Yfirlit um breytingu á hreinni eign árið 2016 7
Skýringar 8 - 11

Stjórn Fagfjárfestasjóðsins ORK

Kristján Einarsson, stjórnarformaður
Anna Bjarney Sigurðardóttir
Ólöf Jónsdóttir

Framkvæmdastjóri

Þórólfur Sigurðsson

Kjörinn endurskoðandi

Baker Tilly Rýni
Rýni endurskoðun ehf.
Gunnar Þór Ásgeirsson


Skýrsla stjórnar

Fagfjárfestasjóðurinn ORK er fagfjárfestasjóður í rekstri Rekstrarfélags Virðingar hf.

Ársreikningur sjóðsins er hluti af ársreikningi Rekstrarfélags Virðingar hf. sem inniheldur ársreikning félagsins ásamt ársreikningi verðbréfasjóða, fjárfestingarsjóða og fagfjárfestasjóða Rekstrarfélags Virðingar hf. Hann er gerður eftir sömu reikningsskilaaðferðum og aðrir sjóðir Rekstrarfélags Virðingar hf. Ðessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.

Breyting á hreinni eign sjóðsins nam 35 þúsundum króna á árinu. Hrein eign sjóðsins í árslok nam 741 þúsundum króna samkvæmt efnahagsreikningi.

Stjórn Fagfjárfestasjóðsins ORK og framkvæmdastjóri Rekstrarfélags Virðingar hf. staðfesta hér með ársreikning félagsins fyrir árið 2016 með undirritun sinni.

Reykjavík, 8. febrúar 2017

Stjórn:
img-0.jpeg

Framkvæmdastjóri
img-1.jpeg

Fagfjárfestasjóðurinn ORK. - ársreikningur 2016


Áritun óháðs endurskoðanda

Til stjórnar og hluthafa Fagfjárfestasjóðsins ORK

Álit

Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning Fagfjárfestasjóðsins ORK fyrir árið 2016. Ársreikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, efnahagsreikning, yfirlit yfir breytingu á hreinni eign, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2016, efnahag þess 31. desember 2016 og breytingu á hreinni eign á árinu 2016, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um ársreikninga verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða.

Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir ársreikningi þessum eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.

Grundvöllur fyrir álíti

Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt þeim stöðlum er nánar lýst í kaflanum um ábyrgð endurskoðanda hér fyrir neðan. Við erum óháð Fagfjárfestasjóðnum ORK í samræmi við settar síðareglur fyrir endurskoðendur á Íslandi og höfum við uppfyllt ákvæði þeirra. Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.

Ábyrgð stjórnar og framkvæmdarstjóra á ársreikningnum

Stjórn og framkvæmdarstjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur. Stjórn og framkvæmdarstjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er varðandi gerð og framsetningu ársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka. Við gerð ársreikningsins eru stjórn og framkvæmdastjóri ábyrg fyrir því að meta rekstrarhæfi Fagfjárfestasjóðsins ORK. Ef við á, skulu stjórn og framkvæmdastjóri setja fram viðeigandi skýringar um rekstrarhæfi og hvers vegna ákvæðið var að beita forsendunni um rekstrarhæfi við gerð og framsetningu ársreikningsins, nema stjórn og framkvæmdastjóri hafi ákvæðið að leysa félagið upp eða hætta starfsemi, eða hafa enga aðra raunhæfa möguleika en að gera það. Stjórn skal hafa eftirlit með gerð og framsetningu ársreikningsins.

Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun ársreikningsins

Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er af völdum sviksemi eða mistaka og að gefa út áritun sem felur í sér álit okkar. Nægjanleg vissa er mikil vissa, en ekki trygging þess að endurskoðun framkvæmd í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni uppgötva allar verulegar skekkjur séu þær til staðar. Skekkjur geta orðið vegna mistaka eða sviksemi og eru álitnar verulegar ef þær gætu haft áhrif á fjárhagslega ákvarðanatóku notenda ársreikningsins, einar og sér eða samanlagðar.

Fagfjárfestasjóðurinn ORK, - ársreikningur 2016


Áritun óháðs endurskoðanda

Endurskoðun okkar í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla byggir á faglegri dómgreind og beitum við faglegri tortryggni í gegnum endurskoðunina. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:

  • Greinum og metum hættuna á verulegri skekkju í ársreikningnum, hvort sem er vegna mistaka eða sviksemi, hónnum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeim hættum og óflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgótva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgótva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, skjalafals, misvísandi framsetningu ársreiknings, að einhverju sé viljandi sleppt eða að farið sé framhjá innri eftirlitsaðgerðum.

  • Óflum skilnings á innra eftirliti, sem snertir endurskoðunina, í þeim tilgangi að hanna viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki í þeim tilgangi að veita álit á virkni innra eftirlits félagsins.

  • Metum hvort reikningsskilaaðferðir sem notaðar eru, og tengdar skýringar, séu viðeigandi og hvort reikningshaldslegt mat stjórnenda sé raunhæft.

  • Ályktum um notkun stjórnenda á forsendunni um rekstrarhæfi og metum á grundvelli endurskoðunarinnar hvort verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi eða hvort aðstæður séu til staðar sem getu valdið verulegum efasemðum um rekstrarhæfi. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum ársreikningsins í áritun okkar. Ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi þurfum við að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Engu að síður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni valdið óvissu um rekstrarhæfi félagsins.

  • Metum í heild sinni hvort ársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum, metum framsetningu, uppbyggingu, innihald og þar með talið skýringar með tilliti til glöggrar myndar.

Okkur ber skylda til að upplýsa stjórn meðal annars um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem komu upp í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirlit sem komu fram í endurskoðuninni, ef við á.

Reykjavík, 8. febrúar 2017

img-2.jpeg

Fagfjárfestasjóðurinn ORK. - ársreikningur 2016


Rekstrarreikningur ársins 2016

Skýr. 2016 2015
Fjármunatekjur
Vextir og verðbætur 319.556.836 313.336.068
Vaxtagjöld og gangvirðisbreytingar skulda (306.466.122) (297.802.644)
Hreinar fjármunatekjur 13.090.714 15.533.424
Rekstrargjöld
Umsýsluþóknun 10.000.000 10.000.000
Annar rekstrarkostnaður 3.055.412 5.499.802
Rekstrargjöld 13.055.412 15.499.802
Afkoma ársins færð á hlutdeildarskirteln! 35.302 33.622

Fagfjárfestasjóðurinn ORK. - ársreikningur 2016


Efnahagsreikningur 31.12.2016

Eignir Skýr. 31.12.2016 31.12.2015
Fjárfestingar:
Verðbréf með fóstum tekjum 4 5.494.788.724 5.516.056.828
Sjóðir 193.448.522 170.460.220
Verðbréf 5.688.237.246 5.686.517.048
Aðrar eignir
Bankainnisteður 257.600 3.616.297
Aðrar eignir 257.600 3.616.297
Eignir alls 5.688.494.846 5.690.133.345
Skuldir
Hlutdeildarskírteini 3 741.361 706.059
Hlutdeildarskírteini alls 741.361 706.059
Skuldabréfaútgáfa 4.579.436.201 4.485.424.053
Fjárskuldir metnar á gangvirði 1.104.903.451 1.196.435.401
Ýrnsar skammtímaskuldir 3.413.833 7.567.832
Aðrar skuldir alls 5.687.753.485 5.689.427.286
Skuldir alls 5.688.494.846 5.690.133.345

Fagfjárfestasjóðarinn ORK. - årsreikningar 2016


Yfirlit um sjóðstreymi ársins 2016

Skýr. 2016 2015
Rekstrarhreyfingar
Afkoma ársins færð á hlutdeildarskírteini 35.302 33.622
Rekstrarlíðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi:
Aðrir líðir 319.556.836 320.516.852
319.592.138 320.550.474
Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Verðbréf (hækkun) lækkun (261.379.840) (289.542.609)
Skammtímaskuldir, hækkun (lækkun) (4.153.999) 4.234.499
Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum (265.533.839) (285.308.110)
Handbært fé frá (til) rekstri 54.058.299 35.242.364
Fjárfestingahreyfingar
Keypt verðbréf umfram seld (57.416.996) (34.970.857)
Fjárfestingarhreyfingar (57.416.996) (64.970.857)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé (3.358.697) 271.507
Handbært fé í ársbyrjun 3.616.297 3.344.790
Handbært fé í lok. ársins 257.600 3.616.297

Fagfjárfestasjóðarinn ORK. - ársreikningur 2016


Skýringar

1. Starfsemi

Fagfjárfestasjóðurinn ORK er fagfjárfestasjóður í rekstri Rekstrarfélags Virðingar hf.

2. Reikningsskilaaðferðir

Grundvöllur reikningsskilanna

Ársreikningur Fagfjárfestasjóðsins ORK árið 2016 er gerður í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða útgefnar af Fjármálaeftirlitinu.

Ársreikningurinn byggir á kostnaðarverðsreikningsskilum að því undanskildu að verðbréf eru skráð á markaðsvirði.

Eftirfarandi er samantekt á helstu reikningsskilaaðferðum félagsins.

Mat og ákvarðanir

Í samræmi við lög um ársreikninga ber stjórnendum við gerð ársreiknings að meta, draga ályktanir og taka ákvarðanir sem hafa áhrif á eignir, skuldir, tekjur og gjöld á reikningsskiladegi. Það sama gildir um upplýsingar í skýringum ársreiknings. Við mat og ályktanir er byggt á reynslu og ýmsum öðrum þáttum sem taldir eru viðeigandi og myndu grundvöll þeirra ákvarðana sem teknar eru um bókfært verð eigna og skulda sem ekki liggur fyrir með öðrum hætti.

Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem þær eiga sér stað.

Fjármagnsliðir

Fjármagnsliðir eru færðir í rekstrarreikning á því tímabili sem þeir falla til miðað við virka vexti. Meðal fjármagnsliða eru affóll, yfirverð og annar mismunur sem kann að vera á upphaflægu bókfærðu verði fjármálagerninga og fjárhæða á gjaldaga miðað við virka vexti.

Virkir vextir eru ávöxtunarkrafa sem notuð er við núvirðingu áætlaða sjóðstreymis yfir áætlaðan líftima fjármálagerninga eða styttra tímabil, eftir því sem við á, þannig að það jafngildi bókfærðri fjárhæð fjárcignarinnar eða fjárskuldarinnar í efnahagsreikningi. Þegar virkir vextir eru reiknaðir áætlar samstæðan sjóðstreymi með tilliti til allra samningsþátta fjármálagerninga en tekur ekki tillit til útlánataps í framriðinni.

Arður

Arður er færður þegar krafa um hann myndast.

Gengismunur

Gengismunur er óinnlcystur hagnaður eða tap af fjárfestingareignum. Matsbreytingar fjárfestingareigna sem og gengismunur erlendra mynta er færður í rekstrarreikningi þegar krafa um hann myndast.

Skráning tekna

Tekjur af vörusölu og þjónustu eru færðar þegar til þeirra hefur verið unnið. Vörusala er skráð þegar vörur eða verulegur hluti áhættu og ávinnings af eignarhaldi flyst yfir til kaupanda. Þjónustutekjur eru færðar þegar þjónustan hefur verið innt af hendi. Sala er sýnd í rekstrarreikningi að teknu tilliti til afslátta.

Umsýsluþóknanir

Sjóðurinn greiðir Rekstrarfélagi Virðingar hf. umsýsluþóknun sem ætlað er að standa undir rekstrarkostnaði og umsýslu vegna þeirra. Umsýsluþóknun er tilgreind sérstaklega í reglum sjóðsins.

Lotun gjalda

Útgjøld eru færð á því tímabili sem til þeirra er stofnað og kröfuréttur seljanda hefur myndast.

Fagfjárfestasjóðurinn ORK. - ársreikningur 2016


Skýringar

Skattamál

Verðbréfasjóðir og fjárfestingarsjóðir greiða ekki tekjuskatt heldur er hagnaður af rekstri þeirra skattlagður hjá eigendum hlutdeildarskirtinanna. Einstaklingar greiða fjármagnstekjuskatt af hagnaði sínum af bréfunum þegar þeir innleysa hann. Hagnaður og tap af hlutdeildarskirtinum telst til skattskyldra tekna eða gjalda hjá félögum óháð innlaunn.

Sjóðirnir eru undanþegnir fjármagnstekjuskatti hér á landi en ekki í þeim lóndum þar sem fjármagnstekjuskattur er lagður á tekjur erlendra aðila og ekki eru í gildi tvisköttunarsamningar milli Íslands og viðkomandi ríkis um að sílkar tekjur skulu skattleggjast hér á landi.

Fjárfestingarverðbréf

Fjármálagerningar sem skráðir eru á skipulögðum verðbréfamarkaði sem er virkur og verðmyndandi eru metnir á markaðsverði í lok desember 2016. Virði annarra fjármálagerninga er háð mati rekstrarfélags að teknu tilliti til markaðsadstæðna hverju sinni. Við mat á þessum eignum er reiknuð niðurfærsla sem tekur mið af almennri áhættu, áætludú endurheimtuhlutfalli og aðstæðum á markaði í lok tímabilsins.

Hlutabréf sem skráð eru á skipulögðum verðbréfamarkaði sem er virkur og verðmyndandi eru metin á markaðsverði í lok desember 2016. Öskráð hlutabréf eru færð á síðasta þekkta viðskiptaverði eða áætludú markaðsverði ef það er talið lægra.

Hlutdeildarskirteini í verðbréfasjóðum eru metin samkvæmt skráðu kaupungi sem gilti í lok desember 2016.

Bundin innlán hjá lánastofnunum eru uppfærð með áföllnum vöxtum, verðbótum og gegnismun í lok desember 2016.

Hlutdeildarskirteini í verðbréfasjóðum eru metin samkvæmt kaupungi í árslok.

Viðskiptakröfur

Viðskiptakröfur eru færðar á nafnverði að frádreginni niðurfærslu til að mæta þeim kröfum sem kunna að tapast. Niðurfærslan er byggð á mati á tapsáhættu gagnvart einstökum kröfum og kröfunum í heild.

Handbært fé

Sjóður og bankainnstæður teljast til handbærs fjár í efnahagsreikningi og við gerð sjóðstreymis.

Langtímaskuldir

Langtímaskuldir eru metnar á nafnverði að frádregnum greiddum afborgunum og eru eftirstöðvar nafnverðs reiknaðar upp miðað við gildandi gengi eða visítölu í lok tímabilsins eftir því sem við á. Vaxtagjöld vegna langtímalána eru færð til gjalda á því tímabili sem þau tilheyra. Lántökukostnaður vegna nýrra lána er færður til lækkunar langtímaskulda í ársreikningi og er innleystur í rekstrarreikning miðað við virka vexti.

Viðskiptaskuldir

Viðskiptaskuldir eru færðar á nafnverði að teknu tilliti til gengismunar.

Skuldbindingar

Skuldbindingar eru færðar upp í efnahagsreikningi ef líklegt þykir að félagið verði fyrir fjárhagslegum útgjöldum í framtíðinni vegna tiltekins atburðar eða viðskipta og hægt er að meta fjárhæð hennar með áreiðanlegum hætti.

Fjárskuldir eru metnar á gangvirði eða nafnvirði eftir því sem við á. Innleystur og óinnleystur hagnaður og tap af þessum eignum er færður í rekstrarreikning undir liðinn vaxtagjöld og gangvirðisbreytingar skulda.

Gangvirði fjárskulda sem eru skráðar á virkum markaði er sama og skráð verð þeirra. Matsaðferðum er beitt á alla aðra fjármálagerninga við útreikning á gangvirði þeirra.

Fagfjárfestasjóðurinn ORK, - ársreikningur 2016


Skýringar

3. Hlutdeildarskírteini

Nafnávöxtun sjóðsdeilda Rekstrarfélags Virðingar hf.: Siðustu Siðustu Siðustu
3 mánuði 6 mánuði 12 mánuði
Fagfjárfestasjóðurinn ORK 1,25% 2,50% 5,00%
Yfirlit um bókfært verðmæti og gengi hlutdeildarskírteina: Bókfært verð Bókfært verð
31.12.2016 31.12.2015
Fagfjárfestasjóðurinn ORK 741.361 706.059
Yfirlit um hlutfallslega skiptingu cigna einstakra sjóðsdeilda og fjárfestingarstefnu:
Fagfjárfestasjóðurinn ORK 100,00%
Sundurliðun fjárfestinga sjóðsins:
Fagfjárfestasjóðurinn ORK
Verðbréf, önnur en peningamarkaðsskjöl 5.494.788.724
Hlutfall 100,00%
Hlutfall skammtímalána
Skammtímalán sem hlutfall eigna sjóðsins greinist þannig
Heildareignir 5.688.494.846
Ýmsar skammtímaskuldir 3.413.833
Hlutfall 0,06%
Fagfjárfestasjóðurinn ORK
Skuldabréf Magma Energy 5.494.788.724
Skuldabréfaútgáfa FORK 17 09 01 (4.579.436.201)
Seljendalán Reykjaviesbær (1.104.903.451)
Handbært fé 257.600
Aðrar eignir og skuldir 190.034.689
Hlutdeildarskírteini samtala 741.361

Fagfjárfestasjóðurinn ORK. - ársreikningur 2016


Skýringar

4. Sundurliðun vegna Magma Skuldabréfs

31.12.2016 31.12.2015
Höfuðstóll Magma 6.289.942.651 6.289.942.651
Vaxtaviðbót við höfuðstól 223.817.126 223.817.126
Höfuðstóll við kaup 6.513.759.777 6.513.759.777
Verðbætur skv. álverðsvísitölu 420.292.797 186.057.836
Verðbættur höfuðstóll 6.934.052.574 6.699.817.613
Áfallnir vextir 161.794.560 109.430.354
Höfuðstóll m/áföllnum vöxtum og verðbótum 7.095.847.134 6.809.247.967
Niðurfærsla (1.601.058.410) (1.293.191.139)
Samtals bókfærð staða í árslok 5.494.788.724 5.516.056.828

Í lok júní 2016 barst sjóðnum tilbóð varðandi skilmála skuldabréfs Magma Energy Sweden sem fól í sér að gjalddagi höfuðstóls skuldabréfsins yrði 16. júlí 2017 í stað 16. júlí 2016, jafnframt að vextir skuldabréfsins yrðu 5,0% frá og með 16. júlí 2016 í stað þáverandi vaxtaprósentu 3,5%. Tilboðinu var tekið og gilda því hinir nýju skilmálar skv. framanrituðu.

Fagfjárfestasjóðurinn ORK. - ársskiringur 2016