AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Origo

Pre-Annual General Meeting Information Feb 14, 2020

2208_agm-r_2020-02-14_f5f59002-7f05-4aea-be4c-12f99a1d9530.pdf

Pre-Annual General Meeting Information

Open in Viewer

Opens in native device viewer

AÐALFUNDUR ORIGO HF.

Föstudaginn 6. mars 2020 kl. 14.00 í ráðstefnusal félagsins að Borgartúni 37

    1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið starfsár
    1. Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað félagsins á reikningsárinu
    1. Tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum sem felur í sér breytingu á grein 2.1 í samþykktum félagsins
    1. Tillaga stjórnar um að breyta grein 5.1 í samþykktum félagsins þannig að stjórn verði framvegis skipuð 5 mönnum og engum varamanni
    1. Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og fyrir setu í undirnefndum
      1. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu
      1. Tillaga stjórnar um kaupréttaráætlun
    1. Tillaga um breytingu á samþykktum þannig að stjórn verði veitt heimild til að hækka hlutafé um allt að kr. 18.834.000 að nafnverði
      1. Kosning stjórnar
    1. Kosning endurskoðanda
    1. Tillaga stjórnar um tvo fulltrúa í tilnefningarnefnd
    1. Tillögur frá hluthöfum
    1. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum sbr. 55. gr. hlutafélagalaga
    1. Tillaga stjórnar um arðgreiðslustefnu
    1. Önnur mál

RÉTTUR HLUTHAFA TIL AÐ FÁ MÁL SETT Á DAGSKRÁ HLUTHAFAFUNDAR OG KOSNING

Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar með nægilegum fyrirvara til að unnt sé að taka mál til meðferðar á fundinum. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 14.00 þriðjudaginn 25. febrúar 2020. Nánari upplýsingar um þátttöku og atkvæðagreiðslu er að finna á heimasíðu félagsins.

Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Fundargögn verða afhent á fundarstað.

Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.

AÐRAR UPPLÝSINGAR

Endanleg dagskrá og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins og allar tillögur, verða hluthöfum tiltæk á heimasíðu félagsins og munu jafnframt liggja frammi á skrifstofu félagsins. Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. a. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Tilkynnt verður um framboð til stjórnar á heimasíðu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn.

Tillaga tilnefningarnefndar félagsins um samsetningu stjórnar er aðgengileg á heimasíðu félagsins. Endanlegar upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.

Reykjavík, 14. febrúar 2020, stjórn Origo hf.

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.