Pre-Annual General Meeting Information • Feb 13, 2019
Pre-Annual General Meeting Information
Open in ViewerOpens in native device viewer
í ráðstefnusal félagsins að Borgartúni 37
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar með nægilegum fyrirvara til að unnt sé að taka mál til meðferðar á fundinum. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16.00 mánudaginn 25. febrúar 2019. Nánari upplýsingar um þátttöku og atkvæðagreiðslu er að finna á heimasíðu félagsins.
Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Endanleg dagskrá svo og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins og allar tillögur, verða hluthöfum tiltæk á heimasíðu félagsins og munu jafnframt liggja frammi á skrifstofu félagsins. Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. a. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar.
Tillaga tilnefningarnefndar félagsins um tilnefningar stjórnarmanna mun liggja fyrir tveimur vikum fyrir aðalfund. Endanlegar upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Reykjavík, 13. febrúar 2018, stjórn Origo hf.
Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á origo.is
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.