AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Origo

M&A Activity Aug 14, 2018

2208_rns_2018-08-14_dd5ef102-1d55-4593-8772-002baac61d18.html

M&A Activity

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 363750

Origo - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Origo hf.: Samkomulag um einkaviðræður og helstu skilmála um kaup HPE Growth Capital á um þriðjungshlut í Tempo ehf.

Í opinberri tilkynningu Origo hf. til kauphallar þann 27. júní sl. var upplýst um stöðu á söluferli á verulegum eignarhlut í Tempo ehf. Í tilkynningunni kom fram að félagið væri í samstarfi við fjárfestingabankann AGC Partners í Boston og ekki væri gert ráð fyrir að söluferlinu lyki fyrir mitt ár 2018 eins og áætlað var. Í tilkynningunni kom einnig fram að nánar yrði gerð grein fyrir stöðu söluferlisins í afkomutilkynningu í ágúst nk. eða fyrr ef nýjar upplýsingar lægju fyrir.

Stjórn Origo hf. hefur í dag samþykkt að undirrita samkomulag um einkaviðræður um sölu á um þriðjungshlut í Tempo ehf. til HPE Growth Capital („HPE“), alþjóðlegs fjárfestingasjóðs sem sérhæfir sig í fjárfestingum í ört vaxandi tæknifyrirtækjum. Með undirritun samkomulags þessa hefja aðilar einkaviðræður um kaupin með það að markmiði að komast að samkomulagi um bindandi samning. Viðræður aðila munu byggja á forsendum og skilmálum samkomulagsins að teknu tilliti til niðurstöðu áreiðanleikakönnunar.

Fyrirhuguð kaup miða við að heildarvirði Tempo ehf. sé USD 62,5 milljónir og að HPE eignist um þriðjung hlutafjár í Tempo ehf. Gangi viðskiptin eftir er gert ráð fyrir að þeim ljúki í september eða október nk.

Frekari grein verður gerð fyrir viðskiptunum þegar endanlegur samningur liggur fyrir.

Nánari upplýsingar um HPE má finna hér: http://www.hpegrowthcapital.com/

Nánari upplýsingar um Tempo ehf. má finna hér: https://www.tempo.io

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.