Earnings Release • Aug 30, 2022
Earnings Release
Open in ViewerOpens in native device viewer

TIL BIRTINGAR ÞRIÐJUDAGINN 30. ágúst 2022 origo.is/um-origo/fjarfestar/
Áfram er góð eftirspurn eftir lausnum og vörum í notendabúnaði og jukust tekjur um 10,4% á fyrri helmingi ársins. Nokkuð óreglulegt vöruflæði myndaðist í kjölfar Úkraínustríðins og Covid og færast því töluverðar tekjur inn á seinni helming ársins en við erum að sjá svipaða veltuaukningu á fyrstu vikum þriðja ársfjórðungs og við sáum í upphafi árs. Góð afkoma er hjá einingunni og EBITDA eykst um rúm 15% frá síðasta ári. Horfur eru heilt yfir ágætar, meira jafnvægi virðist vera að komast á vöruflæði og aðilar í ferðaþjónustu hafa verið að skila töluverðri söluaukningu.
Þjónustulausnir Origo hafa verið í mikilli umbreytingu s.l. 12-18 mánuði með breytingum á vöru- og þjónustuframboði sem skilað hefur mun betri rekstri ásamt því að búa til nokkur góð tækifæri til sóknar. 3% tekjaukning er á fyrri helming ársins en 138% bati í EBITDA afkomu. Skerpt hefur verið á áherslum og sköpuð

TIL BIRTINGAR ÞRIÐJUDAGINN 30. ágúst 2022 origo.is/um-origo/fjarfestar/
sterkari umgjörð í kringum þjónustuafhendingu auk betri nýtingar á tækifærum sem liggja í umbreytingu hjá okkar viðskiptavinum. Viðskiptavinir eru í dag mun meðvitaðri um mikilvægi upplýsingatækniöryggis og kröfur til þjónustuaðila sífellt að aukast. Origo ætlar sér að vera fyrsta val þegar kemur að öruggum rekstri og munum við því leggja áherslu á að skilaboð okkar út á markaðinn séu í takt við það.
Í viðbót við þessar breytingar á grunnrekstri Þjónustulausna höfum við fjárfest í þremur vaxtarverkefnum sem tengjast stafrænum innviðum:
Velta Origo í hugbúnaðargerð heldur áfram að vaxa og skilaði 2,1% tekjuaukningu á fyrri hluta ársins. Eins og í notendabúnaði fundum við þó fyrir aðeins minni eftirspurn og hægagangi í aðdraganda sumars. Sennilega að einhverju leyti vegna áhrifa aukinna sumarfría hjá fyrirtækjum og stofnunum í kjölfar Covid. Þó jukust áskriftartekjur af eigin hugbúnaði meira en aðrar tekjur í hugbúnaði á báðum fjórðungum fyrri hluta ársins og sérstaklega sterkur tekjuvöxtur var innan hugbúnaðar á kjarnasviðum eins og mannauðslausnum, gæðakerfum, bankalausnum og fjárhagskerfum. Vöxtur eigin hugbúnaðar nam 13% á fyrstu 6 mánuðum ársins. Fyrirtækið hefur á þessum tíma samið við stór fyrirtæki og stofnanir eins og Stafrænt Ísland, Öryggismiðstöðina, Veðurstofuna, Tryggingastofnun og Hafnarfjarðarbæ.
Rekstur Applicon er á stöðugur miðað við síðasta ár. Tekjur dragast örlítið saman vegna einskiptis leyfasölu á síðasta ári en rekstrarniðurstaða er svipuð vegna hærri ráðgjafatekna. Applicon hefur í grunninn haft tekjur sínar af leyfasölu og ráðgjöf innan bankageirans í Svíþjóð. Félagið hefur á síðustu árum aukið áherslu sína á kaupleigufyrirtæki sem og fjárstýringu hjá almennum fyrirtækjum. Verkefnastaða er ágæt fyrir seinni helming ársins. Applicon vinnur nú jafnframt að hugbúnaðarþróun tveggja vara sem mun hafa áhrif á tekjusamsetningu framtíðarinnar. Fjárfestingar í nýjum vörum er um 20 mkr hærri á fyrri helming ársins miðað við sama tímabil í fyrra.
Rekstur Tempo gekk vel á fyrri hluta ársins og skilaði félagið 25% tekjuvexti og heildartekjum upp á um 46 milljónir USD. Leiðrétt EBITDA hlutfall félagsins er um 28% fyrir sama tímabil. Tölur félagsins endurspegla nú tekjur eftir kaup á ALM Works og Roadmunk á s.l. ári en sameining félaganna þriggja hefur verið höfuð viðfangsefni félagsins á síðastliðnum mánuðum, ásamt endurskipulagningu á starfsemi Roadmunk. Teymi í markaðsmálum, sölu, rekstri og fjármálum eru núna að vinna saman og næsti áfangi liggur í að færa vöruteymi og teymi í hugbúnðargerð nær hvort öðru. Árið hefur verið nokkuð litað af óvissu á mörkuðum vegna aðstæðna sem hafa skapast í kjölfar stríðsins í Úkraínu en félagið hefur þurft að setja töluverða orku og vinnu í að flytja þá starfsemi sem var hjá ALM í Rússlandi og hefur það tafið þróunarstarf að einhverju leyti. Þetta hefur skapað meiri varkárni í starfssemi félagsins. Félagið sér þó áfram góða þróun í áskriftartekjum og markmið um afkomu eru að nást. Félagið heldur áfram að leggja áherslu á aukna veltu með sérstaka áherslu á krossölu milli eininganna og frekari styrkingu á vinnu með samstarfsaðilum.

TIL BIRTINGAR ÞRIÐJUDAGINN 30. ágúst 2022 origo.is/um-origo/fjarfestar/
Horfur í rekstri eru ágætar þrátt fyrir einhver merki þess að markaður upplýsingtækni hafi aðeins gefið eftir í upphafi sumars. Við erum í innleiðingarfasa á þeirri stefnumótun sem við fórum í á síðasta ári og höfum úr töluverðu að vinna, sem mun styrkja fyrirtækið enn frekar til sóknar - til hagsbóta fyrir viðskiptavini, starfsfólk og hluthafa. Til skemmri tíma erum við að horfa á þau tækifæri sem umbreyting Rekstrarþjónustu félagsins hefur skapað. Að ná fram aukinni vöruvæðingu, svo við eigum auðveldara með að viðhalda gæðum í þjónustu, lægra verði, skapa sterkari umgjörð í kringum viðskiptalegan þátt hugbúnðargerðar auk þess sem við viljum nýta betur styrk okkar á markaði fyrir notendabúnað. Til lengri tíma vinnum við eftir skýrum framtíðaráherslum og munum nýta það traust sem við höfum til að vera í stöðugri þróun þegar kemur að starfsfólki og tækniumhverfi og þróa þannig vörur sem bæta lífið. Fyrirtækið er rekstrarlega sterkt og hefur góða stjórn á þeim fjárfestingum sem félagið getur dregið úr verði breyting á hagfelldu umhverfi upplýsingatækni."
| l milljónum ISK | F2 2022 | F2 2021 | 0/2 | 1H 2022 | 1H 2021 | % |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta | 4.516 | 4.425 | 2,1% | 9.262 | 8.599 | 7,7% |
| Vörunotkun og kostnaðarverð seldrar þjónustu | (3.301) | (3.308) | -0,2% | (6.755) | (6.387) | 5,8% |
| Framlegð | 1.215 | 1.118 | 8,7% | 2.506 | 2.212 | 13,3 |
| Framlegð/tekjur (%) | 26,9% | 25,3% | 27,1% | 25,7% | ||
| Rekstrarkostnaður | (1.095) | (960) | 14,196 | (2.284) | (1.946) | 17,3% |
| Rekstrarhagnaður | 119 | 158 | 223 | 266 | ||
| Rekstrarhagnaður/tekjur (%) | 2,6% | 3,6% | 2,41% | 3,1% | ||
| Hrein fjármagnsgjöld | (46) | (17) | (83) | (33) | ||
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags | 261 | 47 | 427 | 150 | ||
| Tekjuskattur | (37) | (33) | (31) | (47) | ||
| Hagnaður tímabilsins | 297 | 154 | ટેકેટ | 335 | ||
| Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé | 119 | (70) | 26 | (88) | ||
| Heildarhagnaður tímabilsins | 416 | 84 | 562 | 247 | ||
| EBITDA* | 370 | 357 | 708 | 658 | ||
| EBITDA% * | 8,2% | 8,1% | 7,6% | 7,6% |

TIL BIRTINGAR ÞRIÐJUDAGINN 30. ágúst 2022 origo.is/um-origo/fjarfestar/
| l milljónum ISK | 30.06.2022 | 31.12.2021 |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | 10.154 | 9.742 |
| Veltufjarmunir | 4.715 | 5.402 |
| Eignir samtals | 14.869 | 15.144 |
| Eigið fé | 8.925 | 8.619 |
| Langtimaskuldir | 2.752 | 2.733 |
| Skammtímaskuldir | 3.191 | 3.793 |
| Eigið fé og skuldir samtals | 14.869 | 15.144 |
| Veltufjárhlutfall | 1,48 | 1,42 |
| Eiginfjarhlutfall | 60,0% | 56,9% |
| l milljónum ISK | 1.1-30.06 2022 |
1.1-30.06 2021 |
|---|---|---|
| Handbært fé frá rekstri | 267 | 150 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (336) | (337) |
| Fjármögnunarhreyfingar | (552) | (234) |
| Lækkun á handbæru fé | (620) | (422) |
| Ahrif gengisbreytinga á handbært fé | (5) | (11) |
| Handbært fé í ársbyrjun | 1.795 | 1.173 |
| Handbært fé í lok tímabilsins | 1.169 | 740 |
Markaðsvirði fyrirtækisins í lok annars ársfjórðungs 2022 var 23.925 mkr., lokaverð hlutabréfa í ársfjórðungnum var kr. 55,0 á hlut. Fjöldi útgefinna hluta þann 30. júní 2022 voru 435 milljónir og voru hluthafar 1.044 talsins. Origo hf. á eigin bréf að nafnvirði 4.066.935.
Á fundinum kynna stjórnendur rekstur og afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Origo, Borgartúni 37, 105 Reykjavík, en einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi.
Skráning á fundinn fer fram hér: https://www.origo.is/fjarfestakynning

TIL BIRTINGAR ÞRIÐJUDAGINN 30. ágúst 2022 origo.is/um-origo/fjarfestar/
Árshlutareikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi Origo hf. þann 30. ágúst 2022. Uppgjör Origo hf. er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS-International Financial Reporting Standards).
Origo er framsækið þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni. Hjá Origo starfar öflugur hópur fólks sem nýtir hugvit sitt til að efla árangur, hagsæld og öryggi viðskiptavina. Hlutabréf Origo hf. eru skráð í NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöll Íslands) undir auðkenninu ORIGO.
Gunnar Petersen, framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða [email protected] og Jón Björnsson, forstjóri í síma 693-5000 eða [email protected]
Origo vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins, en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna af birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.