Earnings Release • Jan 29, 2020
Earnings Release
Open in ViewerOpens in native device viewer

REYKJAVÍK – 29. janúar 2020 - Origo kynnti í dag uppgjör fjórða ársfjórðungs og heildaruppgjör fyrir 2019.
Heilt yfir gekk starfsemi Origo ágætlega á árinu 2019. Tekjur jukust um tæp 8%, EBITDA var 1006 mkr og heildarhagnaður 456 mkr. Afkomunni var aðeins misskipt eftir starfsþáttum, en hún var að mestu borin uppi af hugbúnaðartengdum verkefnum og þjónustu á meðan afkoma af rekstrarþjónustu og búnaðarsölu var í járnum. Þetta er tímanna tákn og er til vitnis um þær miklu breytingar sem hafa orðið á lausnaframboði Origo og þörfum viðskiptavina á tiltölulega skömmum tíma. Þessi þróun fylgir einnig aukinni áherslu atvinnulífs hérlendis og erlendis á stafræna vegferð, þ.e. nýtingu stafrænnar tækni, einkum hugbúnaðar, til að laga þjónustu að þörfum viðskiptavina, bæta, hraða eða gera hagkvæmari.
Við erum sérlega ánægð með þróun í rekstri hugbúnaðareininga Origo á árinu, þó svo aðeins hafi dregið úr tekjuvexti og afkomu á fjórða ársfjórðungi. Origo hefur fjárfest verulega í þróun eigin lausna á mörgum sviðum, svo sem ferðaþjónustu, fjármálaþjónustu, mannauðsstjórnun og stýringu innkaupa. Með breiðara lausnaframboði og áherslu á þróun eigin lausna eru tekjustoðir hugbúnaðareininga nú bæði fleiri og fjölbreyttari en áður. Viðskiptavinum hefur fjölgað verulega og telja nú í hundruðum þar sem áður voru tugir. Hvoru tveggja dregur úr áhættu í rekstri og sveiflum í afkomu.

TIL BIRTINGAR MIÐVIKUDAGINN 29. JANÚAR 2020 origo.is/um-origo/fjarfestar/
Afkoma af starfsemi sem tengist rekstrarþjónustu og innviðum hefur batnað eftir því sem liðið hefur á árið en var töluvert undir væntingum þegar horft er til ársins í heild. Í fyrra var hagrætt mikið í rekstri Origo á þessu sviði, m.a. með breyttu skipulagi, einföldun á lausnaframboði, fjárfestingu í sjálfvirknivæðingu og útvistun verkefna. Gert er ráð fyrir að þessar aðgerðir muni skila bættum rekstri á nýju ári og teljum við að ágætur árangur sem náðist í fjórða ársfjórðungi sé vísir að því sem koma skal. Við finnum auk þess fyrir því að sala á stærri fyrirtækjalausnum og þjónustusamningum hefur tekið við sér og eftirspurn eftir öryggis- og skýjalausnum af ýmsu tagi hefur aukist verulega. Horfur á sviði rekstrarþjónustu og innviða eru því góðar.
Umsvif Origo í sölu á notendabúnaði hafa um árabil verið töluverð og er árið í fyrra þar engin undantekning. Tekjur af notendabúnaði og tengdri þjónustu jukust um tæp 20% á árinu, sem er að hluta til vegna þess að lausnaframboð Origo á þessu sviði breikkaði töluvert á haustmánuðum með yfirtöku á tveimur rekstrareiningum. Afkoma var hins vegar undir væntingum og í raun óviðunandi. Megin skýringin á slakri afkomu liggur í vaxandi samkeppni í sölu á búnaði, þrýstingi á framlegð og hærri rekstrarkostnaði m.a vegna innleiðingar á fyrrgreindum rekstrareiningum. Unnið hefur verið markvisst að hagræðingu á þessu sviði Origo og sérstök áhersla lögð á að bæta framlegð, út frá nýju skipulagi og áherslum sem munu skila sér í betri afkomu á árinu 2020.
Tempo er nú rekið sem hlutdeildarfélag Origo, í samstarfi okkar og Diversis Capital. Eins árs reynsla er nú komin á samstarf okkar og Diveris og það gengur sérlega vel, sem endurspeglast í mjög góðu gengi Tempo á síðastliðnu ári. Mikil gróska var í vöruþróun, nýjum lausnum var hleypt, góður áfangi náðist með kaupum á fyrirtæki í tengdri starfsemi og tekjur jukust hraðar en áður, voru um 30 mUSD sem er 37% vöxtur á milli ára. Það er mjög bjart framundan hjá Tempo.
Niðurstaða ársins 2019 er vel viðunandi, sérstaklega þegar horft er til þess að aðstæður í rekstri hafa verið nokkuð ögrandi. Árið í fyrra var nýtt til endurskipulagningar á lykilsviðum rekstrar Origo, sem koma því sterkari en fyrr inn í nýtt ár. Markmið okkar er að geta sinnt öllum þörfum viðskiptavina þegar kemur að stafrænum lausnum, hvort sem um ræðir tæknibúnað, hagkvæman rekstur kerfa, tilbúinn hugbúnað eða nýþróun lausna. Við teljum okkur vera mjög góðan kost í slíku samstarfi, sem er í raun staðfest af viðurkenningum frá samstarfsaðilum og þeim öfluga hópi viðskiptavina sem við fáum að styðja við á degi hverjum. Þegar litið er til næstu mánaða og ára eru horfur í rekstri Origo góðar.

TIL BIRTINGAR MIÐVIKUDAGINN 29. JANÚAR 2020 origo.is/um-origo/fjarfestar/
| Rekstrarreikningur - Lykiltolur | ||
|---|---|---|
| I milljonum ISK | 2019 | 2018 |
| Seldar vörur og þjónusta | 14.845 | 15.717 |
| Vörunotkun og kostnaðarverð seldrar bjonustu |
(11.000) | (11.543) |
| Framlegð | 3.845 | 4.173 |
| Rekstrarkostnaður | (3.426) | (3.682) |
| Rekstrarhagnaður | 419 | 491 |
| Hreinar (fjarmagnsgjöld) fjarmunatekjur | 325 | 5.064 |
| Hlutdeild i afkomu hlutdeildarfélags | 9 | (22) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 753 | 5.534 |
| Tekjuskattur | (74) | (94) |
| Hagnadur arsins | 678 | 5.440 |
| Rekstrarliðir færðir beint á eigið fe | (222) | (20) |
| Heildarhagnaður (tap) arsins | 456 | 5.420 |
| EBITDA | 1.006 | 1.128 |

TIL BIRTINGAR MIÐVIKUDAGINN 29. JANÚAR 2020 origo.is/um-origo/fjarfestar/
| 31.12.2019 | 31 12:2018 |
|---|---|
| 7.738 | 5.724 |
| 4.147 | 6.625 |
| 11.885 | 12.349 |
| 6.817 | 8.194 |
| 1.972 | 757 |
| 3.095 | 3.397 |
| 11.885 | 12.349 |
| 1,42 | 1,95 |
| 57,1% | 66,4% |

TIL BIRTINGAR MIÐVIKUDAGINN 29. JANÚAR 2020 origo.is/um-origo/fjarfestar/
| Sjöðstreymi - Lykiltölur | ||
|---|---|---|
| l milljónum ISK | 1.1-31.12 2019 |
1.1.315V 20) 23 |
| Handbært fe fra rekstri | 629 | 1.217 |
| Fjarfestingarhreyfingar | (722) | 2.453 |
| Fjarmognunarhreyfingar | (2.256) | (802) |
| Lækkun (hækkun) á handbæru fé | (2.350) | 2.867 |
| Ahrif gengisbreytinga á handbært fé | 0 | 11 |
| Handbært fe i arsbyrjun | 3.175 | 297 |
| Handbært fe i lok timabilsins | 826 | 3.175 |

TIL BIRTINGAR MIÐVIKUDAGINN 29. JANÚAR 2020 origo.is/um-origo/fjarfestar/
| Rekstrarreikningur - Lykiltölur | ||
|---|---|---|
| I milljonum ISK | F4 2019 | F4 2018 |
| Seldar vorur og bjónusta | 4.336 | 4.461 |
| Vörunotkun og kostnaðarverð seldrar bjonustu |
(3.011) | (3.276) |
| Framlegð | 1.325 | 1.185 |
| Rekstrarkostnaður | (1.174) | (895) |
| Rekstrarhagnadur | 151 | 290 |
| Hreinar (fjármagnsgjöld) fjármunatekjur | 379 | 5.094 |
| Hlutdeild i afkomu hlutdeildarfelags | (57) | (22) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 473 | 5.362 |
| Tekjuskattur | (32) | (58) |
| Hagnadur timabilsins | 441 | 5.305 |
| Pyöingarmunur vegna starfsemi döttur- og hlutdeildarfélaga |
(351) | (20) |
| Heildarhagnaður timabilsins | 90 | 5.285 |
| EBITDA | 302 | 423 |

Rekstur hugbúnaðareininga Origo hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum og telst nú burðarás í starfsemi félagins. Tekjustoðir starfseminnar eru bæði fleiri og fjölbreyttari en áður og viðskiptavinum, sem nú telja í hundruðum, hefur fjölgað verulega. Hvoru tveggja dregur úr áhættu í rekstri og sveiflum í afkomu.
Tekjur af hugbúnaðartengdri starfsemi voru 1,3 miakr á fjórða ársfjórðungi, en það eru 4,1% tekjuvöxtur frá fyrra ári. Í samanburði við sama tímabil í fyrra dróst EBITDA í fjórðungnum nokkuð saman vegna samdráttar í stærri þjónustuverkefnum og aukinnar fjárfestingar í þróun á eigin lausnum. Heildartekjur hugbúnaðareininganna á árinu 2019 voru 4,7 ma.kr, sem er um 7% tekjuvöxtur frá fyrra ári. EBITDA hugbúnaðareininganna nam um 770 mkr eða eða tæplega 17% af tekjum í árinu í heild og jókst á milli ára (að tekna tilliti til tekna Tempo 2018).
Sem fyrr hefur mikil áhersla verið á uppbyggingu eigin hugbúnaðarlausna, með umtalsverðri fjárfestingu í þróun og kaupum á nýjum einingum sem falla vel að lausnaframboði félagsins. Origo keypti m.a. breska hótelstjórnunarkerfið The Booking Factory (TBF) í desember, um er að ræða heildarlausn fyrir litla til meðalstórra gististaða. TBF er einföld og nútímaleg skýjalausn sem er í notkun hjá um 250 hótelum og gististöðum í 11 löndum. Lausnin er markaðsett undir eigin nafni erlendis og sem "white label" lausn, á Íslandi undir vörumerkinu Cover.is. The Booking Factory fellur mjög vel að lausnaframboði Origo og áherslum á þróun eigin lausna fyrir markaði innanlands og utan.
Þróun sjúkraskrár og tengdra lausna fyrir íslenska heilbrigðiskerfið hefur um langt skeið verið eitt af meira spennandi verkefnum Origo. Á fjórðungnum var m.a. lokið við fyrstu útgáfu af smáforriti fyrir heimahjúkrun, Smásögu. Smásaga gerir mögulegt að skrá í sjúkraskrá í gegnum snjalltæki, sem auðveldar og eykur öryggi allrar vinnu heilbrigðisstarfsmanna sem sinna skjólstæðingum sínum utan heilbrigðisstofnana. Þetta er fyrsta smáforritið sem tengist Sögu sjúkraskrá, af mörgum sem eru nú í þróun.
Gæðastjórnunarlausninni CCQ hefur verið vel tekið á undanförnum misserum, en nú nota lausnina reglulega nálægt fimm þúsund notendur í um 50 fyrirtækjum og stofnunum. Um áramótin kom út ný útgáfa af CCQ fyrir minni flugrekstraraðila, undir nafninu Aviaxis og er markaðssetning og sala hafin utan landsteina. Að sama skapi hefur þróun á Paxflow, lausn fyrir dagsferðafyrirtæki í ferðaþjónustu, gengið vel og fyrstu skref í sölu utanlands hafa verið tekin.
Mikil eftirspurn hefur verið eftir viðskiptalausnum Origo og ráðgjöf, bæði tengt eigin lausnum og lausnum frá þriðja aðila, eins og SAP og Business Central (Dynamics NAV). Stór verkefni eru í vinnslu og önnur í undirbúningi, einkum fyrir SAP S/4HANA og að sama skapi er umsvif Business Central teymis Origo að aukast. Að auki hefur þekking innan Origo á Business Central stutt við eigin vöruþróun á tengdum lausnum, eins og Timian, Kjarna og Sendli. Vel hefur tekist til að auka vitund markaðarins á umfangsmikilli þekkingu Origo á þessu sviði.
Mikilvægur styrkleiki Origo felst í þekkingu og þjónustu við fjármálafyrirtæki, en að undanförnu hefur verið fjárfest töluvert í þróun og rekstri stafrænna bankalausna á borð við netbanka, banka appi, hraðbanka- og afgreiðslulausnir. Áskriftartekjur tengdar þessum lausnum munu aukast á næstu misserum. Þá nýtist þessi þekking afar vel við þróun viðbótarlausna fyrir ofangreind viðskiptakerfi.

TIL BIRTINGAR MIÐVIKUDAGINN 29. JANÚAR 2020 origo.is/um-origo/fjarfestar/
Afar góður árangur hefur náðst með Kjarna mannauðs og launakerfi og bætast stöðugt við nýir viðskiptavinir með tilheyrandi vexti í áskriftartekjum. Markviss þróun í virkni og notendaviðmóti gerir lausnina enn aðgengilegri fyrir notendur og hagkvæma fyrir viðskiptavini. Þar skiptir nútímaleg högun Kjarna miklu, því hún gerir auðveldara um vik að bæta við nýjungum og bregðast þannig hratt við þörfum viðskiptavina.
Tekjur Applicon í Svíþjóð, sem er hluti af hugbúnaðareiningum Origo, sem sérhæfir sig í sölu á viðskiptalausnum fyrir fjármálafyrirtæki jukust um 3% á fjórða ársfjórðungi og tekjuvöxtur var um 10% ef við horfum á árið í heild. EBITDA styrkist einnig og hækkaði um 10% miðað við fyrra ár. Áfram er gert ráð fyrir góðri eftirspurn eftir þjónustu Applicon á árinu 2020, einkum fyrir núverandi viðskiptavini en auk þeirra eru fjölmargir bankar og fjármálafyrirtæki í stafrænni vegferð og viðleitni til að nútímavæða þjónustu sína.
Tekjur tengdar rekstrarþjónustu og innviðum námu 1.5miakr á fjórða ársfjórðungi 2019 og drógust saman frá saman um 5% miðað við sama tímabili 2018. EBITDA framlegð batnaði hins vegar töluvert á fjórðungnum miðað við 2018 og nam um 10% af veltu. Heildartekjur ársins námu 4,6 miakr og drógust saman um 3% frá 2018.
Afkoma af rekstrarþjónustu og innviðum á árinu 2019 var undir væntingum, en það skýrist í meginatriðum af tveimur þáttum:
Í fyrsta lagi hefur dró á síðasta ári töluvert úr sölu á miðlægum innviðum eins og gagnageymslum og netþjónum. Þessa breytingu má rekja til þess að viðskiptavinir horfa í auknum mæli til útvistunar sem betri valkost en að kaupa, hýsa og reka eigin tölvuumhverfi. Einnig hefur almenn lægð verið yfir íslensku efnahagslífi síðasta árið sem hægt er að merkja í minni eftirspurn eftir stærri verkefnum en verið hefur.
Í öðru lagi hefur farið fram umtalsverð endurskipulagning á lausnaframboði og rekstri Þjónustulausnasviðs til að hagræða og koma betur til móts við þarfir viðskiptavina og kröfu um aukið hagræði, einfaldari umsýslu í rekstri tölvukerfa og ráðgjöf við val á lausnum sem henta þeim hverju sinni. Í þessari innri vinnu var lögð sérstök áhersla á aukna sjálfvirkni í ferlum, fækkun starfsfólks í rekstrartengdum verkefnum og útvistun. Þunginn í hagræðingarvinnu á Þjónustulausnasviði var á fyrri hluta árs og er gert ráð fyrir að afraksturinn skili sér á árinu 2020. Ágætur árangur náðist í fjórða ársfjórðungi í kjölfar fyrrgreindra hagræðingaraðgerða, sem er vísir að því sem koma skal.
Lausnaframboð Origo á sviði rekstrarþjónustu og innviða hefur verið endurmótað og sérstök áhersla lögð á öryggislausnir og skýjalausnir. Þetta er í takti við þarfir viðskiptavina sem kalla nú sérstaklega eftir ráðgjöf og innleiðingu á sjálfvirknilausnum í kerfisrekstri og viðskiptaferlum, en þar nýtist mikil þekking sérfræðinga Origo á vinsælum skýjaþjónustum frá AWS, Google, Azure og IBM viðskiptavinum mjög vel. Góður árangur náðist í sölu lausna frá Fortinet og Microsoft, en Origo var nýverið valinn Microsoftsamstarfsaðili ársins 2020 á Íslandi. Viðurkenningin er fyrir árangur sem Origo hefur náð með viðskiptavinum sínum í þróun og innleiðingu á Microsoft 365 með áherslu á öryggi, samvinnutólið Teams og aðlögun á Azure skýjalausnum fyrir viðskiptavini. Þá varð Origo gull-samstarfsaðili Fortinet fyrir vottanir og sölu frá öryggislausnafyrirtækinu og samstarfsaðili ársins í innviðum og öryggislausnum hjá IBM í Danmörku.

Horfur á sviði rekstrarþjónustu og innviða hjá Origo eru góðar. Sala á stærri fyrirtækjalausnum og þjónustusamningum hefur tekið við sér, hagkvæmni í rekstri er meiri og eftirspurn eftir lausnum á sviði öryggis- og skýjalausnum og sjálfvirknivæðingu viðskiptaferla aukist verulega. Þjónustulausnir Origo eru í dag vel í stakk búnar til að bregðast við aukinni eftirspurn og veita viðskiptavinum hagkvæma og örugga þjónustu.
Sala á notendabúnaði hefur um langt árabil verið stór þáttur í starfsemi Origo. Heildartekjur námu 1,6 miakr á fjórða ársfjórðung og 5.6 miakr á árinu. Ágætis tekjuvöxtur var bæði á fjórða fjórðungi og á árinu í heild (um 20%), að hluta til kominn vegna kaupa Origo hf. á Tölvutek og Strikamerki. Megin skýringin á lakari afkomu en áður er vaxandi samkeppni í sölu á búnaði, þrýstingur á framlegð og hærri rekstrarkostnaðar m.a vegna innleiðingu á keyptum rekstrareiningum.
Origo er í sterkri stöðu að bæta afkomu einingarinnar með því að treysta tekjugrunn og aukinni hagræðingu í starfsemi. Horft er til þess að hópur tryggra viðskiptavina er bæði stór og öflugur og vörumerki á borð við Lenovo, NEC, Bose, Canon og Sony eiga dygga fylgjendahóp meðal fyrirtækja og heimila. Mikill vöxtur er áfram í netverslun, sem skapar tækifæri til að sjálfvirknivæða söluferli enn frekar. Starfsfólk Origo hefur á að skipa afar reynslumiklu starfsfólki sem hefur djúpa þekkingu á lausnum, vörum og þörfum viðskiptavina. Unnið hefur verið markvisst að hagræðingu á þessu sviði Origo og sérstök áhersla lögð á að treysta framlegð, út frá nýju skipulagi og áherslum sem munu skila sér í betri afkomu á árinu 2020.
Gunnar Zoëga var í október ráðinn framkvæmdastjóri Notendalausna.
Starfsemi Tempo gekk vel á síðasta ári. Umtalsverðar breytingar voru gerðar á leiðtogateymi og nýir stjórnendur með reynslu af uppbyggingu og sölu skýjalausna á alþjóðlegum vettvangi ráðnir til félagsins, til að styrkja öflugt teymi stjórnenda og sérfræðinga sem þar voru fyrir. Stuðningur Diversis Capital, meðeigenda Origo af Tempo og starf samstillts teymis hjá Tempo hefur þegar haft jákvæð áhrif á reksturinn. Tekjur Tempo voru um 30 mUSD á árinu sem er aukning um 37%, umtalsvert hraðari en árið 2018. Afkoma var á áætlun.
Megin áhersla í starfsemi Tempo hefur verið á að treysta vöruþróun og markaðsstarf, til að efla tekjuvöxt. Afrakstur þeirrar vinnu má sjá í nýjum vörum á borð við Tempo Mobile, Tempo fyrir Zendesk, Tempo Cost Tracker, sem bættust í lausnaframboð félagsins á síðustu vikum og mánuðum og munu skila tekjum á árinu 2020.
Stjórnendur og eigendur Tempo hafa undanfarna mánuði skoðað sértaklega kauptækifæri í tengdri starfsemi með það að markmiði að efla vöruframboð og aðgengi að nýjum mörkuðum með ytri tekjuvöxt að leiðarljósi. Í janúar var gengið frá kaupum á fyrirtækinu Prime Timesheets sem er næst stærsti framleiðandi tímaskráningarlausna á Atlassian Marketplace. Með þessum kaupum eru viðskiptavinir Tempo orðnir ríflega 20.000 og staða félagsins innan Atlassian því enn sterkari. Fleiri kauptækifæri til að styrkja starfsemi Tempo eru í skoðun.

Chris Porch hefur verið ráðinn tímabundið sem forstjóri Tempo ehf. og tekur við starfinu af Gary Jackson sem lét af störfum í byrjun árs. Gert er ráð fyrir að nýr forstjóri verði ráðinn á næstu mánuðum.
Horfur í rekstri Tempo eru mjög góðar.
Þann 7. janúar sl. lauk samþykktri endurkaupaáætlun félagsins. Origo hf. á nú um 24,7 milljónir hluta eða um 5,4% af hlutafé félagsins.
Horfur í rekstri Origo eru góðar. Gert er ráð fyrir áframhaldandi tekjuvexti og heldur betri afkomu.
Markaðsvirði fyrirtækisins í lok fjórða ársfjórðungs 2019 var 12.156 mkr., lokaverð hlutabréfa í ársfjórðungnum var kr. 26,45 á hlut. Fjöldi útgefinna hluta þann 30. september 2019 voru 460 milljónir og voru hluthafar 519 talsins.
Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 30. Janúar 2020 í höfuðstöðvum félagsins að Borgartúni 37 í Reykjavík kl. 08:30. Finnur Oddsson, forstjóri og Gunnar Petersen, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna starfsemi og afkomu félagsins. Hægt er að nálgast streymi af fundinum á heimasíðu félagsins. Kynningarefni af fundinum verður hægt að nálgast á heimasíðu félagsins, www.origo.is, að honum loknum.
| 06.03.2020 | Aðalfundur vegna 2019 |
|---|---|
| 29.04.2020 | Fyrsti ársfjórðungur 2020 |
| 19.08.2020 | Annar ársfjórðungur 2020 |
| 21.10.2020 | Þriðji ársfjórðungur 2020 |
| 28.01.2020 | Fjórði ársfjórðungur og ársuppgjör 2020 |
| 04.03.2021 | Aðalfundur vegna 2020 |
Árshlutareikningur var samþykktur á stjórnarfundi Origo hf. þann 29. janúar 2020. Uppgjör Origo hf. er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS-International Financial Reporting Standards).
Origo er framsækið þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni. Hjá Origo starfar öflugur hópur fólks sem nýtir hugvit sitt til að efla árangur, hagsæld og öryggi viðskiptavina. Hlutabréf Origo hf. eru skráð í NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöll Íslands) undir auðkenninu ORIGO.

Í stjórn Origo eru Ívar Kristjánsson, stjórnarformaður, Guðmundur Jóhann Jónsson, Hildur Dungal, Hjalti Þórarinsson og Svafa Grönfeldt. Varamaður í stjórn er Elísabet Grétarsdóttir. Finnur Oddsson er forstjóri Origo.
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða [email protected] og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða [email protected].
Til athugunar fyrir fjárfesta
Origo vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins, en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna af birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.