AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Origo

Annual / Quarterly Financial Statement Jan 29, 2020

2208_10-k_2020-01-29_2f8ecb06-7e73-4684-ae98-39dad23ba1e8.pdf

Annual / Quarterly Financial Statement

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Origo hf. Ársreikningur samstæðunnar 2019

Origo hf. 105 Reykjavík Borgartúni 37

Kt. 530292-2079

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra 3
Áritun óháðs endurskoðanda 5
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 9
Efnahagsreikningur 10
Eiginfjáryfirlit 11
Sjóðstreymisyfirlit 12
Skýringar 13
Óendurskoðuð fylgiskjöl:
Ársfjórðungayfirlit 45
Stjórnarháttaryfirlýsing 47
Ófjárhagsleg upplýsingagjöf 49

Origo hf. veitir viðskiptavinum sínum heildarlausnir á sviði upplýsingatækni með þróun og sölu á hugbúnaði, tölvu- og skrifstofubúnaði, ráðgjöf og tengdri þjónustu. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Origo hf. og dótturfélaga, en í samstæðunni eru fjögur félög.

Rekstur ársins 2019

Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu nam hagnaður af rekstri samstæðunnar 456 millj. kr. á árinu 2019. Tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu námu 14.845 millj. kr. á árinu. Eigið fé samstæðunnar í árslok var 6.817 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Vísað er í skýringar 24 til 28 vegna áhættustýringar félagsins.

Þann 1. febrúar 2019 voru tilkynntar breytingar á skipulagi hjá Origo sem ætlað er að einfalda stjórnskipulag, efla þjónustu við viðskiptavini og styrkja rekstur. Eftir breytinguna verður starfssemi Origo rekin í fjórum tekjusviðum og tveimur stoðsviðum, þ.e. Notendalausnir, Hugbúnaðarlausnir, Viðskiptalausnir og nýtt svið Þjónustulausna, sem öll njóta svo stuðnings Mannauðs- og Fjármálasviðs.

Í lok mars innleystu starfsmenn kauprétti samkvæmt kauparéttaráætlun félagsins 4.4 millj. hluti fyrir um 75 millj. kr. Kaupréttaráætlun sem tilkynnt var um þann 1. apríl 2016 er nú lokið og engir kaupréttir eru útistandandi hjá félaginu.

Á aðalfundi Origo hf. 7. mars 2019 var samþykkt að lækka hlutafé félagsins um 5.703.309 krónur til samsvarandi lækkunar á eigin hlutum félagsins. Skilyrðum fyrir lækkuninni var fullnægt 15. mars 2019.

Í lok maí 2019 keypti Origo hf. allt hlutafé í Strikamerki hf. en fyrirtækið leggur áherslu á afgreiðslulausnir, handtölvulausnir og prentlausnir.

Um miðjan júlí 2019 kom Origo að því að endurvekja starfssemi Tölvuteks í gegnum dótturfélag sitt, Sense ehf., og er félagið með starfsemi í Reykjavík og á Akureyri.

Í september 2019 keypti Origo hf. félagið Bus Travel IT, sem þróar umsjónarlausn fyrir ferðaþjónustufyrirtæki.

Í október 2019 fékk Origo hf. viðurkenningu frá Credit Info sem Framúrskarandi fyrirtæki og er þar í efsta sæti upplýsingatæknifyrirtækja.

Í desember 2019 keypti Origo hf. The Booking Factory af Buuqit.com Inc. The Booking Factory er hótelbókunarkerfi sem er í notkun lítilla og meðalstórra hótela í Bretlandi, á Íslandi og víðar.

Á árinu 2019 keypti félagið alls 31,1 millj. eigin hlutir í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins. Gildandi endurkaupaáætlun félagsins lauk þann 7. janúar 2020. Eftir að endurkaupaáætlun lauk á Origo nú samtals 5,4% af heildarhlutafé félagsins sem er 460 millj. kr.

Hlutafé og samþykktir

Hlutafé í árslok skiptist á 519 hluthafa, en þeir voru 576 í ársbyrjun. Í árslok 2019 áttu þrír hluthafar yfir 10% af hlutafé í félaginu en tíu stærstu hluthafar félagsins eru:

Eignarhlutur*

Hvalur hf. 11,5%
Birta lífeyrissjóður 11,2%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 10,5%
Kvika banki hf. 9,7%
Sjóvá - Almennar tryggingar hf. 4,5%
Lífsverk lífeyrissjóður 4,5%
Arion banki hf. 3,5%
Landsbréf Úrvalsbréf 3,3%
Landsbankinn hf. 3,2%
HEF Capital ehf. 2,5%
*Eignarhlutur að teknu tillliti til eigin bréfa.

Hlutafé og samþykktir, frh.:

Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði 180 millj. kr. arður til hluthafa á árinu 2020. Vísað er til ársreikningsins um ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum.

Skráð hlutafé félagsins nam í árslok 459 millj. kr., en félagið átt eigin hluti að nafnverði 24 millj. kr. í árslok 2019. Hlutaféð er í einum flokki, sem skráður er í Kauphöll Íslands. Allir hlutir njóta sömu réttinda.

Á aðalfundi félagsins þann 7. mars 2019 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Kaupgengi hluta skal miða við síðasta skráða gengi á Nasdaq OMX Iceland hf. áður en samningur er gerður. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. Með samþykkt tillögu þessarar féll úr gildi sams konar heimild sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 2. mars 2018.

Stjórnarhættir og ófjárhagsleg upplýsingagjöf

Stjórn Origo hf. leitast við að viðhalda góðum stjórnarháttum og fylgja Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út í endurskoðaðri útgáfu í júní 2015. Leiðbeiningarnar eru aðgengilegar á vef Viðskiptaráðs Íslands www.vi.is. Samkvæmt ákvörðun aðalfundar Origo þann 2. mars 2018 var skipuð tilnefningarnefnd sem tilnefnir frambjóðendur til stjórnarsetu í félaginu. Hlutverk tilnefningarnefndar skal meðal annars felast í því að meta tilvonandi stjórnarmenn út frá hæfni, reynslu, þekkingu og óhæði. Einnig að gæta að kynjahlutföllum í stjórn félagsins og undirbúa og leggja fram tillögur, byggðar á ofangreindu mati, um kosningu stjórnarmanna á aðalfundi félagsins. Félagið er með skráð hlutabréf í Kauphöll Íslands hf. og ber því að fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti samkvæmt reglum Kauphallarinnar sem hægt er að nálgast á vef Kauphallarinnar. Frekari upplýsingar um stjórn og stjórnarhætti er að finna í kaflanum Stjórnarháttayfirlýsing og ófjárhagsleg upplýsingagjöf eru fylgiskjöl með ársreikningnum.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur um upplýsingagjöf í samstæðureikningum félaga sem hafa verðbréf sín skráð á skipulegum verðbréfamarkaði.

Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar á árinu 2019, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar 31. desember 2019 og breytingu á handbæru fé á árinu 2019.

Jafnframt er það álit okkar að samstæðuársreikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Origo hf. hafa í dag rætt um samstæðuársreikning félagsins fyrir árið 2019 og staðfesta hann með undirritun sinni. Stjórn og forstjóri leggja til við aðalfund félagsins að samþykkja ársreikninginn.

Reykjavík, 29. janúar 2020

Í stjórn félagsins:

Ívar Kristjánsson

Guðmundur Jóhann Jónsson Hildur Dungal

Hjalti Þórarinsson Svafa Grönfeldt

Forstjóri:

Finnur Oddson

Til stjórnar og hluthafa Origo hf.

Áritun um endurskoðun samstæðuársreiknings

Álit

Við höfum endurskoðað samstæðuársreikning Origo hf. ("samstæðan") fyrir árið 2019. Samstæðuársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Það er álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu samstæðunnar 31. desember 2019 og afkomu samstæðunnar og breytingu á handbæru fé á árinu 2019, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um ársreikninga skráðra félaga.

Grundvöllur álits

Við endurskoðuðum í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er lýst frekar í kaflanum Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins í árituninni. Við erum óháð samstæðunni í samræmi við siðareglur fyrir endurskoðendur á Íslandi og höfum uppfyllt aðrar siðferðisskyldur okkar í samræmi við þær reglur. Við teljum að við höfum aflað nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna til að byggja álit okkar á.

Lykilþættir endurskoðunar

Lykilþættir endurskoðunar eru þeir þættir, sem samkvæmt faglegu mati okkar, höfðu mest vægi við endurskoðun samstæðuársreikningsins. Við gefum ekki sérstakt álit á einstökum lykilþáttum en við tókum á þeim við endurskoðun á samstæðuársreikningnum í heild og við ákvörðun um álit okkar á honum.

Virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild

Viðskiptavild félagsins nemur 1.881 millj. kr. í árslok 2019. Árlega ber að framkvæma virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild til að meta hvort virði viðskiptavildar verði endurheimt með framtíðarsjóstreymi.

Viðskiptavildin er 16% af heildareignum samstæðunnar og 28% af eigin fé samstæðunnar í árslok.

Viðskiptavildin hefur myndast við kaup á félögum og hefur verið útdeilt niður á minnstu aðgreinanlegu fjárskapandi einingar af stjórnendum félagsins.

Virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild er lykilþáttur í endurskoðun á ársreikningi samstæðunnar þar sem viðskiptavildin er stór hluti heildareigna og vegna innbyggðrar óvissu í áætlunum stjórnenda um afkomu og aðrar forsendur stjórnenda sem notaðar eru við núvirðingu áætlaðs framtíðarsjóðstreymis einstakra eininga.

Í skýringu 13 er fjallað um virðisrýrnunarpróf sem framkvæmt var á viðskiptavild samstæðunnar í árslok og í skýringu 33 er fjallað um reikningsskilaaðferðir.

Lykilþáttur Viðbrögð í endurskoðuninni

Við ásamt verðmatssérfræðingum okkar lögðum mat á forsendur sem stjórnendur nota við útreikning á núvirtu framtíðarsjóðstreymi fyrir hverja fjárskapandi einingu. Í þeirri vinnu fólst m.a.:

• Forsendur rekstrar- og sjóðstreymisáætlana til næstu fimm ára voru yfirfarnar. Í þeirri vinnu fólst að lagt var mat á forsendur um tekjur, rekstrarkostnað, framlegð og fjárfestingar fyrir spátímabilið.

• Lagt var mat á forsendur fyrir áætluðum framtíðarvexti að loknu spátímabilinu.

• Við yfirferð á rekstrar- og sjóðstreymisáætlunum er meðal annars horft til frávika frá áætlunum fyrri ára til að leggja mat á hversu líklegt er að þær standist.

• Farið var yfir ávöxtunarkröfu (WACC) einstakra fjárskapandi eininga sem notuð er við núvirðingu á fjárskapandi einingum. Ávöxtunarkrafan var borin saman við fjármagnskostnað félagsins og aðrar markaðsforsendur.

• Forsendur stjórnenda voru bornar saman við ytri og innri gögn.

• Lagt var mat á reiknilíkan félagsins og niðurstöður voru endurreiknaðar.

• Við yfirfórum skýringar í ársreikningi og staðfestum að helstu upplýsingar sem reikningsskilareglur kveða á um kæmu fram.

Áritun óháðs endurskoðanda, frh.:

Mat á eignarhlut í Tempo ehf.

Bókfært verð eignarhlutar í Tempo ehf. nam 2.698 millj. kr. í árslok 2019. Í kjölfar sölu á 55% eignarhlut í Tempo ehf. á árinu 2018 var 45% eignarhlutur Origo hf. í félaginu endurmetinn á gangvirði en síðar samkvæmt hlutdeildaraðferð. Mat á eignarhlut í Tempo ehf. er lykilþáttur í endurskoðun á ársreikningi samstæðunnar þar sem eignarhluturinn er stór hluti af eignum félagsins og kanna þarf hvort að það séu vísbendingar um virðisrýrnun á eignarhlutnum.

Eignarhlutur í Tempo ehf. nam 23% af heildareignum og 39% af eigið fé í árslok 2019.

Í skýringu 14 er fjallað um eignarhlut í hlutdeildarfélagi og í skýringu 33 er fjallað um reikningsskilaaðferðir.

Lykilþáttur Viðbrögð í endurskoðuninni

Endurskoðunaraðgerðir okkar miðuðu að því að leggja mat á hvort vísbending sé um virðisrýrnun á eignarhlutanum. Í þeirri vinnu fólst m.a.:

• Lagt var mat á forsendur stjórnenda á virði eignarhlutar í Tempo ehf. og þær bornar saman við ytri og innri gögn.

• Lagt var mat á áætlarnir félagsins og framtíðarhorfur.

• Við yfirfórum skýringar í ársreikningi og staðfestum að helstu upplýsingar sem reikningsskilareglur kveða á um kæmu fram.

Aðrar upplýsingar í ársskýrslu

Stjórn og forstjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar eru ársskýrsla að undanskildum samstæðuársreikningi og áritun okkar á hann. Álit okkar á samstæðuársreikningnum nær ekki til annarra upplýsinga og við staðfestum þær ekki á neinn hátt.

Í tengslum við endurskoðun okkar á samstæðuársreikningnum ber okkur að lesa aðrar upplýsingar í ársskýrslu þegar þær liggja fyrir og meta hvort þær séu í verulegu ósamræmi við samstæðuársreikninginn eða aðra þekkingu sem við höfum aflað okkur á félaginu við endurskoðunina eða virðast verulega rangar. Ef við, á grundvelli vinnu okkar, ályktum að verulegar rangfærslur séu í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Ársskýrslan liggur ekki fyrir við áritun okkar á samstæðuársreikninginn en við munum fá hana afhenta til yfirferðar áður en hún verður gefin út.

Ábyrgð stjórnar og forstjóra á samstæðuársreikningnum

Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og glöggri framsetningu samstæðuársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og fyrir því innra eftirliti sem þau telja nauðsynlegt til að gera þeim kleift að setja fram samstæðuársreikning sem er án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.

Við gerð samstæðuársreikningsins ber stjórn og forstjóra að leggja mat á rekstarhæfi samstæðunnar og upplýsa, eftir því sem við á, um þætti er varða rekstrarhæfi og miða grundvöll reikningsskilanna við áframhaldandi rekstrarhæfi, nema þau ætli annað hvort að leysa samstæðuna upp eða hætta starfsemi hennar, eða hafa engan annan raunhæfan kost en að gera það.

Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins

Markmið okkar eru að öðlast hæfilega vissu um hvort samstæðuársreikningurinn í heild sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, og að gefa út áritun endurskoðanda sem inniheldur álit okkar. Í hæfilegri vissu felst mikil vissa en ekki trygging fyrir því að endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni alltaf leiða í ljós verulega annmarka ef þeir eru fyrir hendi. Annmarkar geta komið fram vegna sviksemi eða mistaka og eru taldir verulegir ef þeir einir og sér eða samanlagt gætu haft áhrif á efnahagslegar ákvarðanir sem notendur samstæðuársreikningsins taka á grundvelli hans.

Við endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla beitum við ávallt faglegri dómgreind og viðhöfum faglega gagnrýni. Að auki:

  • Greinum við og metum hættu á verulegri skekkju í samstæðuársreikningnum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, skipuleggjum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeirri hættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, fölsun, að einhverju sé viljandi sleppt, villandi framsetningu eða að farið sé framhjá innra eftirliti.
  • Öflum við skilnings á innra eftirliti, sem varðar endurskoðunina, til að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki til að veita álit á virkni innra eftirlits samstæðunnar.
  • Metum við hvort reikningsskilaaðferðir og reikningshaldslegt mat stjórnenda og tengdar skýringar séu viðeigandi.
  • Ályktum við um hvort notkun stjórnar og forstjóra á forsendu reikningsskilanna um rekstrarhæfi sé viðeigandi og metum, á grundvelli endurskoðunarinnar, hvort aðstæður séu til staðar sem valdið gætu verulegum vafa um rekstrarhæfi samstæðunnar. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur, í áritun okkar, að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum samstæðuársreikningsins eða, ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi, að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Samt sem áður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni gert samstæðuna órekstrarhæfa.
  • Metum við framsetningu, uppbyggingu og innihald samstæðuársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum, og hvort samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum.
  • Öflum nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna varðandi fjárhagslegar upplýsingar eininga innan samstæðunnar til að geta gefið álit á samstæðuársreikningnum. Við erum ábyrg fyrir skipulagi, eftirliti og framkvæmd endurskoðunar samstæðunnar og berum óskipta ábyrgð á áritun okkar.

Við upplýsum stjórn og endurskoðunarnefnd meðal annars um áætlað umfang og tímasetningar endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp kunna að koma í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirliti.

Við lýsum því einnig yfir við stjórn og endurskoðunarnefnd að við höfum uppfyllt skyldur siðareglna um óhæði og upplýsum um tengsl eða önnur atriði sem gætu mögulega talist hafa áhrif á óhæði okkar og þegar við á, til hvaða varnaraðgerða við höfum gripið.

Af þeim atriðum sem við höfum upplýst stjórn og endurskoðunarnefnd um, leggjum við mat á hvaða þættir höfðu mesta þýðingu við endurskoðun samstæðuársreikningsins og eru því lykilþættir endurskoðunarinnar. Við lýsum þessum þáttum í áritun okkar nema lög og reglur útiloki að upplýst sé um þá eða, við einstakar mjög sjaldgæfar kringumstæður, þegar við metum að ekki skuli upplýsa um lykilþátt þar sem neikvæðar afleiðingar þess eru taldar vega þyngra en almennir hagsmunir af birtingu slíkra upplýsinga.

Áritun óháðs endurskoðanda, frh.:

Staðfesting vegna annarra ákvæða laga

Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir þessum samstæðuársreikningi eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.

Jón Arnar Óskarsson, ber ábyrgð á endurskoðun samstæðuársreikningsins og þessari áritun.

Reykjavík, 29. janúar 2020

KPMG ehf.

Jón Arnar Óskarsson

Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ársins 2019

Skýr. 2019 2018
Seldar vörur og þjónusta 7 14.845.075 15.716.686
Vörunotkun og kostnaðarverð seldrar þjónustu 8 ( 10.999.874) ( 11.543.321)
Framlegð 3.845.201 4.173.365
Rekstrarkostnaður 9 ( 3.425.768) ( 3.682.216)
Hagnaður fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld 419.433 491.149
Áhrif af sölu á eignarhlut í Tempo ehf. 0 5.097.947
Aðrar fjármunatekjur 476.024 79.545
Fjármagnsgjöld ( 151.478) ( 113.039)
Hrein (fjármagnsgjöld) fjármunatekjur 11 324.546 5.064.453
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags 14 8.779 ( 21.522)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 752.758 5.534.080
Tekjuskattur 22 ( 74.493) ( 93.610)
Hagnaður ársins 678.265 5.440.470
Rekstrarliðir sem kunna að verða endurflokkaðir
í rekstrarreikning færðir beint á eigið fé:
Þýðingarmunur vegna starfsemi dóttur og hlutdeildarfélaga 117.884 6.256
Innleystur þýðingarmunur vegna slita/sölu á dótturfélagi 11 ( 339.969) ( 26.679)
Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé alls ( 222.085) ( 20.423)
Heildarhagnaður ársins 456.180 5.420.047
EBITDA* 1.006.261 1.128.412
Skipting hagnaðar:
Hluthafar móðurfélagsins 684.537 5.440.470
Hlutdeild minnihluta ( 6.272) 0
Hagnaður ársins 678.265 5.440.470
Skipting heildarhagnaðar:
Hluthafar móðurfélagsins 462.452 5.420.047
Hlutdeild minnihluta ( 6.272) 0
Heildarhagnaður ársins 456.180 5.420.047
Hagnaður á hlut:
Hagnaður á hlut 19 1,50 11,74
Þynntur hagnaður á hlut 19 1,50 11,65

* EBITDA er hagnaður fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld án afskrifta. Skýringar á blaðsíðum 13 - 44 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.

Efnahagsreikningur 31. desember 2019

Skýr. 2019 2018
Eignir:
Rekstrarfjármunir 12 2.029.410 533.074
Óefnislegar eignir 13 2.844.893 2.436.871
Tekjuskattseign 22 18.051 43.426
Eignarhlutir í hlutdeildarfélagi 14 2.684.027 2.697.564
Verðbréfaeign og aðrar langtímakröfur 21 161.222 13.023
Fastafjármunir 7.737.603 5.723.958
Birgðir 15 1.321.497 1.646.801
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 16 1.999.686 1.802.366
Handbært fé 17 825.847 3.175.454
Veltufjármunir 4.147.030 6.624.621
Eignir samtals 11.884.633 12.348.579
Eigið fé:
Hlutafé 436.105 462.918
Yfirverðsreikningur innborgaðs hlutafjár 152.936 821.044
Annað bundið eigið fé 2.632.498 2.701.942
Óráðstafað eigið fé 3.568.871 4.175.131
Eigið fé hluthafa móðurfélagsins 18 6.790.410 8.161.035
Hlutdeild minnihlutaeigenda 26.969 33.241
Eigið fé samtals 18 6.817.379 8.194.276
Skuldir:
Vaxtaberandi langtímaskuldir 20 579.439 756.987
Leiguskuldbindingar 21 1.392.432 0
Langtímaskuldir 1.971.871 756.987
Næsta árs afborgun leiguskuldbindinga 21 310.118 0
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 20 60.702 124.054
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 23 2.724.563 3.273.262
Skammtímaskuldir 3.095.383 3.397.316
Skuldir samtals 5.067.254 4.154.303
Eigið fé og skuldir samtals 11.884.633 12.348.579

Skýringar á blaðsíðum 13 - 44 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.

Eiginfjáryfirlit árið 2019

Skýr. Hlutafé Yfirverðs-
reikningur
innborgaðs
hlutafjár
Annað
bundið
eigið fé*
Óráðstafað
eigið fé
Eigið fé
hluthafa
móður-
félagsins
Hlutdeild
minni
hluta
eigenda
Eigið fé
samtals
Árið 2018
Eigið fé 31.12.2017
Áhrif innleiðingar IFRS 15
458.609 769.670 656.420 1.043.422
(
256.565) (
2.928.121
256.565)
0 2.928.121
(
256.565)
Eigið fé 1.1.2018 458.609 769.670 656.420 786.857 2.671.556 0 2.671.556
Heildarhagnaður ársins ( 20.423) 5.440.470 5.420.047 5.420.047
Fært á bundið eigið fé
Fært af bundnu
18 22.497 ( 22.497) 0 0
0
eigin fé við sölu 18 ( 118.380) 118.380 0 0
Matsbreyting eignarhlutar
Áfallinn kostnaður
14 2.161.828 ( 2.161.828) 0 0
0
v/ kaupréttarsamninga
Minnihluti færður í
10 13.749 13.749 13.749
0
samstæðu 0 33.241 33.241
Selt nýtt hlutafé 18 6.563 105.637 112.200 112.200
Keypt eigin bréf 18 ( 2.254) ( 54.263) (
56.517)
(
56.517)
Eigið fé 31.12.2018 18 462.918 821.044 2.701.942 4.175.131 8.161.035 33.241 8.194.276

Árið 2019

Eigið fé 31.12.2018 462.918 821.044 2.701.942 4.175.131 8.161.035 33.241 8.194.276
Áhrif innleiðingar IFRS 16 1 (
141.186) (
141.186) (
141.186)
Eigið fé 1.1.2019 462.918 821.044 2.701.942 4.033.945 8.019.849 33.241 8.053.090
Heildarhagnaður ársins (
222.085)
684.537 462.452 ( 6.272) 456.180
Fært á bundið eigið fé 18 152.641 ( 152.641) 0 0
Áfallinn kostnaður
v/ kaupréttarsamninga 10 3.113 3.113 3.113
Greiddur arður 18 ( 1.000.083) ( 1.000.083) ( 1.000.083)
Seld eigin bréf 18 4.253 68.447 72.700 72.700
Keypt eigin bréf 18 ( 31.066) ( 736.555) (
767.621)
(
767.621)
Eigið fé 31.12.2019 18 436.105 152.936 2.632.498 3.568.871 6.790.410 26.969 6.817.379

* sjá sundurliðun í skýringu 18.

Skýringar á blaðsíðum 13 - 44 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.

Sjóðstreymisyfirlit ársins 2019

Skýr. 2019 2018
Rekstrarhreyfingar:
Hagnaður ársins 678.265 5.440.470
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 13 586.828 637.263
Hreinar fjármunatekjur 11 ( 324.546) ( 5.064.453)
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags 14 ( 8.779) 21.522
Tekjuskattur 22 74.493 93.610
1.006.261 1.128.412
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, lækkun (hækkun) 389.466 ( 671.482)
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, hækkun ( 163.078) ( 32.127)
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, (lækkun) hækkun ( 532.586) 869.387
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum ( 306.198) 165.778
Innheimtar vaxtatekjur 58.055 33.748
Greidd vaxtagjöld ( 129.332) ( 111.096)
Handbært fé frá rekstri 628.786 1.216.842
Fjárfestingarhreyfingar:
Fjárfesting í rekstrarfjármunum 12 ( 332.915) ( 230.274)
Söluverð rekstrarfjármuna 12 0 13.377
Fjárfesting í óefnislegum eignum 13 ( 192.626) ( 731.753)
Fjárfesting í rekstrareiningum að frádregnu handbæru fé við yfirtöku 6 ( 337.654) ( 130.652)
Hlutafjárlækkun hjá hlutdeildarfélagi 14 63.574 0
Fjárfesting í Tempo ehf. eftir sölu 14 0 ( 111.240)
Söluverð á Tempo að frádregnu handbæru fé við sölu 14 77.578 3.643.330
Langtímakröfur, breyting ( 39) 0
Fjárfestingarhreyfingar ( 722.082) 2.452.788
Fjármögnunarhreyfingar:
Keypt eigin bréf 18 ( 767.621) ( 56.517)
Seld eigin bréf 18 72.700 0
Innborgað hlutafé 18 0 112.200
Greiddur arður 18 ( 1.000.083) 0
Tekin ný langtímalán 20 0 185.785
Afborganir langtímalána 20 ( 561.490) ( 1.043.870)
Fjármögnunarhreyfingar ( 2.256.494) ( 802.402)
(Lækkun) hækkun á handbæru fé ( 2.349.790) 2.867.228
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé 183 11.483
Handbært fé í ársbyrjun 3.175.454 296.743
Handbært fé í árslok 17 825.847 3.175.454
Fjárfestingar- og fjármögnunarhreyfingar án greiðsluáhrifa
Fjárfesting í dótturfélagi ( 100.000) 0
Aðrar skammtímaskuldir 100.000 0

Skýringar á blaðsíðum 13 - 44 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.

1. Félagið

Origo hf. áður Nýherji hf. ("Félagið") er íslenskt hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru í Borgartúni 37, Reykjavík. Samstæðuársreikningur félagsins fyrir árið 2019 hefur að geyma ársreikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sem "samstæðunnar" og til einstakra félaga sem "samstæðufélaga".

Hlutverk félagsins er að veita viðskiptavinum sínum heildarlausnir á sviði upplýsingatækni með þróun hugbúnaðar, sölu á tölvu- og skrifstofubúnaði, ráðgjöf og tengdri þjónustu.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

a. Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningur samstæðunnar er jafnframt í samræmi við lög um ársreikninga og reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga og samstæðureikninga. Samantekt á mikilvægum reikningsskilaaðferðum er að finna í skýringu 34.

Stjórn félagsins staðfesti ársreikninginn 29. janúar 2020.

b. Grundvöllur matsaðferða

Samstæðuársreikningurinn er gerður á grundvelli kostnaðarverðs. Fjallað er um aðferðir við mat á gangvirði í skýringu 3.

c. Starfrækslugjaldmiðlill og framsetningargjaldmiðill

Ársreikningurinn er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill móðurfélagsins. Allar fjárhæðir eru birtar í þúsundum króna.

d. Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.

Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtíðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.

Upplýsingar um mikilvægar ákvarðanir þar sem reikningsskilaaðferðir hafa mest áhrif á skráðar fjárhæðir eigna og skulda í ársreikningnum er að finna í skýringu 13 um mat á endurheimtanlegum fjárhæðum fjárskapandi eininga sem innihalda viðskiptavild.

Við ákvörðun gangvirðis er byggt á forsendum sem háðar eru mati stjórnenda á þróun ýmissa þátta í framtíðinni. Raunverulegt söluverð eigna og uppgreiðsluverðmæti skulda kann að vera frábrugðið þessu mati.

3. Ákvörðun gangvirðis

Nokkrar reikningsskilaaðferðir samstæðunnar og skýringar krefjast ákvörðunar á gangvirði, bæði fyrir fjáreignir, fjárskuldir og aðrar eignir og skuldir. Gangvirði hefur verið ákvarðað vegna mats og/eða skýringa samkvæmt eftirfarandi aðferðum. Þar sem við á eru frekari upplýsingar um forsendur við ákvörðun á gangvirði eigna eða skulda í skýringum um viðkomandi eignir og skuldir.

(i) Rekstrarfjármunir og óefnislegar eignir

Rekstrarfjármunir og óefnislegar eignir sem yfirteknar eru við samruna eru metnar á gangvirði á yfirtökudegi.

(ii) Framvirkir samningar

Gangvirði framvirka samninga er fært í gegnum rekstrarreikning og er metið samkvæmt uppgefnu verði frá miðlara.

3. Ákvörðun gangvirðis, frh.:

(iii) Fjárskuldir sem ekki eru afleiðusamningar

Gangvirði fjárskulda, sem einungis er ákvarðað vegna skýringa, er reiknað með því að núvirða framtíðargreiðslur höfuðstóls og vaxta með markaðsvöxtum á uppgjörsdegi.

(iv) Eignarhlutur í hlutdeildarfélagið

Gangvirði við upphaflega færslu eignarhluts í hlutdeildarfélagi, Tempo ehf., er metið með hliðsjón af söluverði að frádregnu álagi vegna yfirráða af sambærilegum viðskiptum.

4. Nýir reikningsskilastaðlar IFRS 16 Leigusamningar

Félagið hefur innleitt reikningsskilastaðal IFRS 16 fyrir reikningsár sem hófst 1. janúar 2019. Aðrir alþjóðlegir reikningsskilastaðlar sem tóku gildi 1. janúar 2019 hafa óveruleg áhrif á reikningsskil samstæðunnar.

IFRS 16 innleiðir eitt reikningshaldslegt líkan um færslu leigusamninga í efnahagsreikning leigutaka. Samstæðan hefur tekið upp IFRS 16 með því að beita aðferð uppsafnaðra áhrifa, þar sem uppsöfnuð áhrif upphaflegrar beitingar eru færð á óráðstafað eigið fé 1. janúar 2019. Eigið fé félagsins lækkaði um 141 millj. kr. við innleiðinguna. Vegna þessa hefur samanburðarfjárhæðum vegna ársins 2018 ekki verið breytt, það er þær eru settar fram eins og þær voru birtar áður samkvæmt IAS 17 og tengdum túlkunum. Breytingunum á reikningsskilaaðferðum er lýst nánar hér á eftir.

Skilgreining á leigusamningi

Samkvæmt fyrri reikningsskilaaðferðum skilgreindi samstæðan við gildistöku samnings hvort hann væri eða innihéldi leigusamning samkvæmt IFRIC 4 Ákvörðun um hvort samningur inniheldur leigusamning . Samstæða leggur nú mat á það hvort samningur sé eða innihaldi leigusamning byggt á nýrri skilgreiningu á leigusamningi. Samkvæmt IFRS 16 er samningur leigusamningur eða inniheldur leigusamning ef hann veitir rétt til yfirráða yfir skilgreindri eign á tímabili í skiptum fyrir endurgjald.

Við upptöku IFRS 16 valdi samstæðan að nýta sér það praktíska úrræði að halda sig við fyrra mat á því hvaða viðskipti eru leigusamningar. Samstæðan beitti því IFRS 16 aðeins á þá samninga sem áður höfðu verið skilgreindir sem leigusamningar. Samningar sem höfðu ekki verið skilgreindir sem leigusamningar samkvæmt IAS 17 og IFRIC 4 voru ekki endurmetnir með tilliti til nýrrar skilgreiningar á leigusamningi. Af því leiðir að skilgreining á leigusamningi samkvæmt IFRS 16 hefur aðeins verið beitt á samninga sem voru gerðir eða var breytt frá og með 1. janúar 2019.

Leigusamningar þar sem samstæðan er leigutaki

Samstæðan færi eignir og skuldir vegna leigusamninga um skrifstofuhúsnæðis og vöruhúsa. Afnotaréttur á eignunum er færður á meðal rekstrarfjármuna og leiguskuldbinding er færð í sér línu í efnahagsreikningi.

Samstæðan færir leigueign og leiguskuld á upphafsdegi leigusamnings. Leigueignin er upphaflega metin á kostnaðarverði og eftir það á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun og leiðrétt vegna viss endurmats á leiguskuldinni.

Leiguskuldin er upphaflega metin miðað við núvirði leigugreiðslna sem eru ógreiddar á upphafsdegi leigusamningsins, þar sem leigugreiðslur eru núvirtar með innbyggðum vöxtum í leigusamningnum, eða ef það er ekki hægt að ákvarða þá vexti, með vöxtum samstæðunnar á nýju lánsfé. Að jafnaði notar samstæðan sína vexti á nýju lánsfé við núvirðingu leigugreiðslna.

4. Nýir reikningsskilastaðlar, frh.:

Leiguskuldin er svo hækkuð vegna vaxtagjalda og lækkuð vegna greiddra leigugreiðslna. Hún er endurmetin þegar það er breyting á framtíðarleigugreiðslum vegna breytingar á vísitölu eða vöxtum, breytingar á mati á þeirri fjárhæð sem vænst er að þurfi að greiða á grundvelli hrakvirðistryggingar, eða þegar við á, breytinga á mati á því hvort nokkuð víst er að kaupheimild eða framlengingarheimild verði nýtt eða hvort nokkuð víst er að uppsagnarheimild verði ekki nýtt.

Samstæðan hefur beitt dómgreind við ákvörðun leigutíma sumra leigusamninga þar sem samstæðan er leigutaki og samningarnir innihalda endurnýjunarheimildir. Mat á því hvort samstæðan er nokkuð víss að hún muni nýta slíkar heimildir hefur áhrif á leigutímann, sem hefur veruleg áhrif á fjárhæð færðra leiguskulda og leigueigna.

Við upptöku IFRS 16 eru leiguskuldir vegna leigusamninga sem voru flokkaðir sem rekstrarleigusamningar samkvæmt IAS 17 metnar miðað við núvirði ógreiddra leigugreiðslna, þar sem leigugreiðslur eru núvirtar með vöxtum samstæðunnar á nýju lánsfé þann 1. janúar 2019. Leigueignir eru metnar bókfærðu verði eins og IFRS 16 hefði verið beitt frá upphafsdegi leigusamninga, núvirt með vöxtum leigutaka á nýju lánsfé á degi upphaflegrar beitingar.

Leigusamningar þar sem samstæðan er leigusali

Innleiðing IFRS 16 hefur ekki veruleg áhrif á samninga þar sem samstæðan er leigusali öðru leyti en að færð er leigukrafa vegna áframleigu á húsnæði. Samstæðan hefur flokkað þessa leigusamninga sem rekstrarleigusamninga.

Áhrif innleiðingar

Ef staðallinn hefði ekki tekið gildi 1. janúar 2019 hefðu áhrif orðið þau að EBITDA ársins hefði verið um 316 millj. kr. lægri og hagnaður ársins 3 millj. kr. lægri. Áhrif á rekstrarreikning 2019 greinast þannig:

Rekstrarreikningur 2019 Áhrif nýs
staðals
Fyrir IFRS 16
2019
Seldar vörur og þjónusta 14.845.075 0 14.845.075
Vörunotkun og kostnaðarverð seldrar þjónustu ( 10.999.874) 0 ( 10.999.874)
Framlegð 3.845.201 0 3.845.201
Rekstrarkostnaður ( 3.425.768) ( 65.989) ( 3.491.757)
Hagnaður fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld 419.433 ( 65.989) 353.444
Hrein fjármagnsgjöld 324.546 62.616 387.162
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags 8.779 0 8.779
Hagnaður fyrir tekjuskatt 752.758 ( 3.373) 749.385
Tekjuskattur ( 74.493) 675 ( 73.818)
Hagnaður tímabilsins 678.265 ( 2.698) 675.567
EBITDA 1.006.261 ( 316.277) 689.984

4. Nýir reikningsskilastaðlar, frh.:

Áhrif innleiðingar

Afnotaréttur af leigueign er færður á meðal rekstrarfjármuna en um er að ræða leigusamninga um skrifstofuhúsnæðis og vöruhúsa. Áhrif innleiðingar staðalsins á efnahagsreikning samstæðunnar greinist þannig:

Áhrif innleiðingar 1. janúar 2019

Áhrif nýs
Efnahagsreikningur 31.12.2018 staðals 1.1.2019
Rekstrarfjármunir 533.074 1.099.720 1.632.794
Tekjuskattseign 43.426 35.296 78.722
Verðbréfaeign og aðrar langtímakröfur 13.023 172.934 185.957
Aðrir fastafjármunir 5.134.435 0 5.134.435
Fastafjármunir 5.723.958 1.307.950 7.031.908
Birgðir 1.646.801 0 1.646.801
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 1.802.366 29.259 1.831.625
Handbært fé 3.175.454 0 3.175.454
Veltufjármunir 6.624.621 29.259 6.653.880
Eignir samtals 12.348.579 1.337.209 13.685.788
Eigið fé 8.194.276 (
141.186)
8.053.090
Vaxtaberandi langtímaskuldir 756.987 0 756.987
Leiguskuldbinding 0 1.011.211 1.011.211
Langtímaskuldir 756.987 1.011.211 1.768.198
Næsta árs afborgun leiguskuldbindingar 0 467.184 467.184
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 124.054 0 124.054
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 3.273.262 0 3.273.262
Skammtímaskuldir 3.397.316 467.184 3.864.500
Skuldir samtals 4.154.303 1.478.395 5.632.698
Eigið fé og skuldir samtals 12.348.579 1.337.209 13.685.788

Við færslu leiguskulda vegna leigusamninga sem voru flokkaðir sem rekstrarleigusamningar núvirti samstæðan leigugreiðslurnar með því að nota vexti af nýju lánsfé þann 1. janúar 2019. Vegnir meðalvextir eru 4,5%.

1. janúar 2019

Skuldbindingar vegna rekstarleigusamninga 31. desember 2018
samkvæmt IAS 17 í ársreikningi samstæðunnar 1.773.633
Núvirtar með því að nota vexti samstæðunnar af nýju lánsfé 1. janúar 2019. 1.478.395

5. Starfsþáttayfirlit

Rekstrarstarfsþættir

Notendabúnaður og tengd þjónusta Samstæðan skiptist í þrjá starfsþætti, sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsþættirnir eru:

  • ● Rekstrarþjónusta og innviðir
  • Hugbúnaður og tengd þjónusta
2019 Notenda
búnaður
og tengd
þjónusta
Rekstrar-
þjónusta og
innviðir
Hugbúnaður
og tengd
þjónusta
Samtals
Seldar vörur og þjónusta 5.568.050 4.606.672 4.670.353 14.845.075
Afkoma starfsþátta (EBITDA) ( 37.794) 275.438 768.617 1.006.261
Afskriftir ( 92.580) ( 298.702) ( 195.546) ( 586.828)
Hreinar fjármunatekjur 324.546
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags 8.779
Tekjuskattur ( 74.493)
Hagnaður ársins 678.265
Þýðingarmunur v/ dóttur- og hlutdeildarfélaga ( 222.085)
Heildarhagnaður ársins 456.180

2018

Seldar vörur og þjónusta 4.693.410 4.762.163 6.261.113 15.716.686
Afkoma starfsþátta (EBITDA) 56.297 285.840 786.275 1.128.412
Afskriftir ( 27.757) ( 163.948) ( 445.558) ( 637.263)
Áhrif sölu á Tempo ehf. 5.097.947
Hrein fjármagngjöld ( 33.494)
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags ( 21.522)
Tekjuskattur ( 93.610)
Hagnaður ársins 5.440.470
Þýðingarmunur v/ dóttur- og hlutdeildarfélaga ( 20.423)
Heildarhagnaður ársins 5.420.047

Eignir samstæðunnar eru ekki aðgreinanlegar niður á starfsþátt.

Landsvæðisskipting - tekjur

2019 2018
Ísland 13.570.508 12.713.896
Önnur lönd 1.274.567 3.002.790
Tekjur alls 14.845.075 15.716.686
Hugbúnaður 95.922
Rekstrarfjármunir 19.419
Vörubirgðir 63.695
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 34.960
Handbært fé 92.933
Yfirteknar eignir 306.929
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 39.730
Yfirteknar skuldir 39.730
Hreinar aðgreinanlegar eignir alls 267.199
Kaupverð greitt með peningum 430.588
Ógreitt kaupverð 100.000
Kaupverð alls 530.588
Viðskiptavild við yfirtöku 263.389
Áhrif á rekstrarreikning samstæðunnar greinist þannig: 2019
Rekstrartekjur 624.779
Rekstrargjöld ( 651.999)
Rekstrartap ( 27.220)
Hreinar fjármunatekjur 24.446
Tap ársins ( 2.774)
Seldar vörur og þjónusta
Seldar vörur og þjónusta greinast þannig: 2019 2018
Seldar vörur og hugbúnaður 8.487.037 9.280.959
Seld þjónusta 6.358.038 6.435.727
Seldar vörur og þjónusta samtals 14.845.075 15.716.686
Vörunotkun og kostnaðarverð sölu
Vörunotkun og kostnaðarverð sölu greinist þannig:
Vörukaup
Laun og launatengd gjöld 6.409.053 6.497.333
Afskriftir 4.309.402
281.419
4.473.776
572.211

9. Rekstrarkostnaður

Rekstrarkostnaður greinist þannig: 2019 2018
Laun og launatengd gjöld 2.092.434 1.983.511
Rekstur fasteigna 73.960 416.665
Sölu- og markaðskostnaður 208.661 299.243
Afskriftir 305.409 65.052
Annar starfsmannakostnaður 155.937 212.227
Ferðakostnaður 69.871 99.373
Aðkeypt ráðgjöf og þjónusta 124.321 186.951
Ýmis annar rekstrarkostnaður 395.175 419.195
Rekstrarkostnaður alls 3.425.768 3.682.216

10. Laun og launatengd gjöld

Laun og launatengd gjöld greinast þannig:

Laun 5.569.551 5.866.167
Lífeyrisiðgjöld 601.664 633.707
Önnur launatengd gjöld 448.588 472.478
Laun og launatengd gjöld samtals 6.619.803 6.972.352
Endugreiddur þróunarkostnaður, skattaívilnun Rannís ( 92.682) ( 80.768)
Laun og launatengd gjöld eignfærð sem þróunarkostnaður ( 125.285) ( 434.297)
Laun og launatengd gjöld í rekstrarreikningi 6.401.836 6.457.287
Ársverk 519 567
Stöðugildi í árslok 532 495
Laun og launatengd gjöld greinast þannig á rekstrarliði:
4.309.402 4.473.776
2.092.434 1.983.511
6.401.836 6.457.287

Í samræmi við samþykkt aðalfundar 4. mars 2016 var gengið frá kaupréttaráætlun sem nær til allrar fastra starfsmanna félagsins. Á árinu 2019 eru 3 millj. kr. gjaldfærðar í rekstrarreikningi vegna kaupréttarsamninga. Kaupréttaráætlunin rann út á árinu 2019 en kaupgengi samkvæmt henni var 17,095 á hlut.

Gangvirði kaupréttarsamninga er metið með Black-Scholes aðferðinni. Við matið er notað gengi hlutabréfa á matsdegi, kaupréttargengi, vænt flökt, gildistími samninga, væntar arðgreiðslur og áhættulausa vexti.

11. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur greinast þannig: 2019 2018
Áhrif sölu á Tempo ehf. 0 5.097.947
Vaxtatekjur af bankainnstæðum og kröfum 58.055 33.748
Breyting á skuldbindingu vegna fjárfestinga 58.000 0
Innleystur þýðingarmunur vegna slita á dótturfélagi 339.969 0
Gengishagnaður 0 45.797
Aðrar fjármuntekjur 20.000 0
Aðrar fjármunatekjur samtals 476.024 79.545
Fjármagnsgjöld greinast þannig:
Vaxtagjöld af leigusamningum (
71.034)
0
Önnur vaxtagjöld (
58.298)
(
113.039)
Gengistap (
22.146)
0
Fjármagnsgjöld samtals (
151.478)
(
113.039)
Hreinar fjármunatekjur samtals 324.546 5.064.453

* Á árinu 2019 var dótturfélagið Nyherji A/S í slitið og því er uppsafnaður þýðingarmunur innleystur og færður á óráðstafað eigið fé í gegnum fjármunatekjur. Engin starfsemi hefur verið í Danmörku undanfarin ár.

12. Rekstrarfjármunir

Rekstrarfjármunir og afskriftir greinast þannig: Tölvubúnaður,

tæki og
Leigðar eignir Fasteignir innréttingar Samtals
Stofnverð
Heildarverð 1.1.2018 0 28.348 2.926.986 2.955.334
Viðbót á árinu 0 0 230.274 230.274
Selt og niðurlagt 0 0 ( 31.967)
(
31.967)
Áhrif sölu á Tempo ehf. 0 0 ( 41.689)
(
41.689)
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla 0 0 4.474 4.474
Heildarverð 31.12.2018 0 28.348 3.088.078 3.116.426
Áhrif innleiðingar á IFRS 16 1.099.720 0 0 1.099.720
Viðbót á árinu 466.302 0 332.915 799.217
Yfirtekið við kaup á rekstri 0 0 19.419 19.419
Endurmat í tengslum við kaup á rekstri 0 0 20.000 20.000
Endurflokkað 0 0 ( 10.965)
(
10.965)
Áhrif endurmats leiguskuldbindingar 32.254 0 0 32.254
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla (
458)
0 ( 10)
(
468)
Heildarverð 31.12.2019 1.597.818 28.348 3.449.437 5.075.603
Afskriftir og virðisrýrnun
Staða 1.1.2018 0 7.065 2.358.148 2.365.213
Afskriftir ársins 0 378 245.835 246.213
Selt og niðurlagt 0 0 ( 18.590)
(
18.590)
Áhrif sölu á Tempo ehf. 0 0 ( 9.484)
(
9.484)
Afskrifað alls 31.12.2018 0 7.443 2.575.909 2.583.352
Afskriftir ársins 250.288 378 212.178 462.844
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla 0 0 ( 3)
(
3)
Afskrifað alls 31.12.2019 250.288 7.821 2.788.084 3.046.193
12.
Rekstrarfjármunir, frh.:
Tölvubúnaður,
tæki og
Leigðar eignir Fasteignir innréttingar Samtals
Bókfært verð
1.1.2018 0 21.283 568.838 590.121
31.12.2018 0 20.905 512.169 533.074
31.12.2019 1.347.530 20.527 661.353 2.029.410
Afskriftahlutföll 1,3% 15 - 25%

Vátryggingar og mat eigna

Vátryggingaverð, fasteignamat og bókfært verð eigna í lok árs nam eftirfarandi fjárhæðum:

2019 2018
Vátryggingarverð fasteigna 51.688 47.890
Fasteignamat fasteigna og lóða 21.040 19.770
Bókfært verð fasteigna og lóða 20.527 20.905
Vátryggingarverð birgða, áhalda, tækja og innréttinga 2.258.001 2.214.589

Veðskuldir

Á rekstrarfjármunum samstæðunnar hvíla engin þinglýst veð til tryggingar skuldum í árslok 2018 og 2019.

13. Óefnislegar eignir

Óefnislegar eignir, afskriftir og virðisrýrnun greinist þannig:

Óefnislegar
Viðskiptavild Hugbúnaður eignir alls
Kostnaðarverð
Heildarverð 1.1.2018 1.985.610 2.062.366 4.047.976
Yfirtekið við kaup á rekstrareiningum 0 115.184 115.184
Fjárfesting í innri hugbúnaðarþróun 0 440.165 440.165
Viðbót á árinu 0 291.588 291.588
Áhrif sölu á Tempo ehf. (
277.360)
(
2.124.652)
(
2.402.012)
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla 45.925 200.116 246.041
Heildarverð 31.12.2018 1.754.175 984.767 2.738.942
Yfirtekið við kaup á rekstri 263.389 95.922 359.311
Fjárfesting í innri hugbúnaðarþróun 0 125.285 125.285
Viðbót á árinu 0 67.341 67.341
Endurflokkað 0 (
20.565)
(
20.565)
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla 634 0 634
Heildarverð 31.12.2019 2.018.198 1.252.750 3.270.948
Afskriftir og virðisrýrnun
Afskrifað alls 1.1.2018 137.481 827.312 964.793
Afskriftir 0 391.050 391.050
Áhrif sölu á Tempo ehf. 0 (
1.113.498)
(
1.113.498)
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla 0 59.726 59.726
Afskrifað alls 31.12.2018 137.481 164.590 302.071
Afskriftir 0 123.984 123.984
Afskrifað alls 31.12.2019 137.481 288.574 426.055

13. Óefnislegar eignir, frh.:

Viðskiptavild Hugbúnaður Óefnislegar
eignir alls
Bókfært verð
1.1.2018 1.848.129 1.235.054 3.083.183
31.12.2018 1.616.694 820.177 2.436.871
31.12.2019 1.880.717 964.176 2.844.893
Afskriftahlutföll 10 - 25%

Hluti af starfsemi Origo hf. er að þróa hugbúnað og selja. Í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla voru á árinu eignfærðar 125 millj. kr. vegna þróunar á eigin hugbúnaði auk þess fjárfesti félagið í öðrum hugbúnaði fyrir 163 millj. kr. á árinu. Við mat á fjárhæðum við þróun á hugbúnaði er miðað við kostnað sem til fellur frá þeim degi sem verkefni uppfyllir öll skilyrði til eignfærslu.

Óefnislegar eignir sem þróaðar innan samstæðunnar eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum afskriftum eins og um keypta eign væri að ræða. Bókfært verð óefnislegra eigna er yfirfarið á hverjum uppgjörsdegi til að meta hvort vísbendingar séu um virðisrýrnun þeirra. Sé einhver slík vísbending til staðar er endurheimtanleg fjárhæð eignarinnar metin. Virðisrýrnunarpróf eru gerð að minnsta kosti árlega á viðskiptavild.

Afskriftir samkvæmt rekstrarreikningi greinast þannig: 2019 2018
Afskriftir rekstrarfjármuna, skýring 12
Afskriftir óefnislega eigna
462.844
123.984
246.213
391.050
Fært í rekstrarreikning sem afskriftir 586.828 637.263
Afskriftir greinast þannig á rekstrarliði:
Vörunotkun og kostnaðarverð seldrar þjónustu 281.419 572.211
Rekstrarkostnaður 305.409 65.052
Afskriftir samtals 586.828 637.263

Virðisrýrnunarpróf

Í lok reikningsársins var framkvæmt virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild félagsins. Viðskiptavild sem myndast hefur við kaup hefur verið útdeilt niður á viðeigandi dótturfélög sem skilgreind eru sem minnstu aðgreinanlegu fjárskapandi einingar af stjórnendum samstæðunnar. Við sameiningu dótturfélaganna við móðurfélagið á árinu 2017 runnu fjárskapandi einingar saman í eina.

Bókfært verð viðskiptavildar greinist þannig niður á flokk fjárskapandi einingar: 2019 2018

Vörur, hugbúnaður, tengd þjónusta og ráðgjöf - innlend starfsemi 1.662.913 1.399.524
Hugbúnaður, tengd þjónusta og ráðgjöf - erlend starfsemi 217.804 217.170
Viðskiptavild samtals 1.880.717 1.616.694

Endurheimtanlegar fjárhæðir fyrir fjárskapandi einingar eru byggðar á nýtingarvirði. Við mat á nýtingarvirði er stuðst við vænt fjárstreymi sem fært hefur verið til núvirðis. Fjárstreymi var áætlað í samræmi við fjárhæðir og rekstraráætlanir næstu fimm ára, eftir spátímabilið er gert ráð fyrir föstum framtíðarnafnvexti við útreikning á hrakvirði. Megin forsendur eru tekjuvöxtur, rekstrarhagnaðarhlutfall (EBITDA-hlutfall), framtíðarfjárfesting og vöxtur eftir fimm ára spátímabil. Við núvirðingu er stuðst við væntan veginn fjármagnskostnað (WACC). Ávöxtunarkrafan tekur mið af hverri fjárskapandi einingu þar sem stuðst er við ytri gögn sem og innri gögn. Beitt er sömu aðferðafræði og árið áður.

13. Óefnislegar eignir, frh.:

Áætlanir eru yfirfarnar og samþykktar af stjórn félagsins. Samkvæmt niðurstöðum prófa í árslok 2019 hefur viðskiptavildin ekki orðið fyrir virðisrýrnun.

Við mat á nýtingarvirði byggja stjórnendur á áætlunum á framtíðarþróun á sviði upplýsingatækni, byggt er á bæði ytri og innri upplýsingum. Stuðst er við reynslu reynslu fyrri ára. Eftirfarandi eru lykilforsendur við mat á nýtingarvirði:

Vörur, hugbúnaður,
tengd þjónusta
og ráðgjöf
Hugbúnaður,
tengd þjónusta
og ráðgjöf
Forsendur í árslok 2019: - innanlands - erlend
Framtíðarvöxtur að teknu tilliti til verðlagsþróunar
Nafnvöxtur tekna:
4,9% 3,0%
Vegið meðaltal 2020 7,4% 15,9%
2021 - 2024 5,0 - 5,3% 4,0 -4,5%
Ávöxtunarkrafa, WACC 8,1% 5,8%
Skuldsetningarhlutfall 9,0% 9,0%
Vextir 5,3% 2,9%
Forsendur í árslok 2018:
Framtíðarvöxtur að teknu tilliti til verðlagsþróunar
Nafnvöxtur tekna:
5,0% 3,5%
Vegið meðaltal 2019 7,6% 9,0%
2020 - 2023 5,0 - 5,3% 4,0 -5,0%
Ávöxtunarkrafa, WACC 10,2% 7,4%
Skuldsetningarhlutfall 13,0% 14,0%
Vextir 7,0% 3,3%

Raunhæfar breytingar á forsendum í árslok 2019 og 2018 myndu ekki leiða til virðisrýrnunar.

14. Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi

Þann 19. nóvember 2018 seldi félagið 55% eignarhlut í Tempo ehf. til Diversis Capital, fjárfestingafélags í Los Angeles sem sérhæfir sig í fjárfestingum í hugbúnaðar og tæknifyrirtækjum. Tempo ehf. er því hluti af samstæðu Origo til 19. nóvember 2018. Söluverðið nam 3.643 millj. kr. að frádregnum sölukostnaði. Heildaráhrif viðskiptanna á afkomu Origo hf. í rekstrarreikningi fyrir árið 2018 nam 5.104 millj. kr

Við söluna var 45% eignarhlutur í Tempo ehf. færður upp til gangvirðis en síðar samkvæmt hlutdeildaraðferð. Eignarhluturinn er skilgreindur sem eign í hlutdeildarfélagi.

Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi greinist þannig:

2019 2.018
Bókfært verð 1.1. 2.697.564 0
Eignarhlutur í Tempo ehf. færður sem hlutdeildarfélag 0 526.578
Matsbreyting á eignarhlut í kjölfar sölu 0 2.071.534
Fjárfesting í Tempo ehf. 0 111.240
Hlutafjárlækkun hjá Tempo ehf. ( 63.574) 0
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags ( 68.799) (
21.522)
Þýðingarmunur 118.836 9.734
Bókfært verð 31.12. 2.684.027 2.697.564

14. Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi, frh.:

Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi skiptist þannig: 2019 2018
Hlutdeild í eigin fé Tempo ehf. 424.163 492.893
Viðskiptavild 1.407.650 1.367.808
Aðrar óefnislegar eignir 852.214 836.863
Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi 2.684.027 2.697.564
Áhrif í rekstrarreikningi greinast þannig:
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags ( 68.799) ( 21.522)
Uppgjör á sölu á Tempo ehf. - söluhagnaður 77.578 0
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags skv. ársreikningi 8.779 ( 21.522)
15. Birgðir
Birgðir í árslok greinast þannig:
Birgðir á vörulager og í verslunum 1.239.765 1.549.599
Varahlutabirgðir 51.942 69.145
Verk í vinnslu 167.068 172.369
Niðurfærsla birgða ( 137.278) ( 144.312)

Verk í vinnslu samanstanda af kostnaði vegna þjónustuverka sem áfallinn er í árslok.

Birgðir samtals .........................................................................................................

16. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur

Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast þannig:

Viðskiptakröfur vegna samninga við viðskiptavini 1.806.545 1.721.354
Niðurfærsla vegna krafna sem kunna að tapast ( 28.400) ( 41.400)
Ýmsar skammtímakröfur 221.541 122.412
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals 1.999.686 1.802.366

Fjallað er um lánsáhættu, gengisáhættu og virðisrýrnun (niðurfærslu) viðskiptakrafna og annarra krafna samstæðunnar í skýringu 25 og 27.

Viðskiptakröfur og birgðir að fjárhæð 640 millj. kr. (2018: 670 millj. kr.) eru veðsettar til tryggingar á lánum til félagsins.

17. Handbært fé

Handbært fé greinist þannig:

Óbundnar bankainnstæður og lausafjársjóðir 820.238 3.166.915
Sjóðir 5.609 8.539
Handbært fé 825.847 3.175.454

1.321.497 1.646.801

18. Eigið fé

(i) Hlutafé

Heildarhlutafé félagsins samkvæmt samþykktum þess er 459 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Eitt atkvæði fylgir hverjum hlut í félaginu. Félagið á eigin hlutabréf að nafnverði 24 millj. kr. sem færð eru til lækkunar á eigin fé.

Félagið keypti 31,1 millj. hluti á 768 millj. kr. á árinu 2019 í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins

(ii) Yfirverðsreikningur innborgaðs hlutafjár

Yfirverðsreikningur innborgaðs hlutafjár sýnir það sem hluthafar félagsins hafa greitt umfram nafnverð hlutafjár sem félagið hefur selt. Samkvæmt lögum um hlutafélög skal félagið binda 25% af nafnverði hlutafjár í varasjóði, sem ekki má nota til að greiða hluthöfum arð.

Heimilt er samkvæmt lögum að jafna yfirverðsreikningi innborgaðs hlutafjár á móti uppsöfnuðu tapi.

(iii) Annað bundið eigið fé

Annað bundið eigið fé samanstendur af þýðingarmun vegna dótturfélag og bundnum hlutdeildarreikningi í árslok.

Bundið eigið fé inniheldur hlutdeild í uppsöfnuðum hagnaði dótturfélaga og hlutdeildarfélaga sem er umfram úthlutaðan arð frá viðkomandi félögum á undirritunardegi.

Annað bundið eigið fé greinist þannig:

Þýðingar
munur í
dóttur-
félögum
Bundinn
hlutdeildar-
reikningur
Bundið
eigið fé vegna
þróunarkostn.
Samtals
Staða 1.1.2018 412.781 243.639 0 656.420
Breyting á árinu (
20.423)
2.065.945 0 2.045.522
Staða 31.12.2018 392.358 2.309.584 0 2.701.942
Breyting á árinu (
222.085)
27.356 125.285 (
69.444)
Staða 31.12.2019 170.273 2.336.940 125.285 2.632.498

(iv) Óráðstafað eigið fé

Óráðstafað eigið fé er uppsafnaður óráðstafaður hagnaður og ójafnað tap samstæðunnar frá stofnun móðurfélagsins, að frádregnum arðgreiðslum og millifærslum til og frá öðrum eiginfjárliðum.

(v) Eiginfjárstýring

Það er stefna stjórnar félagsins að eiginfjárstaða samstæðunnar sé sterk til að styðja við stöðugleika í framtíðarþróun starfseminnar. Stjórn félagsins hefur þá stefnu að 20-40% af hagnaði hvers árs sé að jafnaði greiddur sem arður til hluthafa. Til langs tíma er markmið stjórnar að eiginfjárhlutfall samstæðunnar sé ekki undir 40,0%. Eiginfjárhlutfall félagsins var 57,4% í árslok 2019 samanborið við 66,1% í árslok 2018. Við stýringu á eigin fé er litið til bókfærðs eigin fjár.

Á aðalfundi félagsins þann 7. mars 2019 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Kaupgengi hluta skal miða við síðasta skráða gengi á Nasdaq OMX Iceland hf. áður en samningur er gerður. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. Með samþykkt tillögu þessarar féll úr gildi sams konar heimild sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 2. mars 2018.

Engar breytingar urðu á stefnu um eiginfjárstýringu samstæðunnar á árinu.

Félaginu og dótturfélögum þess ber ekki að fylgja ytri reglum um lágmarks eiginfjárstöðu.

18. Eigið fé, frh.:

(vi) Arður

Á árinu 2019 var greiddur arður til hluthafa að fjárhæð 1.000 millj. kr. (2018: Enginn arður). Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði 180 millj. kr. arður til hluthafa á árinu 2020.

19. Hagnaður á hlut

Hagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðalfjölda virkra hluta á árinu og sýnir hver hagnaðurinn er á hverja krónu hlutafjár. Þynntur hagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðalfjölda virkra hluta að teknu tilliti til þynningaráhrifa væntra útgefinna hluta vegna kauprétta starfsmanna.

2019 2018
Hagnaður ársins til hluthafa í móðurfélaginu 678.265 5.440.470
Hlutafé í ársbyrjun 462.918 458.609
Áhrif hækkunar hlutafjár 3.146 4.922
Áhrif kaupa á eigin bréfum (
15.073)
0
Vegið meðaltal útistandandi hluta á árinu 450.991 463.531
Áhrif kaupréttasamninga 0 3.346
Vegið meðaltal útistandandi hluta á árinu fyrir þynntan hagnað 450.991 466.877
Hagnaður á hlut 1,50 11,74
Þynntur hagnaður á hlut 1,50 11,65

20. Vaxtaberandi skuldir

Í þessari skýringu eru upplýsingar um samningsbundin ákvæði vaxtaberandi skulda samstæðunnar, sem færðar eru á afskrifuðu kostnaðarverði. Upplýsingar um vaxtaáhættu, gengisáhættu og lausafjáráhættu er að finna í skýringum 24 til 28.

Vaxtaberandi langtímaskuldir greinast þannig: 2019 2018
Vaxtaberandi skuldir
Næsta árs afborganir
( 640.141
60.702)
( 881.041
124.054)
Vaxtaberandi langtímaskuldir alls 579.439 756.987

Vaxtaberandi skuldir í lok ársins greinast þannig eftir gjaldmiðlum:

2019 2018
Lokagjalddagi Meðalvextir Eftirstöðvar Meðalvextir Eftirstöðvar
Skuldir í ISK, óverðtryggð 2030 4,9% 241.191 6,0% 263.628
Skuldir í SEK 2030 3,6% 221.974 3,4% 241.917
Skuldir í EUR 2030 3,4% 139.497 3,5% 149.552
Skuldir í DKK 2021 3,4% 36.017 2,8% 224.409
Skuldir í USD 2030 5,5% 1.462 6,0% 1.535
Vaxtaberandi skuldir alls 640.141 881.041

20. Vaxtaberandi skuldir,frh.:

Afborganir af langtímalánum greinast þannig á næstu ár: 2019 2018
Afborganir 2019 - 124.054
Afborganir 2020 60.702 122.519
Afborganir 2021 59.239 122.519
Afborganir 2022 59.239 60.591
Afborganir 2023 59.239 60.591
Afborganir 2024 59.239 60.591
Afborganir síðar 342.483 330.176
Samtals 640.141 881.041

Breyting vaxtaberandi skulda á árinu greinist þannig:

Vaxtaberandi skuldir 1. janúar 881.041 1.749.351
Ógreitt kaupverð endurflokkað 0 (
165.113)
Ný lántaka 0 185.785
Afborganir (
245.213)
(
1.043.870)
Gengismunur 4.313 154.888
Vaxtaberandi skuldir 31. desember 640.141 881.041

Lánasamningar félagsins innihalda m.a skilmála um fjárhagslegan styrk og uppfyllir félagið alla gildandi skilmála í árslok 2019.

Skuldir félagsins við lánastofnanir eru tryggðar með veðum í viðskiptakröfum, birgðum og eignarhlutum í tilteknum dótturfélögum sbr. skýringar 16.

21. Leigusamningar

Samstæðan leigir skrifstofuhúsnæði og vöruhús. Þessir leigusamningar eru að jafnaði til 10-20 ára með möguleika á endurnýjun í lok leigutímans. Leigusamningarnir eru flestir tengdir vísitölu neyðsluverðs. Samstæðan áframleigir hluta af skrifstofuhúsnæðinu við Borgartún 37 til Tempo ehf. Leigusamningarnir voru áður flokkaðir sem rekstrarleigusamningar skv. IAS 17.

Leigueignir greinast þannig:

Fasteignir
Leigueignir 1.1 1.099.720
Afskriftir ársins
(
250.288)
Viðbætur við leigueignir 466.302
Áhrif endurmats leigusamninga og gengisbreytingar 31.796
Leigueignir 31.12 1.347.530
Áhrif leigusamninga í rekstrarreikningi greinast þannig:
2019 - Leigusamningar samkvæmt IFRS 16
2019
Vaxtagjöld á leiguskuldir 71.034
Vaxtatekjur á kröfur 8.418
Afskrift leigueigna 250.288
2018 - Rekstrarleigusamningar samkvæmt IAS 17
Leigukostnaður 308.459
Leigutekjur 33.256

21. Leigusamningar, frh.:

Áhrif leigusamninga í sjóðstreymi greinast þannig:

Greitt vegna leigusamninga 350.315
Innheimt vegna leigusamninga 34.037

Framlengingarákvæði

Sumir leigusamningar samstæðunnar um fasteignir fela í sér framlengingarheimildir sem henni er heimilt að nýta allt að einu ári fyrir lok óuppsegjanlegs leigutímabils. Ef samstæðan telur það hagkvæmt leitast hún við að hafa framlengingarheimildir í leigusamningum til að tryggja sveigjanleika í rekstri. Aðeins samstæðunni er heimilt að nýta framlengingarákvæði en ekki leigusölum. Samstæðan leggur mat á það við upphaf leigusamnings hvort það sé talið nokkuð líklegt að hún muni nýta heimildir til framlenginga. Ef verulegar breytingar á aðstæðum sem eru á valdi samstæðunnar verða þá endurmetur hún hvort að hún muni nýta sér framlengingarheimildir leigusamnings.

Ekki er gert ráð fyrir að samstæðan nýti sér heimildir til framlengingar leigusamninga þar sem óvissa er um hvort heimildin verði nýtt.

Leiguskuldbinding

Leiguskuldbinding greinist þannig

Afborganir 2020 334.529
Afborganir 2021 321.156
Afborganir 2022 278.130
Afborganir 2023 278.010
Afborganir 2024 276.551
Afborganir síðar 474.040
Ónúvirtar greiðslur alls 1.962.416
Áfallinn vaxtagjöld 5.199
Hrein fjárfesting í leigusamningum 1.967.615

Leigukröfur

Samstæðan áfram leigir hluta af Borgartúni 37 til Tempo ehf. og námu vaxtatekjur vegna leigukrafna alls 8 millj. kr. Í eftirfarandi töflu er kemur fram aldursgreining leigugreiðslna sem greiddar verða eftir lok reikningsskilatímabil. Leigugreiðslurnar eru ónúvirtar.

Afborganir 2020 34.429
Afborganir 2021 34.429
Afborganir 2022 34.429
Afborganir 2023 34.429
Afborganir 2024 34.429
Afborganir 2025 34.429
Ónúvirtar leigutekjur alls 206.574
Óinnleystar vaxtatekjur 585
Hrein fjárfesting í leigusamningum 207.159

Ekki er gert ráð fyrir að samstæðan nýti sér heimildir til framlengingar leigusamninga þar sem óvissa er hvort samningarnir verði endurnýjaðir.

22. Tekjuskattur

Gjaldfærður tekjuskattur í rekstrarreikningi
(
74.493)
(
93.610)
Virkur tekjuskattur greinist þannig:
2019
2018
Hagnaður fyrir tekjuskatt
752.758
5.534.080
Tekjuskattur samkvæmt gildandi skatthlutfalli
20,0%
(
150.552)
20,0%
(
1.106.816)
Áhrif sölu á Tempo ehf.
0,0%
0
(
18,4%)
1.019.589
Áhrif gengismunar á kröfu á dótturfélag
0,5%
(
3.441)
0,2%
(
10.434)
Innleystur þýðingarmunur
(
9,0%)
67.994
0,0%
0
Óskattskyldar tekjur
(
1,8%)
13.756
(
0,3%)
15.665
Áhrif skatthlutfalla á erlendum skattasvæðum
0,4%
(
2.760)
0,0%
(
2.608)
Annað
(
0,1%)
510
0,2%
(
9.006)
Virkur tekjuskattur
9,9%
(
74.493)
1,7%
(
93.610)
Tekjuskattseign greinist þannig:
2019
2018
Tekjuskattseign 31. desember
43.426
130.881
Tekjuskattsáhrif við innleiðingu á IFRS 15
35.296
64.141
Tekjuskattseign 1. janúar
78.722
195.022
Tekjuskattur ársins
(
74.493)
(
93.610)
Áhrif sölu á Tempo ehf.
0
(
99.144)
Ógreiddur tekjuskattur
14.123
8.885
Þýðingarmunur
(
301)
32.273
Tekjuskattseign 31. desember
18.051
43.426
Tekjuskattseign greinist þannig í árslok:
Eignir
Skuldir
Nettó
2019
Rekstrarfjármunir og leigðar eignir
14.561
(
269.506)
(
254.945)
Óefnislegar eignir
0
(
30.796)
(
30.796)
Viðskiptakröfur og aðrar kröfur
5.538
(
36.382)
(
30.844)
Frestaður skattalegur gengismunur
0
(
5.873)
(
5.873)
Leiguskuldbindingar
340.509
0
340.509
Tekjuskatteign (-skuldbinding)
360.608
(
342.557)
18.051
Jöfnun
(
342.557)
342.557
0
Tekjuskattseign 31. desember
18.051
0
18.051
Tekjuskattseign greinist þannig í árslok:
Eignir
Skuldir
Nettó
2018
Rekstrarfjármunir
19.544
0
19.544
Óefnislegar eignir
0
(
9.688)
(
9.688)
Viðskiptakröfur og aðrar kröfur
8.280
0
8.280
Frestaður skattalegur gengismunur
0
(
17.633)
(
17.633)
Yfirfæranlegt skattalegt tap
42.923
0
42.923
Tekjuskatteign (-skuldbinding)
70.747
(
27.321)
43.426
Jöfnun
(
27.321)
27.321
0
Tekjuskattseign 31. desember
43.426
0
43.426
Tekjuskattur í rekstrarreikningi greinist þannig: 2019 2018

22. Tekjuskattur, frh.:

Yfirfæranlegt skattalegt tap er nýtanlegt á móti skattskyldum hagnaði næstu ára sem hér segir:

2019 2018
Skattalegt tap vegna 2014, nýtanlegt til 2024 0 203.919
Skattalegt tap vegna 2015, nýtanlegt til 2025 0 5.565
Skattalegt tap vegna 2016, nýtanlegt til 2026 0 5.132
Yfirfæranlegt skattalegt tap alls 0 214.616

Origo hf. var samskattað með Tempo ehf. en samsköttunin rofnaði við sölu á 55% eignarhlut.

23. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir

Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:

Viðskiptaskuldir 1.232.887 1.859.390
Aðrar skammtímaskuldir 1.491.676 1.413.872
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 2.724.563 3.273.262

Áhættustýring

24. Yfirlit

Eftirfarandi áhættur fylgja fjármálagerningum samstæðunnar:

  • lánsáhætta
  • lausafjáráhætta
  • markaðsáhætta
  • rekstraráhætta

Hér eru veittar upplýsingar um framangreindar áhættur, markmið, stefnu og aðferðir samstæðunnar við að meta og stýra áhættu.

Markmið samstæðunnar með áhættustýringu er að uppgötva og greina áhættu sem hún býr við, setja viðmið um áhættutöku og hafa eftirlit með henni. Áhættustýring og aðferðir eru yfirfarnar reglulega til að endurspegla breytingar á markaðsaðstæðum og starfsemi samstæðunnar. Með þjálfun starfsmanna og starfsreglum stefnir samstæðan að öguðu eftirliti þar sem allir starfsmenn eru meðvitaðir um hlutverk sitt og skyldur.

25. Lánsáhætta

Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi samstæðunnar ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Lánsáhætta samstæðunnar er einkum vegna viðskiptakrafna og handbærs fjár.

Viðskiptakröfur og aðrar kröfur

Lánsáhætta samstæðunnar ræðst einkum af fjárhagsstöðu og starfsemi einstakra viðskiptamanna. Atvinnugreinar og staðsetning viðskiptamanna hafa minni áhrif á lánsáhættu. Um 21% (2018: 16%) af tekjum samstæðunnar eru vegna sölu á vörum og þjónustu til fimm stærstu viðskiptamanna hennar.

Samstæðan hefur sett útlánareglur þar sem allir nýir viðskiptamenn eru metnir áður en þeim er veittur gjaldfrestur. Greiðslusaga nýrra viðskiptamanna er könnuð og þeim settar hámarksúttektir.

Flestir viðskiptamenn samstæðunnar hafa átt í áralöngum viðskiptum við hana og tapaðar viðskiptakröfur hafa verið óverulegar í hlutfalli af veltu. Við stýringu lánsáhættu vegna viðskiptamanna er einkum horft til aldurs krafna og fjárhagsstöðu einstakra viðskiptamanna. Viðskiptakröfur og aðrar kröfur samstæðunnar eru einkum á fyrirtæki og endurseljendur. Viðskiptamenn sem flokkaðir eru sem áhættusamir eða hafa nýtt útlánahámörk geta ekki átt frekari viðskipti við samstæðuna nema greiða niður skuldir sínar eða fjárhagssvið samstæðunnar samþykki frekari úttektir.

25. Lánsáhætta, frh.:

Vörur eru í sumum tilvikum seldar með eignarréttarfyrirvara, þannig að ef kröfur sem stofnast við sölu innheimtast ekki getur samstæðan endurheimt vöruna. Samstæðan krefst að jafnaði ekki veða vegna viðskiptakrafna og annarra krafna.

Samstæðan myndar niðurfærslu vegna áætlaðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna, annarra krafna og fjárfestinga. Niðurfærslan er í meginatriðum sérstök niðurfærsla vegna einstakra viðskiptamanna og almenn niðurfærsla með tilliti til aldurs krafna, sem ekki hefur verið tengd einstökum viðskiptamönnum. Almenn niðurfærslan er ákveðin með tilliti til innheimtusögu sambærilegra krafna og væntri þróun efnahagslífsins. Viðskiptakrafa er endanlega afskrifuð þegar ljóst er að hún muni ekki innheimtast svo sem við gjaldþrot.

Ábyrgðir

Það er stefna samstæðunnar að veita aðeins dótturfélögum ábyrgðir. Í árslok 2018 og 2019 var móðurfélagið ekki í ábyrgðum fyrir dótturfélög sín.

Mögulegt tap vegna lánsáhættu

Mesta mögulega tap samstæðunnar vegna fjáreigna er bókfært verð þeirra, sem var eftirfarandi í árslok:

Bókfært verð
Skýring 2019 2018
Verðbréfaeign og aðrar langtímakröfur 161.222 13.023
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 13 1.999.686 1.802.366
Handbært fé 14 825.847 3.175.454
2.986.755 4.990.843

Mesta mögulega tap samstæðunnar á viðskiptakröfum skiptist með eftirfarandi hætti eftir landsvæðum:

Ísland 1.686.216 1.588.025
Önnur lönd 91.929 91.929
1.778.145 1.679.954

Í árslok námu viðskiptakröfur á fimm stærstu viðskiptamenn samstæðunnar 381 millj. kr. (2018: 362 millj. kr.).

Virðisrýrnun viðskiptakrafna

Aldur viðskiptakrafna var eftirfarandi í árslok:

2019
2018
2019
2018
Ógjaldfallið
1.566.826
1.491.642
7.834
7.458
Gjaldfallið innan 30 daga
150.874
189.226
7.610
13.960
Gjaldfallið fyrir 31 - 120 dögum
79.193
22.034
6.415
6.491
Gjaldfallið fyrir meira en 120 dögum
9.652
18.452
6.541
13.491
1.806.545
1.721.354
28.400
41.400
Breytingar á niðurfærslu viðskiptakrafna á árinu greinast þannig:
2019
2018
Staða 1. janúar
41.400
21.400
Breyting á árinu
(
13.000)
20.000
Staða 31. desember
28.400
41.400

Stjórnendur meta ekki tapsáhættu í öðrum skammtímakröfum.

26. Lausafjáráhætta

Lausafjáráhætta er hættan á því að samstæðan geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Markmið samstæðunnar er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að hún hafi alltaf nægt laust fé til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla og forðast þannig að skaða orðspor samstæðunnar.

Samstæðan hefur samið um yfirdráttarheimildir og hefur aðgang að lánalínum hjá tveimur íslenskum og einum erlendum viðskiptabanka. Ónýttar lánsheimildirnar eru allt að 400 millj. kr. í árslok 2019 (2018: 400 millj. kr.).

Samningsbundnar afborganir af fjárskuldum, að meðtöldum áætluðum vaxtagreiðslum, greinast þannig:

2019
Bókfært Umsamið Innan
verð sjóðstreymi 1 árs 2-5 ár Síðar
Fjárskuldir sem ekki
eru afleiður:
Vaxtab. skuldir 640.141 843.832 46.727 389.686 407.419
Leiguskuldbindingar 1.702.550 1.180.368 52.885 312.441 236.441
Viðskiptaskuldir og aðrar
skammtíma skuldir 2.724.563 2.724.563 2.724.563
5.067.254 4.748.763 2.824.175 702.127 643.860
2018
Fjárskuldir sem ekki
eru afleiður:
Vaxtab. skuldir 881.041 1.134.468 45.030 481.703 607.735
Viðskiptaskuldir og aðrar
skammtíma skuldir 3.273.262 3.273.262 3.273.262
4.154.303 4.407.730 3.318.292 481.703 607.735

27. Markaðsáhætta

Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar í markaðsverði erlendra gjaldmiðla og vaxta hafi áhrif á afkomu samstæðunnar eða virði fjárfestinga hennar í fjármálagerningum. Markmið með stýringu markaðsáhættu er að stýra og takmarka áhættu við skilgreind mörk, jafnframt því sem ábati er hámarkaður.

Gjaldmiðlagengisáhætta vegna fjármálagerninga

Samstæðan býr við gengisáhættu vegna innkaupa og lántöku í öðrum gjaldmiðlum en starfrækslugjaldmiðli einstakra samstæðufélaga. Starfrækslugjaldmiðlar einstakra samstæðufélaga eru íslenskar (ISK) og sænskar krónur (SEK). Þeir gjaldmiðlar sem einkum skapa gengisáhættu eru evrur (EUR), dollarar, danskar og sænskar krónur.

Samstæðan býr við gengisáhættu vegna viðskipta innan hennar. Gengisáhættan myndast þegar félög innan samstæðunnar eiga í viðskiptum sín á milli þar sem starfrækslugjaldmiðill þeirra er ekki sá sami. Starfrækslugjaldmiðill móðurfélagsins er íslensk króna og er samstæðureikningurinn gerður í íslenskum krónum. Móðurfélagið á kröfu á dótturfélög sem hafa annan starfrækslugjaldmiðil en móðurfélagið og býr samstæðan við gengisáhættu vegna þess og eru kröfunar sýndar í töflunni.

27. Markaðsáhætta, frh.:

Gjaldmiðlagengisáhætta vegna fjármálagerninga, frh:

Áhætta samstæðunnar vegna erlendra gjaldmiðla var sem hér segir í nafnverðfjárhæðum:

2019 EUR DKK SEK USD
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 57.705 26.381 7 18
Handbært fé 5.137 1.180 0 2.215
Vaxtaberandi skuldir
(
139.497) ( 36.017) ( 221.974) ( 1.462)
Viðskipta- og aðrar skammtímaskuldir
(
211.412) ( 371.143) ( 16.477) ( 50.678)
Áhætta í efnahagsreikningi samstæðunnar
(
288.067) ( 379.599) ( 238.444) ( 49.907)
Viðskiptastaða innan samstæðu 0 ( 17.207) 174.302 0
Gengisáhætta samstæðunnar
(
288.067) ( 396.806) ( 64.142) ( 49.907)
2018 EUR DKK SEK USD
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 30.644 32.726 709 0
Handbært fé 4.181 163 0 179.293
Vaxtaberandi skuldir ( 149.552) ( 224.409) ( 241.917) ( 1.535)
Viðskipta- og aðrar skammtímaskuldir ( 191.585) ( 643.346) ( 11.468) ( 270.823)
Áhætta í efnahagsreikningi samstæðunnar ( 306.312) ( 834.866) ( 252.676) ( 93.065)
Viðskiptastaða innan samstæðu 0 1.932 267.055 0
Gengisáhætta samstæðunnar ( 306.312) ( 832.934) 14.379 ( 93.065)

Gengi helstu gjaldmiðla á árinu var sem hér segir:

Meðalgengi Árslokagengi
2019 2018 2019 2018
EUR 136,92 127,73 136,21 132,86
DKK 18,44 17,03 18,24 17,89
SEK 12,98 12,44 13,06 13,02
USD 122,73 106,24 121,64 123,60

Næmigreining

10% styrking íslenskrar krónu gagnvart eftirtöldum gjaldmiðlum 31. desember mundi hafa hækkað (lækkað) afkomu (hreinar fjármunatekjur) samstæðunnar fyrir tekjuskatt um eftirfarandi fjárhæðir. Greiningin byggir á að allar aðrar breytur haldist óbreyttar. Greiningin var unnin með sama hætti og árið 2018.

2019 2018
EUR 28.807 30.631
DKK 39.681 83.293
SEK 6.414
(
1.438)
USD 4.991 9.307

10% veiking íslenskrar krónu gagnvart framangreindum gjaldmiðlum hefði haft sömu áhrif en í gagnstæða átt, að því gefnu að allar aðrar breytur hefðu haldist óbreyttar.

27. Markaðsáhætta, frh.:

Gjaldmiðlagengisáhætta vegna fjárfestingar í dóttur- og hlutdeildarfélögum

Félagið býr félagið við gengisáhættu vegna fjárfestinga í dótturfélögum og hlutdeildarfélögum þar sem starfrækslugjaldmiðillinn er annar en hjá móðurfélaginu. Gengisáhættan er færð beint á eigið fé sem þýðingarmunur vegna starfsemi dótturfélaga og hlutdeildarfélaga. Einkum er um að ræða fjárfestingu í Tempo ehf. Þýðingarmunur færður beint á eigið fé var jákvæður um 118 millj. kr. en hann var neikvæður um 20 millj. kr. á árinu 2018. Fjárfesting í dóttur- og hlutdeildarfélögum greinist þannig:

2019 2018
Eignarhlutur í Tempo ehf. - fjárfesting í USD 2.684.027 2.697.564
Eignarhlutur í Applicon í Svíþjóð - fjárfesting í SEK 201.498 174.967

Næmigreining

10% veiking íslenskrar krónu gagnvart eftirtöldum gjaldmiðlum 31. desember mundi hafa hækkað (lækkað) þýðingarmun (heildarhagnað) samstæðunnar fyrir tekjuskatt um eftirfarandi fjárhæðir. Greiningin byggir á að allar aðrar breytur haldist óbreyttar. Greiningin var unnin með sama hætti og árið 2018.

USD 268.403 269.756
SEK 20.150 17.497

10% styrking íslenskrar krónu gagnvart framangreindum gjaldmiðlum hefði haft sömu áhrif en í gagnstæða átt, að því gefnu að allar aðrar breytur hefðu haldist óbreyttar.

Vaxtaáhætta

Lántökur samstæðunnar eru allar með breytilegum vöxtum og ver samstæðan sig því ekki sérstaklega fyrir vaxtaáhættu. Vaxtaáhætta samstæðunnar snýr einvörðungu að sjóðsflæðisáhættu.

Vaxtaberandi fjármálagerningar samstæðunnar í árslok greinast þannig:

Bókfært verð
2019 2018
Fjáreignir með breytilega vexti 825.847 3.175.454
Fjárskuldir með breytilega vexti (
640.141)
(
881.041)
185.706 2.294.413

Breyting á vöxtum á uppgjörsdegi um 100 punkta hefði hækkað afkomu um 2 millj. kr. (2018: hækkað um 23 millj. kr.) fyrir tekjuskatt. Þessi greining byggir á því að allar aðrar breytur, sérstaklega gengi erlendra gjaldmiðla, haldist óbreyttar. Greiningin er unnin með sama hætti og árið 2018. Samstæðan er hvorki með fjáreignir né fjárskuldir á föstum vöxtum.

Önnur markaðsverðsáhætta

Önnur markaðsverðsáhætta er takmörkuð, þar sem fjárfestingar í skuldabréfum og eignarhlutum í félögum er óverulegur hluti af starfsemi samstæðunnar.

27. Markaðsáhætta, frh.:

Gangvirði

Eftirfarandi tafla sýnir samanburð á gangvirði og bókfærðu virði fjáreigna og fjárskulda. Ekki eru birtar upplýsingar um gangvirði ef það er jafnt bókfærðu verði.

2019 2018
Bókfært verð Bókfært Gangvirði
Gangvirði verð
Vaxtaberandi skuldir ( 640.141)
(
650.319)
(
881.041)
(
892.618)

Engar fjáreignir og fjárskuldir voru bókfærðar á gangvirði í árslok 2019 og 2018. Fjallað er um forsendur við ákvörðun gangvirðis í skýringu 3.

Mat á gangvirði

Þar sem við á við núvirðingu vænts sjóðstreymis eru notaðir millibankavextir í árslok að viðbættu 1,6 - 3,6% vaxtaálagi (2018: 1,6 - 3,8%) vaxtaálagi. Gangvirði fjárskulda fellur undir stig 3 í stigveldi gangvirðis.

28. Rekstraráhætta

Rekstraráhætta er hættan á beinu eða óbeinu tapi sem getur orðið vegna fjölda þátta í starfsemi samstæðunnar, vinnu starfsmanna hennar, tækni og skipulagi, og ytri þáttum öðrum en láns-, markaðs- og lausafjáráhættu, svo sem vegna breytinga á lögum og almennra viðhorfa til stjórnunarhátta fyrirtækja. Rekstraráhætta myndast við alla starfsemi samstæðunnar.

Það er stefna samstæðunnar að stýra rekstraráhættu með hagkvæmum hætti til að forðast fjárhagslegt tap og til að vernda orðstír hennar, jafnframt því að starfsreglur takmarki ekki frumkvæði og sköpunargáfu starfsmanna.

Til að draga úr rekstraráhættu er meðal annars komið á viðeigandi aðskilnaði starfa, haft eftirlit með viðskiptum og fylgni við lög, unnið reglulegt mat á áhættu, starfsmenn þjálfaðir, verkferlar skipulagðir og skráðir og keyptar tryggingar þegar við á.

29. Tengdir aðilar

Skilgreining tengdra aðila

Hluthafar sem hafa veruleg áhrif á starfsemi samstæðunnar, stjórnarmenn og stjórnendur og nánir fjölskyldumeðlimir þeirra og félög sem þeir ráða yfir teljast til tengdra aðila.

Laun og hlunnindi til stjórnar og stjórnenda félagsins vegna starfa fyrir félög í samstæðunni og eignarhlutir í félaginu greinast þannig:

Fyrir árið 2019: Laun og
hlunnindi
Mótframlag
í lífeyrissjóð
Hlutafjár
eign
Ívar Kristjánsson, stjórnarformaður 7.880 1.064 2.935
Hildur Dungal, varaformaður 3.406 392 0
Guðmundur Jóh. Jónsson, stjórnarmaður 3.468 468 657
Svafa Grönfeldt, stjórnarmaður 2.824 325 0
Hjalti Þórarinsson, stjórnarmaður 3.220 370 0
Finnur Oddsson forstjóri 61.236 12.642 1.786
Lykilstjórnendur (7)* 182.896 23.323 1.104

* Um er að ræða sex lykilstjórnendur hjá Origo hf. auk framkvæmdastjóra hjá Applicon AB eða alls sjö lykilstjórnendur.

29. Tengdir aðilar,frh.:

Fyrir árið 2018: Laun og
hlunnindi
Mótframlag
í lífeyrissjóð
Hlutafjár
eign
Ívar Kristjánsson, stjórnarformaður 8.100 1.035 2.935
Hildur Dungal, varaformaður 3.245 348 0
Loftur Bjarni Gíslason, stjórnarmaður 3.310 357 42
Guðmundur Jóh. Jónsson, stjórnarmaður 3.430 437 657
Emilía Þórðardóttir, stjórnarmaður 3.080 332 0
Hjalti Þórarinsson, varamaður 4.690 511 0
Finnur Oddsson forstjóri 48.051 9.475 1.501
Lykilstjórnendur (8)* 193.000 22.993 1.144

* Um er að ræða sjö lykilstjórnendur hjá Origo hf. auk framkvæmdastjóra hjá Applicon AB eða alls átta lykilstjórnendur.

Með eignarhlutum að framan eru taldir eignarhlutir maka og ófjárráða barna ásamt eignarhlutum í eigu félaga sem stjórnarmenn og stjórnendurnir ráða.

Önnur viðskipti við tengda aðila eru óverulegur þáttur í starfsemi samstæðunnar. Verðlagning í slíkum viðskiptum er sambærileg og í öðrum viðskiptum hennar.

30. Dótturfélög

Dótturfélög Origo hf. voru fjögur í árslok og eru eftirtalin:

Eignarhlutur
Land 2019 2018
Application Consulting Sweden Holding AB Svíþjóð 100% 100%
Application Consulting Sweden AB Svíþjóð 100% 100%
Sendill is Unimaze ehf. Ísland 60% 60%
Sense ehf. Ísland 100% 100%

31. Þóknun til endurskoðenda

Þóknun til endurskoðenda samstæðunnar á árinu 2019 nam 25 millj. kr. (2018: 34 millj. kr.) þar af 15 millj. kr. (2018: 15 millj. kr.) vegna endurskoðunar á ársreikningi. Þóknun til KPMG á Íslandi nam 24 millj. kr. (2018: 33 millj. kr.) og 1 millj. kr. (2018: 1 millj. kr.) til KPMG í Svíþjóð.

32. Kennitölur

Helstu kennitölur samstæðunnar:

Veltuhraði vörubirgða í árslok - vörunotkun/vörubirgðir í árslok
4,1
Söludagar í viðskiptakröfum - viðskiptakröfur í lok tímabils/seldar vörur
og þjónusta
24
Laun og launatengd gjöld/seldar vörur og þjónusta
43,1%
Rekstrarkostnaður/seldar vörur og þjónusta
23,1%
Heildarhagnaður eftir tekjuskatt/seldar vörur og þjónusta
3,1%
Efnahagur:
31.12.2019
Veltufjárhlutfall - veltufjármunir/skammtímaskuldir
1,34
Rekstur: 2019 2018
4,8
22
41,1%
23,4%
34,5%
31.12.2018
1,95
Eiginfjárhlutfall - eigið fé/heildarfjármagn 57,1% 66,1%

33. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir

Reikningsskilaaðferðum sem er lýst hér á eftir hefur verið beitt með samræmdum hætti fyrir öll tímabil sem koma fram í ársreikningnum af öllum félögum í samstæðunni nema fyrir utan það sem kemur fram í skýringu 5, breytingar á reikningsskilaaðferðum.

Til að auka upplýsingargildi ársreikningsins eru skýringar við hann birtar á grundvelli þess hversu viðeigandi og mikilvægar þær eru fyrir lesandann. Það þýðir að upplýsingar sem metnar eru hvorki mikilvægar né viðeigandi fyrir notanda reikningsskilanna eru ekki birtar í skýringum.

a. Grundvöllur samstæðu

(i) Dótturfélög

Dótturfélög eru þau félög þar sem samstæðan fer með yfirráð. Yfirráð grundvallast af því hvort fjárfestir hefur ákvörðunarvald yfir fjárfestingunni, ber áhættu eða hefur réttinn til að njóta breytilegs ávinnings vegna þátttöku í fjárfestingunni og getur með ákvörðunarvaldi haft áhrif á ávinning sinn af fjárfestingunni. Reikningsskil dótturfélaga eru innifalin í samstæðuársreikningnum frá því að yfirráð nást og þar til þeim lýkur. Reikningsskilaaðferðum dótturfélaga hefur verið breytt þegar nauðsynlegt hefur verið aðlaga þær aðferðum samstæðunnar.

(ii) Viðskipti felld út við gerð samstæðuársreiknings

Viðskipti milli samstæðufélaga, stöður milli þeirra og óinnleystar tekjur og gjöld sem myndast hafa í viðskiptum milli félaganna eru felld út við gerð samstæðuársreikningsins.

(iii) Sameiningar fyrirtækja

Kaupaðferðinni er beitt við sameiningar þegar yfirráð flytjast til samstæðunnar. Það sem innt er af hendi við yfirtökuna er almennt metið á gangvirði sem og þær aðgreinanlegu eignir og skuldir sem yfirteknar eru.

Kaupaðferðinni er beitt við sameiningar þegar yfirráð flytjast til samstæðunnar. Það sem innt er af hendi við yfirtökuna er almennt metið á gangvirði sem og þær aðgreinanlegu eignir og skuldir sem yfirteknar eru.

Þegar félagið er yfirtökuaðili við sameiningar fyrirtækja myndast viðskiptavild og aðrar óefnislegar eignir. Þær fjárhæðir sem úthlutað er á yfirteknar eignir og skuldir byggjast á forsendum og mati á gangvirði þessara eigna og skulda. Við matið ráðfæra stjórnendur sig við óháða og viðurkennda matsmenn eftir því sem við á. Breytingar á forsendum og mati gætu haft í för með sér breytingar á virði sem útdeilt var á tilteknar eignir og mat á nýtingartíma þeirra sem gæti haft áhrif á fjárhæðir eða tímasetningar gjaldfærslna í rekstrarreikningi samstæðunnar, svo afskriftir óefnislegra eigna

Skilyrtar viðbótargreiðslur eru færðar á gangvirði á kaupdegi. Flokkist skilyrt viðbótargreiðsla sem eigið fé er hún ekki endurmetin og fer uppgjör hennar fram innan eigin fjár. Annars eru breytingar á gangvirði skilyrtrar viðbótargreiðslu færðar í rekstrarreikning samstæðunnar.

(iii) Hlutdeildarfélög

Hlutdeildarfélög eru þau félög þar sem félagið hefur veruleg áhrif á en ekki yfirráð yfir rekstrar- og fjárhagsstefnu félags. Veruleg áhrif eru alla jafna til staðar þegar félagið ræður yfir 20-50% atkvæðisréttar í öðru félagi.

Hlutdeildarfélög eru færð í ársreikning félagsins með hlutdeildaraðferð og er eignarhluturinn upphaflega færður á kostnaðarverði að viðbættum viðskiptakostnaði.

Ársreikningur félagsins inniheldur hlutdeild í hagnaði eða tapi og annarri heildarafkomu hlutdeildarfélaga, eftir að reikningsskilaaðferðir hlutdeildarfélagsins hafa verið samræmdar reikningsskilaaðferðum félagsins. Hlutdeildaraðferðinni er beitt frá því að veruleg áhrif nást og þar til þeim lýkur.

Verði hlutdeild félagsins í tapi meiri en bókfært verð hlutdeildarfélagsins, að meðtöldum langtímafjárfestingum, er bókfærða verðið fært í núll og færslu frekara taps er hætt nema félagið hafi gengist í ábyrgðir fyrir þessi félög eða innt af hendi greiðslur vegna þeirra.

34. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

b. Erlendir gjaldmiðlar

(i) Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum

Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð í starfrækslugjaldmiðla einstakra samstæðufélaga á gengi viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar miðað við gengi uppgjörsdags. Aðrar eignir og skuldir sem færðar eru á gangvirði í erlendri mynt eru færðar á gengi þess dags er gangvirði var ákveðið. Gengismunur vegna viðskipta í erlendum gjaldmiðlum er færður í rekstrarreikning.

(ii) Erlend dótturfélög

Eignir og skuldir erlendrar starfsemi, ásamt viðskiptavild, eru umreiknaðar í íslenskar krónur miðað við gengi uppgjörsdags. Tekjur og gjöld erlendrar starfsemi eru umreiknuð í íslenskar krónur á meðalgengi ársins. Gengismunur sem myndast við yfirfærslu í íslenskar krónur er færður á sérstakan lið í yfirliti um heildarafkomu, að frádreginni hlutdeild minnihluta í gengismuninum. Þegar erlend starfsemi er seld, að hluta til eða öllu leyti, er tengdur gengismunur fluttur í rekstrarreikning.

c. Fjármálagerningar

(i) Fjármálagerningar aðrir en afleiður

Til fjármálagerninga sem ekki eru afleiðusamningar teljast viðskiptakröfur og aðrar kröfur, handbært fé, lántökur, viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir.

Fjármálagerningar sem ekki eru afleiðusamningar eru færðir á gangvirði við upphaflega skráningu í bókhald. Þegar fjármálagerningar eru ekki metnir á gangvirði gegnum rekstrarreikning, er allur beinn viðskiptakostnaður færður til hækkunar á virði þeirra við upphaflega skráningu í bókhald. Eftir upphaflega skráningu eru fjármálagerningar sem ekki eru afleiðusamningar færðir með þeim hætti sem greinir hér á eftir.

Fjáreignir færðar á afskrifuðu kostnaðarverði

Fjáreignir á afskrifuðu kostnaðarverði eru fjáreignir með föstum eða ákvarðanlegum greiðslum sem ekki eru skráðar á virkum markaði. Slíkar eignir eru í upphafi færðar á gangvirði að viðbættum öllum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru lán og kröfur færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti, að frádreginni virðisrýrnun þegar við á. Lán og kröfur samanstanda af handbæru fé, verðbréfaeign, samningum, viðskiptakröfum og öðrum kröfum.

Handbært fé

Til handbærs fjár teljast sjóður og óbundnar bankainnstæður.

Aðrar fjárskuldir

Aðrar fjárskuldir eru færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti.

Í skýringu 34 (m) er gerð grein fyrir reikningsskilaaðferðum vegna fjármunatekna og fjármagnsgjalda.

(ii) Hlutafé

Hlutafé er flokkað sem eigið fé. Beinn kostnaður vegna útgáfu hlutafjár er færður til lækkunar á eigin fé, að frádregnum skattáhrifum.

Kaup á eigin hlutum

Þegar samstæðan kaupir eigin hluti er kaupverðið, að meðtöldum beinum kostnaði, fært til lækkunar á eigin fé. Þegar eigin hlutir eru seldir er eigið fé hækkað.

34. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

d. Rekstrarfjármunir

(i) Færsla og mat

Rekstrarfjármunir eru færðir til eignar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun. Kostnaðarverðið innifelur beinan kostnað sem fellur til við kaupin.

Þegar rekstrarfjármunir eru samsettir úr einingum með mislangan nýtingartíma eru einingarnar aðgreindar og afskrifaðar miðað við nýtingartímann.

Hagnaður af sölu rekstrarfjármuna, sem er mismunur á söluandvirði þeirra og bókfærðu verði, er færður í rekstrarreikning meðal annarra tekna, en tap af sölu meðal annars rekstrarkostnaðar.

(ii) Kostnaður sem fellur til síðar

Kostnaður við að endurnýja einstaka hluta rekstrarfjármuna er eignfærður þegar líklegt er talið að ávinningur sem felst í eigninni muni renna til samstæðunnar og hægt er að meta kostnaðinn á áreiðanlegan hátt. Bókfært verð hlutarins sem er endurnýjaður er gjaldfært. Allur annar kostnaður er gjaldfærður í rekstrarreikningi þegar til hans er stofnað.

(iii) Afskriftir

Afskriftir eru reiknaðar af afskrifanlegri fjárhæð, sem er kostnaðarverð eða endurmetið kostnaðarverð að frádregnu niðurlagsverði. Afskriftir eru reiknaðar línulega miðað við áætlaðan nýtingartíma einstakra hluta rekstrarfjármuna. Leigðar eignir eru afskrifaðar á þeim tíma sem er styttri, leigutími eða nýtingartíma, nema að ljóst sé að samstæðan muni eignast leigumun í lok leigutíma. Áætlaður nýtingartími greinist þannig:

Fasteignir 75 ár
Áhöld, tæki og innréttingar 4- 7 ár

Afskriftaaðferðir, nýtingartími og niðurlagsverð eru endurmetin á uppgjörsdegi og breytt ef við á.

e. Óefnislegar eignir

(i) Viðskiptavild

Viðskiptavild myndast til við kaup á dótturfélögum.

Viðskiptavild er mismunurinn á kostnaði við yfirtökuna og gangvirði yfirtekinna eigna, skulda og óvissra skulda. Þegar neikvæð viðskiptavild myndast er hún tekjufærð strax í rekstrarreikningi.

(ii) Síðara mat

Viðskiptavild er færð á kostnaðarverði að frádreginni uppsafnaðri virðisrýrnun.

e. Óefnislegar eignir

(iii) Hugbúnaður

Hugbúnaður er færður á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum línulegum afskriftum og virðisrýrnun. Hugbúnaður er afskrifaður á 2 til 10 árum.

Afskriftaaðferðir og nýtingartími eru endurmetin á uppgjörsdegi og breytt ef við á.

f. Leigusamningar fyrir innleiðingu á IFRS 15

Leigusamningar, sem eru efnislega þannig að nánast öll áhætta og ávinningur sem fylgja eignarhaldi á leigueignum færist til samstæðunnar, eru flokkaðir sem fjármögnunarleigusamningar. Við upphaflega skráningu eru leigueignirnar færðar á hvoru sem lægra reynist af gangvirði eða núvirði lámarksleigugreiðslna. Á síðari uppgjörsdögum eru eignirnar færðar samkvæmt þeirri reikningsskilaaðferð sem gildir um viðkomandi eignir.

Aðrir leigusamningar eru rekstrarleigusamningar og eru hinar leigðu eignir ekki færðar til eignar. Leigusamningar samstæðunnar flokkuðust allir sem rekstrarleigusamningar.

34. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

g. Birgðir

Birgðir eru metnar á kostnaðarverði eða hreinu söluvirði, hvoru sem lægra reynist. Kostnaðarverð birgða byggir á fyrst inn - fyrst út reglunni og innifelur kostnað sem fellur til við að afla birgðanna og koma þeim á þann stað og í það ástand sem þær eru í á uppgjörsdegi. Hreint söluvirði er áætlað söluverð í venjulegum viðskiptum að frádregnum áætluðum kostnaði við að selja vöru.

h. Virðisrýrnun

Fjáreignir

Á hverjum uppgjörsdegi er kannað hvort til staðar sé hlutlæg vísbending um virðisrýrnun fjáreigna, sem ekki eru færðar á gangvirði. Fjáreign hefur rýrnað í virði ef hlutlægar vísbendingar eru um að einn eða fleiri atburðir sem hafa orðið benda til þess að vænt framtíðarsjóðstreymi eignarinnar sé lægra en áður var talið.

Virðisrýrnun fjáreigna sem færðar eru á afskrifuðu kostnaðarverði er mismunurinn á bókfærðu verði þeirra annars vegar og núvirtu væntu framtíðarsjóðstreymi, miðað við upphaflega virka vexti, hins vegar. Virðisrýrnun fjáreigna til sölu er ákvarðað með hliðsjón af gangvirði þeirra á hverjum tíma. Einstakar mikilvægar fjáreignir eru prófaðar sérstaklega með tilliti til virðisrýrnunar. Aðrar fjáreignir eru flokkaðar saman eftir lánsáhættueinkennum og hver flokkur metinn sérstaklega með tilliti til virðisrýrnunar.

Virðisrýrnun er gjaldfærð í rekstrarreikningi.

Virðisrýrnun er bakfærð ef hægt er að tengja bakfærsluna á hlutlægan hátt atburði sem átti sér stað eftir að virðisrýrnunin var færð. Virðisrýrnun fjárfestinga til gjalddaga er bakfærð í rekstrarreikningi.

Aðrar eignir

Bókfært verð annarra eigna samstæðunnar, að undanskildum birgðum og tekjuskattseign, er yfirfarið á hverjum uppgjörsdegi til að meta hvort vísbendingar séu um virðisrýrnun þeirra. Sé einhver slík vísbending til staðar er endurheimtanleg fjárhæð eignarinnar metin. Virðisrýrnunarpróf eru gerð að minnsta kosti árlega á viðskiptavild.

Endurheimtanleg fjárhæð eignar eða fjárskapandi einingar er hreint gangvirði þeirra eða nýtingarvirði, hvort sem hærra reynist. Nýtingarvirði er áætlað framtíðarsjóðstreymi, sem er núvirt með vöxtum fyrir skatta, þar sem vextirnir endurspegla mat markaðarins á tímavirði peninga hverju sinni og þá áhættu sem fylgir eigninni.

Virðisrýrnun er gjaldfærð þegar bókfært verð eignar eða fjárskapandi einingar er hærra en endurheimtanleg fjárhæð hennar. Fjárskapandi eining er minnsti aðgreinanlegi hópur eigna sem myndar sjóðstreymi sem er að mestu leyti óháð öðrum eignum eða hópum eigna. Virðisrýrnun fjárskapandi eininga er fyrst færð til lækkunar á tilheyrandi viðskiptavild, en síðan til hlutfallslegrar lækkunar á bókfærðu verði annarra eigna sem tilheyra einingunni. Virðisrýrnun er gjaldfærð í rekstrarreikningi.

Virðisrýrnun viðskiptavildar er ekki bakfærð. Virðisrýrnun fyrri tímabila vegna annarra eigna er metin á hverjum uppgjörsdegi til að kanna hvort vísbendingar séu um að rýrnunin hafi minnkað eða horfið. Virðisrýrnun er bakfærð ef breyting hefur orðið á mati sem notað var við útreikning á endurheimtanlegri fjárhæð. Virðisrýrnun er einungis bakfærð að því marki að bókfært verð eignar sé ekki umfram það sem verið hefði ef engin virðisrýrnun hefði verið færð.

i. Hlunnindi starfsmanna

(i) Framlög í iðgjaldatengda lífeyrissjóði

Samstæðan greiðir föst iðgjöld vegna starfsmanna sinna til sjálfstæðra iðgjaldatengdra lífeyrissjóða. Samstæðan ber enga ábyrgð á skuldbindingum sjóðanna. Iðgjöldin eru gjaldfærð í rekstrarreikning meðal launa og launatendra gjalda eftir því sem þau falla til.

34. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

j. Skuldbindingar

Skuldbinding er færð þegar samstæðunni ber lagaleg eða ætluð skylda vegna liðinna atburða og líklegt er að kostnaður, sem hægt er að meta með áreiðanlegum hætti, lendi á henni við að gera upp skuldbindinguna. Skuldbindingar eru metnar með því að núvirða áætlað framtíðarsjóðstreymi með vöxtum fyrir skatta sem sýna núverandi markaðsmat tímavirðis peninga og áhættuna sem tengist skuldbindingunni.

(i) Ábyrgðir

Skuldbinding vegna ábyrgða er færð þegar vara eða þjónusta er seld. Mat á skuldbindingunni er byggð á fyrri reynslu vegna ábyrgða með því að vega saman mögulegar útkomur og líkur þeim tengdar.

k. Tekjur

(i) Seldar vörur og hugbúnaður

Tekjur af sölu á vörum og hugbúnaði í venjulegri starfsemi eru metnar á gangvirði greiðslunnar sem er móttekin eða er innheimtanleg, að frádregnum afsláttum og endurgreiðslum. Tekjur eru færðar í rekstrarreikning þegar félagið hefur uppfyllt samningsskyldu sína sem er yfirleitt við afhendingu, líklegt er að endurgjaldið verði innheimt og unnt er að meta kostnað vegna sölunnar og möguleg skil á vörum á áreiðanlegan hátt. Greiðslufrestur er almennt 30 dagar nema staðgreiðslusölu.

(ii) Seld þjónusta

Tekjur af veittri þjónustu eru færðar í rekstrarreikning þegar þjónusta er innt af hendi og í hlutfalli við stöðu verks á uppgjörsdegi. Staða verks er metin með hliðsjón af vinnu sem lokið er. Greiðslufrestur er almennt 30 dagar.

(iii) Rekstrarleigutekjur

Leigutekjur eru færðar línulega í rekstrarreikning á leigutímanum.

l. Leigugreiðslur

(i) Rekstrarleigugjöld

Fyrir upptöku á IFRS 15 voru greiðslur vegna rekstrarleigusamninga gjaldfærðar línulega í rekstrarreikning á leigutímabilinu.

(ii) Fjármögnunarleigugjöld

Lágmarksleigugreiðslum vegna fjármögnunarleigusamninga er skipt í fjármagnskostnað og lækkun leiguskuldar. Vaxtagjöldum er dreift á leigutímann miðað við virka vexti.

m. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur samanstanda af vaxtatekjum af fjáreignum, arðstekjum og gengishagnaði af erlendum gjaldmiðlum. Vaxtatekjur eru færðar í rekstrarreikning eftir því sem þær falla til miðað við virka vexti. Arðstekjur eru færðar í rekstrarreikning á þeim degi sem arðsúthlutun er samþykkt.

Fjármagnsgjöld samanstanda af vaxtakostnaði af lántökum, bakfærslu núvirðingar, breytingum á gangvirði fjáreigna þar sem gangvirðisbreyting er færð í rekstrarreikning og gengistapi af erlendum gjaldmiðlum. Hagnaði og tapi vegna gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla er jafnað saman.

34. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

n. Tekjuskattur

Gjaldfærður tekjuskattur samanstendur af tekjuskatti til greiðslu og frestuðum tekjuskatti. Tekjuskattur er færður í rekstrarreikning nema hann varði liði sem eru færðir beint á eigið fé eða í yfirlit um heildarafkomu, en þá er tekjuskatturinn færður á þessa liði.

Tekjuskattur til greiðslu er tekjuskattur sem áætlað er að komi til greiðslu á næsta ári vegna skattskylds hagnaðar ársins, miðað við gildandi skatthlutfall á uppgjörsdegi, auk leiðréttinga á tekjuskatti til greiðslu vegna fyrri ára.

Frestaður tekjuskattur er færður með notkun efnahagsreikningsaðferðarinnar vegna tímabundinna mismuna á bókfærðu verði eigna og skulda í ársreikninginum annars vegar og skattverði þeirra hins vegar. Frestaður tekjuskattur er ekki færður vegna fjárfestinga í dótturfélögum. Tekjuskattsskuldbinding er ekki færð vegna viðskiptavildar sem ekki er frádráttarbær skattalega. Fjárhæð frestaðs tekjuskatts er byggð á áætlaðri innlausn eða uppgjöri bókfærðs verðs eigna og skulda með því að beita gildandi skatthlutfalli á uppgjörsdegi.

Tekjuskattseignum og tekjuskattsskuldbindingum er jafnað saman þegar lagalegur réttur er til þess, þau varða tekjuskatt sem lagður er á af sömu yfirvöldum á sama fyrirtæki eða mismunandi fyrirtæki sem eru samsköttuð og gert er ráð fyrir að muni greiða skatta sameiginlega.

Tekjuskattseign er einungis færð að því marki sem líklegt er að hægt sé að nýta framtíðarhagnað á móti eigninni. Tekjuskattseign er metin á hverjum uppgjörsdegi og lækkuð að því marki sem talið er að hún nýtist ekki.

o. Hagnaður á hlut

Í ársreikningnum er sýndur grunnhagnaður á hlut og þynntur hagnaður á hlut fyrir almenna hluti í félaginu. Grunnhagnaður á hlut er reiknaður sem hlutfall hagnaðar, sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu, og vegins meðalfjölda virkra hluta á árinu. Þynntur hagnaður á hlut er reiknaður með því að leiðrétta meðalfjölda virka hluta vegna mögulegrar þynningar vegna hluta sem gæti þurft að gefa út í samræmi við kaupréttarsamninga starfsmanna.

p. Starfsþáttayfirlit

Rekstrarstarfsþáttur er hluti samstæðunnar sem fæst við viðskipti og er fær um að afla tekna og stofna til gjalda, að meðtöldum tekjum og gjöldum vegna viðskipta við aðra hluta samstæðunnar. Afkoma allra starfsþátta samstæðunnar er reglulega yfirfarin af forstjóra til að ákvarða hvernig eignum hennar er skipt á starfsþætti og til að meta frammistöðu þeirra.

Rekstrarafkoma starfsþátta, eignir og skuldir þeirra samanstanda af liðum sem tengja má beint við hvern starfsþátt og þá liði sem hægt er að skipta milli starfsþátta á rökrænan hátt.

Fjárfestingar starfsþátta er heildarkostnaður við kaup rekstrarfjármuna og óefnislegra eigna annarra en viðskiptavildar.

Verðlagning sölu á vöru og þjónustu milli starfsþátta er ákveðið eins og um óskylda aðila sé að ræða.

q. Leigusamningar

Samstæðan tók IFRS 16 upp með því að beita aðferð uppsafnaðra áhrifa og því hefur samanburðarfjárhæðum vegna ársins 2018 ekki verið breytt og þær áfram settar fram eins og þær voru birtar áður samkvæmt IAS 17 og IFRIC 4. Nánar er fjallað um reikningsskilaaðferðir samkvæmt IAS 17 og IFRIC 4 annars staðar í skýringum.

Reikningsskilaaðferðir frá 1. janúar 2019

Við upphaf samnings leggur samstæðan mat á það hvort samningur eða hluti hans feli í sér leigusamning. Samningur er leigusamningur að hluta eða heild ef hann felur í sér rétt til yfirráða tiltekinnar eignar á tilteknu tímabili í skiptum fyrir endurgjald. Við mat á því hvort leigusamningur felur í sér yfirráð tiltekinnar eignar notar samstæðan skilgreiningu leigusamnings í IFRS 16. Þessi aðferð er notuð á samninga sem gerðir voru 2019.

34. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

q Leigusamningar, frh.:

(i) Samstæðan sem leigutaki

Við upphaf eða breytingu á samningi sem felur í sér leiguhluta úthlutar samstæðan endurgjaldinu á sérhvern leiguhluta á grundvelli sjálfstæðs verðs hvers hlutar fyrir sig. Fyrir leigusamninga um fasteignir hefur samstæðan hins vegar kosið að aðgreina ekki leiguhluta frá öðrum hlutum samningsins og færir þá sem einn leigusamning.

Samstæðan færir leigueign og leiguskuld við upphaf leigusamnings. Leigueignin er upphaflega færð á kostnaðarverði, sem er upphafleg fjárhæð leiguskuldarinnar að teknu tilliti til leigugreiðslna sem hafa fallið til fyrir eða á upphafsdegi samningsins, beins kostnaðar við öflun leigueignarinnar og áætlaðs kostnaðar við að taka niður og fjarlægja eignina, eða til þess að færa eignina eða umhverfi hennar í samt horf að loknum leigusamningi, og að frádregnum leiguílvilnunum sem samstæðan hefur fengið.

Leigueignin er afskrifuð línulega frá upphafi til loka leigusamningsins, nema þegar eignarhald flyst yfir til samstæðunnar í lok leigutímabilsins eða ef kostnaðarverð leigueignarinnar endurspeglar að samstæðan muni nýta sér kauprétt í lok leigutímabilsins. Í þeim tilfellum er leigueignin afskrifuð á nýtingartíma eignarinnar, sem er ávarðaður með sömu aðferð og notuð er fyrir aðra fastafjármuni samstæðunnar. Jafnframt er virði leigueignar lækkað reglubundið um sem nemur virðisrýrnun hennar, ef einhver er, og leiðrétt vegna endurmats leiguskuldarinnar.

Leiguskuld er upphaflega færð við núvirði ógreiddra leigugreiðslna á upphafsdegi leigusamningsins. Greiðslurnar eru núvirtar með því að nota innbyggða vexti leigusamningsins, séu þeir tilækir, en annars notar samstæðan þá vexti sem hún fær af nýju lánsfé. Að jafnaði notar samstæðan vexti á nýju lánsfé til núvirðingar.

Samstæðan ákvarðar vexti af nýju lánsfé með því að sækja vaxtaupplýsingar vegna ólíkra fjármögnunarleiða og gerir tilteknar aðlaganir til að endurspegla skilmála leigusamningsins og eiginleika eignarinnar sem er leigð.

Leigugreiðslur sem eru innfaldar í ákvörðun fjárhæðar leiguskuldar fela í sér eftirfarandi:

– Fastar greiðslur, þar með taldar leigugreiðslur sem eru samkvæmt eðli sínu fastar;

– Breytilegar leigugreiðslur tengdar vöxtum eða vísitölu, upphaflega áætlaðar miðað við vexti eða vísitölu á upphafsdegi;

– Fjárhæðir sem gert er ráð fyrir að þurfi að greiða samkvæmt hrakvirðistryggingu; og

– Kaupverð samkvæmt kaupréttarákvæði í leigusamningi þegar samstæðan telur nokkuð víst að hún muni nýta kaupréttinn, leigugreiðslur á valkvæðum framlengingartímabilum ef samstæðan er nokkuð viss um að hún muni nýta framlengingarheimildir og greiðslur vegna uppsagnar leigusamnings fyrir lok leigutímans, nema samstæðan sé nokkuð viss um að nýta ekki uppsagnarheimildir.

Leiguskuldin er færð á afskrifuðu kostnaðarverði með því að nota aðferð virkra vaxta. Hún er endurmetin þegar breyting verður á framtíðarleigugreiðslum vegna breytinga á vísitölu eða vöxtum, ef breyting verður á mati samstæðunnar á fjárhæð sem hún væntir að verði greidd samkvæmt hrakvirðistryggingu, ef samstæðan breytir mati sínu á því hvort hún muni nýta kaupréttarákvæði, heimildir til framlengingar eða uppsagnar leigusamnings eða þegar breyting verður á fjárhæð leigugreiðslu sem er í eðli sínu föst.

Þegar leiguskuldin er endurmetin með þessum hætti er samsvarandi leiðrétting gerð á bókfærðu verði leigueignarinnar, eða leiðrétting færð í rekstrarreikning samstæðunnar ef bókfært virði leigueignarinnar hefur verið fært niður í núll.

Leigueignir sem ekki uppfylla skilgreiningu á fjárfestingarfasteign eru færðar meðal rekstrarfjármuna í efnahagsreikningi en leiguskuldir meðal vaxtaberandi lána.

34. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

q Leigusamningar, frh.:

Skammtímaleigusamningar og leigusamningar um óverulegar eignir

Samstæðan kýs að færa ekki leigueignir og leiguskuldir vegna leigusamninga um óverulegar eignir og skammtímaleigusamninga, þar á meðal um tölvubúnað. Samstæðan gjaldfærir leigugreiðslur vegna þessara leigusamninga línulega á leigutíma.

(ii) Samstæðan sem leigutaki

Við upphaf eða breytingu á samningi sem inniheldur leiguþátt skiptir samstæðan endurgjaldi samkvæmt samningnum niður á einstaka leiguþætti samningsins á grundvelli hlutfallslegs sjálfstæðs verðs þeirra.

Þegar samstæðan er leigusali er ákvarðað við upphaf leigusamnings hvort um er að ræða fjármögnunarleigusamning eða rekstrarleigusamning.

Við flokkun leigusamnings leggur samstæðan heildstætt mat á það hvort leigusamningurinn flytji meginhluta áhættu og ávinnings sem tilheyrir eignarhaldi undirliggjandi eignar. Ef það er niðurstaðan þá er leigusamningurinn fjármögnunarleigusamningur, en ef ekki þá er hann rekstrarleigusamningur. Ákveðnir þættir eru hluti af þessu mati eins og til dæmis hvort leigusamningurinn nær yfir meginhluta hagræns endingartíma eignarinnar.

Þegar samstæðan tekur eign á leigu og leigir hana áfram færir hún hagsmuni sína samkvæmt upphaflegum leigusamningi annars vegar og framleigusamningi hins vegar. Samstæðan flokkar framleigusamning með vísan til leigueignarinnar sem leiðir af upphaflegum leigusamningi, en ekki með vísan til undirliggjandi eignar. Ef upphaflegur leigusamningur er skammtímaleigusamningur sem samstæðan fer með eftir undanþágunni sem gerð er grein fyrir hér að framan er framleigusamningurinn rekstrarleigusamningur.

Ef samningur felur í sér leiguþátt og aðra óskylda þætti, þá beitir samstæðan IFRS 15 til þess að úthluta endurgjaldi á einstaka þætti samningsins.

Samstæðan beitir kröfum IFRS 9 um afskráningu og virðisrýrnun á hreinni eign leigusamninga (sjá skýringu 45(R)(i)). Þá fer samstæðan reglulega yfir áætlað ótryggt hrakvirði sem er notað til þess að reikna út heildarfjárfestingu samstæðunnar í leigusamningnum.

Samstæðan færir leigugreiðslur vegna rekstrarleigusamninga línulega yfir leigutímabilið meðal annarra tekna í rekstrarreikningi.

Að jafnaði áttu sambærilegar reikningsskilaaðferðir við um samstæðuna sem leigusala á samanburðartímabilinu og eiga nú við samkvæmt IFRS 16, þó að því undanskildu að framleigusamningur sem samstæðan gerði á núverandi

35. Nýr reikningsskilastaðlar og túlkanir á þeim sem hafa ekki verið innleiddir

Nokkrir nýir alþjóðlegir reikningsskilastaðlar gilda um fjárhagsár sem hefjast 1. janúar 2019 eða síðar og er heimilt er að beita fyrir gildistöku þeirra. Samstæðan hefur hins vegar ekki innleitt nýja eða breytta reikningsskilastaðla fyrir gildistíma við gerð þessara reikningsskila.

Ekki er búist við að eftirfarandi breytingar á stöðlum og túlkunum muni hafa veruleg áhrif á reikningsskil samstæðunnar.

  • Breytingar á tilvísunum til hugtakaramma alþjóðlegra reikningsskilastaðla.
  • Skilgreiningu á fyrirtæki (breyting á IFRS 3).
  • Skilgreining á mikilvægi (breytingar á IAS 1 og IAS 8).
  • IFRS 17 Vátryggingasamningar.

Ársfjórðungayfirlit

Ársfjórðungayfirlit samstæðunnar er óendurskoðað. Rekstur samstæðunnar greinist þannig á ársfjórðunga:

1. árs-
fjórðungur
2. árs-
fjórðungur
3. árs-
fjórðungur
4. árs
fjórðungur
Samtals
Árið 2019
Seldar vörur og þjónusta
Vörunotkun og kostnaðarverð
3.552.869 3.493.083 3.462.783 4.336.340 14.845.075
seldrar þjónustu ( 2.631.272) ( 2.641.647) (
2.715.660)
( 3.011.295) ( 10.999.874)
Framlegð 921.597 851.436 747.123 1.325.045 3.845.201
Rekstrarkostnaður
(
825.291) ( 778.728) (
647.728)
( 1.174.021) ( 3.425.768)
Rekstrarhagnaður 96.306 72.708 99.395 151.024 419.433
Fjármunatekjur 14.629 33.180 13.744 414.471 476.024
Fjármagnsgjöld (
Hrein (fjármagnsgjöld)
57.551) ( 47.919) (
10.450)
( 35.558) ( 151.478)
fjármunatekjur ( 42.922) ( 14.739) 3.294 378.913 324.546
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags 21.297 46.349 (
1.959)
( 56.908) 8.779
Hagnaður fyrir tekjuskatt 74.681 104.318 100.730 473.029 752.758
Tekjuskattur ( 10.855) ( 5.074) (
26.891)
( 31.673) ( 74.493)
Hagnaður tímabilsins 63.826 99.244 73.839 441.356 678.265
Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé:
Þýðingarmunur dótturfélaga 149.422 38.823 (
59.157)
( 11.204) 117.884
Innleystur þýðingarmunur 0 0 0 ( 339.969) ( 339.969)
Rekstrarliðir færðir beint á
eigið fé samtals 149.422 38.823 (
59.157)
( 351.173) ( 222.085)
Heildarhagnaður tímabilsins 213.248 138.067 14.682 90.183 456.180
EBITDA 237.250 213.336 253.625 302.050 1.006.261

Ársfjórðungayfirlit, frh.:

Ársfjórðungayfirlit, frh.:

1. árs-
fjórðungur
2. árs-
fjórðungur
3. árs-
fjórðungur
4. árs
fjórðungur
Samtals
Árið 2018
Seldar vörur og þjónusta
Vörunotkun og kostnaðarverð
3.781.316 3.731.061 3.743.512 4.460.797 15.716.686
seldrar þjónustu ( 2.873.546) ( 2.721.500) (
2.672.474)
(
3.275.801)
( 11.543.321)
Framlegð 907.770 1.009.561 1.071.038 1.184.996 4.173.365
Rekstrarkostnaður
(
970.959) ( 947.797) (
868.264)
(
895.196)
(
3.682.216)
(Rekstrartap) hagnaður ( 63.189) 61.764 202.774 289.800 491.149
Áhrif sölu á Tempo ehf. 0 0 0 5.097.947 5.097.947
Aðrar fjármunatekjur 56.459 ( 7.924) 4.250 26.760 79.545
Fjármagnsgjöld ( 28.207) ( 26.578) (
27.719)
(
30.535)
(
113.039)
Hreinar fjármunatekjur
(fjármagnsgjöld) 28.252 ( 34.502) (
23.469)
5.094.172 5.064.453
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags 0 0 0 (
21.522)
(
21.522)
(Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt ( 34.937) 27.262 179.305 5.362.450 5.534.080
Tekjuskattur 6.518 ( 5.976) (
36.280)
(
57.872)
(
93.610)
(Tap) hagnaður tímabilsins ( 28.419) 21.286 143.025 5.304.578 5.440.470
Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé
Þýðingarmunur dótturfélaga
Innleystur þýðingarmunur vegna
2.198 ( 5.889) 3.000 6.947 6.256
Rekstrarliðir færðir beint á
eigið fé samtals 2.198 ( 5.889) 3.000 (
19.732)
(
20.423)
(Heildartap) -hagnaður tímabilsins ( 26.221) 15.397 146.025 5.284.846 5.420.047
EBITDA 101.681 234.772 368.657 423.302 1.128.412

Stjórn og stjórnarhættir

Stjórn

Stjórn Origo hf. samanstendur af fimm stjórnarmönnum og tveimur varamönnum sem kjörnir eru árlega á hluthafafundi. Á hluthafafundi þann 2.maí 2019 voru þau Guðmundur Jóhann Jónsson, Hildur Dungal, Hjalti Þórarinsson, Ívar Kristjánsson og Svava Grönfeldt sjálfkjörin í aðalstjórn félagsins. Elísabet Grétarsdóttir og Gunnar Zoega voru sjálfkjörin sem varamenn í stjórn. Ívar Kristjánsson er formaður stjórnar og Hildur Dungal er varaformaður. Gunnar Zoega fór úr varastjórn í október 2019.

Í stjórn og varastjórn eru þrír karlar og þrjár konur og uppfyllir félagið því ákvæði laga um hlutafélög um kynjahlutföll stjórnar sem tóku gildi 1. september 2013. Allir fimm stjórnarmenn í aðalstjórn félagsins eru óháðir félaginu. Bakgrunnur stjórnarmanna er margvíslegur og eru stjórnarmenn með fjölbreytta menntun, m.a. úr viðskiptafræði, verkfræði og lögfræði, en einn stjórnarmanna er með embættispróf í lögfræði. Að auki hafa stjórnarmenn víðtæka reynslu úr atvinnulífinu.

Stjórnarhættir

Stjórn Origo hf. leitast við að viðhalda stjórnarháttum og fylgja "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja", sem Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út í endurskoðaðri útgáfu í júní 2015. Stjórnin hefur sett sér ítarlegar starfsreglur þar sem valdsvið hennar er skilgreint og verksvið gagnvart forstjóra. Í þeim er meðal annars að finna reglur um fundarsköp, fundargerðir stjórnar, ítarlegar reglur um hæfi stjórnarmanna til þátttöku við afgreiðslu mála og reglur um þagnarskyldu. Þar eru einnig reglur um upplýsingagjöf forstjóra gagnvart stjórn og ákvörðunarvald stjórnar, en undirritun meiri hluta stjórnarmanna skuldbindur félagið.

Núgildandi starfsreglur stjórnar voru samþykktar á stjórnarfundi 22. mars 2018 og eru þær aðgengilegar á vef félagsins, www.origo.is.

Stjórn hefur skipað endurskoðunarnefnd og eru reglur nefndarinnar aðgengilegar á heimasíðu félagsins. Í endurskoðunarnefnd eiga nú sæti stjórnarformaður, meðstjórnandi og utanaðkomandi löggiltur endurskoðandi. Meginhlutverk og ábyrgð nefndarinnar er að hafa eftirlit með vinnuferlum við gerð reikningsskila, fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits félagsins, innri endurskoðun og ef við á áhættustýringu og öðrum eftirlitsaðgerðum. Auk þess leggur nefndin fram tillögur til stjórnar um val á endurskoðanda félagsins auk þess að meta óhæði endurskoðanda og hafa eftirlit með störfum hans. Stjórn hefur jafnframt skipað starfskjaranefnd og tækninefnd sem eru stjórn og stjórnendum til ráðgjafar um starfskjarastefnu og mál er tengjast launastefnu og tæknilegu umhverfi Origo. Regluvörður, skipaður af stjórn, hefur umsjón með að reglum um innherjaupplýsingar og viðskipti innherja sé fylgt. Stjórn hefur ekki skipað tilnefningarnefnd, en við endurskoðun á starfsháttum stjórnar og umgjörð um starfið er það nú mat stjórnar að skipa beri slíka nefnd og liggur fyrir tillaga um slíkt á aðalfundi

Á árinu 2019 voru haldnir 13 stjórnarfundir og 5 fundir í endurskoðunarnefnd, auk funda í starfskjaranefnd. Meiri hluti stjórnar og nefnda hefur mætt á alla fundi. Endurskoðunarnefnd boðar endurskoðendur félagsins á fundi þegar tilefni er til, auk þess sem þeir mæta á stjórnarfundi vegna ársreiknings.

Til að tryggja að reikningsskil samstæðunnar séu í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla hefur félagið lagt áherslu á vel skilgreind ábyrgðarsvið, eðlilega aðgreiningu starfa, ásamt reglulegri skýrslugjöf og gegnsæi í starfseminni. Ferli mánaðarlegrar skýrslugjafar ásamt rýni fyrir einstakar deildir er mikilvægur þáttur í eftirliti með afkomu og öðrum lykilþáttum starfseminnar. Mánaðarleg uppgjör eru unnin og lögð fyrir stjórn félagsins. Til staðar eru verklagsreglur til að tryggja eftirlit með tekjuskráningu, rekstrarkostnaði ásamt fleiri liðum sem hafa áhrif á rekstur félagsins. Áhættustýring er yfirfarin reglulega til að endurspegla breytingar á markaðsaðstæðum og starfsemi félagsins. Með þjálfun starfsmanna og starfsreglum stefnir samstæðan að öguðu eftirliti þar sem allir starfsmenn eru meðvitaðir um hlutverk sitt og skyldur. Rekstraráhættu er mætt með því að hafa eftirlit með viðskiptum og fylgni við lög. Stjórn hefur sett stefnu um að eiginfjárstaða samstæðunnar sé nægilega sterk til að styðja við stöðuga framþróun starfsemi félagsins.

Stjórn Origo hf.

Samkvæmt samþykktum félagsins fer stjórn Origo hf. með æðsta vald í málefnum félagsins á milli hluthafafunda. Stjórnin ákveður stefnu Origosamstæðunnar og fylgir eftir meginverkefnum í starfsemi samstæðunnar. Fyrir stjórn er lögð rekstrar- og fjárfestingaáætlun til staðfestingar og fylgist stjórnin reglubundið með framvindu þeirra áætlana innan ársins. Stjórn ákveður skipulag og fylgir því eftir að starfsemi félagsins fari fram í samræmi við samþykktir hennar. Stjórnin skal tryggja að nægilegt eftirlit sé með meðferð fjármuna félagsins og að góð regla sé á bókhaldi og uppgjöri.

Í stjórn Origo sitja fimm menn og tveir til vara og er stjórnin kjörin á aðalfundi til eins árs í senn. Samkvæmt samþykktum skulu þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins tilkynna það skriflega til stjórnar að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar og eru þeir einir kjörgengir, sem þannig hafa gefið kost á sér. Formaður kveður stjórn til fundar og stýrir stjórnarfundum. Fundi skal halda hvenær sem formaður telur þess þörf, en að auki er honum skylt að boða stjórnarfund að kröfu eins stjórnarmanns eða forstjóra. Stjórnarfundir eru því aðeins lögmætir að mættir séu þrír stjórnarmenn eða fleiri.

Hlutverk forstjóra

Stjórn Origo hf. ræður forstjóra félagsins og ákveður starfskjör hans. Forstjóri er ábyrgur fyrir daglegri starfsemi félagsins í samræmi við samþykktir þess, stefnu og ákvörðun stjórnar. Forstjóri skal vinna að stefnumótun og framþróun félagsins ásamt því að skipuleggja og fylgja eftir daglegum rekstri þess. Þá er hlutverk forstjóra að tryggja að starfsemi félagsins sé í samræmi við gildandi löggjöf og reglur hverju sinni og fylgja því eftir að starfsemi dótturfélaga sé með sama hætti.

Hluthafafundir

Æðsta vald í málefnum félagsins er í höndum lögmætra hluthafafunda. Aðalfundur skal haldinn fyrir lok júnímánaðar ár hvert og hluthafafundi skal halda eftir ákvörðun stjórnar eða að kröfu kjörins endurskoðanda eða hluthafa, sem ráða að minnsta kosti 1/20 hlutafjár í félaginu. Krafa um hluthafafund skal gerð skriflega, fundarefni tilgreint og fundur þá boðaður innan lögmæts frests. Til hluthafafundar skal boða með birtingu auglýsingar í dagblaði eða með öðrum sambærilegum hætti. Aðalfund skal boða með minnst þriggja vikna og mest fjögurra vikna fyrirvara samkvæmt breytingum á hlutafélagalögum frá 19. desember 2009. Í fundarboði skal gerð grein fyrir fundarefni og þeim skjölum og tillögum sem lögð verða fyrir fundinn. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverjum hlut í félaginu.

Breytingar á samþykktum félagsins

Samþykktum félagsins má einungis breyta á löglegum hluthafafundi þess og skal þess rækilega getið í fundarboði að fyrir liggi tillaga um breytingar á samþykktum og í hverju hún felist í meginatriðum. Ákvörðun verður því aðeins gild að hún njóti minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða svo og samþykkis hluthafa sem ráða 2/3 hlutum þess hlutafjár sem farið er með atkvæði fyrir á hluthafafundum. Síðast voru gerðar breytingar á samþykktum Origo hf. þann 2. maí 2019.

Endurskoðendur

Endurskoðendur félagsins eru kjörnir á aðalfundi til eins árs í senn. Á aðalfundi 2019 var KPMG ehf. kjörinn endurskoðandi félagsins og er KPMG ehf. einnig endurskoðandi allra dótturfélaga félagsins á Íslandi. KPMG í Svíþjóð annast endurskoðun á sænska dótturfélaginu Applicon.

Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum

Í byrjun árs 2015 hlaut Nýherji viðurkenninguna "Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum" samkvæmt mati Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands, að undangenginni ítarlegri úttekt Capacent.

Um Origo

Origo hf. er samstæða fyrirtækja í upplýsingatækni. Origo er þjónustufyrirtæki og hlutverk fyrirtækisins felst í að aðstoða viðskiptavini við að ná enn betri árangri í sínum rekstri með aðstoð upplýsingatækni, sérfræðiþekkingu starfsfólks og lipurri þjónustu. Hlutabréf Origo hf. eru skráð í NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöll Íslands) undir auðkenninu ORIGO. Hjá Origosamstæðunni hérlendis og erlendis starfa um 550 manns. Lausnaframboð Origo nær til flestra sviða upplýsingatækni, svo sem hýsingar- og rekstrarþjónustu, eigin hugbúnaðarþróunar og -lausna frá samstarfsaðilum, viðskiptalausna og innviða upplýsingakerfa. Auk þess selur Origo búnað og lausnir til fyrirtækja og einstaklinga frá mörgum af fremstu framleiðendum heims, á borð við Lenovo, IBM, Canon, Bose, Sony, NEC og fleiri.

Nánari upplýsingar um Origo og dótturfélög má finna á heimasíðu félagsins, www.origo.is.

Umhverfismál

Origo hefur sett sér umhverfisstefnu sem tekur til allrar starfsemi Origo og dótturfélaga auk allra starfsmanna samstæðunnar. Starfsmenn og stjórnendur samstæðunnar skulu kynna sér efni stefnunnar og framfylgja henni, auk þess að leita leiða til umbóta í umhverfissmálum. Framfylgja skal öllum lagakröfum á sviði umhverfismála í starfssemi samstæðunnar. Með umhverfisstefnunni skuldbindur samstæðan sig til að vinna markvisst að því að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar.

Origo er eitt af þeim fyrirtækjum á Íslandi sem hefur undirritað yfirlýsingu um loftslagsmál og þannig skuldbundið sig til að vinna að aðgerðum sem draga úr losun gróðurhúslofttegunda og minnka myndun úrgangs. Notast er við hugbúnað til að mæla vistspor fyrirtækisins og setja markmið í umhverfismálum fyrir fyrirtækið. Origo hvetur starfsmenn til vistvænna ferðmáta, m.a. með því að veita þeim samgöngustyrki sem ferðast ekki á einkabílum og hefur félagið einnig sett sér sérstaka samgöngustefnu í þessum efnum. Allt sorp sem fellur til, bæði á skrifstofu félagsins og lager, er flokkað í viðeigandi flokkunartunnur. Félagið hefur tekið stór skref í útrýmingu einnota umbúða sem voru áður í tíðri notkun. Félagið notar eigin lausn, RentaPrent, þar sem lögð er áhersla á að draga úr sóun á pappír.

Origo hf. framkvæmir nú í fyrsta skipti heildstætt umhverfisuppgjör í samstarfi við Klappir Grænar Lausnir fyrir árið 2019. Umhverfisuppgjörið er unnið í samræmi við Greenhouse Gas Protocol (GHG Protocol) og ESG leiðbeiningar NASDAQ og hefur Origo kolefnisjafnað rekstur sinn fyrir árið 2019 með samstarfi við Kolviður (Iceland Carbon Fund).

Samfélagsleg mál

Samfélagsleg ábyrgð skiptir Origo miklu máli og hefur félagið unnið að því að auka samfélagslega ábyrgð sína með margvíslegum hætti. Samfélagsstefna félagsins hefur verið römmuð inn í tengslum við ungt fólk, menntun og nýsköpun, sem hafa verið grunnþættir í þeim verkefnum sem félagið hefur styrkt um nokkurt skeið. Samfélagsstefna félagsins byggir á þessum áherslum en er nánar útfærð til að taka til fjögurra meginstoða, sem eru: Góðir stjórnarhættir, mannauður, umhverfi og styrkir við góð málefni.

Meðal verkefna sem styrkt hafa verið eru: Háskóli unga fólksins, Forritunarkeppni framhaldsskólanna á vegum HR, Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema í Háskóla Íslands, Forritarar framtíðarinnar, First Lego hönnunarkeppnin, Verkefni Samtaka iðnaðarins um kynningu náms í tæknigreinum háskóla fyrir framhaldsskólanemum.

Mannauður

Origo hefur sett sér margvíslegar stefnur til að stuðla að sem bestu umhverfi fyrir starfsmenn sína. Í mannauðsstefnu fyrirtækisins kemur fram að markmið Origo er að verða eftirsóknarverðasti vinnustaðurinn og laða þannig að fyrirtækinu hæfasta starfsfólkið til frambúðar. Stefna fyrirtækisins í mannauðsmálum styður við þetta markmið með því að tryggja að við bjóðum upp á frábært vinnuumhverfi sem virkjar skapandi kraft og ýtir undir nýsköpun, leggjum áherslu á þekkingaröflun og þekkingarmiðlun starfsfólks og ýtum þannig undir þróun í starfi og stuðlum að samvinnu og nýtum sérþekkingu hvers annars til að þróa snjallar lausnir með viðskiptavinum. Ýmsar mælingar eru gerðar til að fá upplýsingar um stöðu þeirra atriða sem mannauðsstefnan tekur til. Þar má nefna reglulegar vinnustaðagreiningar, frammistöðusamtöl og aðrar úttektir.

Mannauður, frh.:

Jafnréttis-og jafnlaunastefna Origo er sett til að tryggja að Origo nái markmiðum sínum í jafnréttismálum. Henni er ætlað að tryggja stöðugar umbætur, eftirlit og viðbrögð við jafnréttismálum hjá félaginu.Origo hlaut vottun undir lok árs 2018 á jafnlaunakerfi sínu af BSI á Íslandi sem staðfesti að kerfið uppfylli kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Á árinu 2019 var áfram unnið að umbótum á jafnlaunakerfi Origo, en kerfinu er ætlað að tryggja að allar launaákvarðanir séu teknar með kerfisbundnum hætti og að þær feli ekki í sér kynjamun.

Starfskjarastefna félagsins um starfskjör stjórnenda og starfsmanna hefur það að markmiði að laða að og halda í mjög hæft starfsfólk. Í stefnunni segir að kyn og aðrir persónueiginleikar sem ekki tengjast inntaki starfs eða frammistöðu í starfi skulu ekki hafa áhrif á laun eða launaþróun. Til að tryggja sanngirni og samræmi í launamálum hafa stjórnendur aðgang að miðlægum viðmiðum um launabyggingu félagsins á hverjum tíma og launaþróun á ytri markaði.

Starfskjarastefna var lögð fram á aðalfundi Origo hf. 7. mars 2019 og samþykkt.

Spilling, mútur og mannréttindi

Starfsfólk Origo hefur sett sér siðareglur sem varða almenna viðskiptahætti og viðskiptasiðferði. Reglurnar vísa til væntinga um vinnulag gagnvart viðskiptavinum, samstarfsfólki, eigendum, samkeppnisaðilum og samfélagi. Í reglunum kemur fram að heiðarleiki og ótvíræð samskipti séu lykilatriði góðs viðskiptasiðferðis. Allir viðskiptaaðilar Origo eiga rétt á réttlátri og sanngjarnri meðferð í anda jafnræðisreglu. Starfsmönnum ber að gera viðvart um atvik, þar sem ætla má, að lög séu brotin. Slíkt ber að gera við yfirmann eða til yfirstjórnar fyrirtækisins beint. Starfsmenn munu á engan hátt gjalda þess í starfi séu þeir að uppfylla skyldu sína í þessu efni og er trúnaðar gætt, sé þess óskað. Starfsmaður skal ekki þiggja gjöf, þjónustu, skemmtun eða persónulegan greiða sem með réttu mætti álykta að gæti haft áhrif á viðskipti. Boð um skemmtun ætti ekki að þiggja nema boðið sé innan marka viðurkenndrar viðskiptagestrisnis. Fái starfsmenn tilboð eða jafnvel hótanir í tengslum við störf sín ber viðkomandi að tilkynna það yfirmanni sínum strax.

Stjórn Origo hf. leitast við að viðhalda stjórnarháttum og fylgja "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út. Stjórnin hefur sett sér ítarlegar starfsreglur þar sem valdsvið hennar er skilgreint og verksvið gagnvart forstjóra. Origo er fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum samkvæmt mati Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands, að undangenginni ítarlegri úttekt Capacent á haustmánuðum 2014.

Félagið virðir almenn mannréttindi, rétt allra til félagafrelsis og kjarasamninga. Því til stuðnings hefur félagið sett sér jafnréttisstefnu og siðareglur eins og fjallað var um hér fyrir framan. Áhersla er lögð á að verktakar og undirverktakar fari eftir gildandi lögum í landinu er varðar alla sína starfsmenn, sama hvort það eru þeirra launþegar eða eigin undirverktakar.

Nánari umfjöllun um þessi málefni ásamt tölulegum upplýsingum mun verða aðgengileg í ársskýrslu félagsins sem verður birt fyrir aðalfund félagsins.

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.