Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Origo AGM Information 2019

Mar 4, 2019

2208_agm-r_2019-03-04_486449ff-0a38-4701-ac0d-6adbea3e1044.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Disclosure 369167

Origo - Boðun hluthafafundar

Origo hf. - Krafa um margfeldiskosningu

REYKJAVÍK - 4. mars 2019

Stjórn Origo hf. hefur borist krafa um að beitt verði margfeldiskosningu til kosningar stjórnar Origo hf. sem fram fer á aðalfundi félagsins 7. mars nk. Krafan var send til stjórnar innan tilskilins frests og barst frá hluthöfum sem hafa yfir að ráða meira en 10% hlutafjár, sbr. 7 mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Margfeldiskosningu verður því beitt við stjórnarkjörið.

Margfeldiskosning fer fram með eftirfarandi hætti: Kosið skal á milli einstaklinga. Gildi hvers atkvæðis skal margfaldað með fjölda þeirra stjórnarmanna sem kjósa skal og má hluthafi skipta atkvæðamagni sínu, þannig reiknuðu, í hverjum þeim hlutföllum, sem hann sjálfur kýs, á jafnmarga menn og kjósa skal eða færri. Ef ekki er á atkvæðaseðli getið skiptingar atkvæða á milli þeirra sem þau eru greidd skal þeim skipt að jöfnu.