Pre-Annual General Meeting Information • Apr 16, 2025
Pre-Annual General Meeting Information
Open in ViewerOpens in native device viewer
Aðalfundur Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson hf., kt. 420369-7789, verður haldinn fimmtudaginn 8. maí 2025, kl. 16:00, í höfuðstöðvum félagsins að Grjóthálsi 7-11 í Reykjavík.
Athygli er vakin á því að einungis er gert ráð fyrir að fundarmenn skrái sig inn á fundinn á fundarstað, en ekki með rafrænum hætti fyrir fram. Er mikilvægt að þeir sem mæta á fundinn geti við innskráningu framvísað viðeigandi persónuskilríkjum.
Atkvæðagreiðsla á fundinum fer fram með rafrænum hætti í gegnum Lumi AGM veflausnina. Aðgangsupplýsingar verða afhentar á fundarstað, frá kl. 15:00. Nánari leiðbeiningar koma fram að neðan.
Aðalfundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Grjóthálsi 7-11 í Reykjavík. Öllum hluthöfum er heimilt að sækja fundinn, taka þar til máls og neyta atkvæðisréttar síns. Rétt til setu á aðalfundi eiga, auk hluthafa og umboðsmanna þeirra, endurskoðandi, stjórnarmenn og forstjóri félagsins. Skal nefndarmönnum undirnefnda stjórnar jafnframt heimilt að sitja fundinn. Stjórnin getur einnig boðið sérfræðingum setu á fundinum.
Hluthafa er heimilt að sækja fund ásamt ráðgjafa, en slíkur ráðgjafi hefur hvorki tillögurétt né atkvæðisrétt á fundinum. Hluthafa er þó heimilt að gefa ráðgjafa sínum orðið fyrir sína hönd.
Hluthöfum er heimilt að láta umboðsmann sækja aðalfundinn og fara þar með atkvæðisrétt fyrir sína hönd. Hluthafar einir bera ábyrgð á því hvaða einstaklingum/aðilum þeir veita umboð eða afhenda aðgangsupplýsingar. Á vefsíðu félagsins, https://www.olgerdin.is/fjarfestar/hluthafafundir, má finna form af umboði sem hluthöfum er bent á að nýta sér. Umboð skal vera dagsett og gildir einungis til fundarsetu á aðalfundinum nema annað sé skýrt tekið fram í efni umboðsins, en getur þó aldrei gilt lengur en í eitt ár frá dagsetningu þess.
Hluthöfum, sem jafnframt eru lögaðilar eða hyggjast láta umboðsmann sækja aðalfundinn, er bent á að tryggja að sá aðili sem sækir fundinn fyrir hönd viðkomandi hafi til þess fullnægjandi heimild.
Þeim sem mæta fyrir hönd hluthafa er bent á að koma með viðeigandi persónuskilríki á fundinn, til að flýta fyrir innskráningu.
Nánari leiðbeiningar um framkvæmd rafrænnar atkvæðagreiðslu með Lumi AGM er að finna á vefsíðu félagsins, https://www.olgerdin.is/fjarfestar/hluthafafundir.
Endanleg dagskrá, tillögur, ársreikningur og samstæðureikningur fyrir starfsárið sem lauk 28. febrúar sl. og önnur skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn eru aðgengileg á vefsíðu félagsins, https://www.olgerdin.is/fjarfestar/hluthafafundir, sem og í höfuðstöðvum félagsins.
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á fundinum ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. fyrir kl. 16.00, þann 28. apríl 2025. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á netfangið [email protected]. Kröfunni skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til félagsstjórnar.
Félagsstjórn mun a.m.k. þremur dögum fyrir fundinn upplýsa hluthafa um kröfuna og eftir atvikum tillöguna, svo og eftir atvikum endurskoðaða dagskrá fundarins, á vef félagsins.
Á fundarboðsdegi eru 2.843.402.913 hlutir í félaginu og atkvæði jafnmörg. Þar af eru virk atkvæði 2.843.085.798.
Á aðalfundinum fylgir eitt atkvæði hverri krónu í hlutafé. Eigin hlutir félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.
Á vef félagsins er birtur listi yfir 20 stærstu hluthafa félagsins.
Fundurinn fer fram á íslensku.
Reykjavík, 16. apríl 2025 stjórn Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson hf.
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.