AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Nova Klúbburinn

Transaction in Own Shares Aug 25, 2025

2207_rns_2025-08-25_b0b332f7-7e12-47dd-83f2-b2d4c9a3c592.html

Transaction in Own Shares

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 34

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 34

Í 34. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.829.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
18.8.2025 11:24 600.000 4,93 2.958.000
19.8.2025 11:24 600.000 4,93 2.958.000
20.8.2025 09:32 600.000 4,93 2.958.000
21.8.2025 09:31 600.000 4,90 2.940.000
22.8.2025 11:23 600.000 5,03 3.015.000
Samtals 3.000.000 14.829.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.

Nova Klúbburinn átti 36.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 39.000.000 hluti, eða um 1,1% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 189.123.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á [email protected]

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.