Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Nova Klúbburinn Share Issue/Capital Change 2025

May 5, 2025

2207_rns_2025-05-05_cb2be733-e7bf-4b08-9743-3d3ac9b854e0.html

Share Issue/Capital Change

Open in viewer

Opens in your device viewer

Disclosure 458637

Nova Klúbburinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Nova Klúbburinn hf.: Lækkun hlutafjár

Skráð hefur verið hjá Fyrirtækjaskrá lækkun hlutafjár Nova Klúbbsins hf. að nafnverði kr. 130.091.708 í kjölfar þess að samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 27. mars 2025 tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár félagsins úr kr. 3.683.966.464 í kr. 3.553.874.756 að nafnverði, með ógildingu eigin hluta félagsins. Lagaskilyrðum fyrir lækkun hlutafjárins hefur nú verið fullnægt og lækkunin framkvæmd.

Einnig hefur verið óskað eftir því við Nasdaq að lækka skráð hlutafé til samræmis og mun lækkunin verða framkvæmd 6. maí 2025.

Skráð hlutafé félagsins eftir lækkun nemur því kr. 3.553.874.756 að nafnverði, sem skiptist í jafnmarga hluti, og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut. Eftir hlutafjárlækkunina á Nova Klúbburinn enga eigin hluti.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri, í síma 770-1090, eða með tölvupósti á [email protected]