Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Nova Klúbburinn Share Issue/Capital Change 2024

Apr 23, 2024

2207_rns_2024-04-23_6ea1e308-91db-4f31-9a70-9fae4a3dfac4.html

Share Issue/Capital Change

Open in viewer

Opens in your device viewer

Nova Klúbburinn hf.: Lækkun hlutafjár

Nova Klúbburinn hf.: Lækkun hlutafjár

Skráð hefur verið hjá Fyrirtækjaskrá lækkun hlutafjár Nova Klúbbsins hf. að nafnverði kr. 133.310.000, í kjölfar þess að samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 21. mars 2024 tillaga stjórnar um lækkun hlutfjár félagsins úr kr. 3.817.276.464 í kr. 3.683.966.464 að nafnverði, með ógildingu eigin hluta félagsins. Lagaskilyrðum fyrir lækkun hlutafjárins hefur nú verið fullnægt og lækkunin framkvæmd.

Einnig hefur verið óskað eftir því við Nasdaq að lækka skráð hlutafé til samræmis og mun lækkunin verða framkvæmd 24. apríl 2024.

Skráð hlutafé félagsins eftir lækkunina nemur því kr. 3.683.966.464 að nafnverði, sem skiptist í jafnmarga hluti, og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut. Eftir hlutafjárlækkunina á Nova Klúbburinn enga eigin hluti.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri, í síma 770 1090, eða með tölvupósti á [email protected].