Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Nova Klúbburinn Proxy Solicitation & Information Statement 2025

Mar 6, 2025

2207_rns_2025-03-06_babda7d9-dc1c-478e-bea9-ffe743a0d117.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

INOVA KLUBBURINN

Aðalfundur Nova Klúbbsins hf. 27. mars 2025

Stjórn Nova Klúbbsins hf. boðar til aðalfundar sem haldinn verður fimmtudaginn 27. mars 2025, klukkan 16:00, að Lágmúla 9, 108 Reykjavík, 4. hæð. Fundurinn verður einnig haldinn með rafrænum hætti og verða nánari upplýsingar um rafræna þátttöku hluthafa aðgengilegar á vef félagsins https://www.nova.is/fjarfestar

Tillaga stjórnar að dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Kosning fundarstjóra og ritara
  2. Skýrsla stjórnar um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári
  3. Skýrsla forstjóra og ársreikningur
  4. Endurskoðaðir ársreikningar félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til sambykktar
  5. Tillaga stjórnar um greiðslu arðs
  6. Tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár með ógildingu eigin hluta og samsvararandi breytingu á sambykktum félagsins
  7. Skýrsla starfskjaranefndar
  8. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins
  9. Tillaga stjórnar um kaupréttaráætanir
  10. Tillaga stjórnar um þóknun til stjórnarmanna og nefndarmanna í endurskoðunarnefnd, starfskjaranefnd og tilnefningarnefnd
  11. Skýrsla og tillögur tilnefningarnefndar um skipan stjórnar
  12. Stjórnarkjör
  13. Tillaga stjórnar um breytingu á sambykktum varðandi kjørtímabil stjórnar
  14. Tillaga stjórnar um starfsreglur tilnefningarnefndar
  15. Kjör tilnefningarnefndarmanna
  16. Tilnefning utanaðkomandi nefndarmanns í endurskoðunarnefnd
  17. Tillaga stjórnar um kjör endurskoðenda
  18. Tillaga stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutum, sbr. 55. gr. hlutafélagalaga
  19. Önnur mál löglega fram borin

Aðrar upplýsingar:

Õll skjöl og tillögur sem lagðar verða fyrir aðalfundinn verður að finna á vef félagsins https://www.nova.is/fjarfestar. Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku.

Hluthafar geta látið umboðsmann sækja aðalfundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð til staðfestingar umboði sínu. Umboðum skal skila við skráningu á fundinn. Umboðseyðublöð má nálgast í skráningarferlinu við rafræna skráningu á fundinn og á vef félagsins.

SKENNA ITADUR WEDIKA


INOVA KLUBBURINN

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, þurfa að skrá sig á https://www.lumiconnect.com/meeting/novaagm2025 fyrir kl. 16:00 þann 26. mars, eða degi fyrir fundardag. Skráningu á fundinn þarf að fylgja afrit af skilríkjum og umboð, ef við á.

Hægt verður að greiða atkvæði á fundinum með rafrænum hætti og eru nánari upplýsingar um skráningu, rafræna þátttöku og rafræna atkvæðagreiðslu aðgengilegar á vef félagsins.

Eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn þarf beiðni hluthafa um að kjósa með skriflegum hætti að berast félaginu.

Hluthafar eiga rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef þeir gera um það skriflega eða rafræna kröfu. Óski hluthafi eftir að koma máli eða tillögu á dagskrá hluthafafundarins skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] eigi síðar en 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16, mánudaginn 17. mars 2025.

Tilnefningarnefnd félagsins hefur lokið störfum og samkvæmt fyrirliggjandi skýrslu nefndarinnar gerir hún tillögu um að sitjandi stjórnarmenn, þau Hrund Rudolfsdóttir, Jóhannes Þorsteinsson, Jón Óttar Birgisson, Magnús Árnason og Sigríður Olgeirsdóttir, verði kjörn til áframhaldandi setu í stjórn félagsins. Skýrsla tilnefningarnefndar er meðfylgjandi fundarboði þessu og einnig aðgengileg á vef félagsins https://www.nova.is/fjarfestar.

Tilkynna skal um framboð til stjórnar með minnst fimm sólarhringa fyrirvara fyrir upphaf aðalfundar, eða fyrir kl. 16, laugardaginn 22. mars 2025. Framboðum skal skila á skrifstofu Nova að Lágmúla 9, Reykjavík, eða á netfangið [email protected]. Framboðum til tilnefningarnefndar skal skilað með sarna hætti innan sarna frests. Framboðseyðublöð má nálgast á vef félagsins https://www.nova.is/fjarfestar.

Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar og í tilnefningarnefnd verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn.

Hluthafar eiga rétt á að krefjast hlutfallskosningar eða margfeldiskosningar við stjórnarkjör í einn sólarhring frá því að stjórn kunngerir niðurstöður framboða til stjórnar, enda sé ekki sjálfkjörð.

Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn.

Fundargögn verða afhent frá kl. 15:30 á fundardegi.

Reykjavík, 6. mars 2025,

Stjórn Nova Klúbbsins hf.

SKENMATI KALUJÍR