AI assistant
Nova Klúbburinn — Earnings Release 2022
Aug 25, 2022
2207_ir_2022-08-25_4d7fabfa-56bc-4167-b27b-86303348e028.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer

Nova Klúbburinn birtir fyrsta uppgjör eftir skráningu á aðalmarkað.
- Stöðugur tekjuvöxtur milli ára þar sem enn fleiri viðskiptavinir eru á stærsta skemmtistað í heimi.
- Góður EBIDTA vöxtur á milli ára
Helstu niðurstöður á öðrum ársfjórðungi:
- Tekjur voru 3.150 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2022 samanborið við 2.942 m.kr. á sama tímabili (7,1% tekjuvöxtur frá F2 2021)
- Félagið skilaði góðum EBITDA vexti eða 14,8% og var EBITDA á öðrum ársfjórðungi 2022 832 m.kr. samanborið við 728 m.kr. á sama tímabili á fyrra ári. EBITDA hlutfallið var 26,4% fyrir annan ársfjórðung samanborið við 24,6% á fyrra ári.
- Rekstararhagnaður (EBIT) var 337 m.kr. samanborið við 255 m.kr. á sama tímabili á fyrra ári en hagnaður tímabilsins var 69 m.kr. og lækkar um 63 milljónir. Lækkunin milli ára skýrist helst af hærri fjármagnsgjöldum sem skýrast m.a. af áhrifum hækkandi verðbólgu.
- Veltufé frá rekstri á fjórðungnum er 832 m.kr. samanborið við 725 m.kr. á sama tímabili 2021.
- Vaxtaberandi skuldir, leiguskuldbindingar og aðrar skuldir í lok tímabilsins námu samtals 10.750 m.kr. í lok tímabilsins og hafa lækkað um samtals 4.226 m.kr. frá áramótum.
- •
- Hrein fjármagnsgjöld eru 254 m.kr. á tímabilinu og hækka um 165 m.kr. á milli ára. Hækkunin skýrst m.a. af hærri stöðu leiguskuldbindinga frá fyrra ári, hærri vöxtum á markaði m.v. fyrra ár sem og mikilli verðbólgu á tímabilinu.
- Heildarfjárfestingar á fyrstu sex mánuðum ársins 2022 námu 1.009 m.kr.
- Eiginfjárhlutfall félagsins var 38,6% í lok 2F 2022 og eigið fé 8.690 m.kr.
Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- & forstjóri:
,,Ánægjulegt að sjá fjölgun viðskiptavina á sama tíma og brottfall hefur minnkað á milli ára. Með því að hlúa að ánægju Nova liðsins, viðskiptavina,byggja upp sterka innviði ásamt því að vera með besta díllinn hefur það skilað sér í excelnum.
Við erum nútímalegur valkostur og fyrsta val 50 ára og yngri. Verðmætur hópur sem vex með okkur og vill kaupa meiri þjónustu af Nova. Hópurinn kann að meta það sem við höfum fram að færa hvort sem það er myndlyklalaust líf, úrlausn eða nýjustu þjónustuna okkar Sjálfsvörn. Við viljum vera fyrst inn í framtíðina með snjallar lausnir. Nova Klúbburinn er með stöðugan tekjuvöxt eða 6,8% á fyrstu 6 mán í samanburði við fyrra ár. Fjölgun viðskiptavina í farsíma- og netþjónustu er þar helsta skýring og fjölgaði viðskiptavinum um 6,7%. Vörusala minnkar þar sem við teljum að helsta skýring er að neysla fer í ferðalög frekar en raftæki sem sést á að reikitekjur aukast á sama tímabili.
Nova hefur frá upphafi verið í farabroddi í innleiðingu nýjustu tækni og er komið lengst í uppbyggingu 5G á Íslandi. Í dag býður Nova 5G í 19 bæjarfélögum og á stór höfuðborgarsvæinu. Settir hafa verið upp 70 sendar og áætlum við að í árslok verði þeir 106. Við munum halda áfram og á árinu munu 9 sveitarfélög bætast við ásamt sumarbúastaðasvæðum. Með góðum rekstri höfum við á ársfjórðungnum unnið enn frekar í að styrkja innviði okkar. Fjárfestingar á fyrri helmingi ársins voru milljarður sem er í takt við áætlanir. Á fjórðungnum var undirritað samstarf við Ljósleiðaran sem og við Sýn. Báðir samningar flýta enn frekar fyrir uppbygginu á 5G, tryggja hagræði og skalanleika inn í framtíðina,,


Helstu niðurstöður í rekstri á fyrri helming ársins
Rekstrarreikningur
| 2F 2022 | 2F 2021 Breyting | % | 6m 2022 | 6m 2021 Breyting | % | |||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Heildar rekstrartekjur | 3.150 | 2.942 | 207 | 7,1% | 6.122 | 5.730 | 391 | 6,8% |
| Kostnaðarverð seldra vara | 1.645 | 1.634 | 11 | 0,7% | 3.159 | 3.139 | 20 | 0,6% |
| Laun og launatengd gjöld | 430 | 403 | 27 | 6,7% | 856 | 794 | 63 | 7,9% |
| Annar rekstrarkostnaður | 243 | 180 | 62 | 34,6% | 459 | 362 | 97 | 26,8% |
| Heildar rekstrargjöld | 2.317 | 2.217 | 100 | 4,5% | 4.474 | 4.294 | 180 | 4,2% |
| EBITDA | 832 | 725 | 108 | 14,8% | 1.648 | 1.437 | 211 | 14,7% |
| EBITDA% | 26,4% | 24,6% | 1,8% | 7,3% | 26,9% | 25,1% | 1,9% | 7,4% |
| Afskriftir | (-495) | (-469) | -25 | 5,4% | (-965) | (-977) | 12 | -1,2% |
| Rekstrarhagnaður | 337 | 255 | 82 | 32,2% | 683 | 460 | 223 | 48,5% |
| Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) | (-254) | (-89) | (-165) 185,2% | (-486) | (-170) | (-316) 185,7% | ||
| Hagnaður v. sölu á hlutdeildarfyrirt. | 0 | 0 | 0 | 0,0% | 0 | 250 | -250 | 0,0% |
| Tekjuskattur | (-15) | (-34) | 20 | -58% | (-39) | (-57) | 19 -32,3% | |
| Hagnaður tímabilsins | 69 | 132 | -63 -47,9% | 159 | 483 | -324 -67,2% |
Heildartekjur á fyrstu 6 mánuðum ársins hækkuðu um 6,8% frá fyrra ári og námu samtals 6.122 m.kr. EBITDA hækkaði um 14,7% frá fyrra ári og nam samtals 1.648 m.kr. á fyrstu 6 mánuðum ársins. Undir öðrum rekstrarkostnaði á fyrstu 6 mánðum ársins er gjaldfærður einskiptiskostnaður upp á 66 m.kr.vegna skráningar félagsins á aðalmarkað Nasdaq í júní. Leiðréttt fyrir þeim einskiptisliðum væri EBITDA vöxturinn 19,3% á milli ára. EBITDA hlutfallið á fyrri árshelming 2022 er 26,9% samanborið við 25,1% á fyrri árshelming 2021.
Rekstararhagnaður (EBIT) hækkaði um 48,5% og nam samtals 683 m.kr. samanborið við 460 m.kr. á sama tímabili á fyrra ári. Hagnaður á fyrra helming ársins var 159 milljónir og lækkar um 324 milljónir frá sama tímabili á fyrr ári. Sú lækkun skýrist helst af því að á fyrra ári innleysti félagið 250 m.kr. hagnað vegna sölunnar á AUR app ehf og á núverandi ári hefur félagið gjaldfært áðurnefndan einskiptis kostnaður vegna skráningar á hlutabréfamarkað upp á 66 m.kr., einnig eru fjármagnsgjöldum 316 m.kr. hærri en á síðasta ári m.a. vegna hækkunará leiguskuldbindingum og mikillar verðbólgu á tímabilinu.
Efnahagur
| 30.6.2022 | 31.3.2022 | 31.12.2021 | |
|---|---|---|---|
| Viðskiptavild | 10.049 | 10.049 | 10.049 |
| Óefnislegar eignir | 1.732 | 1.781 | 1.828 |
| Rekstrarfjármunir | 3.833 | 3.529 | 3.596 |
| Leigueignir | 3.518 | 3.326 | 3.269 |
| Aðrar eignir | 3 | 3 | 3 |
| Tekjuskattsinneign | 447 | 417 | 404 |
| Fastafjármunir samtals | 19.582 | 19.104 | 19.148 |
| Birgðir | 477 | 473 | 389 |
| Viðskiptakröfur | 1.092 | 1.066 | 1.044 |
| Aðrar skammtímakröfur | 372 | 337 | 1.541 |
| Handbært fé | 970 | 892 | 2.179 |
| Veltufjármunir samtals | 2.911 | 2.768 | 5.154 |
| Eignir samtals 22.493 | 21.872 | 24.302 | |
| Eigið fé 8.690 | 5.227 | 5.137 | |
| Vaxtaberandi langtímaskuldir | 2.337 | 5.685 | 6.738 |
| Tekjuskattsskuldbinding | 0 | 0 | 0 |
| Leiguskuldbindingar | 5.488 | 5.285 | 5.223 |
| Aðrar skuldir | 2.596 | 2.521 | 2.499 |
| Langtímaskuldir samtals | 10.420 | 13.492 | 14.460 |
| Næsta árs afb. langtímaskulda | 149 | 226 | 347 |
| Viðskiptaskuldir | 1.000 | 581 | 765 |
| Ógreiddir skattar | 1.272 | 1.269 | 1.288 |
| Næsta árs afb. leiguskuldb. og annarra skulda | 181 | 176 | 169 |
| Aðrar skammtímaskuldir | 781 | 902 | 2.136 |
| Skammtímaskuldir samtals | 3.383 | 3.154 | 4.706 |
| Skuldir samtals 13.803 | 16.646 | 19.165 |
Fastafjármunir félagsins námu 19.582 m.kr. í lok tímabilsins en voru 19.148 m.kr. um áramót.
Veltufjármunir félagins námu samtals 2.911 m.kr. í lok tímabilsins en voru 5.154 m.kr. um áramót. Lækkunin skýrist fyrst og fremst af lækkun annara skammtímakrafna sem lækkuðu um 1.266 m.kr. eftir greiðslu frá mótaðila um miðjan febrúar, en einnig nýtti félagið sterka lausafjárstöðu og greiddi 1.100 m.kr. inn á vaxtaberandi skuldir í lok febrúar.
Eigið fé félagsins nam 8.690 m.kr. í lok tímabilsins en var 5.137 m.kr. um áramót. Í apríl var framkvæmd hlutafjárhækkun að virði 3.500 m.kr. þar sem 3.400 m.kr. voru nýttar til lækkunar á vaxtaberandi skuldum félagsins. Eiginfjárhlutfall félagins var 38,6% í lok tímabilsins.
Langtímaskuldir félagins námu samtals 10.420 m.kr. í lok tímabilsins en voru 14.460 m.kr. um áramót. Lækkunin skýrist af ofangreindum innborgunum inn á vaxtaberandi skuldir að samtals 4.500 m.kr. frá áramótum.
Skammtímaskuldir félagsins námu 3.383 m.kr. í lok tímabilsins en voru 4.706 m.kr. um áramót. Lækkunin skýrist aðallega af lækkun á öðrum skammtímaskuldum upp á 1.266 m.kr. sem voru gerðar upp í febrúar samhliða greiðslu á skammtímakröfu upp á sömu upphæð.



| 2F 2022 | 2F 2021 Breyting | % | 6m 2022 6m 2021 Breyting | % | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Veltufé frá rekstri | 832 | 725 | 108 | 14,8% | 1.648 | 1.687 | -39 | -2,3% |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | 264 | 347 | -83 | -23,9% | (-82) | 245 | -327 | -133,6% |
| Vaxtatekjur (Vaxtagjöld) | (-174) | (-87) | -87 | 99,9% | (-370) | (-172) | -197 | 114,6% |
| Greiddir skattar | (-42) | (-50) | 8 | 0,0% | (-85) | (-100) | 16 | -15,5% |
| Handbært fé frá rekstri | 880 | 934 | -54 | -5,8% | 1.111 | 1.659 | -548 | -33,0% |
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | (-640) | (-468) | -173 | 36,9% | (-858) | (-814) | -44 | 5,4% |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | (-76) | (-64) | -13 | 19,6% | (-151) | (-125) | -27 | 21,4% |
| Fjárfesting í dóttur- eða hlutdeildarfélagi | 0 | 0 | 0 | 0,0% | 0 | (-5) | 5 | 521,3% |
| Fjárfestingarhreyfingar | (-717) | (-532) | -185 | 34,8% | (-1.009) | (-944) | -65 | 6,9% |
| Hlutafjárhækkun | 3.395 | 0 | 3.395 | 100,0% | 3.395 | 0 | 3.395 | 100,0% |
| Afborgun leiguskuldbindinga | (-37) | (-29) | -8 | 28,4% | (-73) | (-57) | -15 | 26,9% |
| Afborgun annarra langtímaskuldbindinga | (-10) | 0 | -10 | 100,0% | (-19) | 0 | -19 | 100,0% |
| Afborganir langtímalána | (-3.433) | (-100) | -3.333 3333,2% | (-4.613) | (-200) | -4.413 2206,6% | ||
| Fjármögnunarhreyfingar | (-85) | (-129) | 44 | -34,1% | (-1.310) | (-257) | -1.053 | 409,2% |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | 78 | 274 | -196 | -71,4% | (-1.208) | 458 | -1666 | -363,8% |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | (-0) | (-1) | 0 | -39,3% | (-0) | 1 | -1 | -122,2% |
| Handbært fé í upphafi tímabilsins | 892 | 381 | 511 | 134,1% | 2.179 | 195 | 1983 1014,7% | |
| Handbært fé í lok tímabilsins | 970 | 655 | 316 | 48,2% | 970 | 655 | 316 | 48,2% |
Veltufé frá rekstri nam 1.648 m.kr. á fyrri helming ársins í samanburði við 1.687 m.kr. á sama tímabili á fyrra ári.
Handbært fé frá rekstri er 1.111 m.kr. og lækkar um 548 m.kr. frá sama tímabili á fyrra ári, lækkunin skýrist af 197 m.kr. hærri vaxtagreiðslum á tímabilinu miðað við sama tímabil á fyrra ári sem og breytingum á rekstrartengdum eignum sem eru neikvæðar um 82 m.kr. á fyrri helming þessa árs en voru jákvæðar um 245 m.kr. á sama tímabili á fyrra ári.
Fjárfestingahreyfingar námu 1.009 m.kr. á fyrri helming ársins í samanburði við 944 m.kr. á sama tímabili á fyrra ári.
Fjármögnunarhreyfingar eru 1.310 m.kr. á tímabilinu í samanburði við 257 m.kr. á sama tímabili á fyrra ári. Á fyrri helming þessa árs hafa verið greiddar 4.500 m.kr. inn á vaxtaberandi skuldir til viðbótar við samningsbundnar greiðslur, einnig var framkvæmd hlutafjárhækkun í apríl að heildarvirði 3.500 m.kr.
Horfur fyrir árið 2022
Spá fyrir árið 2022 er óbreytt og gerir ráð fyrir að tekjur verði á bilinu 12.700 m.kr. til 12.950 m.kr. og EBITDA verði á bilinu 3.350 m.kr. til 3.550 m.kr. Áætlað er að heildar fjárfestingar verði um það bil 12,9% af heildartekjum.
Þjónusta við hluthafa og fjárfesta
Fyrsta uppgjörspartý Nova Klúbbsins er haldið í dag kl. 16:15 í Lágmúla 9 þar sem uppgjör fyrir annan ársfjórðun 2022 er kynnt og farið yfir það helsta á stærsta skemmtistað í heimi! Allir áhugasamir eru velkomnir en einnig er hægt að fylgjast með í streymi á fjárfestasíðu Nova.
Pyngjan og Fortuna Invest munu fjalla um uppgjörið og fara yfir þær spurningar sem brenna á fjárfestum og hluthöfum.
Fjárfestar og hluthafar geta skráð sig í aðdáendaklúbbinn og þannig fengið fréttir beint á netfangið sitt.. Hægt er að senda inn spurningar á [email protected] eða óska eftir fundi. Nánari upplýsingar má nálgast a fjárfestavef Nova á og í fréttakerfi Nasdaq Iceland
Fjárhagsdagatal 2022
| Árshlutauppgjör 3F 2022 | 27.október 2022 |
|---|---|
| Ársuppgjör 2022 | 2. mars 2023 |
| Aðalfundur 2023 | 16. mars 2023 |


Nova
Nova var stofnað árið 2006 og er nú orðið eitt af stærstu og öflugustu fjarskiptafyrirtækjum landsins. Fyrirtækið á og rekur sína eigin virku innviði vítt og breitt um landið. Í Nova liðinu eru um 150 starfsmenn á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og Selfossi. Nova hefur frá upphafi verið í farabroddi í innleiðingu nýjustu tækni og hefur fjárfest markvisst í uppbyggingu virkra innviða í sinni eigu sem mun tryggja Nova áframhaldandi forystu á fjarskiptamarkaði. Farsímaog netkerfi Nova nær til 98% landsmanna.
Nánari upplýsingar
Margrét Tryggvadóttir skemmtana- & forstjóri,,[email protected], s. 770 1070 Þórhallur Jóhannsson fjármálastjóri, [email protected], s. 770 1090.
