Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Nova Klúbburinn Capital/Financing Update 2026

Jan 26, 2026

2207_rns_2026-01-26_b029a52f-d048-48ea-b24d-e3c7fc07da3f.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Nova klúbburinn hf.: Sendafélagið hf. lýkur endurfjármögnun hluthafalána

Nova klúbburinn hf.: Sendafélagið hf. lýkur endurfjármögnun hluthafalána

Nova klúbburinn hf. vísar til fyrri kauphallartilkynninga félagsins um framsal farnetsdreifikerfa (RAN) Nova hf. og Sýnar hf. til Sendafélagsins hf.

Í tengslum við framsal búnaðarins veittu Nova og Sýn hluthafalán til Sendafélagsins að fjárhæð um 2,8 ma.kr. Sendafélagið hefur nú lokið endurfjármögnun hluthafalánanna með langtímalánveitingu frá Landsbankanum að fjárhæð um 2,6 ma.kr. í samræmi við áætlanir þar um, og greitt Nova hf. til baka sem nemur um 1.650 m.kr.

Greiðslan styrkir stöðu handbærs fjár Nova og eykur þar með fjárhagslegt svigrúm félagsins til að styðja við áframhaldandi vöxt í samræmi við skýra stefnu félagsins.