AI assistant
Nova Klúbburinn — Audit Report / Information 2024
Feb 27, 2025
2207_10-k_2025-02-27_e457f9fa-70bf-4b5c-8b39-937c0de13d17.pdf
Audit Report / Information
Open in viewerOpens in your device viewer
CUBBUTRIN N
17
- 12 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 -
. . . . . .
UPPGJOR FJÓRÐA ÁRSFJÓRÐUNGS OG ARSINS 2024
Margrét Tryggvadóttir
Skemmtana- & forstjóri Þórhallur Jóhannsson Fjármálastjóri

Lykiltölur úr rekstri 4F 2024

Góð rekstrarniðurstaða mikilvægt veganesti fyrir næstu skref Nova


Lykiltölur úr rekstri 2024

Góð rekstrarniðurstaða mikilvægt veganesti fyrir næstu skref Nova


Fréttir af starfseminni:
Flakknet
Hærri meðaltekjur viðskiptavina
| Farsímanet Flakknet | Tekjur |
|---|---|
| Fjöldi símkorta 1H 2024 |
4F milli ára |
| 549.726 | +7,4% |
| 33.3% | 12M milli ára +4,6% |
| markaðshlutdeild | Viðskiptavinum fjölgaði Meðaltekjur pr. viðskiptavin (ARPU) hækkar |

Farsímanet: Stækkun markaðar, símkorta*

*Skýrsla fjarskiptastofu
Flakknet: Tekjur af þjónustu sem nýtir fjarskiptasenda. Þar með talið tekjur fyrir gagnanotkun gegnum farsíma og netbúnað. Einnig reikitekjur, samtengitekjur og aðrar tengdar tekjur.
Fréttir af starfseminni:
Fastnet
Hærri meðaltekjur viðskiptavina
Internet til heimila Internetþjónusta Fastnet Fjöldi nettenginga 18,3% (ljósleiðari/XDSL) 1H 2024 146.216 markaðshlutdeild Tekjur Ljósleiðari +11,6% 4F milli ára 19,9% +9,6% 12M milli ára Viðskiptavinum fjölgaði markaðshlutdeild � Meðaltekjur pr. viðskiptavin (ARPU) hækkar
Fastnef: Tekjur af þjónustu sem nýtir fastnet. Þar með talið tekjur fyrir ljósleiðaratengingar og aðrar gagnatengingar yfir fastnet. Einnig aðgangsgjald, leiga á búnaði og aðrar tengdar tekjur

Internet: Stækkun markaðar*

*Skýrsla fjarskiptastofu
VIÐ LEIÐUM DANSINN FYRST INN I. FRAMTÍÐINA
MEÐ SNJALLARI LAUSNIR
Í FARARBRODDI MEÐ INNVIÐI
Stjórn Nova hefur ákveðið að stofna sérstak innviðafélag um lykilinnviði; dreifikerfi og stofnnet, sem verður að fullu í eigu Nova Klúbbsins, móðurfélags Nova.
Með nýju félagi, Nova innviðir, verður til skýrari aðgreining ólíkra þátta í starfsemi félagsins, þjónustuog innviðarekstrar, sem styrkir stöðu Nova sem leiðandi aðila á íslenskum fjarskiptamarkaði. Þannig skapast mikilvægt tækifæri til hagræðingar með samnýtingu og traustari grundvöllur til þess tryggja loforð okkar um að vera fyrst inn í framtíðina með snjallari lausnir.


Takk fyrir okkur! Ánægðustu viðskiptavinirnir
ÍSLENSKA á netinu 16 ár í röð! ÁNÆGJUVOGIN
Ánægðustu viðskiptavinirnir í 16 ár
Markmið okkar er að eiga ánægðustu viðskiptavinina. Við skorum stöðugt á markaðinn, reglurnar, gömlu risaeðlurnar og viljum vera fyrst inn í framtíðina með snjallari lausnir.
Við leggjum áherslu á framúrskarandi þjónustu og að viðskiptavinir fái sem mest fyrir peninginn hjá Nova!
Íslenska Ánægjuvogin er stærsta og þekktasta ánægjukönnun viðskiptavina á Íslandi. Nova hefur verið sigurvegari þessara verðlauna í 16 ár samfleytt og er ríkjandi meistari á sínum markaði. Af öllum fyrirtækjum sem könnuð voru árið 2024 varð Nova í fimmta sæti.
NPS Score 2023 Nova 32




Ánægjan leynir sér ekki


Prosent
Gæði
Mest fyrir peninginn!
13:08
Dansgólfið
Hönnun, flæði &
notendaupplifun
×


×

Rekstrarreikningur

Tekjustofnar
Heildartekjur

| 4F 2024 | 4F 2023 | Breyting | જુર | ||
|---|---|---|---|---|---|
| FlakkNet | 1.637 | 1.523 | 113 | 7.4% | |
| FastNet | 1.005 | 901 | 104 | 11,6% | |
| Vörusala | 586 | 592 | -6 | -1.1% | |
| Aðrar tekjur | 273 | 311 | -38 | -12,1% | |
| Heildar rekstrartekjur | 3.501 | 3.327 | 174 | 5,2% | |
| 2024 | 2023 | Breyting | જ | ||
| FlakkNet | 6.461 | 6.177 | 284 | 4,6% | |
| FastNet | 3.897 | 3.557 | 340 | 9.6% | |
| Vörusala | 1.851 | 1.985 | -135 | -6,8% | |
| Aðrar tekjur | 1.106 | 1.274 | - 168 | -13,2% |

*Tölur leiðréttar fyrir einskiptisliðum vegna sölu óvirkra innviða á 4F 2021 Allar tölur í m.kr.

Tekjustofnar




*Tölur leiðréttar fyrir einskiptisliðum vegna sölu óvirkra innviða á 4F 2021 Allar tölur í m.kr.
Rekstrarreikningur

Rekstrartekjur
Hækkun tekna skýrist af fjölgun viðskiptavina, auknum reikitekjum af ferðamönnum og vexti í tekjum af sérlausnum til stórnotenda. Vörusala dregst saman milli ára þar sem stærstu áhrifin eru minni sala af símtækjum og lægri einingaverð.
Rekstrargjöld
Kostnaðarverð seldra vara lækkar milli ára sem skýrist af samdrætti í vörusölu. Laun og launatengd gjöld hækka vegna almennra launahækkana en stöðugildum fjölgar lífillega. Annar rekstrarkostnaður hækkar milli ára sem skýrist af almennum verðlagshækkunum.
Afskriftir
Afskriftir hækka á milli ára um 5,3%. Afskriftir óefnislegra eigna lækka lítillega en afskriftir fastafjármuna og nýtingarréttar hækka með fjárfestingum í fjarskiptakerfi sem og fjölgun sendastaða.
Fjármagnsliðir
Fjármagnsgjöld lækka um 11% milli ára. Vaxtagjöld annarra skulda og leiguskuldbindinga hækka vegna aukinna leiguskuldbindinga en á móti lækka verðbætur annara skulda vegna lægri verðbólgu milli ára sem og að vaxtagjöld langtímalána lækka vegna lægri skuldastöðu.
| 4F 2024 | 4F 2023 | Breyting / % | 2024 | 2023 | Breyting / % | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Heildar rekstrartekjur | 3.501 | 3.327 | 174 | 5.2% | 13.314 | 12.993 | 321 | 2,5% | |
| Kostnaðarverð seldra vara | 1.595 | 1.644 | -49 | -3,0% | 6.139 | 6.243 | -104 | -1,7% | |
| Laun og launatengd gjöld | 563 | 459 | 104 | 22,6% | 2.031 | 1.796 | 235 | 13,1% | |
| Annar rekstrarkostnaður | 278 | 263 | 15 | 5,8% | 1.016 | 976 | 41 | 4,2% | |
| Heildar rekstrargjöld | 2.436 | 2.366 | 70 | 2,9% | 9.186 | 9.014 | 172 | 1,9% | |
| EBITDA | 1.065 | 961 | 104 | 10,8% | 4.128 | 3.979 | 149 | 3,8% | |
| EBITDA% | 30,4% | 28,9% | 1,5% | 5,3% | 31,0% | 30,6% | 0,4% | 1,3% | |
| Afskriffir | (-632) | (-563) | (-69) | 12,3% | (-2.266) | (-2.152) | (-114) | 5,3% | |
| Rekstrarhagnaður | 433 | 398 | 35 | 8,7% | 1.862 | 1.826 | 35 | 1,9% | |
| Fjármunat. og (fjármagnsgj.) | (-145) | (-197) | 52 | -26,2% | (-839) | (-943) | 104 | -11,0% | |
| Tekjuskattur | (-44) | (-19) | (-25) | 126,9% | (-216) | (-155) | (-61) | 39,3% | |
| Hagnaður tímabilsins | 244 | 182 | 62 | 33,9% | 807 | 729 | 78 | 10,7% | |
| Hagnaður á hlut | 0,07 | 0,05 | 0,02 | 37,1% | 0,22 | 0, 19 | 0,03 | 14,6% |
Afkoma tímabilsins
Hagnaður á 4. ársfjórðungi er 244 m.kr. og eykst um 33,9% frá fyrra ári. Hagnaður ársins er 807 m.kr. og hækkar um 10,7%. Hagnaður á hlut á árinu í heild er 0,22 kr. og hækkar um 14,6% frá fyrra ári.
Rekstrarreikningur – kennitölur




■EBITDAal ━━EBITDAaL%

*Tölur leiðréttar fyrir einskiptisliðum vegna sölu óvirkra innviða á 4F 2021 og skráningu á markað 1H 2022 Allar tölur í m.kr.
Efnahagsreikningur

Efnahagsreikningur

Eignir
Fastafjármunir aukast um 1,1%, en þar munar mest um nýtingarétt leigueigna sem skýrist af fjölgun sendastaða og styrkingu stofnnets. A móti lækka óefnislegar eignir þar sem afskriftir eru umfram viðbætur á árinu, afskriftarhlutföll fyrir utan tíðnileyfi eru 20%-50%.
Veltufjármunir aukast um 16%, en þar munar mest um hækkun á handbæru fé sem skýrist af sterku sjóðstreymi.
Skuldir
Langtímaskuldir aukast um 3,1% á árinu. Vaxtaberandi langtímaskuldir lækka með samningsbundnum afborgunum, en leiguskuldbindingar hækka með viðbættum sendastöðum og styrkingu stofnnets.
Skammtímaskuldir samtals minnka um 3,4%. Næsta árs afborganir leiguskuldbindinga hækka með hærri leiguskuldbindingum en aðrar skammtímaskuldir lækka á móti.
Eigið fé
Hlutafé og yfirverðsreikningur eigin fjár lækka með endurkaupum ársins. Í samræmi við ákvörðun aðalfundar í mars sl. var hlutafé lækkað um 133.3 m.kr. að nafnverði vegna eigin hluta sem keyptir voru á tímabilinu maí 2023 til janúar 2024. Óráðstafað eigið fé hækkar með viðbættum hagnaði ársins. Eiginfjárhlutfall er 40,6% í lok tímabilsins.
| 2024 | 2023 | Breyting | ર | |
|---|---|---|---|---|
| Viðskiptavild | 10.136 | 10.049 | 88 | 0,9% |
| Oefnislegar eignir | 1.426 | 1.639 | -213 | -13,0% |
| Rekstrarfjármunir | 3.939 | 4.030 | -91 | -2,3% |
| Leigueignir | 4.654 | 4.292 | 362 | 8,4% |
| Aðrar eignir | 3 | 3 | 0 | 0,0% |
| Tekjuskattsinneign | 551 | 476 | 75 | 15,8% |
| Fastafjármunir samtals | 20.708 | 20.488 | 220 | 1,1% |
| Birgðir | 410 | 405 | 4 | 1,1% |
| Viðskiptakröfur | 1. 174 | 1.125 | 50 | 4,4% |
| Aðrar skammtímakröfur | 494 | 655 | - 160 | -24,5% |
| Handbært fé | 1.031 | 497 | 534 | 107,5% |
| Veltufjármunir samtals | 3.109 | 2.681 | 428 | 16,0% |
| Eignir samtals | 23.818 | 23.170 | 648 | 2,8% |
| Eigið fé | 9.664 | 9.277 | 387 | 4,2% |
| Vaxtaberandi langtímask. | 1.890 | 1.995 | - 105 | -5,3% |
| Leiguskuldbindingar | 6.691 | 6.329 | 362 | 5,7% |
| Aðrar skuldir | 3.057 | 2.964 | 93 | 3,1% |
| Langtímaskuldir samtals | 11.637 | 11.287 | 350 | 3,1% |
| Næsta árs afb. langtímask. | 105 | 100 | 5 | 5,3% |
| Viðskiptaskuldir | 795 | 813 | -17 | -2,1% |
| Ogreiddir skattar | 291 | 275 | 16 | 6,0% |
| Næsta árs afb. leiguskuldb. og annarra skulda | 313 | 244 | 69 | 28,3% |
| Aðrar skammtímaskuldir | 1.012 | 1.174 | -162 | -13,8% |
| Skammtimaskuldir samtals | 2.517 | 2.606 | -89 | -3,4% |
| Skuldir samtals | 14.154 | 13.893 | 261 | 1.9% |
Efnahagsreikningur - kennitölur

Eiginfjárhlutfall

Veltufjárhlutfall

Vaxtab. skuldir, leiguskuldb. og aðrar skuldir samtals

Nettó vaxtab. skuldir, leiguskuldb. og aðrar skuldir/12m EBITDA

Sjóðstreymi

Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri
Hækkun skýrist af hærra veltufé frá rekstri en á móti hækka greiddir skattar sem og að breytingar á rekstrartengdum eignum eru lítillega neikvæðar. Nettó greidd vaxtagjöld standa í stað milli ára.
Fjárfestingahreyfingar
Fjárfestingar í rekstrarfjármunum sem og óefnislegum eignum lækka í takt við áætlanir félagins um 415 m.kr. á milli ára. Lokagreiðsla vegna uppgjörs á kaupum á félagi á árinu 2017 upp á 87.5 m.kr. var framkvæmd lok 1. ársfjórðungs.
Fjármögnunarhreyfingar
Félagið keypti eigin bréf að fjárhæð samtals 420 m.kr. á árinu. Í janúar keypti félagið 10.810 þúsund hluti á meðalgenginu 4,15 hver hlutur sem hluti af endurkaupum samþykktum 2023, í apríl hóf félagið svo framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar og keypti 96.786 þúsund eigin hluta á meðalgenginu 3,88 fyrir samtals 375,7 m.kr.
Frjálst fjárflæði
Frjálst fjárflæði (FCF) ársins er 2.486 m.kr. og hækkar um 564 m.kr. frá fyrra ári. Frjálst fjárflæði til félags, að teknu tilliti til afborganahluta leiguskuldbindinga (FCFFaL) ársins er 1.211 m.kr og hækkar um 447 m.kr. frá fyrra ári.
| 4F 2024 | 4F 2023 | Breyting | 2024 | 2023 | Breyting | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Veltufé frá rekstri | 1.065 | 961 | 104 | 4.128 | 3.979 | 149 |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | 47 | 158 | (-111) | (-74) | (-59) | (-15) |
| Greidd vaxtagjöld | (-141) | (-132) | (-9) | (-672) | (-673) | |
| Greiddir skattar | (-117) | 22 | (-139) | (-274) | (-232) | (-43) |
| Handbært fé frá rekstri | 854 | 1.010 | (-156) | 3.107 | 3.015 | 93 |
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | (-305) | (-391) | 85 | (-1.398) | (-1.566) | 169 |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | (-92) | (-273) | 181 | (-244) | (-490) | 246 |
| Uppgjör vegna kaupa á félagi 2017 | 0 | 0 | 0 | (-88) | O | (-88) |
| Fjárfestingarhreyfingar | (-398) | (-664) | 266 | (-1.729) | (-2.056) | 327 |
| Keypt eigin bréf | (-146) | (-270) | 124 | (-420) | (-505) | 85 |
| Afborgun leiguskuldbindinga | (-85) | (-49) | (-36) | (-255) | (-194) | (-60) |
| Afborgun annarra langtímaskuldbindinga | (-14) | (-13) | (-1) | (-54) | (-47) | (-7) |
| Tekin ný langtímalán | 0 | 2.100 | (-2.100) | O | 2.100 | (-2.100) |
| Afborganir langtímalána | (-26) | (-2.384) | 2.357 | (-105) | (-2.483) | 2.378 |
| Fjármögnunarhreyfingar | (-271) | (-616) | 345 | (-834) | (-1.129) | 295 |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | 185 | (-270) | 455 | 544 | (-170) | 714 |
| Ahrif gengisbreytinga á handbært fé | (-2) | (-3) | (-10) | 2 | (-12) | |
| Handbært fé í upphafi tímab. | 848 | 766 | 82 | 497 | 665 | (-168) |
| Handbært fé í lok tímabilsins | 1.031 | 497 | 534 | 1.031 | 497 | 534 |

Fjárfestingar
Rekstrarfjármunir
Uppbygging og viðbætur á fjarskiptakerfi félagins gengu samkvæmt áætlun á árinu. Fjöldi 5G sendastaða í árslok var kominn í samtals 194 og útföstun á 2G lauk í janúar 2025. Einnig var kjarnakerfi uppfært í 5G standalone og viðbætur gerðar á stofnneti félagins með stækkun á flutningsgetu til að koma til móts við auknar þarfir viðskiptavina um hraða og flutningsgetu.
Óefnislegar eignir
Stórum verkefnum í uppfærslu fjárhagskerfis og þjónustukerfis viðskiptatengsla lauk á síðasta ári. En einnig var þjónustuvefur, app og fríðindaklúbbur uppfærður með tilheyrandi bættri upplifun viðskiptavina.

___ Fjárfestingar


0%
-20,0%
-15,0%
-10,0%
-5,0%
0,0%
5,0%
10, 0%
15, 0%
0%
0%
0%


10,8%

Horfur & Hluthafar

Horfur fyrir 2025

Tekjur áætlaðar á bilinu 13.700 - 14.000 m.kr.
Tekjuhorfur fyrir árið í heildina almennt góðar.
Fjölgun viðskiptavina á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði er áætluð í takt við vöxt fyrri ára.
Vörusala er áætluð að verði í línu við síðasta ár.
Fjöldi ferðamanna sem og ferðalög íslendinga erlendis verði einnig í línu við síðasta ár.
EBITDA áætluð á bilinu 4.000 - 4.400 m.kr.
Horfur miðast við óbreyttan strúktúr og yfirbyggingu samstæðunnar. Efnahagshorfur almennt jákvæðar en rekstrarkostnaður mun stýrast að hluta af þróun vísitölu neysluverðs og þjónustukostnaður einnig sem og af gengisþróun.
Fjárfestingar 11% - 12% af heildartekjum
Heildarupphæð áætluð í línu við fyrra ár og hlutföll lækki því milli ára. Verkefni ársins verða áframhaldandi viðbætur í þjónustuvef og appi til að auka og bæta upplifun viðskiptavina enn frekar.
Fjarskiptakerfi verður styrkt og þétt í línu við auknar þarfir og fjölgun viðskiptavina á einstaklingsmarkaði sem og stórmotenda á fyrirtækjamarkaði. Endabúnaður hefur verið uppfærður í WiFi 7.
Tekjuhorfur

EBITDA horfur

Ráðstöfun hagnaðar

Arðgreiðsla
Í samræmi við arðgreiðslustefnu félagsins leggur stjórn félagsins til við aðalfund að arður sé greiddur að fjárhæð 300 m.kr. sem jafngildir 38% af hagnaði ársins. Arður per hlut er þá 0,082 kr.
Endurkaup
Endurkaup ársins námu samtals 420 mkr. Í árslok námu eigin bréf samtals 2,63% af útgefnum hlutum. Stjórn leggur einnig til við aðalfund að heimild til endurkaupa allt að 10% hlutafjár sé endurnýjuð.
Hagnaður á hlut

Huthafar



Spurningar
-> fjá[email protected]


www.nova.is/fjarfestar

CUBBUTRIN N
17
- 12 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 - 2 -
. . . . . .

Lýsing tekjustofna

FlakkNet
Tekjur af þjónustu sem nýtir fjarskiptasenda. Þar með talið tekjur fyrir gagnanotkun gegnum farsíma og netbúnað. Einnig reikitekjur, samtengitekjur og aðrar tengdar tekjur.

FastNet
Tekjur af þjónustu sem nýtir fastnet. Þar með talið tekjur fyrir ljósleiðaratengingar og aðrar gagnatengingar yfir fastnet. Einnig aðgangsgjald, leiga á búnaði og aðrar tengdar tekjur.

Vörusala Tekjur af sölu á símtækjum, netbúnaði, aukahlutum og öðrum búnaði.

Aðrar tekjur
Tekjur af annarri fjarskiptatengdri starfsemi sem fellur ekki undir ofangreinda flokka, svo sem fastlínuþjónusta, samrekstur, endursala á þjónustu o.fl. Auk annarra rekstrartekna.

Fyrirvarar
Við erum mjög bjartsýn eins og þið sjáið en það er eitt sem þarf að koma fram. Allt sem stendur hérna er byggt á hugmyndum einhvers fólks sem vinnur á skrifstofu hjá Nova. Ekki staðreyndum eða vísindum. Við erum ekki Nasa. Allt sem þessu ágæta fólki dettur í hug að senda frá sér felur í sér ákveðna óvissu, enda eru þau bara mannleg, og þessi fjárfestakynning er ágætis dæmi um það. Okkur finnst skrýtið að þurfa að taka það fram, en við áttum okkur á að framtíðin er óskrifað blað. Við erum ekki með kristalskúlu sem sýnir okkur hvað gerist næst. Hlutir geta breyst. Til dæmis gæti afkoman orðið önnur en kemur fram í þessari tilkynningu. Eða loftsteinn tortímt gervöllu Arnarnesinu. Staðhæfingar gilda bara á þeim tíma sem fréttatilkynningin kemur út, það er að segja í nútímanum. Ekki framtiðinni. Þið bara lesið þetta með það í huga, takk.