AI assistant
Nova Klúbburinn — AGM Information 2025
Mar 20, 2025
2207_egm_2025-03-20_e07eb74c-50d6-4a4a-9d44-f70c3097bc80.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer

Skýrsla tilnefningarnefndar Nova klúbbsins hf. vegna aðalfundar 27. mars 2025

Inngangur
Tilnefningarnefnd Nova klúbbsins hf. (hér eftir nefnt "Nova") var sett á laggirnar með ákvörðun hluthafafundar sem fór fram 2. nóvember 2022. Markmið með skipun tilnefningarnefndar var að koma á skýru og gagnsæju ferli er varðar tilnefningu stjórnarmanna á aðalfundi félagsins og þannig skapa hluthöfum forsendur fyrir upplýstri ákvarðanatöku.
Hlutverk nefndarinnar er að tilnefna einstaklinga til stjórnarsetu í félaginu og tryggja að samsetning stjórnar sé í samræmi við starfsemi og stefnu félagsins. Nefndin skal gæta þess að stjórnin beri með sér nægilega fjölbreytni í reynslu og hæfni til að mynda sterka heild.
Nánari upplýsingar um hlutverk nefndarinnar má finna í starfsreglum hennar sem nálgast má á vefsíðu félagsins, https://www.nova.is/fjarfestar.
Skipan tilnefningarnefndar
Tilnefningarnefnd skal skipuð tveimur nefndarmönnum sem kjörnir voru á aðalfundi félagsins. Samkvæmt starfsreglum tilnefningarnefndar skulu nefndarmenn vera óháðir félaginu og daglegum stjórnendum þess og að lágmarki einn nefndarmaður skal vera óháður stærstu hluthöfum. Auk þess mega stjórnarmenn félagsins ekki taka sæti í tilnefningarnefnd.
Á aðalfundi Nova þann 21. mars 2024 voru eftirtaldir nefndarmenn kjörnir í tilnefningarnefndina:
- Thelma Kristín Kvaran
- Margrét Kristmannsdóttir
Formaður nefndarinnar er Thelma Kristín Kvaran og ritari nefndarinnar er Ásta Guðjónsdóttir, yfirlögfræðingur Nova. Báðir nefndarmenn eru óháðir félaginu, stjórnendum þess og stórum hluthöfum félagsins.
Starfsemi tilnefningarnefndar
Tilnefningarnefnd fundaði átta sinnum á tímabilinu og starfaði samkvæmt fyrrnefndum starfsreglum. Á fyrsta fundi nefndarinnar voru gerð drög að starfsáætlun og tímasetningar funda og aðgerða bókaðar.
Nefndarmenn funduðu með öllum sitjandi stjórnarmönnum félagsins auk forstjóra, á tímabilinu 5-7. nóvember 2024. Á fundunum með stjórnarmönnum var stuðst við staðlaðan viðtalsramma og var markmiðið að fá upplýsingar um störf stjórnar, mat þeirra á stöðu og stefnu Nova, auk upplýsinga um rekstur félagsins, helstu verkefni og áskoranir. Þær upplýsingar sem fengust á fundum með stjórnarmönnum voru notaðar til að leggja mat á hæfni og reynslu einstakra stjórnarmanna auk frammistöðu og framlags þeirra inn í stjórnarstarfið. Tilnefningarnefndin hafði einnig til hliðsjónar árangursmat stjórnar sem lagt var fyrir stjórnarmenn í desember 2024. Á fundum nefndarmanna með stjórnarmönnum kom fram að allir hlutaðeigandi hygðust gefa kost á sér til áframhaldandi starfa fyrir

félagið.
Líkindi voru með niðurstöðum árangursmats stjórnar og þess sem fram kom í viðtölum við einstaka stjórnarmenn. Núverandi stjórn sem heild er með fjölbreyttan bakgrunn og hefur reynslu af ólíkum rekstri. Auk þess er til staðar mikil þekking og reynsla sem fellur vel að skilgreindri lykilhæfni, þekkingu og reynslu sem fjallað er nánar um í kaflanum "mat tilnefningarnefndar".
Tilnefningarnefnd sendi þann 21. janúar sl. bréf í tölvupósti til 20 stærstu hluthafa félagsins. Hluthöfum var boðið að hitta nefndina til að ræða m.a. reynslu sína af störfum stjórnar, hvort þeir hefðu í huga að tilnefna einstaklinga í stjórn og einnig var rætt um störf tilnefninganefndarinnar. Þeim var jafnframt boðið upp á að ræða önnur þau mál sem þeir kynnu að hafa áhuga á að ræða. Fulltrúar sex hluthafa þáðu boðið og var fundað með þeim á tímabilinu 27.-31. janúar. Samtöl við hluthafa reyndust gagnleg fyrir nefndarmenn.
Þann 3. febrúar 2025 var auglýsing birt á fréttavef Kauphallar Íslands og vefsíðu Nova þar sem tilnefningarnefnd auglýsti eftir framboðum til stjórnar. Frestur til að senda inn framboð, til að eiga möguleika á að fá umfjöllun tilnefningarnefndar, var til 10. febrúar 2025. Frambjóðendum var heitið trúnaði. Ekkert framboð barst.
Skýrsla með niðurstöðum tilnefninganefndar, byggðum á framangreindu ferli, var birt á fréttavef Kauphallar Íslands og vefsíðu Nova, með boðun til aðalfundar félagsins, þann 6. mars 2025 og voru þar allir sitjandi stjórnarmenn tilnefndir til áframhaldandi stjórnarsetu. Þann 12. mars hafði Magnús Árnason, stjórnarmaður, hins vegar samband við formann tilnefningarnefndar og tilkynnti að hann hefði ákveðið að draga framboð sitt til baka vegna breyttra aðstæðna. Í framhaldi af því var auglýsing birt aftur á fréttavef Kauphallar Íslands og vefsíðu Nova þar sem tilnefningarnefnd auglýsti eftir framboðum til stjórnar og var frestur gefinn til að senda inn framboð, til að eiga möguleika á að fá umfjöllun tilnefningarnefndar, til 16. mars 2025.
Mat tilnefningarnefndar
Í auglýsingu nefndarinnar kom fram að sérstaklega væri horft til reynslu á eftirfarandi sviðum:
- Fjarskipti
- Tækni
- Markaðsmál
- Nýsköpun
- Stjórnarhættir
Tilnefningarnefnd hafði auk þess til hliðsjónar mat á lykilhæfni og þekkingu fyrir stjórn Nova, sem áður hafði verið skilgreint og voru ofangreindir þættir á meðal þeirra.

Eftirfarandi þættir voru hafðir til hliðsjónar við mat á heildarsamsetningu stjórnar:
- Reynsla af fjármálum og rekstri
- Þekking á stjórnarháttum
- Reynsla af stefnumótun og áætlanagerð
- Reynsla af mannauðsstjórnun
- Reynsla af sölu- og markaðsmálum
- Reynsla af upplýsingatækni/stafrænni þróun
- Reynsla af fjarskiptum
- Reynsla af nýsköpun
Ákvörðunarvald um stjórnarsetu er ávallt hjá hluthöfum og hefur tilnefningarnefnd einungis ráðgefandi hlutverk. Við mat á framboðum til stjórnar horfir tilnefningarnefnd til þess að stjórnin myndi sterkt og faglegt teymi í þágu Nova og hluthafa sem hefur reynslu af ofangreindum þáttum. Auk þess var horft til umfangs annarra starfa frambjóðenda og getu þeirra til að sinna þeim krefjandi verkefnum sem stjórnarseta felur í sér. Þar að auki var horft til þess að meirihluti stjórnarmanna sé óháður félaginu, að stjórnin sé með fjölbreyttan bakgrunn í menntun, reynslu og aldri og að ákvæði hlutafélagalaga um kynjahlutföll í stjórn séu uppfyllt. Auk þess var lögð áhersla á að viðhalda ákveðnum stöðugleika, þ.e. að ekki yrðu of miklar breytingar á stjórn.
Framboð til stjórnar og niðurstaða tilnefningarnefndar
39 framboð bárust til tilnefningarnefndar Nova en auk þess gáfu fjórir sitjandi stjórnarmenn kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Samtals voru framboðin því 43 talsins. Eftir yfirferð á þeim framboðum sem bárust var ákveðið að bjóða sjö frambjóðendum, sem ekki áttu þegar sæti í stjórn, í viðtöl til nefndarinnar. Viðtölin fóru fram á tímabilinu 17.-18. mars 2025. Í þeim viðtölum var farið yfir reynslu þeirra, menntun og þekkingu og rök þeirra fyrir framboði sínu til stjórnar.
Tilnefningarnefnd Nova er einhuga um að leggja til við hluthafa að stjórnarmennirnir Hrund Rudolfsdóttir, Jóhannes Þorsteinsson, Jón Óttar Birgisson og Sigríður Olgeirsdóttir verði endurkjörin í stjórn Nova. Þá leggur nefndin til að Steinunn Hlíf Sigurðardóttir verði kjörin ný í stjórn.
Meðfylgjandi er stutt samantekt á náms- og starfsferli ofangreindra einstaklinga sem nefndin gerir tillögu um að skipi stjórn Nova frá aðalfundi 27. mars 2025.
Hrund Rudolfsdóttir
Hrund Rudolfsdóttir er framkvæmdastjóri Sólvalla Rekstrarfélags. Hún var forstjóri Veritas frá 2013- 2023. Hún var framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Marel frá 2009-2013 og sat í framkvæmdastjórn félagsins. Á árunum 2003-2009 var hún framkvæmdastjóri rekstrar- og fjárfestingaverkefna í erlendum heilbrigðistengdum fjárfestingum Milestone, ásamt því að gegna stöðu rekstrarstjóra og þar áður stöðu

framkvæmdastjóra Lyfja & heilsu á árunum 2001-2006.
Hrund hefur breiða þekkingu af rekstri innlendra og erlendra fyrirtækja, en hefur jafnframt setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og hagsmunaaðila. Í dag situr Hrund í stjórn Skaga, Expectus, Veitna og Nova. Áður sat Hrund m.a. í stjórn og framkvæmdastjórn Viðskiptaráðs Íslands á árunum 2018-2024, Eimskip á árunum 2013-2020, var stjórnarformaður Stefnis 2009-2019, lífeyrissjóðs Verslunarmanna 2007-2009, og var formaður Samtaka verslunar og þjónustu 2005-2009. Einnig var Hrund stjórnarformaður allra dótturfyrirtækja Veritas samstæðunnar; Artasan, Distica, MEDOR, Stoð og Vistor.
Hrund lauk M.Sc. gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Business School árið 2000, Cand.Oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands á árinu 1994, ásamt því að hafa lokið Advanced Management Program (AMP) frá IESE Business School í NY 2018.
Hrund er hluthafi í Nova Klúbbnum hf. bæði persónulega og sem einn eigenda einkahlutafélagsins Stjánkur ehf., en samtals nemur hlutfjáreign Hrundar og fjárhagslega tengdra aðila 10.262.434 hlutum. Hrund á ekki í hagsmunatengslum við helstu viðskiptaaðila félagsins, samkeppnisaðila þess eða stóra hluthafa í félaginu. Hrund telst óháður stjórnarmaður skv. Leiðbeiningum um góða stjórnarhætti.
Jóhannes Þorsteinsson
Jóhannes hefur nærri tveggja áratuga stjórnunarreynslu á markaði fjarskiptafyrirtækja, í fyrirtækjaráðgjöf og fjárfestingarbankastarfsemi. Í dag starfar Jóhannes sem yfirmaður fjárstýringar (Senior Vice President & Treasurer) hjá T-Mobile US Inc., þar sem hann ber ábyrgð á allri fjármögnun fyrirtækisins, fjármögnun fjárfestinga, tryggingum, áhættustýringu og greiðslumiðlun verslana félagsins. T-Mobile er í dag verðmætasta fjarskiptafyrirtæki í heimi, með markaðsverðmæti sem nemur yfir USD 300 milljarða. Áður starfaði Jóhannes sem framkvæmdastjóri hjá Deutsche Bank í 13 ár við að ráðleggja og framkvæma fjármögnun og samruna fjarskiptafyrirtækja í Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu. Hann hefur auk þess umfangsmikla reynslu af stefnumótun fyrirtækja á fjarskiptamarkaði. Hjá Deutsche Bank vann hann fyrir mörg af stærstu fjarskiptafyrirtækjum heims (t.d. T-Mobile, SoftBank, Verizon, Deutsche Telekom og Charter) og fjárfestingarsjóðum (t.d. Carlyle, Apollo, Blackstone, EQT) í umsvifamiklum verkefnum. Reynsla Jóhannesar nær bæði til strategískra ákvarðana og taktískra útfærslna á flestu sem viðkemur rekstri fjarskiptafyrirtækja, og nú á síðustu árum sem yfirmaður fjárstýringar. Jóhannes var kjörinn í stjórn Nova á árinu 2023, en situr einnig í stjórn Smith School Foundation, University of Maryland School of Business.
Jóhannes á enga hluti í Nova Klúbbnum hf. og á ekki í hagsmunatengslum við helstu viðskiptaaðila félagsins, samkeppnisaðila þess eða stóra hluthafa í félaginu. Jóhannes telst óháður stjórnarmaður skv. Leiðbeiningum um góða stjórnarhætti.

Jón Óttar Birgisson
Jón Óttar hefur um 25 ára reynslu af rekstri fyrirtækja og úr fjármálakerfinu. Jón Óttar er stofnandi og framkvæmdastjóri Stöpla Advisory ehf. frá 2015, sem sérhæfir sig í fyrirtækjaráðgjöf, aðstoð við fjármögnun og kaup og sölu fyrirtækja. Áður starfaði hann sem forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar hjá MP banka og framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar hjá Saga Capital. Þar áður gegndi Jón Óttar framkvæmdastjórastöðum hjá Strax í Bretlandi og Hong Kong. Jón Óttar situr eða hefur setið í fjölda stjórna, m.a. Lyfju, Men & Mice, Stefnis, MF1, Leigufélags aldraðra og Billboard. Jón Óttar er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur auk þess lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Jón Óttar hefur setið í stjórn Nova frá apríl 2022.
Jón sinnti m.a. ráðgjöf við Stefni hf., sjóðastýringarfélag, fram til ársins 2023, en sjóðir Stefnis fara með alls 279.474.570 hluti í Nova Klúbbnum hf. Jón telst því háður stjórnarmaður skv. Leiðbeiningum um góða stjórnarhætti.
Sigríður Olgeirsdóttir
Sigríður er stofnandi og meðeigandi Magnavita. Hún er með yfirgripsmikla reynslu af stjórnarstörfum og auk þess víðtæka stjórnunarreynslu á sviði upplýsingatækni. Sigríður var sviðsstjóri hjá Völku ehf. frá 2019-2021 og framkvæmdastjóri rekstrar- og upplýsingatæknisviðs Íslandsbanka 2010-2019. Áður var hún m.a. stofnandi og framkvæmdastjóri Ax Business Intelligence í Danmörku, framkvæmdastjóri Ax hugbúnaðarhúss, forstjóri Humac (Apple umboðið á Íslandi auk 4 dótturfélaga á Norðurlöndunum) og framkvæmdastjóri hjá Skiptum og Tæknivali. Hún býr yfir góðri þekkingu á íslensku atvinnulífi og hefur leitt fjárfestingar í rekstri s.s. í tækni-, fjármála- og framleiðslufyrirtækjum sem starfa í hátækni og alþjóðlegum viðskiptum. Sigríður hefur setið í stjórnum upplýsingatæknifyrirtækja hérlendis og á Norðurlöndum og er stjórnarformaður DTE og situr nú í stjórn Haga og Íslandshótela. Auk þess er hún í tilnefningarnefnd Sjóvá. Áður sat hún m.a. í stjórn Opinna Kerfa og var auk þess varamaður í bankaráði Landsbankans. Sigríður var kjörin í stjórn Nova árið 2023.
Sigríður lauk MBA frá Háskólanum í Reykjavík og stjórnunarnámi (AMP) frá Harvard Business School í Boston. Þá hefur hún lokið námskeiði hjá Háskólanum í Reykjavík um ábyrgð og hlutverk í stjórnum. Sigríður lauk námi í kerfisfræði frá EDB-skólanum í Danmörku og prófi í rekstrar- og viðskiptafræði frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Auk þess hefur hún lokið hæfnismati stjórnarmanna Fjármálaeftirlits og Seðlabanka Íslands.
Sigríður er hluthafi í Nova Klúbbnum, en hún á persónulega 473.000 hluti í félaginu. Sigríður á ekki í hagsmunatengslum við helstu viðskiptaaðila félagsins, samkeppnisaðila þess eða stóra hluthafa í félaginu. Sigríður telst óháður stjórnarmaður skv. Leiðbeiningum um góða stjórnarhætti.
Steinunn Hlíf Sigurðardóttir
Steinunn er reynslumikill stjórnandi með djúpa þekkingu á viðskiptaþróun, nýsköpun, markaðsmálum

og sölumálum, sem eru mikilvægir þættir í stefnu Nova. Hún hefur leitt umbreytingarverkefni og vöxt í fyrirtækjum sem starfa á samkeppnismörkuðum, með skýra sýn á hvernig byggja má upp sterkar vörur, þjónustu og viðskiptatengsl.
Með yfir 20 ára stjórnunarreynslu í fjármála- og tryggingageiranum hefur hún tekið þátt í stefnumótun, stafrænum umbreytingum og innleiðingu tæknilausna sem hafa skilað verulegum árangri í rekstri. Hún starfaði sem framkvæmdastjóri hjá Arion banka frá 2021-2024 og stýrði markaðsmálum, stafrænum lausnum og gagnadrifnum breytingum sem höfðu áhrif á allar tekjueiningar bankans. Þá starfaði hún sem framkvæmdastjóri hjá Verði tryggingum frá 2008-2021 og tók þátt í að leiða félagið í gegnum mikið vaxtar- og umbreytingarferli þar sem markaðshlutdeild þrefaldaðist og arðsemi félagsins styrktist verulega. Vegferð Varðar trygginga á margt sameiginlegt með vexti og þróun Nova þar sem félagið fór úr því að vera lítill aðili á markaði yfir í að verða verðugur aðili í samkeppni. Steinunn tók þátt í að leiða þessa umbreytingu með stefnumótandi sýn og sterkri áherslu á þjónustu, stafrænar lausnir og markaðsdrifinn vöxt. Það er mat tilnefningarnefndar að sú reynsla sé afar dýrmæt fyrir Nova þar sem félagið heldur áfram að þróa sig og styrkja stöðu sína í síbreytilegu markaðsumhverfi.
Nova er sterkt markaðsdrifið fyrirtæki og með brotthvarfi stjórnarmanns sem hafði mikla sérþekkingu á markaðsmálum og stafrænni þróun er mikilvægt að slík þekking og reynsla haldist í stjórn. Steinunn býr yfir mikilli þekkingu á markaðssetningu, vörumerkjastjórnun og sölustrategíu og hefur bæði leitt stórar markaðsherferðir og unnið að langtímastefnu fyrir fyrirtæki sem starfa í harðri samkeppni. Hún skilur hvernig byggja má upp sterk vörumerki og einstaka viðskiptaupplifun, sem er kjarni í stefnu Nova. Steinunn hefur einnig reynslu af stjórnarstörfum og situr nú í stjórn Kviku eignastýringar auk þess sem
hún hefur unnið náið með stjórnum í fyrri störfum sínum. Þekking hennar á nýsköpun og stafrænum lausnum ásamt innsýn í markaðs- og sölustrategíur gerir hana að öflugum liðsmanni fyrir stjórn Nova. Steinunn er með B.A. gráðu í viðskiptafræði frá Flagler College og próf í verðbréfamiðlun.
Steinunn á enga hluti í Nova Klúbbnum hf. og á ekki í hagsmunatengslum við helstu viðskiptaaðila félagsins, samkeppnisaðila þess eða stóra hluthafa í félaginu. Steinunn telst óháður stjórnarmaður skv. Leiðbeiningum um góða stjórnarhætti.
Samantekt og rökstuðningur
Tilnefningarnefnd Nova hefur lagt áherslu á að tryggja að stjórn félagsins hafi fjölbreytta og yfirgripsmikla hæfni sem styður við stefnu og framtíðarvöxt Nova. Nefndin hefur metið stjórnarmenn út frá áðurnefndum hæfnisviðmiðum og telur að ofangreindir aðilar sem heild muni uppfylla þær kröfur á mjög fullnægjandi hátt, verði þeir kjörnir í stjórn. Er það byggt á eftirfarandi rökstuðningi:
Reynsla af fjármálum og rekstri:
Öll hafa þau víðtæka þekkingu á rekstri og fjármálastjórnun, bæði í íslensku og alþjóðlegu samhengi. Meðal þeirra eru sérfræðingar í fjárstýringu, fyrirtækjaráðgjöf og rekstri stórra fyrirtækja. Sérstaklega

má nefna m.a. reynslu Jóhannesar en hann hefur mikla innsýn í fjármál fjarskiptafyrirtækja á alþjóðavísu, Jón Óttar hefur auk þess yfirgripsmikla reynslu af fyrirtækjaráðgjöf og fjármögnun og Hrund víðtæka stjórnunar- og rekstrarreynslu frá stórum félögum, svo eitthvað sé nefnt.
Þekking á stjórnarháttum:
Öll hafa þau setið í stjórnum fyrirtækja, bæði á Íslandi og erlendis. Þau hafa reynslu af stefnumótun og eftirfylgni stjórnarhátta í ýmsum atvinnugreinum, þar á meðal fjarskiptum, fjármálum, upplýsingatækni og tryggingum.
Reynsla af stefnumótun og áætlanagerð:
Öll hafa þau leitt stefnumótun í fyrirtækjum sem starfa í harðri samkeppni og hafa reynslu af því að móta og framkvæma langtímastefnu í samræmi við breyttar markaðsaðstæður. Má þar nefna að Jóhannes hefur unnið að stefnumótun fjarskiptafyrirtækja í gegnum Deutsche Bank og T-Mobile, Jón Óttar hefur sérhæft sig í stefnumótandi ráðgjöf og fjárfestingum og Steinunn hefur leitt stefnumótandi umbreytingarverkefni í bæði trygginga- og bankageiranum. Auk þess hafa Hrund og Sigríður umfangsmikla reynslu úr sínum fyrri störfum.
Reynsla af stjórnun:
Öll hafa þau margra ára stjórnunarreynslu í fyrirtækjum af ólíkum stærðum og úr mismunandi atvinnugreinum. Þau hafa leitt rekstur, stjórnunarteymi og umbreytingaverkefni á samkeppnismarkaði. Sem dæmi hefur Hrund áralanga reynslu sem forstjóri og framkvæmdastjóri stórra fyrirtækja, Jóhannes hefur leitt teymi í fjárstýringu hjá T-Mobile, Steinunn hefur stýrt umfangsmiklum breytingaverkefnum í banka- og tryggingageiranum og Sigríður hefur gegnt lykilstöðum í upplýsingatæknigeiranum bæði á Íslandi og erlendis.
Reynsla af sölu- og markaðsmálum:
Nova er markaðsdrifið fyrirtæki og telur tilnefningarnefnd mikilvægt að stjórnin hafi skýra sýn á markaðssetningu og sölu. Með brotthvarfi stjórnarmanns með mikla sérþekkingu á markaðsmálum er það mat nefndarinnar að sú hæfni þurfi að vera áfram til staðar í stjórn. Steinunn fyllir upp í þetta skarð með yfir 20 ára reynslu af sölu- og markaðsmálum og hefur leitt umfangsmiklar breytingar á þessu sviði, m.a. hjá Arion banka og Verði tryggingum.
Reynsla af upplýsingatækni/stafrænni þróun:
Flest hafa þau reynslu af stafrænum umbreytingum og upplýsingatækni. Má þar nefna að Sigríður hefur gegnt lykilstöðum í upplýsingatæknifyrirtækjum og leitt stafræna þróun í fjármálakerfinu. Steinunn hefur auk einnig viðamikla reynslu af stafrænni þróun og nýsköpun í gegnum störf sín hjá Arion banka og Verði.
Reynsla af fjarskiptum:
Jóhannes hefur yfirgripsmikla reynslu af fjarskiptamarkaði í gegnum störf sín hjá Deutsche Bank og T-

Mobile og Jón Óttar hefur auk þess reynslu m.a. á grundvelli starfa sinna hjá Strax.
Reynsla af nýsköpun:
Nýsköpun er einn af lykilþáttum í stefnu Nova og nefndin hefur tryggt að stjórnin hafi sterka rödd á því sviði. Má nefna þar sem dæmi að Steinunn hefur mikla innsýn í nýsköpun og stafrænar umbreytingar, Sigríður hefur mikla reynslu af nýsköpun í upplýsingatækni og Jóhannes hefur auk þess starfað hjá einu af stærstu tæknifyrirtækjum heims.
Að loknu þessu mati er það niðurstaða tilnefningarnefndar Nova að stjórn félagsins, með þeim einstaklingum sem tilnefndir eru, muni hafa fjölbreytta reynslu og sérþekkingu til að styðja við áframhaldandi vöxt, samkeppnishæfni og stefnu Nova í síbreytilegu markaðsumhverfi.
Í samtölum við forstjóra Nova og stjórnarmenn kom fram að ánægja væri með samsetningu og samstarf stjórnar og að stjórnarmenn hefðu fjölbreytta reynslu og hæfni. Er það mat tilnefningarnefndar að núverandi stjórnarmenn séu hæfir til að gegna áfram stjórnarstörfum fyrir Nova en að Steinunn komi með verðmæta reynslu sem ekki er nú þegar á meðal þeirra. Byggir nefndin þá niðurstöðu á viðtölum við stjórnarmennina og greiningu á þeim út frá þeirri lykilhæfni sem áður hafði verið skilgreind. Það er mat nefndarinnar að hópurinn sem er tilnefndur sé líklegur til að starfa vel saman og eiga árangursríkt stjórnarstarf.
Með tillögu sinni telur nefndin að stjórn félagsins verði skipuð hæfum einstaklingum með fjölbreytta reynslu. Þau hafa starfað í ýmsum geirum atvinnulífsins og hafa sýnt einlægan áhuga á að skila árangursríku starfi hluthöfum og félaginu til hagsbóta.
Reykjavík, 20. mars 2025
Thelma Kristín Kvaran, formaður Margrét Kristmannsdóttir