Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Nova Klúbburinn AGM Information 2024

Feb 28, 2024

2207_agm-r_2024-02-28_8e7708df-117f-458f-9c97-f6e2f0650571.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Aðalfundur Nova Klúbbsins hf. 21. mars 2024

Stjórn Nova Klúbbsins hf. boðar til aðalfundar sem haldinn verður fimmtudaginn 21. mars 2024, klukkan 16:00, að Lágmúla 9, 108 Reykjavík, 4. hæð. Fundurinn verður einnig haldinn með rafrænum hætti og verða nánari upplýsingar um rafræna þátttöku hluthafa aðgengilegar á vef félagsins, https://www.nova.is/fjarfestar

Tillaga stjórnar að dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  • $\mathbf{1}$ . Kosning fundarstjóra og ritara
  • $21$ Skýrsla stjórnar um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári
  • Endurskoðaðir ársreikningar félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til samþykktar 3.
  • $\overline{4}$ . Tillaga stjórnar um greiðslu arðs og ráðstöfun hagnaðar
    1. Tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár með ógildingu eigin hluta og samsvararandi breytingu á samþykktum félagsins
  • Tillaga stjórnar um breytingu á sambykktum félagsins til þess að tryggja rétt $6.$ kynjahlutföll í stjórn félagsins
  • Skýrsla starfskjaranefndar 7.
  • Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins 8.
    1. Tillaga stjórnar um þóknun til stjórnarmanna og nefndarmanna í endurskoðunarnefnd, starfskjaranefnd og tilnefningarnefnd
  • $10.$ Skýrsla og tillögur tilnefningarnefndar um skipan stjórnar
  • $11.$ Stjórnarkjör
  • $12.$ Kjör tilnefningarnefndarmanna
  • $1313$ Tilnefning utanað komandi nefndarmanns í endurskoðunarnefnd
  • $14$ Tillaga stjórnar um kjör endurskoðenda
  • $151$ Tillaga stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutum, sbr. 55. gr. hlutafélagalaga
  • Önnur mál löglega fram borin $161$

Aðrar upplýsingar:

Öll skiöl og tillögur sem lagðar verða fyrir gðalfundinn verður gð finna á vef félagsins https://www.nova.is/fjarfestar. Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku.

Hluthafar geta látið umboðsmann sækja aðalfundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð til staðfestingar umboði sínu. Umboðum skal skila við skráningu á fundinn. Umboðsevðublöð má nálgast í skráningarferlinu við rafræna skráningu á fundinn og á vef félagsins.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, þurfa að skrá sig á www.lumiconnect.com/meeting/novaagm2024 fyrir kl. 16:00 þann 20. mars, eða degi fyrir fundardag. Skráningu á fundinn þarf að fylgja afrit af skilríkjum og umboð, ef við á.

Hægt verður gð greiða atkvæði á fundinum með rafrænum hætti og eru nánari upplýsingar um skráningu, rafræna þátttöku og rafræna atkvæðagreiðslu aðgengilegar á vef félagsins.

Eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn þarf beiðni hluthafa um gð kjósa með skriflegum hætti að berast félaginu.

Hluthafar eiga rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef þeir gera um það skriflega eða rafræna kröfu. Óski hluthafi eftir að koma máli eða tillögu á dagskrá hluthafafundarins skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] eigi síðar en 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16, mánudaginn 11. mars 2024.

Tilnefningarnefnd félagsins hefur lokið störfum og samkvæmt fyrirliggjandi skýrslu nefndarinnar aerir hún tillögu um að sitiandi stiórn verði endurskjörin, en núverandi stjórn skipa þau Sigríður Olgeirsdóttir, Hrund Rudolfsdóttir, Jóhannes Þorsteinsson, Jón Óttar Birgisson og Magnús Árnason. Skýrsla tilnefningarnefndar er meðfylgjandi fundarboði þessu og einnig aðgengileg á vef félagsins, https://www.nova.is/fjarfestar.

Tilkynna skal um framboð til stjórnar með minnst fimm sólarhringa fyrirvara fyrir upphaf aðalfundar, eða fyrir kl. 16, laugardaginn 16. mars 2024. Framboðum skal skila á skrifstofu Nova að Lágmúla 9, Reykjavík, eða á netfangið [email protected]. Framboðum til tilnefningarnefndar skal skilað með sama hætti innan sama frests. Framboðseyðublöð má nálagast á vef félagsins, https://www.nova.is/fiarfestar.

Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar og í tilnefningarnefnd verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn.

Hluthafar eiga rétt á að krefjast hlutfallskosningar eða marafeldiskosningar við stjórnarkjör í einn sólarhring frá því að stjórn kunngerir niðurstöður framboða til stjórnar, enda sé ekki sjálfkjörið.

Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn.

Fundargögn verða afhent frá kl. 15:30 á fundardegi.

Reykjavík, 28. febrúar 2024,

Stjórn Nova Klúbbsins hf.