Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Nova Klúbburinn AGM Information 2024

Mar 19, 2024

2207_rns_2024-03-19_b92db24a-96be-4171-b91f-84f5c6591fcc.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Nova Klúbburinn hf.: Aðalfundur 21. mars 2024 - Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar og skráningarfrestur

Nova Klúbburinn hf.: Aðalfundur 21. mars 2024 - Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar og skráningarfrestur

Eftirtalin gefa kost á sér til setu í stjórn Nova Klúbbsins hf. á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður fimmtudaginn, 21. mars 2024, kl. 16:00:

  • Hrund Rudolfsdóttir
  • Jóhannes Þorsteinsson
  • Jón Óttar Birgisson
  • Magnús Árnason
  • Sigríður Olgeirsdóttir

Framboðsfrestur er nú útrunninn og hefur stjórn félagsins staðfest lögmæti framboðanna. Í samþykktum Nova Klúbbsins hf. kemur fram að fimm skipa stjórn félagsins og er því sjálfkjörið í stjórn félagsins.

Eftirtaldar gefa kost á sér til setu í tilnefningarnefnd félagsins:

  • Margrét Kristmannsdóttir
  • Thelma Kristín Kvaran

Framboðsfrestur vegna framboða til setu í tilnefningarnefnd félagsins er einnig útrunninn og hefur stjórn staðfest lögmæti framboðanna. Starfsreglur tilnefningarnefndar gera ráð fyrir tveimur nefndarmönnum til setu í nefndinni og er því sjálfkjörið í hana.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna á vefsíðu félagsins, www.nova.is/fjarfestar.

Athygli er vakin á að hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, þurfa að skrá sig hér, fyrir kl. 16, þann 20. mars, eða degi fyrir fundardag. Skráningu á fundinn þarf að fylgja afrit af skilríkjum og umboð, ef við á.