Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Share Issue/Capital Change 2021

Feb 5, 2021

2191_rns_2021-02-05_a34e9f13-8e8e-41f8-828d-f887b86b8220.html

Share Issue/Capital Change

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Marel: Úthlutun kauprétta

Marel: Úthlutun kauprétta

Stjórn Marel hf. ákvað þann 5. febrúar 2021 að veita starfsmönnum kauprétti að allt að 4.831.000 hlutum í félaginu, þar af 1.505.000 til framkvæmdastjórnar. Kaupréttirnir verða veittir meðlimum framkvæmdastjórnar og tilteknum starfsmönnum félagsins í lykilstöðum.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 6. mars 2019 og í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 18. mars 2020.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 5,70 á hlut.* Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá útgáfudegi kaupréttanna.
  • Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti fjórum sinnum á ári eftir birtingu ársfjórðungsuppgjöra. Fyrsta nýtingartímabil mun hefjast eftir birtingu ársuppgjörs fyrir árið 2023, á fyrsta ársfjórðungi 2024. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til fyrsta ársfjórðungs ársins 2025, þegar samningar renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
  • Meðlimum framkvæmdastjórnar Marel ber að halda eftir hlutum sem nema fjárhæð hreins hagnaðar af kaupréttunum, þegar skattar hafa verið dregnir frá, þar til eftirfarandi fjárhæðarviðmiðum er náð, mælt í virði hlutafjáreignar í félaginu sem margfeldi af grunnárslaunum: forstjóri þrisvar sinnum árslaun; aðrir meðlimir framkvæmdastjórnar Marel tvisvar sinnum árslaun.

  • Aðrir kaupréttarhafar þurfa ekki að halda eftir hlutum.

  • Kaupréttur er aðeins gildur sé kaupréttarhafi í starfi hjá Marel (Marel hf. eða dótturfélaga þess) á nýtingardegi.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú 23,1 milljónum hluta, eða um 3,0% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 4,38 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:

Nafn Staða Nýr kaupréttur Áður úthlutaður, ónýttur kaupréttur Hlutafjáreign innherja Hlutafjáreign fjárhagslega tengdra aðila
Árni Oddur Þórðarson Forstjóri 400.000 1.952.000 72.643** 67.235
Linda Jónsdóttir Fjármálastjóri 215.000 1.350.000 339.817 0
Árni Sigurðsson Framkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga 215.000 1.640.000 117.317 100.000
Roger Claessens Framkvæmdastjóri kjúklingaiðnaðar 150.000 450.000 0 0
David Wilson Framkvæmdastjóri kjötiðnaðar 105.000 1.157.000 195.857 0
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir Framkvæmdastjóri fiskiðnaðar 105.000 240.000 0 0
Folkert Bölger Framkvæmdastjóri framleiðslu- og aðfangastýringar 105.000 700.000 17.862 0
Ulrika Lindberg Framkvæmdastjóri alþjóðamarkaða og þjónustu 105.000 450.000 0 0
Anna Kristín Pálsdóttir Framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar 105.000 267.000 0 0

Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á Euronext Amsterdam þann 5. febrúar 2021, þ.e. EUR 5,70 á hlut.

** Fruminnherji á jafnframt 17,9% hlut í Eyri Invest hf. sem er stærsti hluthafi Marel hf.