Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Share Issue/Capital Change 2018

Feb 12, 2018

2191_rns_2018-02-12_68d00034-3287-47aa-8915-0593c3b641d0.html

Share Issue/Capital Change

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Marel hf. - Veiting kauprétta

Marel hf. - Veiting kauprétta

Stjórn Marel hf. ákvað þann 12. febrúar 2018 að veita starfsmönnum kauprétti að allt að 4,1 milljónum hluta í félaginu.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Er þetta í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á síðasta aðalfundi Marel 2. mars 2017. Kaupréttirnir verða veittir meðlimum framkvæmdastjórnar félagsins ásamt hópi valdra starfsmanna í lykilstöðum.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 2,923 á hlut.[1] Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá útgáfudegi kaupréttanna.
  • Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október eftir birtingu ársfjórðungsuppgjöra. Fyrsta nýtingartímabil mun hefjast þegar eftir birtingu fyrsta ársfjórðungsuppgjörs ársins 2021. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til fyrsta ársfjórðungs ársins 2022, þegar samningarnir renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
  • Kaupréttarhafar þurfa að kaupa hlutabréf í Marel fyrir því sem nemur fjárhæð hreins hagnaðar af kaupréttunum þegar skattar hafa verið dregnir frá, og halda þeim bréfum til starfsloka hjá Marel.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú alls 14,0 milljónum hluta, sem nemur um 1,9% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 2,1 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:

Nafn Staða Nýr kaupréttur Áður úthlutaður, ónýttur kaupréttur Hlutafjáreign innherja Hlutafjáreign fjárhagslega tengdra aðila
Árni Oddur Þórðarson Forstjóri 650.000 960.000 64.634 67.235
Linda Jónsdóttir Fjármálastjóri 425.000 1.029.000 158.500 0
Árni Sigurðsson Yfirmaður stefnumótunar og þróunar 425.000 1.005.000 0 100.000
Anton de Weerd Yfirmaður alifuglaiðnaðar 250.000 905.000 15.000 0
David Wilson Yfirmaður kjötiðnaðar 250.000 947.000 27.300 0
Sigurður Ólason Yfirmaður fiskiðnaðar 250.000 805.000 0 0
Jesper Hjortshøj Yfirmaður frekari vinnslu 250.000 200.000 0 0
Davíð Freyr Oddsson Yfirmaður mannauðsmála 250.000 805.000 135.000 0
Folkert Bölger Yfirmaður alþjóðlegrar framleiðslu- og aðfangastýringar 250.000 0 17.862 0
Pétur Guðjónsson Yfirmaður viðskipta- og sölusviðs 250.000 1.120.000 219.430 0
Viðar Erlingsson Yfirmaður alþjóðlegrar nýsköpunar og þróunar 250.000 829.000 65.000 0

[1] Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á NASDAQ Iceland hf. þann 12. febrúar  2018, þ.e. ISK 366,00 á hlut, umreiknað með miðgengi Seðlabanka Íslands sama dag: EUR/ISK: 125,20