AI assistant
Marel — Report Publication Announcement 2021
Jan 20, 2021
2191_rns_2021-01-20_96b6db29-fedb-4917-8544-40e5dc955f97.html
Report Publication Announcement
Open in viewerOpens in your device viewer
Marel: Ársuppgjör 2020 birt 3. febrúar, rafrænn afkomufundur 4. febrúar 2021
Marel: Ársuppgjör 2020 birt 3. febrúar, rafrænn afkomufundur 4. febrúar 2021
Marel hf. mun birta ársuppgjör 2020 eftir lokun markaða þann 3. febrúar 2021.
Rafrænn afkomufundur með markaðsaðilum
Fimmtudaginn 4. febrúar 2021 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta. Fundurinn verður eingöngu rafrænn en þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fjórða ársfjórðungi og árinu í heild sinni.
Fundinum verður vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/ir eftir fundinn.
Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:
- IS: +354 800 7520
- NL: +31 10 712 9162
- UK: +44 33 3300 9262
- US: +1 833 526 8384
Fjárhagsdagatal
- Aðalfundur – 17. mars 2021
- 1F 2021 – 28. apríl 2021
- 2F 2021 – 21. júlí 2021
- 3F 2021 – 20. október 2021
- 4F 2021 – 2. febrúar 2022
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í síma 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú um 7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Árið 2019, velti Marel um 1,3 milljarði evra, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam í júní 2019.