Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Report Publication Announcement 2021

Dec 15, 2021

2191_rns_2021-12-15_cf95de9b-968c-4c27-aa1a-b512663a9a43.html

Report Publication Announcement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Marel: Fjárhagsdagatal 2022

Marel: Fjárhagsdagatal 2022

Marel mun halda aðalfund og birta árshluta- og ársuppgjör félagsins samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali:

Fjárhagsdagatal 2022

1F 2022 27. apríl 2022 Árshlutauppgjör. Fjárfestafundur 28. apríl 2022
2F 2022 27. júlí 2022 Árshlutauppgjör. Fjárfestafundur 28. júlí 2022
3F 2022 2. nóvember 2022 Árshlutauppgjör. Fjárfestafundur 3. nóvember 2022
4F 2022 8. febrúar 2023 Árshluta- og ársuppgjör. Fjárfestafundur 9. febrúar 2023
AGM 22. mars 2023 Aðalfundur Marel

Áður birt dagatal fyrir fjárhagsárið fyrir 2021 er óbreytt:

4F 2021 2. febrúar 2022 Árshluta- og ársuppgjör. Fjárfestafundur 3. febrúar 2022
AGM 16. mars 2022 Aðalfundur Marel

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða. Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Fjárfestafundir og vefvarp

Fjárfestum og öðrum markaðsaðilum er boðið á fjárfestafundi sem haldnir eru ársfjórðungslega. Fundirnir fara fram á ensku. Fundinum er vefvarpað beint á marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn. Markaðsaðilum gefst einnig tækifæri til að hringja inn á fundina.

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú um 7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Marel velti 1,2 milljörðum evra árið 2020, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam árið 2019.