Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Regulatory Filings 2020

Jun 4, 2020

2191_rns_2020-06-04_53c6e31d-ddae-40b5-a4ee-048dde8a8cd0.html

Regulatory Filings

Open in viewer

Opens in your device viewer

Marel: Tilkynning vegna samninga um viðskiptavakt

Marel: Tilkynning vegna samninga um viðskiptavakt

Þann 12. mars sl. birti Marel tilkynningu um að Kvika banki og Íslandsbanki, sem sinna viðskiptavakt með hlutabréf félagsins í Nasdaq kauphöllinni á Íslandi, hygðust beita heimild í samningum um viðskiptavaktir til þess að víkja frá skilyrðum samninganna í óviðráðanlegum aðstæðum hvað varðar verðbil og fjárhæðir á meðan slíkt ástand varir.

Kvika banki og Íslandsbanki hafa nú tilkynnt Marel um að ekki sé lengur talin þörf á því að nýta heimildir samninganna að þessu leyti og gilda því ákvæði um verðbil og fjárhæðir að nýju.

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið:[email protected] og í síma +354 563 8001.

Um Marel

Marel er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa um 6.300 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti um 1,3 milljarði evra árið 2019 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan árið 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam í júní 2019.