AI assistant
Marel — M&A Activity 2024
Jan 5, 2024
2191_rns_2024-01-05_39b83945-25ac-47d2-b87d-97d6611840e0.pdf
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning
05 January 2024 15:31:00 GMT
marel
Marel: Fjármálaeftirlitið veitir JBT framlengdan frest til 19. janúar 2024 til að birta lokaákvörðun um mögulegt yfirtökutilboð í Marel
Marel visar í fyrri tilkynningar til markaðar frá 24. nóvember 2023 og 13. desember 2023 varðandi óskuldbindandi viljayfirlýsingar frá John Bean Technologies Corporation ("JBT") um mögulegt tilboð í öll hlutabréf í félaginu. Í 102. gr. laga nr. 108/2007 um yfirtökur er kveðið á um að sé það gert opinbert að aðili ihugi að gera yfirtökutilboð, skuli hann birta lokaákvörðun um hvort hann hyggist leggja fram yfirtökutilboð innan sex vikna.
Marel hefur verið upplýst um að Fjármálaeftirlitið hafi veitt JBT tveggja vikna framlengingu á fresti til þess að birta lokaákvörðun um hvort það hyggist gera yfirtökutilboð í Marel. Með hliðsjón af framlengdum fresti skal JBT birta lokaákvörðun um hvort það hyggist gera yfirtökutilboð í Marel eigi síðar en 19. janúar 2024.
Á grundvelli langtímahagsmuna Marel og allra hluthafa félagsins, er enn unnið að því að meta framangreinda óskuldbindandi viljayfirlýsingu af kostgæfni, meðal annars með öflun itarlegri upplýsinga er varða efnisatriði yfirlýsingarinnar og, í samstarfi við ráðgjafa félagsins, með takmörkuðum og óformlegum samskiptum við JBT. Sem fyrr, liggur ekki fyrir nein vissa um hvort umrædd yfirlýsing muni leiða til formlegs skuldbindandi yfirtökutilboðs, eða hverjir skilmálar þess kunni að verða.
Marel mun halda markaðsáðilum timanlega upplýstum um gang mála í samræmi við upplýsingaskyldu félagsins.
JP Morgan er fjármálaráðgjafi Marel og lagalegir ráðgjafar eru Baker McKenzie (Bandarikin), BBA /Fjeldco (Ísland), og Osborne Clarke (Holland).
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í sima 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvisu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiskí. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvikkað starfsemi sina. Með kaupunum á Wenger 2022 myndast fjörða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa um 8.000 manns í yfir 30 löndum. Tekjur Marel námu um 1,7 milljarði evra árið 2022 en árlega fjárfestir Marel um 6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan 1992 og var lokið við tvihliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.
Marel
Austurhraun 9
IS-210 Gardabaer
Fréttatilkynning
05 January 2024 15:31:00 GMT
marel
Viðhengi
Marel: Fjármálaeftirlitið veitir JBT framlengdan frest til 19. janúar 2024 til að birta lokaákvörðun um mögulegt yfirtökutilboð i Marel
Marel
Austurhraun 9
IS-210 Gardabaer