AI assistant
Marel — M&A Activity 2024
Jun 24, 2024
2191_rns_2024-06-24_09edf1ad-cecd-4ced-a313-ca7daa3068b7.pdf
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
SAMANTEKT
| Hluti A — Inngangur og varnaðarorð | |
|---|---|
| Varnaðar-orð | Samantekt þessi skal lesin sem inngangur að lýsingu þessari („lýsingin“). Sérhver ákvörðun um að fjárfesta í JBT-tilboðsbréfum (eins og þau eru skilgreind að neðan) skal vera byggð á mati fjárfestis á lýsingunni, þar á meðal skjölum sem felld eru inn í lýsinguna með tilvísun, í heild sinni. Fjárfestar gætu tapað allri fjárfestingu sinni eða hluta hennar. Ef krafa vegna upplýsinga í lýsingunni er lögð fyrir dómstóla gæti stefnandi, í samræmi við landslög aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins, þurft að bera kostnað af þýðingu lýsingarinnar áður en málaferli hefjast. Þeir aðilar sem tekið hafa saman samantektina, þar á meðal þýðingar á henni, geta sætt skaðabótaábyrgð en aðeins að því marki sem samantektin er villandi, ónákvæm eða í ósamræmi þegar hún er lesin í samhengi við aðra hluta lýsingarinnar eða ef samantektein, lesin ásamt öðrum hlutum lýsingarinnar, veitir fjárfestum ekki lykilupplýsingar til að aðstoða við ákvarðanatöku um hvort fjárfesta eigi í slíkum verðbréfum. |
| Þessi samantekt er þýðing á enskum frumtexta sem finna má með lýsingunni. Ef eitthvað misræmi er til staðar á milli enska frumtextans og þessarar þýðingar, ber að styðjast við ensku útgáfu textans. | |
| Útgefandi, tilboðsgjafi og verðbréfin | Lýsing þessi varðar (i) útboð á hlutabréfum, að nafnvirði 0,01 Bandaríkjadalur á hlut, útgefnum af John Bean Technologies Corporation, 70 West Madison Street, Suite 4400, Chicago, Illinois 60602, Bandaríkjunum, með LEI kenninúmerið (LEI) 5493007CT6ATBZ2L6826 („JBT“) („JBT-tilboðsbréf“), til hluthafa Marel hf., Austurhraun 9, 210 Garðabæ, Íslandi, með LEI 5299008YTLEN09WTHW26 („Marel“) í tengslum við valfrjálst tilboð („tilboðið“) JBT, í gegnum dótturfélagið John Bean Technologies Europe B.V., Deccaweg 32, 1042 AD Amsterdam, Hollandi, með skráningarnúmer 63675013 („tilboðsgjafi“), til hluthafa Marel þar sem hver útgefinn og útistandandi hlutur í Marel, aðrir en eigin hlutir, er boðinn í skiptum fyrir, að vali hluthafa Marel, (a) endurgjald í reiðufé að fjárhæð 3,6 evrur, (b) endurgjald með 0,0407 JBT-tilboðsbréfum eða (c) sambland af reiðufé að fjárhæð 1,26 evrur og 0,0265 JBT-tilboðsbréf, háð skilmálum um hlutföllunarferli, eins og við á, sem lýst er í lýsingunni, og (ii) tóku JBT-tilboðsbréfa til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. („Nasdaq Iceland“). |
| Lögbært yfirvald | Lýsingin var staðfest af fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands („FME“) þann 20. júní 2024. FME er með skrifstofu að Kalkofnsvegi 1, 101 Reykjavík, Íslandi, með símanúmer +354 569 9600. |
| Hluti B — Lykilupplýsingar um félögin | |
| Hver er útgefandi JBT-tilboðsbréfanna? | |
| Aðsetur og félagaform | JBT er fyrirtæki sem stofnað var samkvæmt lögum Delaware-ríkis, hefur skráð aðsetur að 70 West Madison Street Suite 4400, Chicago, Illinois 60602, Bandaríkjunum, og er með LEI 5493007CT6ATBZ2L6826. |
| Marel er hlutafélag samkvæmt íslenskum lögum, með skráð lögheimili að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ, Íslandi og er með LEI 5299008YTLEN09WTHW26. | |
| Megin-starfsemi | JBT er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki á sviði tæknilausna og -þjónustu fyrir matvæla- og drykkjarvörugeirann. JBT hannar, framleiðir og þjónustar hápróaðar vörur og kerfi fyrir fjölbreytta endamarkaði og fær um það bil helming af árlegum tekjum sínum úr varahlutum, þjónustu, endursmiði og leigustarfsemi. Í lok árs 2023 störfuðu um það bil 5.100 manns hjá JBT um allan heim við sölu, þjónustu og framleiðslu í Meira en 25 lőndum. |
| Marel er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki í þróun og framleiðslu tækja, kerfa, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu, auk lausna fyrir vinnslu gæludýrafóðurs, plöntupróteina og fóðurs fyrir fiskeldi, með starfsemi í yfir 30 lőndum og sex heimsálfum og um það bil 7.300 starfsmenn. Marel hannar, framleiðir, selur og þjónustar hápróaðar vinnslulausnir, allt frá hefðbundnum tækjum til fullbúinna vinnslukerfa, |
1
2
| Helstu hluthafar | Samkvæmt upplýsingum JBT fara eftirfarandi tveir hluthafar með raunveruleg yfirráð yfir meira en 5% af hlutafé JBT, byggt á nýjustu upplýsingum sem skilað hefur verið inn til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Eignarhlutdeildin er reiknuð á grundvelli fjölda útistandanda hluta JBT auk hluta í JBT sem eru taldir útistandandi samkvæmt reglu 13d-3(d)(1) samkvæmt bandarískum verðbréfamarkaðslögum frá árinu 1934 þann 31. desember 2023: | ||||
|---|---|---|---|---|---|
| Nafn hluthafa | Fjöldi JBT-hluta | Eignarhlutdeild | |||
| BlackRock, Inc. | 5,183,478 | 16.28% | |||
| The Vanguard Group | 3,492,828 | 10.97% | |||
| Samkvæmt nýjustu opinberum upplýsingum frá 31. desember 2023 halda eftirfarandi hluthafar í Marel á meira en 5% af útistandandi hlutafé Marel: | |||||
| Nafn hluthafa | Fjöldi hluta (í milljónum) | Í krónum | Í evrum | Samtals | |
| ABN AMRO fyrir hónd Euroclear | 236.2 | 30.6% | - | - | |
| Eyrir Invest hf. | 98.4 | 12.8% | 11.9% | 24.7% | |
| Gildi – lífeyrissjóður | 51.2 | 6.7% | - | - | |
| Lífeyrissjóður verslunarmanna | 51.0 | 6.6% | - | - | |
| A- og B-deildir Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins | 41.4 | 5.4% | - | - | |
| Lykil-stjórn-endur | Lykilstjórnendur JBT eru eftirtaldir: Brian A. Deck, CEO, President og Board Director; Matthew J. Meister, Executive Vice President og Chief Financial Officer; Shelley Bridarolli, Executive Vice President og Chief Human Resources Officer; Luiz “Augusto” Rizzolo, Executive Vice President og President, Diversified Food and Health; Robert Petrie, Executive Vice President og President, Protein; James L. Marvin, Executive Vice President og General Counsel and Assistant Secretary; Kristina Paschall, Executive Vice President, Chief Information and Digital Officer; Jack Martin, Executive Vice President, Supply Chain; og Jessi L. Corcoran, Vice President, Corporate Controller og Chief Accounting Officer. | ||||
| Lykilstjórnendur Marel eru eftirtaldir: Arni Sigurdsson, CEO; Sebastian Boelen, Chief Financial Officer; David Freyr Oddsson, Chief Human Resources Officer; Arni Sigurjonsson, General Counsel; Sofie Cammers, Executive Vice President Meat; Roger Claessens, Executive Vice President Poultry; Vidar Erlingsson, Executive Vice President Software Solutions; Tatiana Gillitzer, Executive Vice President Service; Jesper Hjortshøj, Executive Vice President Retail and Food Service Solutions & Wenger Group; Ivo Rothkrantz, Executive Vice President Corporate Development; og Olafur Karl Sigurdarson, Executive Vice President Fish. | |||||
| Löggiltir endur-skoðendur | PricewaterhouseCoopers LLP, One North Wacker Drive, Chicago, Illinois 60606, Bandaríkjunum, er endurskoðunarfélag JBT. | ||||
| KPMG ehf., Borgartún 27, 105 Reykjavík, Íslandi, er endurskoðunarfélag Marel. | |||||
| Hverjar eru helstu fjárhagslegu upplýsingar um útgefanda? |
Lykilfjár-hagsupplysingar
Lykilfjárhagsupplysingar som syndar eru hér að neðan eru fengnar úr (i) samstæðureikningum JBT fyrir árín sem lauk 31. desember 2023, 2022 og 2021, ásamt skýringum, endurskoðu af PricewaterhouseCoopers LLP, óháðu endurskoðunarfélagi JBT, sem felldir eru inn með tilvísun til skýrslu JBT á eyðublaði 8-K, skilað inn til bandaríska verðbréfaeftirlitsins þann [18]. júní 2024, (ii) samstæðureikningum Marel ásamt skýringum fyrir hvert ár sem lauk 31. desember 2023, 2022 og 2021, sem útbúnir voru af Marel í samræmi við IFRS, (iii) óendurskoðu pro forma samanteknum fjárhagsupplysingum fyrir sameinað félag fyrir fjárhagsárð sem lauk 31. desember 2023 sem teknir voru saman í samræmi við lýsingarreglugerðina til þess að gefa lýsandi mynd af eignum, skuldum, fjárhagsstöðu og rekstrarniðurstöðu sameinaðs félags, (iv) samandregnum samstæðureikningum JBT fyrir ársfjörðungstímabilið sem lauk 31. mars 2024 og 2023 og skýringar sem felldir eru inn með tilvísun til fjörðungsskýrslu JBT á eyðublaði 10-Q sem skilað var inn til bandaríska verðbréfaeftirlitsins 2. maí 2024 og (v) samandregnum árshlutareikningi Marel fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2024 með samanburðartölum fyrir sama tímabil árið 2023, sem útbúinn var af Marel í samræmi við IFRS.
Lykilfjárhagsupplysingar fyrir JBT:
| (i milljónum dala) | Fjárhagsár til 31. desember | ||
|---|---|---|---|
| 2023 | 2022 | 2021 | |
| Tekjur | 1,664.4 | 1,590.3 | 1,400.8 |
| Vergur hagnaður | 585.7 | 529.4 | 482.1 |
| Rekstrarafkoma | 164.7 | 132.6 | 125.6 |
| Afkoma fyrir tekjuskatt | 153.1 | 120.0 | 119.5 |
| Afkoma af áframhaldandi starfsemi | 129.3 | 103.8 | 92.5 |
| Hagnaður | 582.6 | 137.4 | 119.1 |
| Aðlóguð EBITDA af áframhaldandi starfsemi... | $ 273.1 | $ 227.7 | 212.2 |
| (i milljónum dala) | 31. desember | ||
| --- | --- | --- | --- |
| 2023 | 2022 | 2021 | |
| Heildareignir | 2,710.4 | 2,641.0 | 2,185.1 |
| Eigið fé hluthafa | 1,488.9 | 905.4 | 786.4 |
| (i milljónum dala) | Fjárhagsár til 31. desember | ||
| --- | --- | --- | --- |
| 2023 | 2022 | 2021 | |
| Handbært fé frá áframhaldandi starfsemi | 74.2 | 135.2 | 174.9 |
| Fjárfestingarhreyfingar | 729.3 | (413.2) | (270.5) |
| Fjármögnunarhreyfingar | (354.1) | 270.6 | 80.8 |
| Gengishagnaður (tap) af handbæru fé | (1.2) | (2.5) | (2.3) |
| Hækkun (lækkun) handbærs fjár frá áframhaldandi starfsemi | 448.2 | (9.9) | (17.1) |
| (i milljónum dala) | Fyrstu þrír mánuðir | ||
| --- | --- | --- | |
| 2024 | 2023 | ||
| Tekjur | 392.3 | 388.5 | |
| Vergur hagnaður | 140.3 | 132.9 | |
| Rekstrarafkoma | 29.1 | 28.4 | |
| Afkoma fyrir tekjuskatt | 30.9 | 21.7 | |
| Afkoma af áframhaldandi starfsemi | 22.7 | 17.1 | |
| Hagnaður | 22.8 | 27.2 |
Aõlöguõ EBITDA af áframhaldandi starfsemi.. 57.4 54.4
| 31. mars | ||
|---|---|---|
| (í milljónum dala) | 2024 | 2023 |
| Heildareignir | 2,690.7 | 2,710.4 |
| Eigið fé hluthafa | 1,491.1 | 1,488.9 |
| Fyrstu þrír mánuðir | ||
| --- | --- | --- |
| 2024 | 2023 | |
| (í milljónum dala) | ||
| Handbært fé frá áframhaldandi starfsemi | 10.4 | 11.4 |
| Fjárfestingarheyfingar | (7.2) | (17.3) |
| Fjármögnunarheyfingar | (6.1) | (30.0) |
| Gengishagnaður (tap) af handbæru fé | (1.2) | (0.1) |
| Lækkun handbærs fjár frá áframhaldandi starfsemi | (4.1) | (36.0) |
Lykilfjárhagsupplysingar fyrir Marel:
| (í milljónum evra) | 2023 | 2022 | 2021 |
|---|---|---|---|
| Tekjur | 1,721.4 | 1,708.7 | 1,360.8 |
| Vergur hagnaður | 596.4 | 578.3 | 493.8 |
| Rekstrarafkoma | 93.6 | 97.0 | 130.3 |
| Afkoma fyrir tekjuskatt | 36.1 | 75.1 | 120.7 |
| Hagnaður | 31.0 | 58.7 | 96.2 |
| (í milljónum evra) | 2023 | 2022 | 2021 |
| --- | --- | --- | --- |
| Handbært fé frá rekstri, nettó | 138.1 | 51.4 | 176.2 |
| Fjárfestingarheyfingar | (95.9) | (567.2) | (121.4) |
| Fjármögnunarheyfingar | (45.1) | 505.9 | (64.3) |
| Hækkun / (lækkun) handbærs fjár | (2.9) | (9.9) | (9.5) |
| Gengishagnaður / (-tap) af handbæru fé | (2.9) | 8.5 | 8.0 |
| Handbært fé í lok tímabils | 69.9 | 75.7 | 77.1 |
| (í milljónum evra) | 2023 | 2022 | 2021 |
| --- | --- | --- | --- |
| Heildareignir | 2,599.8 | 2,696.4 | 2,005.0 |
| Eigið fé hluthafa | 1,041.6 | 1,028.1 | 1,015.1 |
| Fyrstu þrír mánuðir | |||
| --- | --- | --- | |
| 2024 | 2023 | ||
| (í milljónum evra) | |||
| Tekjur | 412.6 | 447.4 | |
| Vergur hagnaður | 148.5 | 152.7 | |
| Rekstrarafkoma | 11.9 | 23.1 | |
| Afkoma fyrir tekjuskatt | (2.0) | 10.0 | |
| Hagnaður | (3.2) | 9.1 | |
| Fyrstu þrír mánuðir | |||
| --- | --- | --- | |
| 2024 | 2023 | ||
| (í milljónum evra) | |||
| Handbært fé frá rekstri, nettó | 6.5 | 16.8 | |
| Fjárfestingarheyfingar | (11.3) | (31.8) | |
| Fjármögnunarheyfingar | (28.3) | 5.2 |
Hækkun / (lækkun) handbær fjár
(33.1)
(9.8)
Gengishagnaður / (-tap) af handbæru fé
(0.9)
(2.1)
Handbært fé í lok tímabils
35.9
63.8
(í milljónum evra)
31. mars 2024
31. mars 2023
Heildareignir
2,562.0
2,599.8
Eigið fé hluthafa
1,039.7
1,041.6
Óendurskoðaðar pro forma fjárhagsupplýsingar fyrir fjárhagsárið sem lauk 31. desember 2023:
| (í milljónum dala, nema hagnaður á hlut) | Sögulegar JBT-tölur | Sögulegar Marel-tölur (IFRS) aðlagaðar vegna endurflokkunar | IFRS GAAP aðlaganir | tíl | Aðlaganir vegna 'Transaction Accounting' | Aðlaganir vegna 'Transaction Financing' | Sameinaðar pro forma tölur |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Tekjur | 1,664.4 | 1,879.1 | - | - | - | - | 3,543.5 |
| Rekstrarhagnaður | 164.7 | 102.2 | (12.5) | (170.9) | - | - | 83.5 |
| Hagnaður (tap) af áframhaldandi starfsemi | 129.3 | 33.8 | (8.2) | (100.4) | (130.4) | (75.9) | |
| Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi | 4.04 | 0.04 | - | - | - | (1.46) | |
| Þynntur hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi | 4.02 | 0.04 | - | - | - | (1.46) |
Óendurskoðaðar pro forma fjárhagsupplýsingar fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2024:
| (í milljónum dala, nema hagnaður á hlut) | Sögulegar JBT-tölur | Sögulegar Marel-tölur (IFRS) aðlagaðar vegna endurflokkunar | IFRS GAAP aðlaganir | tíl | Aðlaganir vegna 'Transaction Accounting' | Aðlaganir vegna 'Transaction Financing' | Sameinaðar pro forma tölur |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Tekjur | 392.3 | 448.5 | - | - | - | - | 840.8 |
| Rekstrarhagnaður | 29.1 | 13.0 | - | (14.9) | - | - | 27.2 |
| Hagnaður (tap) af áframhaldandi starfsemi | 22.7 | (3.4) | 0.2 | (0.8) | (23.5) | (4.8) | |
| Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi | 0.71 | 0.00 | - | - | - | - | (0.09) |
| Þynntur hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi | 0.71 | 0.00 | - | - | - | - | (0.09) |
(í milljónum dala, nema
Sögulegar JBT-tölur
Sögulegar Marel-tölur (IFRS)
IFRS GAAP aðlaganir
tíl
Aðlaganir vegna
Aðlaganir vegna
Sameinaðar pro forma tölur
6
| hagnaður á hlut) | aðlagaðar vegna endurflokkun ar | ‘Transaction Accounting’ | ‘Transaction Financing’ | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Heildareignir Eigið fé hluthafa | 2,690.7 1,491.1 | 2,762.8 1,121.2 | (109.7) (82.3) | 364.1 773.5 | 1,542.3 - | 7,250.2 3,303.5 | |
| Hverjir eru helstu sértæku áhættupættir útgefandans? | |||||||
| Lykil-áhættur | • Tilboðið er háð skilyrðum sem hvorki JBT né Marel ráða yfir. | ||||||
| • Viðskiptin eru bundin skilyrðum um tiltekin nauðsynleg sambykki stjórnvalda og eftirlitsaðila sem geta tafið eða teflt framgangi viðskiptanna í hættu ef tafir verða á að slík sambykki fáist, slík sambykki verði ekki veitt eða verði veitt með óhagstæðum skilyrðum. Slíkt gæti leitt til aukakostnaðar og/eða dregið úr væntanlegum ávinningi viðskiptanna. | |||||||
| • JBT, Marel og tilboðsgjafinn geta fallið frá einu eða fleiri af skilyrðum tilboðsins án sambykkis hluthafa JBT eða Marel. | |||||||
| • Viðskiptin gætu ekki verið eins árangursrík og búist er við og sameinað félag gæti ekki náð tilættuðum ávinningi eða gert það innan fyrirhugaðs tímaramma og samþætingarkostnaður gæti farið fram úr áætlunum. | |||||||
| • Gert er ráð fyrir því að skuldsetning sameinaðs félags verði, eftir að viðskiptunum lýkur, umtalsvert meiri en skuldsetning JBT eða Marel á sjálfstæðum grundvelli og meiri en samanlögð skuldsetning JBT og Marel fyrir viðskiptin. Pessi aukna skuldsetning gæti haft slæm áhrif á sveigjanleika sameinaðs félags í rekstri og haft í fôr með sér aukinn lántökukostnað. | |||||||
| • Sameinuðu félagi gæti ekki tekist að halda í viðskiptavini eða birgja og viðskiptavinir eða birgjar gætu reynt að breyta samningsbundnum skuldbindingum við sameinað félag en hvort tveggja gæti haft slæm áhrif á rekstur og starfsemi sameinaðs félags. Þriðju aðilar gætu sagt upp eða breytt gildandi samningum eða sambandi við JBT eða Marel í aðdraganda eða vegna viðskiptanna. | |||||||
| • Fjárhagsleg afkoma JBT er háð sveiflum af völdum margra þátta sem geta leitt til þess að JBT nái ekki áættuðum fjárhagslegum árangri og að hlutabréfaverð JBT lækki. | |||||||
| • Upp safnað tap nokkurra mikilvægra samninga gæti haft neikvæð áhrif á rekstur, fjárhagsstöðu, rekstrarafkomu og sjóðstrey mi JBT. | |||||||
| • Ef lykilstarfsmenn hætta störfum eða ef JBT tekst ekki að laða að og halda í starfsfólk gæti það haft áhrif á getu JBT til þess að styrkja starfsemi sína. | |||||||
| • Ef Marel getur ekki haldið áfram að þróa og afhenda nýjar, tæknilega háþróaðar lausnir til viðskiptavina gæti það haft verulega neikvæð áhrif á rekstur félagsins, rekstrarafkomu og fjárhagsstöðu. | |||||||
| • Marel treystir á getu sína til þess að vaxa á árangursríkan hátt með langtímasamböndum við viðskiptavini. | |||||||
| • Umtalsverður hluti af tekjum Marel er þjónustu- og hugbúnaðartekur. Ef Marel tekst ekki að viðhalda stærð og áreiðanleika þessa hluta starfseminnar gæti það haft verulega neikvæð áhrif á rekstur, rekstrarafkomu og fjárhagsstöðu Marel. | |||||||
| Hluti C — Lykilupplýsingar um verðbréfin | |||||||
| Hverjir eru helstu eiginleikar verðbréfanna? |
| Tegund, flokkur og ISIN-númer | Nýútgefin JBT-tilboðsbréf, sem verða afhent sem endurgjald í tengslum við tilboðið, munu vera hlutabréf í almennum hlutaflokki JBT sem verða skráð í verðbréfaskráningu Nasdaq Iceland undir tákni og ISIN-númeri sem verða ákveðin áður en tilboðinu lýkur. |
|---|---|
| Gjaldmiðill, nafnverð og eining | JBT-tilboðsbréfin sem verða gefin út í tengslum við tilboðið og tekin til viðskipta hjá Nasdaq Iceland, að fengnu nauðsynlegu sambykki, verða í íslenskum krónum. Nafnvirði JBT-tilboðsbréfanna sem tekin verða til viðskipta hjá Nasdaq Iceland verður ákveðið áður en tilboðinu lýkur. |
| Réttindi sem fylgja hlutabréfunum | Eigendur hlutabréfa í JBT eiga rétt á einu atkvæði á hlut í öllum málum sem hluthafar JBT greiða atkvæði um. Með fyrirvara um réttindi sem kunna að eiga við um útistandandi JBT-forgangsbréf, eiga eigendur hlutabréfa í JBT rétt á því að fá greiddar arðgreiðslur, ef við á, eins og stjórn JBT ákveður á hverjum tíma af fjármunum sem eru löglega tiltækir í þeim tilgangi. Komi til gjaldþrótsakipta eða slita JBT eiga hluthafar JBT rétt á að fá hlutdeild í öllum eignum sem eftir standa eftir greiðslu skulda, með fyrirvara um réttindi sem fylgja útistandandi JBT-forgangsbréfum, ef einhver eru. Eigendur hlutabréfa í JBT hafa engan forkaupsrétt eða sambærilegan áskriftarrétt eða breytirétt. Engin innlausnarákvæði gilda um hlutabréf í JBT. |
| Takmarkanir á framsali | Engar takmarkanir á framsali fylgja hlutabréfum í JBT. |
| Arðgreiðslustefna | Ekki er fyrir hendi formleg arðgreiðslustefna innan JBT. Stjórn JBT getur ákveðið á hverjum tíma að JBT skuli greiða arðgreiðslur af útistandandi hlutabréfum á þann hátt og samkvæmt þeim skilmálum og skilyrðum sem kveðið er á um í lögum og sambykktum JBT. |
| Hvar munu viðskipti með verðbréfin fara fram? | |
| Taka til viðskipta | Hlutabréf í JBT eru skráð á NYSE undir tákninu “JBT”. JBT hyggst viðhalda skráningu hlutabréfanna á JBT undir tákninu “JBT” í kjólfar viðskiptanna. JBT hyggst taka nauðsynleg skref til þess að skrá öll eða hluta af JBT-tilboðsbréfunum hjá Nasdaq Iceland samkvæmt tákni og ISIN-númeri sem ákveðin verða áður en tilboðinu lýkur. |
| Hvað eru helstu sértæku áhættupættirnir fyrir verðbréfin? | |
| Lykiláhættur | Hluthafar Marel sem fá JBT-tilboðsbréf í viðskiptunum munu hafa réttindi sem hluthafar í JBT sem eru frábrugðin réttindum þeirra sem hluthafar í Marel. |
| Nasdaq Iceland gæti ekki sambykkt skráningu JBT-tilboðsbréfanna í kauphöll sína sem gæti takmarkað möguleika hluthafa til þess að eiga viðskipti með JBT-tilboðsbréfin. | |
| Hluti D — Lykilupplýsingar um tilboðið og töku verðbréfanna til viðskipta | |
| Hvaða skilyrði og tímaáætlun gildir um fjárfestingu í verðbréfunum? | |
| Skilmálar, tímaáætlun og upplýsingar um fyrirhug-aða skráningu | Samkvæmt skilmálum tilboðsins geta hluthafar Marel valið um að fá í skiptum fyrir hvern hlut í Marel (i) endurgjald í reiðufé að fjárhæð 3,60 evrur, (ii) endurgjald með 0,0407 JBT-tilboðsbréfum eða (iii) endurgjald í reiðufé að fjárhæð 1,26 evrur ásamt 0,0265 JBT-tilboðsbréfum, háð hlutföllunarferlinu, eins og við á, eins og lýst er í lýsingunni. Hluthafar í Marel geta valið um að fá JBT-tilboðsbréf skráð annað hvort á NYSE eða hjá Nasdaq Iceland (að því gefnu að skráning JBT-tilboðsbréfanna hjá Nasdaq Iceland verði sambykkt). |
| JBT hyggst taka nauðsynleg skref til þess að skrá öll eða hluta af JBT-tilboðsbréfunum hjá Nasdaq Iceland. JBT mun óska eftir því að JBT-tilboðsbréfin verði tekin til viðskipta hjá Nasdaq Iceland og útbúa og birta þá viðauka við lýsinguna sem nauðsynlegir eru. Skráning JBT-tilboðsbréfanna verður meðal annars háð því skilyrði að tilboðið gangi eftir. | |
| Fyrirhuguð tímaáætlun tilboðsins og viðskiptanna er sem hér segir: |
7
| 24. júní 2024: Tilboðstímabil hefst | |
|---|---|
| 2. september 2024: Tilboðstímabilinu lýkur (nema að því verði framlengt) | |
| 5. september 2024: Tilkynnt um niðurstöður tilboðsins | |
| 5. september 2024: Uppgjör tilboðsins | |
| Þynning | Að loknu tilboðstímabilinu og ef gert er ráð fyrir að öll útistandandi hlutabréf í Marel verði seld í tilboðinu, er búist við því að hluthafar JBT muni halda á um 62% af útistandandi hlutabréfum JBT og hluthafar Marel muni halda á um það bil 38% af útistandandi hlutabréfum JBT að teknu tilliti til JBT-tilboðsbréfanna sem gefin verða út í tengslum við tilboðið. |
| Væntur kostnaður | JBT áæltar að kostnaður félagsins í tengslum við viðskiptin verði um það bil 85 til 90 milljónir dala þar til tilboðinu lýkur. Umrædd kostnaðaráætlun felur í sér tilteknar forsendur fyrir ráðgjafakostnaði, lögfræðikostnaði, eftirlitskostnaði og tilteknum samþættingarkostnaði. Þá tekur þetta kostnaðarmat einnig til tilteknis kostnaðar sem er háður því að viðskiptin gangi eftir. Í kostnaðarmati þessu er ekki gert ráð fyrir forsendum sem tengjast kostnaði við langtímafjármögnun. |
| Hvers vegna er staðið að gerð lýsingarinnar? | |
| Ástæður fyrir útboði og töku til viðskipta | Lýsing þessi er útbúin (i) vegna útboðs á JBT-tilboðsbréfum sem endurgjalds til hluthafa Marel í tengslum við tilboðið og (ii) vegna fyrirhugaðrar skráningar JBT-tilboðsbréfanna á aðalmarkað Nasdaq Iceland. |
| Sölu-andvirði | Á ekki við. |
| Sölu-trygging | Á ekki við |
| Hags-muna-árekstrar | Engir verulegur hagsmunaárekstrar eru fyrir hendi í tengslum við tilboðið eða töku JBT-tilboðsbréfanna til viðskipta. |
8