AI assistant
Marel — M&A Activity 2024
Aug 8, 2024
2191_rns_2024-08-08_bc1e631e-0827-42ef-bceb-98124ed080b7.pdf
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning
08 August 2024 20:30:00 GMT
marel
Marel: Hluthafar JBT samþykkja fyrirhugaða sameiningu við Marel
Marel hefur verið upplýst um að á hluthafafundi John Bean Technologies Corporation (JBT), sem fram fór fyrr í dag, hafi heimild til útgáfu nýs hlutafjár í tengslum við valfrjálst tilboð félagsins í allt útistandandi hlutafé Marel hf. verið samþykkt. Frekari upplýsingar um hluthafafundinn og niðurstöður hans má finna í tilkynningu JBT, sem er aðgengileg hér.
Vinnu JBT og Marel við að uppfylla önnur skilyrði tilboðsins miðar vel. Félögin hafa skilað inn tilkynningum í viðeigandi löndum og landssvæðum um fyrirhugaða sameiningu og eiga nú í samskiptum við eftirlitsaðila um samþykki þeirra svo hægt verði að ganga frá viðskiptunum. Valfrjálst tilboð JBT rennur út kl. 17:00 að íslenskum tíma þann 2. september 2024, nema tilboðstíminn verði framlengdur í samræmi við samkomulag milli félaganna frá því í apríl 2024. JBT vinnur sömuleiðis að undirbúningi umsóknar um tviskráningu hlutabréfa félagsins á Nasdaq Iceland. Er þess vænst að viðskiptin gangi í gegin fyrir lok árs 2024.
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í sima 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvisu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu. Marel var stofnað árið 1983 og hjá félaginu starfa um 7.300 starfsmenn í yfir 30 löndum (þar af um 800 starfsmenn á Íslandi) og þjónusta viðskiptavini í yfir 140 löndum. Lykilmarkaðir félagsins eru í vinnslu alifugla, kjöts, fisks, gæludýrafóðurs, plöntupróteina og fóðurs fyrir fiskeldi. Félagið er skráð í Kauphöll Íslands og Euronext Amsterdam og skilaði 1,7 milljarði evra í tekjur árið 2023 (257 milljarðar króna), en 46% af heildartekjum koma frá þjónustu og varahlutum. Árlega fjárfestir Marel 5-6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun, eða um 15 milljörðum króna árið 2023, með áherslu á sjálfvirkni, róbóttækni og stafraenar lausnir sem tryggja örugg matvæli sem unnin eru á hagkvæman og sjálfbærar hátt. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.
Viðhengi
Marel: Hluthafar JBT samþykkja fyrirhugaða sameiningu við Marel
Marel
Austurhraun 9
IS-210 Gardabaer