Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel M&A Activity 2024

Aug 8, 2024

2191_rns_2024-08-08_2197c4ac-ab29-462e-8e7b-975831eaa443.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Marel: Hluthafar JBT samþykkja fyrirhugaða sameiningu við Marel

Marel: Hluthafar JBT samþykkja fyrirhugaða sameiningu við Marel

Marel hefur verið upplýst um að á hluthafafundi John Bean Technologies Corporation (JBT), sem fram fór fyrr í dag, hafi heimild til útgáfu nýs hlutafjár í tengslum við valfrjálst tilboð félagsins í allt útistandandi hlutafé Marel hf. verið samþykkt. Frekari upplýsingar um hluthafafundinn og niðurstöður hans má finna í tilkynningu JBT, sem er aðgengileg hér.

Vinnu JBT og Marel við að uppfylla önnur skilyrði tilboðsins miðar vel. Félögin hafa skilað inn tilkynningum í viðeigandi löndum og landssvæðum um fyrirhugaða sameiningu og eiga nú í samskiptum við eftirlitsaðila um samþykki þeirra svo hægt verði að ganga frá viðskiptunum. Valfrjálst tilboð JBT rennur út kl. 17:00 að íslenskum tíma þann 2. september 2024, nema tilboðstíminn verði framlengdur í samræmi við samkomulag milli félaganna frá því í apríl 2024. JBT vinnur sömuleiðis að undirbúningi umsóknar um tvískráningu hlutabréfa félagsins á Nasdaq Iceland. Er þess vænst að viðskiptin gangi í gegn fyrir lok árs 2024.

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu. Marel var stofnað árið 1983 og hjá félaginu starfa um 7.300 starfsmenn í yfir 30 löndum (þar af um 800 starfsmenn á Íslandi) og þjónusta viðskiptavini í yfir 140 löndum. Lykilmarkaðir félagsins eru í vinnslu alifugla, kjöts, fisks, gæludýrafóðurs, plöntupróteina og fóðurs fyrir fiskeldi. Félagið er skráð í Kauphöll Íslands og Euronext Amsterdam og skilaði 1,7 milljarði evra í tekjur árið 2023 (257 milljarðar króna), en 46% af heildartekjum koma frá þjónustu og varahlutum. Árlega fjárfestir Marel 5-6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun, eða um 15 milljörðum króna árið 2023, með áherslu á sjálfvirkni, róbótatækni og stafrænar lausnir sem tryggja örugg matvæli sem unnin eru á hagkvæman og sjálfbæran hátt. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.

Viðhengi: